Fyrstu vorlaxarnir komnir á land

Fyrsti vorlaxinn úr Tay í Skotlandi. Veiðimaðurinn er Robert Jamieson …
Fyrsti vorlaxinn úr Tay í Skotlandi. Veiðimaðurinn er Robert Jamieson og fékk hann fiskinn á veiðistað sem heitir Longhead. Um það bil 12 punda fiskur. Ljósmynd/Islamouth Fishings

Víða opnuðu laxveiðiár í Skotlandi og á Írlandi í gær. 1. febrúar markar upphaf laxveiðinnar á Bretlandseyjum þó svo að nokkrar ár opni enn fyrr eða 15. janúar og stöku ár opnuðu á nýársdag á Írlandi.

Fyrstu laxarnir veiddust í dag. Þeir voru ekki margir en fréttir af þeim sem veiðimenn náðu hafa farið víða. Sporðaköst hafa fengið sendar myndir af nokkrum af þessum nýrenningum og þeir eru virkilega flottir. Þessi hvíti, hvíti litur og ferskleika blær á þeim.

Mikið vatn er í flestum ám í Skotlandi eftir mikla storma og úrkomutíð. Svæðið Islamouth í ánni Tay státaði af fallegum tólf punda laxi í gær. Það var Robert Jamieson sem veiddi þann fyrsta úr veiðistaðnum Longhead. Eins og sjá má á myndinni er Robert hálf kuldalegur þar sem hann stillir sér upp með „springerinn“ eða vorlaxinn eins og þeir kalla þessu fyrstu fiska.

Þessi veiddist í gær í ánni Oich sem rennur í …
Þessi veiddist í gær í ánni Oich sem rennur í Loch Ness. Silfurbjartur tólf pundari. Ljósmynd/Ness District Salmon Fishery

Frést hefur af öðrum laxi úr Tay og veiddist sá á svokölluðu Taymount svæði. Þá var staðfestur lax úr ánni Oich í Skotlandi sem rennur í Loch Ness. Fiskurinn var ekki neitt skrímsli en fallegur um það bil tíu punda lax.

Þessir fyrstu fiskar sem mæta á þessum tíma árs hrygna samt ekki fyrr en með þeim löxum sem koma að sumri og hausti. Þeir eru um tíu mánuði í ánni áður en þeir hrygna.

Fyrsti laxinn á nýársdag

Raunar eru töluvert síðan að fyrstu laxinn veiddist á Írlandi. Það gerðist á nýársdag en þá veiddi James Kenny nýgenginn lax í ánni Leannan. Hann tók agnhaldslausa flugu og var sleppt að lokinni viðureign. Það þykir mikill heiður að fá fyrsta lax ársins en sjaldgæft er að það gerist á fyrsta degi ársins.

Það var góð stemming í bænum Kelso við ána Tweed …
Það var góð stemming í bænum Kelso við ána Tweed í gær þegar fyrsti veiðidagurinn rann upp. Hér er haldið í gamlar hefðir og laxveiðiiðnaðurinn skiptir miklu máli fyrir mörg sveitarfélög í Skotlandi. Ljósmynd/Atlantic Salmon Fishing

Víða klæddu menn og konur sig upp í gær í tilefni dagsins en mörg þeirra samfélaga sem eru í kringum skosku árnar eiga mikið undir efnahagslega að veiðimenn sæki þær heim þann tíma sem veiði er leyfð í þessum ám.

Hin svokallaða vorveiði um hávetur hefur verið á niðurleið hin síðari ár, eins og veiðitölur frá Skotlandi sýna. Byrjunin núna er dæmi um það. Fiskarnir eru fáir og langt á milli þeirra. En menn vonast alltaf til að næstu dagar verði betri og með sjatnandi vatni í mörgum þessum ám fari hann að taka, ef hann er mættur. Dee og Tweed og fleiri hafa ekki enn getað hampað fyrsta vorlaxinum en það gerist vonandi á allra næstu dögum.

Íslenskir laxveiðimenn þurfa ekki að bíða nema í fjóra mánuði þar til tímabilið hefst hér á landi.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert