Greinar föstudaginn 8. mars 1996

Forsíða

8. mars 1996 | Forsíða | 184 orð

Einvígi FIDE í Bagdad

KIRSAN Ilúmjinov, forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE), sagði í gær að næsta heimsmeistaraeinvígi í skák yrði haldið í Bagdad, höfuðborg Íraks, þrátt fyrir að Írakar væru í ónáð víðast hvar í heiminum. Meira
8. mars 1996 | Forsíða | 106 orð

Kínverjar skjóta flaugum við Tævan

STJÓRNVÖLD á Tævan sögðu í gærkvöldi að Kínverjar hefðu í gær hafið tilraunir með flugskeyti skammt frá Tævan. Í tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti Tævans sagði að skotið hefði verið tveimur skeytum, sem féllu hvort á sitt hafsvæðið, annað 30 og hitt 20 sjómílur frá Tævan. Bandaríkjamenn fordæmdu í gærkvöldi tilraunaskotin. Meira
8. mars 1996 | Forsíða | 354 orð

Rússar og Tsjetsjenar berjast í návígi í Grosníj

RÚSSNESKIR hermenn og tsjetsjenskir uppreisnarmenn börðust í návígi í miðborg Grosníj í gær og stóðu mestu átökin um sjónvarpsstöðina í borginni. Á sama tíma tilkynnti Borís Jeltsín, forseti Rússlands, að hann og nánustu ráðgjafar hans, hefðu samþykkt áætlun um að binda enda á stríðið í Tsjetsjníju. Meira
8. mars 1996 | Forsíða | 286 orð

Vill alþjóðaherferð gegn hryðjuverkum

PALESTÍNSKA lögreglan hélt í gær áfram að ráðast inn í hús og íslamskar stofnanir á Vesturbakkanum og Gaza í leit að liðsmönnum Hamas-samtakanna og Ísraelar juku enn öryggisviðbúnaðinn við mörk sjálfstjórnarsvæða Palestínumanna. Meira

Fréttir

8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 95 orð

3% voru réttindalausir

LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði á þriðjudag rúmlega 100 bíla í borginni til að kanna réttindi ökumanna. Ökumenn þriggja reyndust hafa verið sviptir ökuréttindum vegna ölvunar- eða ofsaaksturs. Mennirnir voru færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu og þaðan verða mál þeirra send til dómsmeðferðar. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 34 orð

Aðalfundur Náttúrulækningafélags

NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG Reykjavíkur heldur aðalfund laugardaginn 9. mars í húsnæði félagsins að Laguavegi 20b. Gunnlaugur K. Jónsson, forseti NLFÍ, flytur framsöguerindi um framtíð og stefnu NLFÍ og aðildarfélaga þess. Kaffiveitingar verða í boði. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 118 orð

Aðeins 85% EES-reglna lögleiddar

LÖGLEIÐING reglna Evrópska efnahagssvæðisins gengur of hægt fyrir sig hér á landi, að sögn Björns Friðfinnssonar, eftirlitsfulltrúa hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Um 91,6% allra gerða EES-samningsins hafa verið færð inn í íslenzka löggjöf, en þar af hafa ekki nema 85,6% verið lögleidd án galla eða villna. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 499 orð

Athugasemd frá Augnlæknafélagi Íslands

MORGUNBLAÐINU hefur borist athugasemd frá formanni Augnlæknafélags Íslands, Eiríki Þorgeirssyni, við frétt í Morgunblaðinu fimmtudaginn 7. mars um sjónmælingar á Íslandi. 1. Þau áróðursrök sjóntækjafræðinga, að gleraugnaverð á Íslandi geti lækkað ef þeir mæli sjálfir fyrir þeim, eru augljóslega röng. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 1601 orð

Aukið samstarf við ESB hefur ekki gengið eftir

DREGIÐ hefur mjög úr sameiginlegum málflutningi Norðurlandanna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna eftir að Finnland og Svíþjóð gengu í Evrópusambandið í byrjun seinasta árs. Málum, þar sem Norðurlöndin fluttu mál sitt sameiginlega, fækkaði úr 43 í sex á milli ára og er jafnvel rætt um hrun í samstarfinu. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 104 orð

Banki sýknaður af kröfum eigenda Stöðvar 2

HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær Íslandsbanka af öllum kröfum Fjölmiðlunar hf. og sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem hafði dæmt bankann til að greiða eigendum Fjölmiðlunar 23 milljónir króna auk vaxta fyrir að hafa ekki aflað nægra upplýsinga um stöðu Stöðvar 2 og ekki gefið fulltrúum Fjölmiðlunar rétta mynd af stöðu fyrirtækisins þegar eigendur Fjölmiðlunar hf. Meira
8. mars 1996 | Miðopna | 1518 orð

Eimskip hefur notið virkrar samkeppni

pAðalfundur Eimskips var haldinn í gær pÁrið 1995 var ár umtalsverðrar hagræðingar og undirbúningur hófst að miklum breytingum Eimskip hefur notið virkrar samkeppni Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 258 orð

Engin húsleit var gerð

JÓN H. Snorrason, deildarlögfræðingur hjá RLR, sækjandi málsins gegn starfsmönnum sjávarútvegsfyrirtækja vegna viðskipta við þýska fisksölufyrirtækið L¨ubbert, segir það byggt á misskilningi hjá lögmanni fyrrverandi framkvæmdastjóra Ósvarar í Bolungarvík að við upphaf rannsóknar málsins hafi farið fram húsleit án dómsúrskurðar eða samþykkis húsráðanda. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 698 orð

"Enn ein aðförin að öryrkjum"

LIÐLEGA 100 manna hópur safnaðist saman við ráðuneyti heilbrigðis- og tryggingamála í hádeginu í gær til að mótmæla niðurskurði heimildaruppbóta í almannatryggingakerfinu. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík og landssamband fatlaðra, stóðu fyrir mótmælastöðunni og báru félagsmenn kröfuspjöld málstað sínum til stuðnings. Meira
8. mars 1996 | Akureyri og nágrenni | 251 orð

Eysteinn og FMN með lægstu tilboðin

SJÖ tilboð bárust í rekstur ms. Sæfara næstu þrjú ár en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerð ríkisins í vikunni. Um er að ræða fólks- og vöruflutninga til og frá Grímsey og vöruflutninga frá Hrísey. Eysteinn Yngvason úr Reykjavík, núverandi rekstraraðili Sæfara, átti lægsta tilboðið miðað við tilhögun 1 en Flutningamiðstöð Norðurlands á Akureyri miðað við tilhögun 2. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 246 orð

Feta-ostur verður að koma frá grískri geit

FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins hefur tekizt að fá danska mjólkuriðnaðinn upp á móti sér. Framkvæmdastjórnin hefur komizt að þeirri niðurstöðu að ekki megi framleiða ost undir nafninu feta nema í Grikklandi og þá verður hann að vera framleiddur úr geitamjólk. Meira
8. mars 1996 | Akureyri og nágrenni | 644 orð

Fjórar fjölskyldur tekið ákvörðun um að flytja

ÚTLIT er fyrir mikla fólksfækkun í Grímsey á næstu mánuðum en a.m.k. fjórar fjölskyldur, alls um 17 manns, hafa tekið ákvörðun um að flytja upp á fasta landið. 1. desember voru 117 íbúar í Grímsey og hafði fækkað um tvo frá árinu áður. Ef að líkum lætur á íbúafjöldinn því eftir að fara niður í um 100 áður en langt um líður. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 97 orð

Fjórtán umsóknir

FJÓRTÁN sækja um starf yfirmanns Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkurborgar en umsóknarfrestur rann út 26. febrúar sl. Umsækjendur eru: Arnar Sverrisson sálfræðingur, Benedikt Sigurðsson skólastjóri, Gerður G. Óskarsdóttir æfinga- og kennslustjóri, Gunnlaugur Ástgeirsson kennari, Hugó Þórisson sálfræðingur, Margrét S. Björnsdóttir endurmenntunarstjóri, Már V. Másson sálfræðingur, Ólafur H. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 662 orð

Fjölbreytt dagskrá á Viku eldri borgara

FÉLAG eldri borgara í Reykjavík og nágrenni gengst í næstu viku fyrir Viku eldri borgara þar sem boðið er upp á margvíslega dagskrá með leik og skemmtun af ýmsu tagi. Ótal aðilar hafa komið fram og boðið félaginu starfskrafta sína svo að vel geti tekist til. Er félagsstjórn þakklát öllum þeim sem styðja þannig málefni félagsins, segir í fréttatilkynningu. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 150 orð

Flugmaður gerði mistök

LÍKUR benda til þess að Boeing-757 þota tyrkneska flugfélagsins Birgenair, sem hrapaði í hafið undan strönd Dómíníska lýðveldisins fyrir mánuði, hafi farist vegna mistaka flugmanns og bilunar í hraðamæli. Þetta kom fram í máli talsmanns þýska samgönguráðuneytisins í gær. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 168 orð

Frakkar tvístíga gagnvart ESB-gjaldmiðli

FRANSKA þjóðin er klofin í afstöðu sinni til sameiginlegs evrópsks gjaldmiðils, samkvæmt nýrri skoðanakönnun, en tæpur meirihluti kjósenda sem tók afstöðu er þó fylgjandi áformum Evrópusambandsins. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 72 orð

Fræðsluhelgi í Landakirkju

FRÆÐSLUHELGI Landakirkju á þessu vormisseri snýst um forvarnir gegn vímuefnum. Á laugardaginn kl. 16 mun Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur, halda erindi í safnaðarheimilinu um samskipti foreldra og unglinga. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 89 orð

Fækkar í Grímsey

FÓLKSFÆKKUN er fyrirsjáanleg í Grímsey, en fjórar fjölskyldur, alls 17 manns, hafa ákveðið að flytja upp á fastalandið. Íbúar í Grímsey voru 117 1. desember síðastliðinn og hafði þá fækkað um 2 frá árinu áður. Íbúafjöldinn á því eftir að fara niður í 100 áður en langt um líður. Ýmsar ástæður Meira
8. mars 1996 | Landsbyggðin | 117 orð

Garðbæingar í heimsókn

Húsavík-Taflfélag Garðabæjar heimsótti Taflfélag Húsavíkur um síðustu helgi og tefldu félagarnir mikið við skákfélagana á Húsavík á föstudag, laugardag og sunnudag. Alls voru gestirnir átta úr öllum aldursflokkum, svo að mikil barátta fór fram á átta borðum. Ekki var um beina bæjarkeppni að ræða heldur kynningar- og æfingamót. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 709 orð

Gengið verði frá málum í tengslum við kjarasamninga

ÞESS var krafist að ríkisstjórnin drægi þegar til baka frumvörp um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og sáttastörf í vinnudeilum á sameiginlegum fundum opinberra starfsmanna ­ BSRB, BHMR og Kennarasambands Íslands ­ á Landspítalanum og í Háskólabíói í gær. Meira
8. mars 1996 | Miðopna | 608 orð

Góð afkoma varð af rekstri á síðasta ári

AFKOMA Eimskips var góð á árinu 1995 sem skapar félaginu skilyrði til fjárfestinga og aukinnar þjónustu. Unnið hefur verið að mörgum nýjum verkefnum og munu sjást umtalsverðar breytingar í starfsemi Eimskips á næstu misserum þar sem þjónustan verður aukin og nýir þjónustuþættir í flutningatengdri starfsemi bætast við. Meira
8. mars 1996 | Akureyri og nágrenni | 63 orð

Hátt uppi

STARFSMENN RARIK, þeir Ásbjörn Gíslason og Sigurjón Sveinbjörnsson, voru nokkuð hátt uppi í góða veðrinu í gær, en þeir voru að vinna við nýja háspennulínu fyrir Svalbarðseyri. Þeir félagar hafa oft þurft að vinna við erfiðari aðstæður á þessum árstíma, á svipuðum tíma í fyrra voru þeir að mæla upp í háspennulínur en þá var gífurlega mikill snjór á Norðurlandi. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 273 orð

Hertar aðgerðir samþykktar FULLTRÚADEI

FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings samþykkti á miðvikudag með 336 atkvæðum gegn 86 að efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Kúbu yrðu hertar og verða lögin nú send Bill Clinton forseta til staðfestingar. Erlend fyrirtæki verða beitt refsingum fyrir að eiga viðskipti við Kúbu og hafa Kanada og fleiri ríki harðlega mótmælt lögunum. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 443 orð

Hryggð lýst vegna aðfarar að biskupnum

AÐALFUNDUR Prófastafélags Íslands samþykkti í gær ályktun þar sem lýst er hryggð og áhyggjum vegna þeirrar aðfarar sem gerð hefur verið að biskupi Íslands eins og komist er að orði. Eðlilegt sé að fela málið dómbærum aðilum og er það fullvissa fundarins að þá muni sakleysi biskupsins sannast. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 137 orð

Hægt að kenna sig við báða foreldra

HEIMILT verður að nota eignarfall eiginnafns foreldris sem millinafn barns samkvæmt breytingartillögu allsherjarnefndar Alþingis við lagafrumvarp um mannanöfn. Samkvæmt því eru heimil nöfn eins og Pétur Guðrúnar Jónsson eða Guðrún Steinunnar Briem, að því er kemur fram í áliti nefndarinnar. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 568 orð

Hættusvæðum skipt í reiti til að tryggja öryggi íbúa

REITASKIPT kort og rýmingaráætlanir fyrir átta þéttbýlisstaði á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi verða kynntar heimamönnum í lok næstu viku. Veðurstofan hefur á undanförnum vikum unnið að gerð svokallaðra rýmingarkorta vegna snjóflóða og skriðufalla í samvinnu við almannavarnanefndir og íbúa á Patreksfirði, Ísafirði, Bolungarvík, Flateyri, Súðavík, Siglufirði, Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 207 orð

IRA hafnar vopnahléi

ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) greindi frá því í gær að hann hefði ekki í hyggju að lýsa yfir vopnahléi á ný en það er forsenda þess að hinn pólitíski armur samtakanna, Sinn Fein, fái aðild að friðarviðræðunum. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 95 orð

Í átt til himins

PETRONA-skýjaklúfarnir í Kuala Lumpur í Malaysíu eru óðum að taka á sig endanlega mynd en stefnt er að því að þeir verði fullbúnir fyrir árslok. Arkitekt bygginganna er Cesar Pelli. Þegar er búið að koma fyrir stálsúlu á öðrum skýjaklúfnum og hefur hann því náð endanlegri hæð, 451,9 metrum. Meira
8. mars 1996 | Akureyri og nágrenni | 231 orð

Karlakór í Glerárkirkju

KARLAKÓR Bólstaðarhlíðarhrepps og Gamlir Geysisfélagar efna til tónleika í Glerárkirkju annað kvöld, laugardaginn 9. mars, kl. 20.30. Þá efnir kórinn til tónleika í Ólafsfirði kl. 16 sama dag. Kórinn átti 70 ára afmæli á síðasta ári, stofnendur voru 8 en nú eru í kórnum nálægt 30 félagar. Söngskráin er fjölbreytt. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 429 orð

Kirkjan gagnrýnd fyrir að mæla gegn vígslu

ÞJÓÐKIRKJAN var gagnrýnd á Alþingi á þriðjudag fyrir að mæla gegn því að veita lagaheimild til kirkjulegrar vígslu samkynhneigðra. Verið var að ræða frumvarp dómsmálaráðherra um staðfesta samvist, en samkvæmt því geta tveir einstaklingar af sama kyni fengið samvist staðfesta af borgaralegum yfirvöldum og njóta eftir það svipaðra réttinda og eftir stofnun hjúskapar, Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 41 orð

Kínaklúbbur Unnar

UNNUR Guðjónsdóttir kynnir næstu Kínaferð Kínaklúbbs Unnar laugardaginn 9. mars að Reykjahlíð 12 kl. 14. Þetta verður 22 daga hringferð um Kína sem hefst 7. maí en þetta verður eina ferðin til Kína sem Unnur skipuleggur á þessu ári. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 189 orð

Klofningur útilokar ekki aðild Kýpur

HANS van den Broek, sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að Kýpur geti orðið aðildarríki ESB þótt tyrkneskumælandi minnihlutinn hafi sagt sig úr lögum við stjórnina í Nikósíu og landið sé í raun klofið. Van den Broek segir ekki hægt að líta framhjá því að meirihluti íbúa landsins vilji ESB-aðild. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 48 orð

Konur Biblíunnar

BOÐIÐ verður upp á námskeið í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í Garðabæ laugardagana 9., 16., 23. og 30. mars. Fjallað verður um hefðbundna túlkun og viðhorf kvenna í sögum Biblíunnar. Námskeiði er frá klukkan 13­14 Kennari er dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, guðfræðingur, og eru allir sem hafa áhuga velkomnir. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 95 orð

Könnun á kynferðislegri áreitni

FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur falið Vinnueftirliti ríkisins og Skrifstofu jafnréttismála að gera könnun á kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Þetta kemur fram í febrúarhefti BSRB tíðinda. Könnunin er hluti af framkvæmdaáætlun um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna, en áætlunin var samþykkt á Alþingi vorið 1993. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 202 orð

Leikskóli verður byggður við Hæðargarð

BORGARRÁÐ hefur samþykkt með þremur atkvæðum meirihlutans að byggja fjögurra deilda leikskóla við Hæðargarð. Jafnframt var embætti borgarverkfræðings falið að kanna möguleika á úrbótum í umferðarmálum í nágrenni leikskólans. Meira
8. mars 1996 | Akureyri og nágrenni | 151 orð

Lögreglu meinaður aðgangur að skemmtistað

TVEIMUR lögreglumönnum á eftirlitsferð um miðbæ Akureyrar var meinaður aðgangur að skemmtistaðnum 1929. Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Akureyri sagði að lögreglumenn, sem sinntu eftirliti í miðbænum um helgar, kæmu oft við á skemmtistöðum bæjarins, m.a. til að kanna aldur gesta staðarins og fylgjast með störfum dyravarða. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 51 orð

Mandela hress

NELSON Mandela, forseti Suður-Afríku, veifar til blaðamanna er hann yfirgefur ásamt lífverði sínum sjúkrahús í Jóhannesarborg. Eftir tveggja daga rannsóknir á heilsu forsetans komust læknar að þeirri niðurstöðu að hann væri við hestaheilsu. Orðrómur hafði verið á kreiki um að Mandela væri heilsuveill og haft áhrif á peningamarkaði. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 64 orð

Málþing um velferð barna

MÁLÞING um velferð barna og ungmenna verður haldið í Hlégarði laugardaginn 9. mars kl. 13­16.30. Í fréttatilkynningu frá félagsmálastjóra Mosfellsbæjar segir að málþinginu sé ætlað að vekja fólk til umhugsunar um velferð barna og ungmenna á grunnskólaaldri og samstilla krafta þeirra sem vinna með börnum og ungmennum. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 126 orð

Með róandi lyf til Reykjavíkur

FÍKNIEFNALÖGREGLAN í Reykjavík handtók mann á Reykjavíkurflugvelli á miðvikudag, en hann var að koma austan af fjörðum. Maðurinn var grunaður um að hafa brotist inn í apótekið á Fáskrúðsfirði og lyf, sem fundust á honum við komuna til Reykjavíkur, renndu stoðum undir þær tilgátur. Meira
8. mars 1996 | Akureyri og nágrenni | 28 orð

Messur

LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkjuskóli verður á morgun, laugardag 9. mars, kl. 11 í Svalbarðskirkju og kl. 13.30 í Grenivíkurkirkju. Kyrrðar- og bænastund í Grenivíkurkirkju sunnudagskvöld 10. mars kl. 21. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 230 orð

Mikið áfall fyrir söfnuðinn

"ÞAÐ er ekki hægt að segja til um það nú hvort kirkjan verður endurbyggð í núverandi mynd, hvort ný verður reist eða yfirleitt til hvaða ráða er hægt að grípa. Það er mikið áfall fyrir söfnuðinn ef kirkjan reynist ónýt, því Borgfirðingum þykir vænt um hana. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 768 orð

Mikill velvilji í garð Norðurlanda

Þetta er fyrsta diplómatíska staða mín og vissulega mikil breyting frá fyrra starfi," segir Stephen P. Gawe, sendiherra Suður-Afríku í Ósló. Hann afhenti í síðustu viku trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Suður-Afríku á Íslandi. "Nú er ég fulltrúi allrar þjóðarinnar en ekki eins flokks einvörðungu. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 69 orð

Mótmæla niðurskurði til öryrkja

LIÐLEGA 100 manna hópur safnaðist saman við ráðuneyti heilbrigðis- og tryggingamála í hádeginu í gær til að mótmæla niðurskurði heimildaruppbóta í almannatryggingakerfinu. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík og landssamband fatlaðra, stóðu fyrir mótmælastöðunni og báru félagsmenn kröfuspjöld málstað sínum til stuðnings. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 447 orð

Ný brú á Flókadalsá og vegurinn lagfærður

NÝ BRÚ yfir Flókadalsá í Borgarfirði verður væntanlega gerð á þessu ári. Núverandi vegur um Reykholtsdal verður líklega lagfærður á næsta ári. Unnið er að svæðisskipulagi og ákvarðanir um frekari vegalagningu verða ekki teknar fyrr en það liggur fyrir. "Mér finnst þetta tímamótaákvörðun," sagði Jón Kjartansson á Stóra- Kroppi í gær. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 48 orð

Nýskipan náttúruverndarmála

HÁDEGISVERÐARFUNDUR verður haldinn í dag, föstudag, um nýskipan náttúruverndarmála í Skála (tengibyggingu) á 2. hæð á Hótel Sögu kl. 12­13.30. Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra og Aðalheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs, flytja erindi á fundinum en að þeim loknum svara þau spurningum. Fundarstjóri er Ólafur Örn Haraldsson alþingismaður. Meira
8. mars 1996 | Landsbyggðin | 208 orð

Nýtt merki fyrir Kaupfélag Héraðsbúa

Egilsstöðum-Kaupfélag Héraðsbúa efndi til samkeppni um nýtt merki fyrir félagið. Alls tóku 96 aðilar þátt í keppninni og sendu inn um 300 tillögur. Veitt voru þrenn verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar að upphæð 150.000 kr., 30.000 kr. og 20.000 kr. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 239 orð

Ótti á Tævan vegna tilrauna

LEE Teng-hui, forseti Tævan, hvatti í gær íbúa eyjunnar til að sýna stillingu en mikill ótti hefur gripið um sig vegna fyrirhugaðra eldflaugatilrauna Kínverja. Benti hann á að ekki verða sprengjuoddar á flaugunum. Tilraunirnar hófust í gær og hyggjast Kínverjar á næstu dögum skjóta flaugum á tvö hafsvæði skammt frá mikilvægum hafnarborgum á Tævan. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 106 orð

Rakin til áníðslu á náttúrunni

HUGSANLEGT er, að upptök ebólasýkingarinnar megi rekja til þess, að jafnvægi náttúrunnar í skógum Afríku hafi verið raskað. Kom þetta fram hjá kunnum veirufræðingi í Zaire á alþjóðlegri ráðstefnu um sjúkdóminn í höfuðborg landsins, Kinshasa. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 262 orð

Reisa skal varnarvirki

UMHVERFISRÁÐHERRA hefur gefið út reglugerð um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og eru þar meðal annars settar reglur um þátttöku Ofanflóðasjóðs í gerð varnarvirkja og uppkaup og flutning á húseignum í sveitarfélögum sem búa við snjóflóðahættu. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 568 orð

Réttindi kennaranna eiga að vera óbreytt

FÆRIST rekstur grunnskóla á hendur sveitarfélaga með þeim hætti sem áætlað er eiga breytingar, sem hugsanlega verða gerðar á lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, ekki við um grunnskólakennara. Því verða réttindi þeirra önnur en kennara hjá ríkinu, þótt þeir séu í sama stéttarfélagi. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 230 orð

Samkomulag um að lækka ríkisútgjöld

TVEIR stærstu stjórnmálaflokkarnir í Austurríki, Jafnaðarmannaflokkurinn og Þjóðarflokkurinn, náðu loks samkomulagi um nýjan stjórnarsáttmála í gær en þetta verður 14. samstarfsstjórn þeirra frá stríðslokum. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 279 orð

Samnorrænum ræðum fækkaði úr 43 í sex

MJÖG hefur dregið úr sameiginlegum málflutningi Norðurlandanna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna eftir að Finnland og Svíþjóð gengu í Evrópusambandið í upphafi síðasta árs. Samkvæmt upplýsingum frá fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York fækkaði ræðum, sem fluttar voru fyrir hönd Norðurlandanna sameiginlega á allsherjarþinginu og í nefndum þess úr 43 á 49. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 190 orð

Sálfræði í samfélagi vísinda

SIGURÐUR J. Grétarsson, dósent í sálfræði, flytur fyrirlesturinn Sálfræði í samfélagi vísinda í Háskólabíói, sal 2, laugardaginn 9. mars kl. 14. Fyrirlesturinn er liður í fyrirlestraröðinni Er vit í vísindum? Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 257 orð

Segir Rússa hafa verið of leiðitama

JEVGENÍJ Prímakov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í viðtali, sem dagblaðið Ízvestía birti á þriðjudag, að Rússar hefðu gengið of langt í að vingast við gamla óvini á Vesturlöndum eftir hrun Sovétríkjanna. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 175 orð

Séra Bolli úrskurðar

ÞORSTEINN Pálsson, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur sett séra Bolla Gústavsson, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal, til að fara með biskupsvald við úrlausn á ágreiningi þeim sem uppi er í Langholtssókn í Reykjavík. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 352 orð

Síðustu forvöð eru að semja fyrir karfavertíð

TVÆR nýjar tillögur komu fram á fundi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) um stjórn úthafskarfaveiða á Reykjaneshrygg, sem hófst í London í gær. Guðmundur Eiríksson, formaður íslenzku viðræðunefndarinnar, segir að nú séu síðustu forvöð að ná samningum, eigi að vera hægt að halda formlegan aukaársfund NEAFC til að ákveða kvóta áður en karfavertíðin hefst. Meira
8. mars 1996 | Erlendar fréttir | 282 orð

Sjö ára fangelsi fyrir nauðgun

ÞRÍR bandarískir hermenn voru dæmdir í gær fyrir að hafa rænt og nauðgað ungri stúlku á Okinawa í Japan en málið hefur valdið spennu í samskiptum Japans og Bandaríkjanna og óvissu um framtíð bandarískra herstöðva í landinu. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 232 orð

Sýkillinn fannst á hrærivél brauðgerðarinnar

SAMTALS hafa nú 80 manns verið greindir með sýkingu af völdum salmonella enteritidis, en líklegt er talið að sýkingin hafi verið í rjómabollum sem neytt var á bolludag. Hollustuvernd ríkisins hefur nú greint sýkilinn í sýnum sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins tók hjá Samsölubakaríi, framleiðanda vörunnar, en um er að ræða svo kölluð skafsýni, Meira
8. mars 1996 | Akureyri og nágrenni | 145 orð

Takmörkuð umferð leyfð um göngugötu

GUÐMUNDUR Stefánsson fulltrúi í bæjarráði Akureyrar lagði á fundi ráðsins í gær fram tillögu um að bæjarstjórn Akureyrar samþykki í tilraunaskyni takmarkaða umferð bifreiða um göngugötuna í Hafnarstræti og á Ráðhústorgi. "Bæjarstjórn telur að við framkvæmd tilraunarinnar eigi að vera sveigjanleiki þannig að unnt sé að loka götunni fyrirvaralaust fyrir umferð bifreiða ef þurfa þykir, t. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 81 orð

Tilkynnt um kostnaðarskiptingu

FULLTRÚARÁÐSFUNDUR Sambands íslenskra sveitarfélaga hefst á Hótel Borgarnesi kl. 13.30 í dag. Aðalefni fundarins verður umfjöllun og afgreiðsla á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um kostnaðar- og tekjutilfærslu vegna flutnings grunnskólans til sveitarfélaga. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 84 orð

Tollverðir mótmæla ráðherra

MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá stjórn Tollvarðafélags Íslands: "Stjórn Tollvarðafélags Íslands mótmælir harðlega ræðu fjármálaráðherra á Alþingi 21. febrúar sl. þar sem hann átelur tollverði fyrir að nota sér fíkniefnamál sjálfum sér til framdráttar í kjarabaráttu sinni. Það hefur aldrei verið gert og mun aldrei verða gert. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 99 orð

Upplýsingabæklingur um fíkniefni

ÚT ER kominn bæklingur undir heitinu Fíkniefni, þú og barnið þitt, en þar er að finna leiðbeiningar fyrir foreldra varðandi þær hættur sem fíkniefnum eru samfara. Í bæklingnum er fjallað um hvernig forða eigi börnum frá því að ánetjast fíkniefnum og ráðleggingar um það hvernig foreldrar geti hjálpað börnum sínum til að varast hætturnar, Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 365 orð

Varsla barnakláms verður refsiverð

REFSIVERT verður að hafa í vörslu sinni efni með grófu barnaklámi samkvæmt frumvarpi sem dómsmálaráðherra mælti fyrir á Alþingi á miðvikudag. Frumvarpið er um breytingar á almennum hegningarlögum og samkvæmt því varðar það sektum að hafa í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn í holdlegu samræði eða öðrum kynferðismökum. Meira
8. mars 1996 | Akureyri og nágrenni | 34 orð

Vélsleðamót í Ólafsfirði

KAPPAKSTURSKLÚBBUR Akureyrar í samvinnu við vélsleðamenn í Ólafsfirði efnir til "snow cross"- móts í Syðri-Árdal í Ólafsfirði á morgun, laugardag. Keppnin hefst kl. 14. Þekktustu keppnissleðamenn landsins sýna áhættuatriði í hléi. Meira
8. mars 1996 | Innlendar fréttir | 311 orð

Vinnustaðakynningar hafnar

FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur sent 23.000 ríkisstarfsmönnum upplýsingabréf um frumvarp til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Í upplýsingabréfinu eru nýmæli frumvarpsins kynnt og ýmsum spurningum svarað. Þór Sigfússon, ráðgjafi fjármálaráðherra, sagði að þegar væri byrjað á kynna frumvarpið á vinnustöðum. Hægt væri að óska eftir kynningum í ráðuneytinu. Meira
8. mars 1996 | Landsbyggðin | 232 orð

Þátttaka foreldra í íþróttastarfi barna

Flateyri-Í Grunnskólanum á Flateyri var haldið forvitnilegt námskeið á vegum Ungmennafélags Íslands í samvinnu við Íþróttafélagið Gretti. Starfsmaður UMFÍ, Halldóra Gunnarsdóttir, fjallaði um foreldrastarf, þátttöku foreldra í íþróttastarfi með börnum sínum frá öllum hliðum. Meira

Ritstjórnargreinar

8. mars 1996 | Leiðarar | 669 orð

leiðariÍSLAND OG RÍKJA-RÁÐSTEFNA ESB EVRÓPUR

leiðariÍSLAND OG RÍKJA-RÁÐSTEFNA ESB EVRÓPURÁÐSTEFNU Norðurlandaráðs, sem haldin var í Kaupmannahöfn fyrr í vikunni, kom fram vilji af hálfu norrænna aðildarríkja Evrópusambandsins að hafa samráð við Ísland og Noreg um málefni ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins, sem hefst síðar í mánuðinum, og taka tillit til hagsmuna þeirra. Meira
8. mars 1996 | Staksteinar | 420 orð

»Yfirgangur Norðmanna LENE Aspersen, talsmaður danskra íhaldsmanna í sjávarú

LENE Aspersen, talsmaður danskra íhaldsmanna í sjávarútvegsmálum, ritaði fyrir skömmu grein í norska blaðið Stavanger Aftenblad þar sem hún gagnrýnir framferði Norðmanna í sjávarútvegsmálum. Meira

Menning

8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 144 orð

Alyssa er orðin fullorðin

ALYSSA Milano er ef til vill þekktust fyrir hlutverk sitt sem dóttir Tony Danza í sjónvarpsþáttunum "Who's the Boss?". Hún er nú orðin fullorðin, löngu hætt að leika í þáttunum og er að reyna að slá í gegn sem kvikmyndaleikkona. Hún hefur mikinn áhuga á hokkí og þakkar það meðleikara sínum í "Who's the Boss", Tony Danza. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 118 orð

Aukasýning á Bar pari

AUKASÝNING verður á leikritinu Bar pari eftir Jim Cartwright, sem sýnt er á Leynibarnum í Borgarleikhúsinu, laugardaginn 16. mars kl. 23.30. Sýnt hefur verið fyrir fulli húsi síðan í október og eru sýningar að nálgast 40 talsins. Miðnætursýningar hafa verið vinsælar og er athygli vakin á því að aukasýningin hefst kl. 23.30 en ekki kl. Meira
8. mars 1996 | Fjölmiðlar | 275 orð

Á vefvaktinni MEÐ ODD DE PRESNO

SÉRFRÆÐINGAR segja að ný vefsíða verði til fjórðu hverja sekúndu. Aldrei hefur verið skemmtilegra að spranga um alnetið. Hér eru nokkur vefsetur sem Odd de Presno hefur heimsótt þennan mánuðinn Út í geim Meira
8. mars 1996 | Fjölmiðlar | 357 orð

BB í heilu lagi á alnetið

BÆJARINS besta sem er héraðsfréttablað á Ísafirði hefur sett blaðið á alnetið. Hægt er að skoða síðurnar í heilu lagi eins og frá þeim er gengið í prentaðri útgáfu blaðsins, með myndum og auglýsingum, og í lit þar sem það á við. BB er væntanlega fyrsta íslenska blaðið sem fer á alnetið í þessu formi. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 208 orð

Benny Andersen og Povl Dissing í Þjóðleikhúsinu

DÖNSKU hljómlistarmennirnir Benny Andersen og Povl Dissing halda tónleika í Þjóðleikhúsinu ásamt Jens Jefsen, þriðjudaginn 12. mars næstkomandi. Aðeins verða þessir einu tónleikar í Reykjavík en þeir félagar spila einnig á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Meira
8. mars 1996 | Fjölmiðlar | 181 orð

Dómara skjátlaðist í máli Business Week

PRENTFRELSI hefur fengið mikilvægan stuðning frá áfrýjunardómstóli í Ohio, sem hefur úrskurðað að óæðri dómara hafi skjátlazt þegar hann neyddi tímaritið Business Week til að birta ekki grein, þar sem hún byggðist á innsigluðu dómsskjali. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 178 orð

Dönsk bókakynning í Norræna húsinu

DANSKAR bókmenntir verða á dagskrá í Norræna húsinu á bókakynningu sem danski sendikennarinn Siri Agnes Karlsen hefur umsjón með í samvinnu við bókasafn Norræna hússins á morgun kl. 16. Erik Skyum-Nielsen bókmennafræðingur mun ásamt Siri fjalla um bækur gefnar út í Danmörku 1995, en gestur á bókakynningunni verður ljóðskáldið Inger Christensen. Meira
8. mars 1996 | Fjölmiðlar | 292 orð

Eigandi Harrods endurlífgar Punch

MOHAMED Al Fayed, egypzkættaður eigandi Harrods verzlunarinnar í London, hefur skýrt frá fyrir ætlunum um að hefja aftur útgáfu á Punch, hinu kunna gamansama tímariti sem hætti að koma út 1992 eftir rúmlega 150 ára feril. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 76 orð

Einleikarapróf í Íslensku óperunni

TÓNLEIKAR verða haldnir á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík í Íslensku óperunni sunnudaginn 10. mars kl. 14.30. Tónleikarnir eru síðari hluti einleikaraprófs Ásu Briem, píanóleikara, frá skólanum. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 68 orð

Flauta og píanó í Njarðvíkurkirkju

GUÐRÚN Birgisdóttir flautuleikari og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari halda tónleika í Njarðvíkurkirkju á morgun, laugardaginn 9. mars, kl. 17.30. Á efnisskrá er Rómansa op. 37 eftir Camille Saint-Saens, Inngangur og tilbrigði um lag úr Malarastúlkunni fögru eftir Franz Schubert, Fantasía eftir Gabriel Fauré, Sonatína eftir Henri Dutillieux og Sónata: Allegro malinconico, Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 47 orð

Fyrirlestur um myndlist

SEX myndlistarmenn frá New York halda fyrirlestur í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b laugardaginn 9. mars kl. 20.30. Listamennirnir James Carl, Kevin Kelly, Michael Crawford, Jill Reynolds og Ryan Mellon fjalla um eigin verk og sýna litskyggnur. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og eru allir velkomnir. Meira
8. mars 1996 | Myndlist | -1 orð

"Hugvekja"

Anna María Sigurjónsdóttir. Opið á tíma veitingahússins til 17. mars. Aðgangur ókeypis. SÝNINGARSALURINN á efri hæðinni á Sólon Íslandus er nakinn, opinn og hrár, en þó virðast mjög fáir sem sýna þar leitast við að bæta þar úr og skapa myndverkum sínum meiri nálgun. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 48 orð

Í góðu gengi

Söngvarinn Bono er hér í góðum félagsskap fyrirsætunnar Evu Herzigovu í París þar sem tónlistarverðlaun MTV voru afhent. Þar var hljómsveit hans, U2, tilnefnd sem besta hljómsveitin. Nýverið hefur hljómsveitin verið í hljóðveri að taka upp plötu með "góðri og gamaldags rokktónlist", að sögn Bono. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 91 orð

Jasper í Norræna húsinu

DANSKA myndin "Det skaldede spøgelse" frá árinu 1993 verður sýnd í Norræna húsinu á sunnudag kl. 14. Í kynningu segir: "Þetta er ævintýraleg mynd um drenginn Jasper, 11 ára, sem missir gamlan vin sinn Aron. Eftir Aron erfir Jasper gamalt fress og skáp sem er læstur og enginn girnist. En það sem enginn veit er að í skápnum býr sköllóttur draugur, furðulíkur Aroni nýlátna vini hans. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 71 orð

KK einn á ferð

KRISTJÁN Kristjánsson - KK mun leika og syngja blús og ballöður í Listaklúbbi Leikhúskjallaransmánudagskvöldið 11.mars kl.20.30. KK gaf út geisladisk fyrir jólin en rétt um það bil sem kynningar á lögunum áttu að hefjast lenti hann í bílslysi og fótbrotnaði og lá því allt tónleikahald í tengslum við útgáfuna niðri. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 79 orð

Loðskinnasýning

LOÐDÝRABÆNDUR héldu sýningu á loðskinnum á Hótel Sögu fyrir skömmu og veittu verðlaun fyrir bestan árangur í ræktun. Þegar henni var lokið sýndu þátttakendur í fegurðarsamkeppni Suðurlands pelsa frá Pelsinum. Ljósmyndari Morgunblaðsins var að sjálfsögðu á staðnum og náði nokkrum myndum. Meira
8. mars 1996 | Fjölmiðlar | 539 orð

Níu sjónvarpsrásir og allar eins

HÉR eru níu egypskar sjónvarpsrásir og þær eru allar undir opinberri stjórn. Mér skilst að einkastöð væri óhugsandi. Margir hafa tök á að ná öllum mögulegum alþjóðlegum stöðvum með tilheyrandi útbúnaði og kostnaði og CNN er mjög vinsælt hjá þeim sem ná því. Allur þorri manna lætur egypsku rásirnar níu duga og þær sjónvarpa flestar frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 82 orð

Norris opnar spilavíti

CHUCK Norris, sem þekktastur er fyrir leik sinn sem karatesnillingurinn í "Walker, Texas Ranger", ætlar að opna spilavíti í nágrenni Rauða torgsins í Moskvu á nýárskvöld. "Spilavítið kemur til með að kosta vel á annan milljarð króna og mun það státa af 33 spilaborðum, auk fjölda spilakassa," segir Mike Emery lögmaður og talsmaður Norris. Norris er stærsti hluthafi fyrirtækisins. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 70 orð

Norræn grafík

Í LISTASETRINU Kirkjuhvoli á Akranesi, hefst farandsýning á grafíkverkum eftir norræna listamenn, laugardaginn 9. mars kl. 15. Sýningin er frá listlánadeild Norræna hússins. Á sýningunni eru verk eftir; Lisa Andrén Svíþjóð, Aka Hoegh Grænlandi, Janus Kamba Færeyjum, Pentti Kaskipuro Finnlandi, Anne-Lise Knoff Noregi, Palle Nielsen Danmörk og Tryggva Ólafsson Íslandi. Meira
8. mars 1996 | Myndlist | -1 orð

NÝ ÖLD

Gjörningar. Opið frá 12-18 alla daga. Lokað mánudaga. Til 17 marz. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ sést á öllu að þjóðir líta með eftirvæntingu til hinna miklu aldahvarfa sem framundan eru, og einnig að menn eru sér þess meðvitandi að jarðtengja þarf hinar miklu tækniframfarir er við blasa. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 823 orð

Okkar eigin raunveruleiki

ÍSLENSKI dansflokkurinn frumsýnir í kvöld þrjú dansverk undir samheitinu Þrenning í Íslensku óperunni. Sýnd verða tvö ný verk, Tilbrigði eftir David Hanratty Greenall og Hjartsláttur eftir Láru Stefánsdóttur, og eitt eldra, Af mönnum, sem Hlíf Svavarsdóttir samdi fyrir flokkinn 1988. David Hanratty Greenall segir að verk sitt, Tilbrigði, skiptist í níu hluta. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 105 orð

Olíumálverk af blústónlistarmönnum

ÓSKAR Guðnason opnar myndlistarsýningu í Menningarstofnun Bandaríkjanna, Laugavegi 26, á laugardag kl. 16. Myndirnar eru olíumálverk af þekktum blústónlistarmönnum og lærisveinum þeirra. Óskar er fæddur á Höfn í Hornafirði og er kennari að mennt. Hann hefur starfað að tónlist síðastliðin sex ár og við myndlist síðastliðin tvö ár. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 54 orð

Ólafur Jensson heiðraður

Á AÐALFUNDI Blóðgjafafélags Íslands nýlega var dr. Ólafur Jensson gerður að heiðursfélaga fyrir heillarík störf að málefnum Blóðbankans og blóðgjafa. Ólafur var ráðinn forstöðumaður Blóðbankans 1. mars 1972 og starfaði þar óslitið til enda ársins 1994 og var einnig formaður Blóðgjafafélags Íslands frá stofnun þess til 1993. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 219 orð

Ópus herra Hollands í Háskólabíói

HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýningar á kvikmyndinni Ópus herra Hollands (Mr. Holland's Opus) og segir í fréttatilkynningu að myndin hafi notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum undanfarið og setið í efstu sætum yfir vinsælustu myndir vikum saman. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 137 orð

Regnboginn sýnir myndina Fordæmd

REGNBOGINN hefur hafið sýningar á kvikmyndinni "Scarlet Letter" eða Fordæmd eins og hún heitir á íslensku. Í aðalhlutverkum eru Demi Moore, Gary Oldman og Robert Duvall. Leikstjóri er Roland Joffé. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 169 orð

Sambíóin sýna kvikmyndina "Babe"

SAMBÍÓIN, Bíóhöllin og Bíóborgin, hafa tekið til sýninga kvikmyndina "Babe", en hún hefur verið útnefnd til sjö Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta myndin og fyrir bestu leikstjórn. Um er að ræða leikna mynd þar sem lifandi dýr fara með helstu hlutverkin. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 86 orð

Síðasta sýningarhelgi

NÚ um helgina lýkur þrem myndlistarsýningum Hlyns Hallssonar. Í nýju sýningarrými á Akureyri sem hlotið hefur nafnið Gallerí + sýnir hann innsetningu, sjóndeildarhring, hljóðverkið útvörp og bókverk. Gallerí + er opið laugardag og sunnudag frá kl. 14-18. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 25 orð

Síðasta sýningarhelgi

Síðasta sýningarhelgi SÝNINGU Öldu Sigurðardóttur, Hlyns Hallssonar, Steinunnar Helgu Sigurðardóttur og Arnars Karlssonar lýkur í Nýlistasafninu á sunnudag. Sýningarnar eru opnar daglega frá kl. 14-18. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 134 orð

Spánarstyrjöldin og Úkraínuvígstöðvarnar í bíósal MÍR

TVÆR heimildarkvikmyndir verða sýndar í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, næstkomandi sunnudag kl. 16. Fyrri myndin var sýnd á síðasta ári í tilefni hálfrar aldar afmælis stríðsloka í Evrópu, en er nú sýnd vegna áskorana. Hún er "Grenada, Grenada mín", mynd Romans Karmens um borgarastyrjöldina á Spáni. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 193 orð

Spennumyndin Lokastundin frumsýnd

HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýningar á dönsku spennumyndinni Lokastundin og er hún fyrsta mynd ungs leikstjóra, Martin Schmidt. Sjö framhaldsskólanemar eru boðaðir á fund á föstudegi að loknum skóladegi en hafa ekki hugmynd um hvers vegna. Þau koma að skólastofunni mannlausri en ákveða samt að bíða. Fljótlega verður þeim ljóst að ekki er allt með felldu og þau hafa verið læst inni. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 104 orð

Spilað fyrir ferðassjóðinn

Egilsstöðum-Tónlistarskólinn á Egilsstöðum hélt nýverið tónleika í hátíðarsal Menntaskólans á Egilsstöðum. Tónleikarnir voru fjölbreyttir og voru það bæði nemendur og kennarar sem spiluðu. Meira
8. mars 1996 | Myndlist | 499 orð

Systur í listinni

Erna G. Sigurðardóttir & Eva G. Sigurðardóttir. Opið alla daga til 16. mars. Aðgangur ókeypis ÞAÐ hlýtur að vera óvenjulegt að tvíburar hasli sér völl á sama vettvangi listanna, og kjósi auk þess að sýna saman til að allir geti séð hvað er líkt og ólíkt með því sem gert er. Þetta hafa þær Erna og Eva Sigurðardætur kosið að gera. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 55 orð

Sýningu Jóns Bergmanns í Greip að ljúka

SÝNINGU Jóns Bergmanns Kjartanssonar í Galleríi Greip lýkur á sunnudag. Jón hefur dvalið árabil í Hollandi þar sem hann stundaði myndlistarnám. Þetta er hans fyrsta einkasýning hér á landi, en hann hefur áður haldið einkasýningar í Hollandi og tekið þátt í samsýningum í Hollandi, Englandi og á Íslandi. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 50 orð

Sýningu Sigurjóns lýkur í Fold

SÝNINGU á vatnslitamyndum Sigurjóns Jóhannssonar í Gallerí Fold við Rauðarárstíg lýkur nú á sunnudag. Myndefnið er frá síldarárunum á Siglufirði. Í kynningarhorni gallerísins eru olíumyndir eftir Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur. Galleríið er opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-17 og sunnudaga frá kl. 14-17. Meira
8. mars 1996 | Menningarlíf | 46 orð

Tvennir tónleikar

TÓNLEIKAR Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar verða haldnir í íþróttahúsinu á Kjalarnesi laugardaginn 9. mars kl. 16 og í íþróttahúsinu að Varmá sunnudaginn 10. mars kl. 18. Stjórnendur og kennarar eru; Birgir D. Sveinsson, Lárus Sveinsson, Sveinn Birgisson, Knútur Birgisson, Þorkell Jóelsson, Karen Jóhannsdóttir og Hjörleifur Jónsson. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 79 orð

Þjónar góðum málstað

Leikarinn Noah Wyle, sem leikur hinn viðkunnanlega lækni John Carter í Bráðavaktinni, hefur ákveðið að leggja sitt af mörkum í baráttu gegn húðkrabbameini. Wyle hefur leyft Húðkrabbastofnuninni að nota nafn sitt í auglýsingaskyni og mun koma fram fyrir þeirra hönd á fyrsta af mörgum umræðufundum þeirra í Beverly Hills. Meira
8. mars 1996 | Fólk í fréttum | 84 orð

Þorrablót í Osló

ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ í Osló hélt fjölmennasta þorrablót sitt til þessa fyrir skemmstu. Veislustjóri var Þórhallur Pálsson, en Gísli Kærnested mælti fyrir minni kvenna og Sigrún Óskarsdóttir fyrir minni karla. Jóhannes Kristjánsson fór með gamanmál og að borðhaldi loknu spiluðu Birkir Guðmundsson og Lasse fyrir dansi. Meira

Umræðan

8. mars 1996 | Aðsent efni | 355 orð

Athugasemd við skrif Víkverja

Í DÁLKI sínum, þann 5. mars, sl, fjallar Víkverji um uppsagnir heilsugæslulækna í vanþekkingar- og stríðsfréttastíl. Hann gefur þar lesendum persónulega lýsingu á hinu meinta stríði og leggur síðan eigið mat á eðli vandans. Að því loknu segir Víkverji: "Það er tími til kominn að fólk átti sig á út af hverju þessar stöðugu erjur eru á milli mismunandi hópa lækna og heilbrigðisyfirvalda. Meira
8. mars 1996 | Bréf til blaðsins | 206 orð

Auðlindaskattur

ÉG ER á móti þessum skatti eins og hann er hugsaður, það er að greiða, eins og heyrst hefur, sjö hundruð milljónir á ári. Hvert fara þeir peningar? Þetta mundi ekki bæta ástandið. Það gætu komið sterkar raddir um gengisfellingu, þó það mundi ekki bjarga útgerðinni og þeim sem skulda mikið. Meira
8. mars 1996 | Bréf til blaðsins | 400 orð

Er vit í vísindum?

UM ÞESSAR mundir stendur Anima, félag sálfræðinema, fyrir röð fyrirlestra sem ber yfirskriftina "Er vit í vísindum?". Vísindahyggja og vísindatrú eru áberandi í nútímasamfélagi. Vísindaleg aðferð er viðurkennd leið til að afla þekkingar. Meira
8. mars 1996 | Bréf til blaðsins | 368 orð

Gúmmí- Grettir í Þorlákshöfn

FIMMTUDAGURINN 29. febrúar sýndu nemendur Grunnskólans í Þorlákshöfn söngleikinn Gúmmí- Gretti eftir Egil Ólafsson, Ólaf Hauk Símonarson og Þórarinn Eldjárn. Þessi söngleikur býður upp á margt frumlegt og skemmtilegt í útfærslu og leikstjórn og gerir um leið miklar kröfur til leikendanna. Mikill söngur er í verkinu, bæði einsöngur og kórsöngur við undirleik lítillar hljómsveitar. Meira
8. mars 1996 | Bréf til blaðsins | 238 orð

Leitarmannakofi og fræðslusetur

ÞEGAR Ferðafélag Íslands reisti sæluhús á Hveravöllum árið 1938 var þar fyrir leitarmannakofi. Eðli máls samkvæmt fluttu fjallmenn sig í sæluhúsið og smám saman lenti kofinn í vanhirðu. Fyrir nokkrum árum kom ég á Hveravelli í byrjun ágúst. Veggir kofans voru þá skrýddir blóðbergi sem komið hafði sér fyrir í hleðslunni. Auk blómanna vöktu veggir hússins athygli mína. Meira
8. mars 1996 | Aðsent efni | 736 orð

Lífeyrissjóðir ­ samtryggingarsjóðir eða séreignasjóðir?

Í FRAMHALDI af miklum umræðum í vetur um lífeyrismál aldraðra og allar þær mörgu ráðstafanir, sem fram fóru í sambandi við afgreiðslu fjárlaga, var fróðlegt að hlusta á umræður sem fóru fram í þætti Stefán Jóns Hafstein í sjónvarpinu. Meira
8. mars 1996 | Aðsent efni | 258 orð

Siðferðis- eða lagaregla?

AÐ undanförnu hafa menn rætt, hvort biskupnum beri að segja af sér embætti vegna þeirra ásakana sem hann hefur verið borinn. Sumir þeirra sem vilja afsögn hafa talið, að reglan um að hver maður skuli teljast vera saklaus þar til sekt hans sé sönnuð, sé lagaregla sem ekki eigi við í máli biskupsins. Þar sé fjallað um siðferðisreglur en ekki lagareglur. Meira
8. mars 1996 | Aðsent efni | 707 orð

Skerfur sjómanna

FYRIR nokkru var háskólamaður, sem aldrei hefur pissað í saltan sjó, að reyna að niðurlægja sjómenn vegna skattfríðinda þeirra. Það er eins og hann viti ekki um útivistir þeirra frá konum og börnum og heimili sínu. Hann virðist heldur ekki vita að sjómenn okkar eru atorkumenn, skapa mestar gjaldeyristekjur og að um borð í þessum togurum okkar eru eingöngu menn sem nenna að vinna. Meira
8. mars 1996 | Aðsent efni | 1133 orð

Trúnaðurinn, siðferðið og völdin

ÞJÓNANDI prestur í þjóðkirkjunni hefur verið borinn mjög alvarlegum sökum um trúnaðarbrest í starfi. Þar stendur orð gegn orði. Kirkjan á engin þau úrræði, sem duga til rannsóknar eða úrskurðar í málinu. Hið fjelagslega úrræði prestastéttarinnar til að heyra menn um ágreiningsmál, leita sátta og tryggja fólki áheyrn með kvartanir þess í garð fjelagsmanna P.Í. Meira
8. mars 1996 | Aðsent efni | 807 orð

Verslun - ný "Smuga" og auknir atvinnumöguleikar

Í TILLÖGUM um stefnumótun ferðamannaverslunar á Íslandi, sem unnar hafa verið á síðustu vikum af Kaupmannasamtökum Íslands í samvinnu við Bílgreinasambandið og Félag íslenskra stórkaupmanna kemur fram, að ferðamannaverslun á Íslandi getur ef vel er á málum haldið orðið ný "Smuga" fyrir þjóðarbúið. Meira

Minningargreinar

8. mars 1996 | Minningargreinar | 1164 orð

Anna Árnadóttir

Anna Árnadóttir frá Stóra- Hrauni er fallin frá í hárri elli, án undangenginna veikinda eða harmkvæla. Hennar endadægur var einfaldlega runnið upp, svo hún gerði sér þess fulla grein en enga rellu, fremur en um vistaskipti milli húsa eða bæjarhverfa væri að ræða. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 374 orð

Anna Árnadóttir

Í dag kveðjum við hinstu kveðju ömmu okkar Önnu. Á þessum tímamótum finnum við bæði til gleði og eftirsjár. Hvað er til dásamlegra en fá að lifa í nær 95 ár og halda andlegu atgervi sínu og það að geta hugsað um sig sjálfur? Amma fékk æðstu ósk sína uppfyllta að verða ekki ósjálfbjarga og öðrum háð. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 175 orð

Anna Árnadóttir

Nú er föðursystir mín Anna Árnadóttir öll, á nítugasta og fimmta aldursári, södd lífdaga. Ekki brá mér við þá andlátsfregn, enda við öllu að búast á þeim aldri. Södd lífdaga segi ég því þegar ég sótti hana í saltaðan sel hjá foreldrum mínum í fyrra, neitaði hún að spenna á sig öryggisbeltið - sagðist vera alveg sama þótt hún dæi. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 346 orð

Anna Árnadóttir

Anna Árnadóttir, föðursystir mín, er látin á 95. aldursári. Þrátt fyrir háan aldur var minni hennar óskert og sótti maður til hennar fróðleik um hvað sem var, bæði gamalt og nýtt. Hún var stórbrotin og litrík persóna, sem alls staðar var tekið eftir. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 385 orð

ANNA ÁRNADÓTTIR

ANNA ÁRNADÓTTIR Anna Árnadóttir var fædd á Ytri-Rauðamel í Hnappadalssýsslu 26. júlí 1901 og lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 29. febrúar 1996. Hún fluttist með foreldrum sínum að Stóra- Hrauni 6 ára gömul. Foreldrar hennar voru hjónin sr. Árni Þórarinsson prófastur f. 20. jan. 1860, d. 3. feb. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 324 orð

Ágúst H. Pétursson

Elsku frændi, með örfáum orðum langar mig til að kveðja þig í hinsta sinn. Sá tími sem þú gafst mér allt frá barnæsku til dagsins í dag verður alltaf í minningu minni og erfitt verður að átta sig á að Gústi frændi sé dáinn. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 1565 orð

Ágúst H. Pétursson

Einn af mínum bestu og tryggustu vinum er látinn. Ágúst H. Pétursson var stoð og stytta afa míns og ömmu vestur á Patreksfirði þegar þau voru orðin gömul og slitin. Greiðasemi hans og konu hans Ingveldar við gömlu hjónin, hlýtt hjartalag hans, vinfesta og trygglyndi verða aldrei þökkuð til fulls og munu mér aldrei gleymast. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 466 orð

Ágúst H. Pétursson

Elskulegur afi minn og nafni er dáinn. Þegar ég heimsótti hann tveimur dögum fyrir andlátið átti maður ekki von á að svo skammt væri eftir, þrátt fyrir að hann hefði átt við veikindi að stríða undanfarið. Hann afi minn var mér sérstaklega kær. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 370 orð

ÁGÚST H. PÉTURSSON

ÁGÚST H. PÉTURSSON Ágúst H. Pétursson, fyrrv. sveitarstjóri á Patreksfirði, fæddist í Bolungarvík 14. september 1916. Hann andaðist 1. mars 1996. Foreldrar hans voru Pétur Sigurðsson sjómaður og Kristjana Þórunn Einarsdóttir húsmóðir. Systkini Ágústs eru: 1) Sigurður, útgerðarmaður, f. 6.3. 1912, d. 8.6. 1972. 2) Anna, f. 20.7. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 405 orð

Guðmundur Sigurðsson

Sumarið 1959 komst ég í sumarvinnu sem námsmaður hjá Jarðhitadeild raforkumálastjóra. Við fórum víða um land í leit að jarðhita en lengst var dvalið á Tungnáröræfum við könnun á berggrunni á þeim slóðum þar sem nú eru komnar vatnsaflsstöðvar við Sigöldu og Hrauneyjafoss. Flokkar manna stunduðu vatnamælingar, landmælingar og rannsóknarboranir. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 353 orð

Guðmundur Sigurðsson

Andlát Guðmundar Sigurðssonar bar brátt að, en ekki óvænt. Samstarfs- og vinahópur á Orkustofnun saknar góðs félaga sem ávallt lífgaði umhverfið í amstri daganna. Jafnan var hann glaður og reifur, fullur áhuga á framgangi þeirra verkefna sem efst voru á baugi hverju sinni. Starfsferill Guðmundar við boranir hófst í bernsku jarðborana hér á landi og náði yfir 50 ár. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 374 orð

Guðmundur Sigurðsson

"Hinn ófullkomni fullkomnast, hinn borni réttist, hinn tómi fyllist, hinn slitni endurnýjast. Sá, sem hefur fáar óskir mun fá þær uppfylltar. Sá, sem girnist margt, missir af því. Þess vegna ástundar hinn vitri einfeldni og verður fyrirmynd allra." Lao Tse. "Ég á eftir að gróðursetja svo margar plöntur. Ég má ekki vera að því að fara. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 187 orð

Guðmundur Sigurðsson

Mig langar til að minnast móðurbróður míns Guðmundar Sigurðssonar með nokkrum kveðjuorðum. Við bræðurnir kölluðum hann Gumma frænda okkar á milli enda var hann mikill frændi okkar og bar mikla umhyggju fyrir okkur. Mín fyrstu kynni af frænda mínum voru þegar við Gylfi bróðir minn dvöldum á heimili hans og Huldu eiginkonu hans fyrstu mánuðina okkar í borginni. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 157 orð

GUÐMUNDUR SIGURÐSSON

GUÐMUNDUR SIGURÐSSON Guðmundur Sigurðsson var fæddur á Geirseyri við Patreksfjörð 29. janúar 1926. Hann lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 28. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Andrés Guðmundsson, f. 29.11. 1886, d. 23.12. 1948, og Svandís Árnadóttir, f. 9.9. 1893, d. 1.3. 1968. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 990 orð

Marsibil Bernharðsdóttir

Það er jafn eðlilegt að gleðjast yfir fæðingu lítils barns og að syrgja látinn ástvin. Að fæðast og að deyja er hlutskipti sérhvers manns. Stundum kemur dauðinn okkur að óvörum og þess vegna óttumst við hann. Allt of oft er hann óvinur og ótímabær. Hann spyr ekki um stað né stund og þess vegna er hann handan við hornið og við getum ekki forðast hann. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 237 orð

Marsibil Bernharðsdóttir

Í dag verður borin til hinstu hvíldar amma okkar Marsibil Bernharðsdóttir á 84. aldursári. Amma var merkileg kona, eins og konur af þessari kynslóð, hún var mjög glæsileg kona og dugnaðarforkur, komin á fætur kl. 6 á morgnana og farin að vinna verkin. Hún ól upp 11 börn og átti hún sjálf sjö þeirra en afi átti fjögur börn frá fyrra hjónabandi. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 221 orð

Marsibil Bernharðsdóttir

Elsku amma mín er dáin. Með þessum erindum vil ég minnast hennar: Til moldar oss vígði hið mikla vald, hvert mannslíf, sem jörðin elur. Sem hafsjór, er rís með fald við fald, þau falla, en guð þau telur; því heiðloftið sjálft er huliðstjald, sem hæðanna dýrð oss felur. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 489 orð

MARSIBIL BERNHARÐSDÓTTIR

MARSIBIL BERNHARÐSDÓTTIR Marsibil Bernharðsdóttir, fyrrum kaupkona, var fædd á Kirkjubóli í Valþjófsdal í Önundarfirði 24. júní 1912. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 21. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Bernharður Guðmundsson, stýrimaður og bóndi á Kirkjubóli, f. 8.9. 1881, d. 2.2. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 160 orð

Óskar Ingimarsson

Svo snöggt fór vinur okkar. Við hjónin hittum hann á göngu fyrir stuttu síðan og var ekki annað að sjá eða heyra en heilsan væri góð og hann í sínu starfi hjá Sjónvarpinu. Við þekktum hann og foreldra hans alltaf frá því þau áttu heima á Langholtsveginum. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 29 orð

ÓSKAR INGIMARSSON Óskar Ingimarsson fæddist á Akureyri 2. nóvember 1928. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 12. febrúar

ÓSKAR INGIMARSSON Óskar Ingimarsson fæddist á Akureyri 2. nóvember 1928. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 12. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 19. febrúar. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 191 orð

Reynir B. Þórhallsson

Mig setti hljóða og ég grét þegar ég frétti af andláti þínu í gegnum símann í öðru landi. Ég kveið þessum degi löngu áður en ég fór utan að ég fengi fréttir af láti einhvers heima og ég gæti ekki verið þar og tekist á við harmafregnirnar með ástvinum mínum. Nú er sú stund komin og það ert þú sem ég þarf að kveðja hér í ókunnu landi og það er svo erfitt. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 280 orð

Reynir B. Þórhallsson

Mig langar að minnast í fáum orðum móðurbróður míns, Reynis Valdemars Bergmann Þórhallssonar, sem er látinn. Reynir minn. Þú sagðir ekki margt og það fór ekki mikið fyrir þér um dagana, en samt skilur þú eftir fleiri fallegar minningar úr bernsku minni en margur annar. Þú varst samviskusamur við vinnu og þekktir ekki illsku og óhreinlyndi, enda löðuðust að þér bæði börn og dýr. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 329 orð

Reynir B. Þórhallsson

Sumir menn lifa í þögn, hún er ekki lærð og enginn getur numið hana á skólabekk, hún er inní fólki og víkur aldrei fyrir nokkrum hávaða, engri mússík, engu tónfalli. Þetta er þögn sem fáir þekkja og ekki nútíminn. En það er gott að vera með henni, það er gott að heyra hana hljóma á næsta bæ við sig. Meira
8. mars 1996 | Minningargreinar | 127 orð

REYNIR B. ÞÓRHALLSSON

REYNIR B. ÞÓRHALLSSON Reynir B. Þórhallsson var fæddur í Reykjavík 14. júní 1918. Hann lést á Landspítalanum 27. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhanna Magnúsdóttir Bergmann og Þórhallur Valdemar Einarsson, trésmiður. Þórhallur var ættaður úr Eyjafirði en Jóhanna frá Fuglavík, Miðnesi. Meira

Viðskipti

8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 135 orð

23 milljóna hagnaður hjá VÍB

HAGNAÐUR af rekstri Verðbréfamarkaðar Íslandsbanka á síðasta ári nam tæpum 23 milljónum króna og hefur hann aukist umtalsvert frá árinu 1994 er hagnaður verðbréfafyrirtækisins nam röskum 13 milljónum. Að sögn Sigurðar B. Stefánssonar, framkvæmdastjóra VÍB, stafar aukinn hagnaður fyrst og fremst af auknum umsvifum fyrirtækisins og góðrar ávöxtunar á verðbréfamarkaði. Meira
8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 75 orð

Elephant til Íslands

ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson hf. hefur sett á markað Carlsberg Elephant-bjór sem er 7,2% að styrkleika. Fyrst um sinn verður bjórinn eingöngu fáanlegur á vínveitingastöðum en vonast er til að fljótlega verði hægt að bjóða einstaklingum að panta hann gegnum sérpöntunarkerfi ÁTVR. Meira
8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 65 orð

Fundað um söfnunartryggingar

TVEIR fulltrúar enska tryggingafélagsins Sun Life, þeir Philip Morse og David Brickley, munu kynna starfsemi félagsins á fundi á Hótel Esju kl. 10 í dag. Rætt verður um starfsemi Sun Life, hvað það hafi að bjóða Íslendingum og hvernig horfurnar séu á mörkuðum í Bretlandi, Evrópu, Japan og Bandaríkjunum o.fl. í ár. Boðið verður upp á léttan hádegisverð á milli erinda. Meira
8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 158 orð

Fyrirtækjum skylt að birta ársreikninga

FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út reglugerð um skil og birtingu ársreikninga þar sem kveðið er á um skilaskildu fyrirtækja á ársreikningum sínum. Samkvæmt reglugerðinni mun embætti Ríkisskattstjóra gegna hlutverki Hlutafélagaskrár fram til ársloka 1997 hvað varðar móttöku, geymslu og birtingu ársreikninga. Samkvæmt reglugerðinni ber öllum fyrirtækjum, sem lög nr. Meira
8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 257 orð

Hagnaður Glitnis eykst um 60%

HAGNAÐUR af rekstri Glitnis hf. á síðasta ári var tæpar 105 milljónir króna og jókst um 60% á milli ára en hagnaður ársins 1994 nam röskum 66 milljónum króna. Þrátt fyrir aukinn hagnað drógust vaxtatekjur og aðrar rekstrartekjur saman á milli ára. Meira
8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 84 orð

Hlutafé Marel aukið um 47 milljónir

HLUTHAFAR í Marel samþykktu á aðalfundi félagsins á miðvikudag að auka hlutafé í fyrirtækinu samtals um 47 milljónir króna að nafnvirði, að því er fram kemur í frétt frá fyrirtækinu. Annars vegar var ákveðið að auka hlutaféð um 20%, eða sem samsvarar 22 milljónum, með útgáfu jöfnunarhlutabréfa, Meira
8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 83 orð

Hlutafjáraukning hjá Þormóði Ramma

Á AÐALFUNDI Þormóðs Ramma á Siglufirði sl. miðvikudag var samþykkt að veita stjórn fyrirtækisins heimild til þess að auka hlutafé fyrirtækisins um allt að 100 milljónir króna. Jafnframt var samþykkt að auka hlutafé fyrirtækisins um 20% með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Þá var ennfremur samþykkt á aðalfundinum að greiða 10% arð á nafnvirði hlutafjár vegna afkomu ársins 1995. Meira
8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 760 orð

Hugmyndir stjórnvalda í vörugjaldsmálinu óásættanlegar

FÉLAG íslenskra stórkaupmanna hefur skorað á stjórnvöld að afnema nú þegar öll vörugjöld og koma þannig til móts við kröfur félagsins og aðvaranir Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær. Meira
8. mars 1996 | Viðskiptafréttir | 402 orð

Nýtt apótek Lyfju hf. opnað 22. mars

STEFNT er að því að hið nýja apótek Lyfja hf. verði opnað 22. mars nk. í Lágmúla 5 eða rúmri viku eftir að ný lagaákvæði um opnun lyfjabúða hafa tekið gildi. Eigendur Lyfju, Róbert Melax og Ingi Guðjónsson lyfjafræðingar, hugðust sem kunnugt er opna apótekið síðastliðið haust á grundvelli nýju laganna, en gildistöku þeirra var þá frestað til 15. mars. Meira

Fastir þættir

8. mars 1996 | Dagbók | 2663 orð

APÓTEK

apótekanna í Reykjavík dagana 8.-14. mars, að báðum dögum meðtöldum, er í Laugavegs Apóteki, Laugavegi 16. Auk þess er Holts Apótek, Glæsibæ, Álfheimum 74, opið til kl. 22 þessa sömu daga. »BORGARAPÓTEK: Opið virka daga kl. 9-19, laugardaga kl. 10-14. Meira
8. mars 1996 | Í dag | 32 orð

Árnað heillaÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn 8. mars,

Árnað heillaÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn 8. mars, er fimmtugur Jón Erlendur Hjartarson, Austurbergi 18, Reykjavík. Hann tekur á móti fjölskyldu og vinum á heimili sínu í kvöld milli kl. 20 og 22. Meira
8. mars 1996 | Í dag | 512 orð

ETURINN hefur verið fádæmamildur það sem af er. Það v

ETURINN hefur verið fádæmamildur það sem af er. Það var nánast barnaleikur að þreyja þorrann og góuna þetta árið. Þá er eftir að sjá hvern veg einmánuður leikur okkur. Meira
8. mars 1996 | Fastir þættir | 543 orð

Hannes stöðvaði Agdestein

Teflt frá kl. 17 daglega. Aðgangur ókeypis fyrir áhorfendur. NORÐMENN vaða uppi í íslenskri skáklögsögu. Hannes Hlífar varð að vísu fyrstur til að ná jafntefli við Simen Agdestein, en það dugði skammt því Jonathan Tisdall vann landa sinn Rune Djurhuus og eru því tveir Norðmenn jafnir og efstir. Meira
8. mars 1996 | Í dag | 45 orð

Hjúskaparafmæli Í miðvikudagsblaði Morgunblaðsins var sagt að hjó

Í miðvikudagsblaði Morgunblaðsins var sagt að hjónin Guðrún Jónsdóttir og Tryggvi Jóhannesson, Ytra-Laugalandi, Eyjafjarðarsveit hefðu átt sextíu og fimm ára hjúskaparafmæli þann 5. mars sl. Hið rétta er að brúðkaupsafmæli þetta verður 5. mars á næsta ári, en Morgunblaðinu bárust rangar upplýsingar í hendur. Meira
8. mars 1996 | Í dag | 44 orð

Kveðja úr Skagafirði Hleypti öllu í brand og bál

Hleypti öllu í brand og bál bölvað lygaþvaður. Flókið er þetta "Flókamál", Flóki er góður maður. Gömul kona úr Skagafirði Gæludýr Kettlingur ÞRIGGJA mánaða svart- og brúnbröndóttur kettlingur með hvítar loppur og bringu fæst gefins á gott heimili. Meira
8. mars 1996 | Í dag | 25 orð

Pennavinur

Pennavinur ÞRETTÁN ára sænsk stúlka sem býr á Skáni í syðsta hluta landsins. Hefur margvíslega áhugamál: Josefin Levander, Herrestadsg. 12, 260 80 Munka Ljungby, Sweden. Meira
8. mars 1996 | Dagbók | 620 orð

Reykjavíkurhöfn: Í fyrradag kom Engey.

Reykjavíkurhöfn: Í fyrradag kom Engey. Þá komu Polaris og Amasat sem fóru út í gær. Í gær komu Júlli Dan, Skagfirðingur, fold, Arina Artica ogÚranus. Þá fóru Núpur GA, Frosti og Kristrún. Viðey er væntanleg fyrir hádegi. Meira

Íþróttir

8. mars 1996 | Íþróttir | 73 orð

Arsenal á eftir Ronaldo

BRUCE Rioch, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur að undanförnu verið á ferðinni í Frakklandi og víðar, til að fylgjast með leikmönnum. Tvö ensk blöð sögðu frá því í gær að Brasilíumaðurinn Ronaldo, sem leikur með PSV Eindhoven í Hollandi, sé efstur á óskalistanum hjá Rioch. Inter Mílanó hefur einnig sýnt hinum 19 ára leikmanni áhuga. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 53 orð

Bann á heimavöll St. Etienne

FRANSKA liðið St. Etienne var í gær sett í eins leiks heimaleikjabann. Ástaðan fyrir því er að stuðningsmenn liðsins köstuðu ýmsum hlutum að markverði Lyon, Pascal Olmeta, í leik liðanna í sl. mánuði. Stöðva varð leikinn tvisvar. St. Etienne verður að leika gegn Cannes 16. mars á hlutlausum velli. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 254 orð

Duranona náði ekki meti Valdimars

KÚBUMAÐURINN Julian Duranona, leikmaður KA-liðsins, náði ekki að slá út markamet Valdimars Grímssonar í 1. deild og þar með að rjúfa tvöhundruð marka múrinn. Duranona, sem varð markahæstur fyrstur útlendinga, skoraði 194 mörk - met Valdimars er 198 mörk, sem hann setti 1994. Þá náði KA ekki markameti FH, skoraði 612 mörk í deildinni. FH skoraði 614 mörk 1992. Markahæstu leikmenn 1. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 128 orð

Endurtekið efni

Þróttur R. lagði HK í þremur hrinum gegn einni í íþróttahúsi Hagaskólans í gærkvöldi en viðureignin tók aðeins 69 mínútur. Það var nánast endurtekið efni frá því í bikarleiknum á laugardaginn nema að nú náði lið HK að vinna hrinu. Þjálfarar liðanna eru greinilega að bíða eftir úrslitakeppninni þar sem varamennirnir í báðum liðum fengu að spreyta sig. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 54 orð

Grænt ljós á Dumitrescu og Hottiger

RÚMENSKI landsliðsmaðurinn Ilie Dumitrescu og Svisslendingurinn Marc Hottiger hafa fengið atvinnuleyfi á ný í Englandi og mega því leika með liðunum sem þeir gengu til liðs við fyrir stuttu. West Ham keypti Dumitrescu frá Tottenham á 1,5 milljónir punda og Everton keypti Hottiger frá Newcastle á 700 þús. pund. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 170 orð

Haukar - ÍR71:69

Íþróttahúsið við Strandgötu, fyrsti leikur í 8-liða úrslitum, fimmtudaginn 7. mars 1996. Gangur leiksins: 8:0, 11:5, 11:16, 17:18, 21:25, 23:28, 29:35, 32:35, 32:40, 36:46, 41:46, 49:55, 52:58, 56:58, 61:63, 67:63, 67:66, 69:66, 69:69, 71:69. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 521 orð

Haukar sluppu fyrir horn

HAUKAR úr Hafnarfirði sluppu svo sannarlega fyrir horn í gærkvöldi er þeir tóku á móti ÍR í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum úrvalsdeildarinnar í köfuknattleik. Pétur Ingvarsson tryggði Haukum sigur þegar fimm sekúndur voru til leiksloka en Breiðhyltingar höfðu undirtökin nær allan tímann. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 255 orð

Hátíðarleikar í Grikklandi

Nú eru 100 ár liðin frá því fyrstu nútímaólympíuleikarnir voru haldnir, en þeir voru haldnir í Grikklandi árið 1896. Grikkir sóttu um að halda leikana í ár en Atlanta varð fyrir valinu. Grikkir voru ekki sáttir við það, en hafa nú sæst við alþjóða ólympíunefndina og ætla í samráði við hana að hafa mikla hátíð í Aþenu til að minnast 100 ára afmælis leikanna. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 179 orð

Heimsbikarinn á skíðum

Lillehammer, Noregi: Risasvig karla: 1. Kjetil Andre Aamodt (Noregi) 1.33,15 2. Luc Alphand (Frakklandi) 1.33,21 3. Lasse Kjus (Noregi) 1.33,45 4. Peter Runggaldier (Ítalíu) 1.33,75 5 Bruno Kernen (Sviss) 1.34,18 5 Fredrik Nyberg (Svíþjóð) 1. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 116 orð

Hodgson má ekki stjórna Inter gegn AC Milan

ROY Hodgson, þjálfari Inter Mílanó, má ekki stjórna liði sínum í nágrannabaráttunni gegn AC Milan á sunnudaginn á San Siro-leikvellinum í Mílanó. Hodgson var dæmdur í eins leiks bann og til að greiða 117 þús. ísl. kr. í sekt fyrir þras í dómara í leik Inter gegn Lazíó á Ólympíuleikvanginum í Róm um sl. helgi. Inter hefur unnið fjóra síðustu leiki sína. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 238 orð

Hægt er að notfæra sér lítinn snjóskafl

Þótt lítill snjór sé fyrir hendi heldur Ólafur Björnsson áfram að leiðbeina fólki sem vill stunda skíðagöngu. HÉR er næsta vikuáætlun fyrir skíðagöngufólk. Snjóleysið er að verða ansi leiðinlegt en munið bara að hvað varðar skíðagöngu er hægt að notfæra sér hvern lítinn snjóskafl til æfinga þótt skemmtilegra væri auðvitað að hafa troðnar göngubrautir. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 41 orð

Í kvöld Körfuknattleikur Úrvalsdeildin 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Grindavík:UMFG - Skallagr.20 Keflavík:Keflavík - KR20

Körfuknattleikur Úrvalsdeildin 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Grindavík:UMFG - Skallagr.20 Keflavík:Keflavík - KR20 Handknattleikur Úrlsitakeppni 2. deildar: Strandgata:ÍH - Þór20 Fimleikar Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 556 orð

Kjörinn stökkpallur fyrir minni spámenn

FLESTIR fremstu frjálsíþróttamenn Evrópu láta hjá líða að mæta á Evrópumeistaramótið innanhúss í Stokkhólmi um helgina, en mótið hefst í dag. Þeir bestu eru allir að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana og hætta ekki á að meiðast á innanhússmótinu og verða því ekki með. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 70 orð

Knattspyrna Evrópukeppni bikarhafa Fyrri leikir í 8-liða úrslitum. Moskva, Rússlandi: Dynamo Moskva - Rapid Vín0:1 -Christian

Evrópukeppni bikarhafa Fyrri leikir í 8-liða úrslitum. Moskva, Rússlandi: Dynamo Moskva - Rapid Vín0:1 -Christian Stumpf (34.). 3.000. D¨ussledorf, Þýskalandi: Gladbach - Feyenoord2:2 Peter Wynhoff (8.), Thomas Kastenmaier (43. - vítasp.) - Jean-Paul van Gastel (35.), Ronald Koeman (45. - vítasp.). Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 77 orð

KÖRFUKNATTLEIKURÍR veitti mótspyrnu

ÚRSLITAKEPPNIN í úrvalsdeildinni í körfuknattleik hófst í gærkvöldi með tveimur leikjum. Njarðvíkingar lögðu Tindastólsmenn fremur auðveldlega en Haukarnir lentu í miklu basli gegn sprækum ÍR- ingum. Mikil spenna var í Hafnarfirðinum og réðust úrslitin ekki fyrr en alveg undir lokin þegar Pétur Ingvarsson skoraði sigurkörfu Hauka. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 50 orð

Leiðrétting

Í frásögn af leik UMFA og Selfoss í 1. deild karla í blaðinu gær var sagt að leikurinn hefði endað 28:26 fyrir UMFA. Það er ekki rétt. Hið rétta er að Mosfellingar sigruðu 28:27. Þá skoraði Valdimar Grímsson 10 mörk fyrir Selfoss en ekki níu. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 79 orð

Logi Jes bætti sig

LOGI Jes Kristjánsson, sundmaður úr Eyjum, bætti sig í 200 stiku baksundi á háskólamóti í S-Kaliforníu um sl. helgi. Hann synti á 1.48,98 mín. og bætti árangur sinn um 63 hundruðustu úr sek. Þá synti hann 100 stiku sund á 50,61 sek., sem er einn tíunda úr sek. frá hans besta árangri. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 57 orð

Markahæstir Julian Duranona, KA1

Julian Duranona, KA194/66 Juri Sadovski, Gróttu175/72 Valdimar Grímsson, Selfossi169/69 Patrekur Jóhannesson, KA153/18 Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, KR135/37 Arnar Pétursson, ÍBV132/32 Knútur Sigurðsson, Víkingi132/53 Dimitri Filippov, Stjörnunni129/56 Gunnar B. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 140 orð

Márus hætti vegna Rhodes

MÁRUS Arnarson, fyrrum leikmaður ÍR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, hafði samband við blaðið í gær og sagði það ekki rétt að hann hefði hætt með ÍR af persónulegum ástæðum eins og haft er eftir John Rhodes þjálfara liðsins í gær. "Ástæðan fyrir því að ég er hættur er einföld; John Rhodes. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 37 orð

Meistaramót Reykjavíkur

Opið Meistaramót Reykjavíkur í badminton verður í TBR-húsunum um helgina. Keppt verður í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í meistaraflokki, A-flokki og B- flokki. Þátttöku verður að tilkynna til TBR í síðasta lagi á hádegi í dag. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 133 orð

NBA-deildin Toronto - New York82:89 Boston - LA Clippers110:97 Philadelphia - Minnesota90:103 Washington - Seattle99:88 San

NBA-deildin Toronto - New York82:89 Boston - LA Clippers110:97 Philadelphia - Minnesota90:103 Washington - Seattle99:88 San Antonio - Denver100:90 Utah - Indiana101:94 Evrópukeppni meistaraliða Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 312 orð

Njarðvíkingar réðu ferðinni

"ÞETTA gekk vel á meðan við lékum eins og við ætluðum okkur og það var að stjórna hraðanum. Síðan komu kaflar þar sem menn reyndu að leika á sama hraða og Njarðvíkingar og þá var okkur refsað um leið. Nú verðum við að standa okkur fyrir norðan og þar munum við ekkert gefa eftir," sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari Tindastóls frá Sauðárkróki eftir að lið hans hafði tapað með 22 stiga mun, 102:80, Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 235 orð

Robinson meiddist er Spurs vann Denver

Þrátt fyrir að David Robinson meiddist skömmu fyrir hlé í leik San Antonio Spurs og Denver tókst Spurs að sigra og fóru Vinny Del Negro og Will Perdue fyrir heimamönnum, Negro gerði 29 stig og Perdue tók 10 fráköst auk þess sem hann gerði 14 stig. Robinson meiddist á fingri skömmu fyrir leikhlé og er óvíst hvort hann getur verið með á næstunni. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 46 orð

Tveir landsleikir við Svía

ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik mætir sænska landsliðinu í tvígang í Vestmannaeyjum um helgina. Báðir leikirnir eru liður í undankeppni Evrópumeistaramótsins. Fyrri leikurinn verður á laugardaginn og hefst klukkan 13.30. Hinn síðari verður daginn eftir á sama tíma. Forsala verður í Tvistinum í Vestmannaeyjum. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 106 orð

Uppselt á sjö leiki á EM í Englandi

GEYSILEGUR áhugi er fyrir Evrópukeppni landsliða, sem verður í Englandi í sumar - hefst 8. júní með leik Englands og Sviss á Wembley. Nú þegar er búið að selja milljón aðgöngumiða á leikina í EM og er uppselt á sjö þeirra. Knattspyrnusérfræðingar segja að EM verði ein mesta knattspyrnukeppni sem hefur farið fram og rætt er um að meiri spenna verði heldur en í HM. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 196 orð

Vala til alls líkleg

Vala Flosadóttir hefur verið að stökkva vel í stangarstökki að undanförnu og í dag keppir hún á Evrópumeistaramótinu innanhúss, en mótið verður sett í Globen í Stokkhólmi í dag. Vala, sem býr og æfir í Svíþjóð, sagðist í samtali við Morgunblaðið aldrei hafa komið í hina glæsilegu íþróttahöll í Stokkhólmi þannig að hún væri alls ekki á heimavelli þó svo keppt væri í Svíþjóð. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 124 orð

Varamaðurinn skoraði

David Fernandez, sem kom inná sem varamaður, tryggði Deportivo La Coruna sigur, 1:0, gegn Real Zaragoza í "Spánarbaráttunni" í La Coruna. Fernandez, sem kom inná fyrir landsliðsmanninn Javier Manjarin, var ekki búinn að vera inná nema í tíu mín. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 170 orð

Þjálfari AC Milan ekki til Real Madrid

LORENZO Sanz, forseti Real Madrid, hefur afskrifað að Fabio Capello, þjálfari AC Milan, sem hefur sagt að hann hafi hug á að breyta til eftir þetta keppnistímabil, komi til Spánar. "Capello kemur ekki til Real Madrid, þar sem hann væri búinn að skrifa undir samning við Parma," sagði Sanz í viðtali við sjónvarpsstöð á Ítalíu eftir leik Real Madrid og Juventus á miðvikudaginn. Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 474 orð

Þýðingarmikið mark Koemans í D¨usseldorf

RONALD Koeman skoraði afar þýðingarmikið mark fyrir Feyenoord í D¨usseldorf, þar sem hann jafnaði, 2:2, fyrir hollenska liðið úr vítaspyrnu gegn Borussia Mönchengladbach, aðeins tveimur mín. eftir að Thomas Kastenmaier hafði skorað, 2:1, fyrir "Gladbach". Meira
8. mars 1996 | Íþróttir | 36 orð

(fyrirsögn vantar)

»Morgunblaðið/Sverrir TEITUR Örlygsson var besti maður vallarins er Njarðvíkingar unnu Tindastól í gærkvöldi í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum. Hér er hann tilbúinn að skjóta en Pétur Guðmundsson, sem átti ágætan leik, er til varnar. Meira

Fasteignablað

8. mars 1996 | Fasteignablað | 395 orð

Asíubúar þrýsta upp verði fasteigna í Vancouver

VANCOUVER er fræg fyrir fallegt útsýni til Kyrrahafs í vestri og fjallanna í austri. Fyrir 25 árum hefði mátt kaupa hús með slíku útsýni fyrir 50.000 Kanadadollara. Slíkt hús hefði líklega verið um 160 fermetrar með þremur svefnherbergjum, stórum kjallara og stórum garði, að sögn Heiners Blums, starfsmanns fasteignasölu í Vancouver. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 759 orð

Erfiðleikar húsnæðisráðgjafa

ÞEGAR gerðar eru áætlanir um íbúðakaup eða húsbyggingar, eru helstu erfiðleikar þeirra áætlana, hversu vel unnt er að treysta þeim forsendum sem gengið er út frá. Margt getur breyst eftir að ákvörðun um kaup eða byggingu hefur verið tekin, eins og dæmin sanna. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 1078 orð

Gamall stóll SmiðjanGamlir hlutir grípa augað, segir Bjarni Ólafsson. Það er eins og þeir hafi eitthvað meira að segja okkur

ÞAÐ er seinlegt að gera við gamla muni, sem bilað hafa. Fólki finnst hreint og beint að sé verið að okra á því þegar kemur að því að greiða fyrir viðgerð á gömlum húsgögnum. Það er sama hvort um er að ræða stól, borð, kommóðu eða hvað annað. Okkur langar til að fá þetta gert upp. Gamlir hlutir grípa líka augað. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 743 orð

Háir hitareikningar en kalt í húsinu LagnafréttirRennslisstillingin má ekki gleymast, segir Sigurður Grétar Guðmundsson. Hver

GETUR þetta gengið upp að það sé kalt í húsinu en hitareikningarnir þó háir? Því miður er þetta ótrúlega algengt á höfuðborgarsvæðinu, vatnseyðslan mikil en hitinn lélegur. Þannig getur ástandið verið ár eftir ár en þrátt fyrir það situr fólk heima í stofu við ónógan hita og borgar hitareikningana með ólund. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 39 orð

Hjúkrunar- heimili

ÞAÐ er kominn tími til að endurskilgreina hlutverk ríkisins í öldrunarþjónustunni, áður en allt er komið í hnút, segir Gyða Jóhannsdóttir. Hún er í forystu fyrir hópi aldraðra, sem hyggjast sjálfir byggja einkarekið hjúkrunarheimili í Reykjavík. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 649 orð

Hópur aldraðra hyggst sjálfur byggja umönnunarog hjúkrunarheimili

HAFINN er undirbúningur að byggingu einkarekins hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Reykjavík og hefur hópur aldraðra starfað að þessu máli um nokkra hríð. Ljóst þykir að ríki og sveitarfélög standa vart undir þeim auknu kröfum sem gerðar verða á öldrunarþjónustu á næstu árum en fjöldi eldra fólks á framfæri hins opinbera fer sífellt vaxandi. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 454 orð

Húsfyllir á fundi Lagnafélagsins

LAGNAFÉLAG Íslands hélt umræðufund í Hafnarfirði sl. laugardag um "Rör-í-rör kerfi og utanáliggjandi lagnir". Húsfyllir var á fundinum og urðu sumir frá að hverfa. Í fréttatilkynningu frá Lagnafélaginu segir, að þessi mikla þátttaka sýni vaxandi áhuga á nýjum lausnum í lagnamálum. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 897 orð

Íbúðarhús af sænskri gerð byggt á Akranesi

VIÐ Jörundarholt 1c á Akranesi er verið að byggja einbýlishús úr einingum framleiddum af sænska fyrirtækinu LB-Hus AB og er þetta fyrsta húsið frá því fyrirtæki, sem byggt er hér á landi. Athygli hefur vakið hve uppsetning hússins gekk hratt fyrir sig. Húsið var reist á tveimur dögum, fullbúið að utan, að þakklæðningu undanskilinni og grunnmálað. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 547 orð

Íbúðir hjá Sunnuhlíð í Kópavogi

Áundanförnum árum hefur framboð af sérhæfðu íbúðarhúsnæði fyrir eldra fólk vaxið mjög mikið og er nú svo komið að í nánast öllum íbúðahverfum á höfuðborgarsvæðinu er að finna einn eða fleiri valmöguleika að þessu leyti. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 29 orð

Lokrekkja í gömlum stíl

Lokrekkja í gömlum stíl Á ÞESSARI mynd má sjá gamla og útskorna lokrekkju. Fyrir þá sem hagir eru í höndum er svona smíð verðugt viðfangsefni á köldum og dimmum vetrarkvöldum. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 435 orð

Lóðaúthlutanir í Kópavogi

UM síðustu helgi voru auglýstar til úthlutunar nokkrar raðhúsalóðir hjá Kópavogsbæ. Að sögn Birgis Sigurðssonar, skipulagsstjóra hjá Kópavogsbæ, eru þessar lóðir í Blikahjalla, neðst í Digraneshlíðum og í jaðri útivistarsvæðisins í Kópavogsdal. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 329 orð

Lægra fasteignaverð í París

PARÍS hefur alltaf vakið áhuga erlendra fasteignakaupenda, en þar hefur fasteignaverð samt lækkað síðan 1992 að sögn heimsblaðsins International Herald Tribune. Á sama tíma hefur franski frankinn verið sterkur og flæði fjárfestinga frá Bandaríkjunum hefur stöðvast. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 36 orð

Málverk á rúllugardínu

RÚLLUGARDÍNUR eru stundum góð lausn, einkum ef fólk vill láta lítið fara fyrir gluggatjöldunum. Ef fólk vill bæta um betur getur það málað á rúllugardínurnar sínar þær myndir sem hugmyndaflugið ljær máls á. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 1797 orð

Nýjar íbúðir í grónu hverfi í Hafnarfirði

FASTEIGNAMARKAÐURINN í Hafnarfirði er að mörgu leyti frábrugðinn því, sem gerist annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Bærinn er sjálfstætt markaðssvæði, á meðan eignir í Garðabæ og Kópavogi fylgja meira markaðnum í Reykjavík. Í heild er verð á íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði samt mjög sambærilegt við það, sem gerist í Reykjavík og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 259 orð

Nýjar íbúðir í Suðurbæ Hafnarfjarðar

ÞAÐ er lítið um nýjar íbúðir í grónum hverfum í Hafnarfirði. Við Suðurbraut, sunnanvert í útjaðri gamla bæjarins, eru samt risin tvö ný fjölbýlishús með 26 íbúðum, sem eru ýmist tveggja eða þriggja herbergja. Húsin eru steypt upp á hefðbundinn hátt, en klædd að utan með svokölluðu steni, sem er varanlegt efni. Byggingafyrirtækið Sigurður og Júlíus hf. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 195 orð

Ný sumarhúsabyggð í Reykjahverfi

Ný sumarhúsabyggð í Reykjahverfi Laxamýri. Morgunblaðið. NÝTT sumarbústaðaland, Stekkjarhvammur, hefur verið skipulagt í landi Þverár í Reykjahverfi. Við hvern bústað er tæplega hektari lands auk sameiginlegra svæða. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 195 orð

Sérstök parhús í Mosahlið

TVÖ parhús í Mosahlíðinni í Hafnarfirði eru nú til sölu hjá fasteignasölunni Hraunhamri og standa þau við Brekkuhlíð 8­10. "Þetta eru mjög sérstök og glæsileg hús enda teiknuð af Vífli Magnússyni arkitekt," sagði Helgi Jón Harðarson hjá Hraunhamri. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 162 orð

Stórt einbýlishús við Safamýri

HJÁ fasteignasölunni Hátún er ur nú til sölu húseignin Safamýri 18. Þetta er einbýlishús, byggt árið 1967 og er tvær hæðir og kjallari. Að sögn Brynjars Franssonar hjá Hátúni er húsið 290,7 fermetrar að stærð. Það er teiknað af Gunnari Hanssyni arkitekt. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 38 orð

Vandasöm viðgerð

VIÐ getum sparað okkur peninga, ef við treystum okkur til að gera við bilaðan hlut, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan, þar sem hann fjallar um viðgerð á gömlum stól. En það getur verið vandaverk. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 224 orð

Þúsund ára ættarsetur til sölu

ÞÚSUND ára ættarsetur á Englandi hefur verið sett á markað til að greiða skuldir vegna taps á rekstri skemmtigarðs á landareigninni. Hefur eigandinn, Sir Charles Wolseley, gert árangurslausar tilraunir til að halda jörðinni, sem er 1162 ekrur og nálægt bænum Rugeley í Staffordshire. Meira
8. mars 1996 | Fasteignablað | 434 orð

Þörf fyrir nýjar íbúðir mest hér á landi

AUKIN eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði stafar ekki einöngu af bættum efnahag eða íbúafjölgun. Aðrir þættir koma þar einnig til eins og hækkandi aldursdreifing, en reynslan sýnir, að þá þarf fleiri íbúðir hlutfallslega miðað við íbúafjölda en áður. Einnig þarf að taka tillit til úreldingar íbúðarhúsnæðis. Meira

Úr verinu

8. mars 1996 | Úr verinu | 309 orð

Heildarsala yfir 100.000 tonnin þriðja árið í röð

ÁRIÐ 1995 reyndist Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna gott að því er fram kom í máli Friðriks Pálssonar, forstjóra SH, á morgunverðarfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í gær. Fundur þessi var haldinn samtímis á Akureyri og í Reykjavík með aðstoð ljósleiðara og mun þetta vera í fyrsta sinn sem slíkur fundur er haldinn hér á landi. Meira
8. mars 1996 | Úr verinu | 70 orð

Koma stjórn á kavíarvinnslu

RÚSSAR eru nú að reyna að koma stjórn á framleiðslu og útflutning á styrjukavíar. Veiðar á styrju hafa fallið úr 16.800 tonnum í 2.000 frá árinu 1983 og útflutningurinn er nánast í rúst. Rússar hafa tapað verulegri hlutdeild á heimsmarkaðnum vegna ólöglegrar framleiðslu. Meira

Daglegt líf (blaðauki)

8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 236 orð

30-40ára

Á FERTUGSALDRI lítur húðin enn ágætlega út og ef réttum ráðum er fylgt helst hún þannig enn um sinn. Húðlitur á andliti, hálsi og bringu kann að vera svolítið ójafn vegna þess að starfsemi litarfrumanna er hægari en áður. Hjá sóldýrkendum hefur sólin trúlega minnkað teygjanleika húðarinnar og valdið einhverjum hrukkum. 1. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 291 orð

40-60ára

ÞEGAR hér er komið sögu hefur húðin trúlega tapað teygjanleik sínum að einhverju leyti, broshrukkur hafa dýpkað, fíngerðu línurnar umhverfis augun eru orðnar afmarkaðri og stundum hafa svokallaðir aldursblettir myndast á húðinni. Allt þetta á rætur að rekja til þess að fitupúðarnir undir húðinni hafa minnkað, en slíkt veldur einnig öðrum breytingum á andlitinu, t.d. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 697 orð

Allar verslanir með sama yfirbragði og andrúmslofti hvar sem er

MAX Mara í Reykjavík er nú orðin eins og aðrar Max Mara verslanir hvar sem er í heiminum. Um síðustu helgi fluttu eigendur verslunarinnar sig um set á Hverfisgötunni, fóru úr 70 fm verslunarplássi að Hverfisgötu 52, þar sem verslunin hefur verið frá upphafi, í 120 fm að Hverfisgötu 6. Og flutningunum fylgja ýmsar aðrar breytingar. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 917 orð

Getnaðarvörnum er ýtt til hliðar en barnið lætur bíða eftir sér

PAR hefur regluleg kynmök án getnaðarvarna í heilan mánuð. Hversu líklegt er að konan verði þunguð? Raunin er sú að líkurnar eru mun minni en flestir halda. Rannsóknir benda til þess að að jafnaði séu einungis sex frjóir dagar í mánuði en suma þessa sex daga séu líkurnar ekki mjög góðar. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 934 orð

Góður matur og grannur líkami

FITUSNAUÐAR mjólkurafurðir, fitulaust kjöt, skinnlaus kjúklingur, heilhveiti- og hrökkbrauð, ávextir, grænmeti (kartöflur en ekki avókadó), grænmetissafi, soja, tófú og fiskur er allt ljómandi fæða sem enginn fitnar af, ef borðað er í hófi. Maður þarf að gæta sín á mjólk og mjólkurostum, laxi, franskbrauði, kartöflumús, ólífum, smjöri, sultu, hunangi, kaffi og svörtu te. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 1243 orð

Heimsmynd vísindamanna ­ sannleikur eða skáldskapur?

SPURNINGUNNI "er vit í vísindum?" veltu þrír ungir menn fyrir sér síðasta sumar. Þeim fannst fólk ýmist í ökla eða eyra; þjást af blindri trú á þau eða hafna niðurstöðum þeirra algerlega. Þá langaði til að biðja fræðimenn að leiða saman hesta sína og halda aðgengilega lestra fyrir almenning um vísindatrú og vísindahyggju. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 1216 orð

Hestar skapa lífsgleði hjá fólki sem þykir vænt um þá

Í HESTHÚSI Einars Öders Magnússonar og Svanhvítar Kristjánsdóttur á Selfossi eru tíu stóðhestar sem mynda litla stóðhestastöð. Þar eru einnig góðhryssur og auk þess hafa þau hluta af hesthúsi vina sinna til afnota. Þá eru þau með unghross í uppeldi á Þjótanda við Þjórsárbrú og á Grjóteyri við Meðalfellsvatn í Kjós. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 196 orð

Hjólandi húsgögn til þess að lífga upp á heimilið

ÞEIR sem búa í litlu og þröngu húsnæði eiga oft í stökustu vandræðum með að koma húsgögnum heimilisins fyrir á "réttan" hátt, að ekki sé talað um að breyta einhverju og endurraða. Það er hægara sagt en gert að flytja til þung húsgögn í þröngu rými. Þetta getur verið leiðigjarnt, enda hressandi fyrir sálartetrið að fá útrás fyrir sköpunargleðina með svona breytingum. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 209 orð

Hundalíf

ÞAÐ var líf og fjör í Íþróttahúsi Digranesskóla um síðustu helgi. Keppni í fullum gangi, en keppendur frábrugnir þeim sem venjulega spreyta sig þar í hinum ýmsu íþróttagreinum. Það var nefnilega sýning hjá Hundaræktarfélagi Íslands og hundarnir sem tóku þátt í sýningunni voru hvorki fleiri né færri en 248 af af 36 tegundum. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 162 orð

Húðumhirða á ýmsum aldursskeiðum

HÚÐSNYRTIVÖRUM er ætlað að hægja á Elli kerlingu, sem flestum finnst geisast áfram á full miklum hraða. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið, því best þykir að hefja fyrirbyggjandi aðgerðir strax á unglingsárum. Auk þess að nota viðeigandi húðsnyrtivörur eru ýmsir þættir sem viðhalda unglegri húð lengur en ella. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 906 orð

Kílóin burt á 7 dögum

SEXTÍU og fimm kíló. Það er hámarkið. Ég get sætt mig við 65,8 en 66, 67, 68, svo ekki sé talað um 69 kíló - þá er ég hlaupin í spik. Yfirleitt nægir að draga úr narti á milli mála og skera niður súkkulaðiát og kílóin hverfa smám saman. Ég hef litla trú á megrunarkúrum. Þeir bera skammvinnan árangur og eru oft svo flóknir að ég nenni ekki að fylgja þeim. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 139 orð

Rannsókn bendir til að umhverfið hafi áhrif á alzheimersjúkdóminn

ÞÓTT fátækt og menntunarleysi sé áhættuþáttur Alzheimersjúkdómsins hefur komið í ljós að sjúkdómurinn er fjórum sinnum algengari meðal svertingja í Indíana í Bandaríkjunum en meðal fólks af sama uppruna, sem býr í Ibadan í Nígeríu. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 487 orð

Saga sigurvegaraog vísinda en hjáfræðimætti hinsvegar afleggja

ÞORSTEINN Vilhjálmsson prófessor í vísindasögu og eðlisfræði flutti lestur í fyrirlestraröðinni "Er vit í vísindum" sem hét "Vísindin, sagan og sannleikurinn". Þorsteinn velti meðal annars fyrir sér hvort rétt væri að kalla vísindalegar kenningar sannar eða ósannar. Jarðmiðjukenningin var til að mynda eðlileg áður en kíkir og smásjá komu til sögunnar. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 341 orð

Undrasúpukúrinn

Undrasúpan 3 stórir laukar 1 stór dós tómatar 1 lítið grænkál 2 paprikur 1 búnt sellerístangir 4 gulrætur 2 pakkar lauksúpa Skerið grænmetið smátt út í stóran pott. Blandið lauksúpunni saman við og hellið vatni yfir svo að fljóti yfir grænmetið. Látið sjóða í klukkustund. Það má bragðbæta súpuna með sojasósu ef þörf krefur. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 492 orð

Útskýringar á flóknum fyrirbærum

VAL á húðsnyrtivörum getur verið býsna flókið ef afgreiðslukonan í snyrtivörubúðinni slær mikið um sig með framandi erlendum orðum, efnafræðiheitum, slangri og slettum um varninginn, innihald hans og áhrif. Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 468 orð

Vonbrigði hve margar trassa að koma í brjóstamyndatöku

FRÁ árinu 1988 hafa um 80% kvenna á aldrinum 20-69 ára mætt á þriggja ára fresti í leghálskrabbameinsskoðun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands og heilsugæslustöðvum utan Reykjvíkur. Þótt mæting hafi aukist frá því að vera um 50% til ársins 1981 segir Kristján Sigurðsson, yfirlæknir LKÍ, Meira
8. mars 1996 | Daglegt líf (blaðauki) | 236 orð

(fyrirsögn vantar)

Á ÞRÍTUGSALDRI er húðin yfirleitt teygjanleg, fljót að endurnýjast og nánast hrukkulaus. 1. Til að viðhalda æskublómanum er ráðlagt að forðast útfjólubláu geisla sólarinnar eins og framast er kostur og hvers kyns mengun í umhverfinu. Hússérfræðingar fullyrða að sól og mengun séu mestu skaðvaldar húðarinnar. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.