Greinar þriðjudaginn 7. september 2004

Fréttir

7. september 2004 | Minn staður | 53 orð

Atlantsolía sækir um lóðir

ATLANTSOLÍA hefur sótt um lóðir fyrir bensínstöðvar í Grindavík og Sandgerði. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 373 orð | 1 mynd

Á rokkvaktinni

Neskaupstaður | Trommuleikarinn Pjetur Sævar Hallgrímsson hefur rekið verslunina Tónspil í Neskaupstað í bráðum sautján ár. Þar höndlar hann með tónlist og sitthvað fleira. Menn leita gjarnan í smiðju til Pjeturs eftir tónlistarlegu góðgæti og fágæti. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 72 orð

Bílvelta á Fróðárheiði

BÍLL valt á Fróðárheiði um miðjan dag í gær. Fimm voru í bílnum, einn Íslendingur og fjórir Þjóðverjar, og sakaði þá ekki. Bíllinn er hins vegar gjörónýtur, að sögn lögreglunnar í Ólafsvík, og þykir ljóst að bílbelti hafi bjargað farþegunum frá meiðslum. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 111 orð

Blessuð sé Grímsey

Rúnar Kristjánsson fór til Grímseyjar í fyrrasumar og naut dvalarinnar. Hann orti: Grímsey í öllu er íslensk og sönn og ekki er hér kynslóðabilið. Hér lifir og dafnar sú áræðis önn sem alltaf á virðingu skilið. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 124 orð

Borgarstjórn kemur aftur saman í dag

FYRSTI fundur borgarstjórnar Reykjavíkur eftir sumarleyfi verður í dag klukkan tvö í Ráðhúsinu. Reglulegir fundir borgarstjórnar verða fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar en ekki á fimmtudögum eins og verið hefur. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 97 orð

Ein milljón á dag

TALIÐ er að bílaleigubílar á Íslandi leggi að baki um eina milljón kílómetra á dag yfir sumarið, á mesta ferðamannatímanum. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum ferðaþjónustunnar eru bílar þeir sem leigðir eru út af bílaleigum á Íslandi um það bil 4. Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 106 orð | 1 mynd

Ekki aftur snúið segir Schröder

GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands, sagði í gær, að ekki yrði aftur snúið með þær breytingar á velferðarkerfinu, sem hann hefur beitt sér fyrir. Eru þær sagðar meginástæðan fyrir miklum ósigri jafnaðarmanna í kosningum í Saarlandi um helgina. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 89 orð

Enn vantar marga pláss

Á fjórða hundrað börn hafa enn ekki fengið pláss á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar, þar sem boðið er upp á barnagæslu eftir skóla. Ráða þarf um 30 manns í störf til að hægt sé að veita öllum pláss. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 64 orð

Erlendur ferðamaður á 168 km hraða

LÖGREGLAN á Hvolsvelli stöðvaði ökumann á 168 km hraða á Suðurlandsvegi við Markarfljót í gær. Þar var á ferðinni erlendur ferðamaður á bílaleigubíl og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum í þrjá mánuði, auk greiðslu sektar. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 33 orð | 1 mynd

Eskfirskir taglhnýtingar

Eskifjörður | Þær virðast býsna samstiga í hárgreiðslulínum þessar eskfirsku snótir sem sátu niður undir fjöruborði þar í bæ á dögunum. Allar ljóshærðar með greitt í tagl og undu sér vel í... Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 57 orð | 1 mynd

Ferðast um landið í hjólastól

ÞAU eru ýmis farartækin á þjóðvegum landsins, en varla eru þeir margir sem ferðast um landið á hjólastól, eins og þessi þýski dugnaðarforkur sem lætur fötlun ekki stöðva sig. Hér ræðir Sigurgeir L. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 53 orð

Féll niður af skúrþaki

VINNUSLYS varð um borð í dýpkunarpramma rétt fyrir utan Gróttu á laugardag og var lögreglu tilkynnt um slysið. Þar hafði maður fallið rúmlega 3 metra niður af skúrþaki. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 308 orð

Fjölþætt aðkoma bæjarins að verkefninu

SAMNINGUR milli Akureyrar í öndvegi og Akureyrarbæjar var undirritaður í gær, um fjölþætta aðkomu og styrk bæjarins við átaksverkefni miðbæjarins "Akureyri í öndvegi". Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 156 orð

Flug til Orlando frestaðist um sólarhring

ICELANDAIR varð að fresta flugi til Orlando í Flórída í gærmorgun, þegar tilkynning barst frá bandarískum tolla- og innflytjendayfirvöldum um að flugvöllurinn í Orlando tæki ekki við alþjóðaflugi fyrr en í dag, þriðjudag. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 405 orð

Flytja 10-15% minna vatn en reiknað var með

HJÁVEITUGÖNGIN í stæði Kárahnjúkastíflu flytja 10-15% minna vatn en gert var ráð fyrir, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum athugunar á ástæðum þess að vatnsborð Jöklu hækkaði jafnmikið ofan varnarstíflunnar og raun bar vitni um í ágúst. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 127 orð

Framboðsfrestur vegna kosninga rennur út 25. september

Fellahreppur | Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs, sem fram fara hinn 16. október næstkomandi, rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 25. september. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 528 orð | 1 mynd

Gefa vísbendingar um gen sem stýra vexti útlima mannsins

Nýjar rannsóknir á erfðaeiginleikum hornsíla geta gefið mikilvægar vísbendingar um virkni á hluta erfðamengis mannsins sem menn hafa ekki skilið til þessa, meðal annars þeim sem stýra lengd útlima og öðrum breytilegum þáttum í svipgerð mannsins. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 262 orð

Gerir fyrirtækið að betri söluvöru fyrir ríkið

"ÉG tel að þarna sé Síminn að gæta sinna hagsmuna á viðskiptalegum forsendum. Þetta er ekki pólitísk ákvörðun og ég geri ekki athugasemd við hana," segir Geir H. Haarde fjármálaráðherra um kaup Símans á Fjörni ehf. Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 235 orð | 1 mynd

Gíslatakan talin hafa verið lengi í undirbúningi

TALIÐ er að hryðjuverkamennirnir sem tóku á annað þúsund manns í gíslingu í Beslan í Norður-Ossetíu í síðustu viku hafi lengi haft uppi áform um verknað af þessu tagi. Þykir ljóst að þeir hafi fyrir nokkrum mánuðum verið byrjaðir að smygla vopnum inn í skólabygginguna sem varð vettvangur sannkallaðs blóðbaðs, en að minnsta kosti 335 gíslanna biðu bana eftir að rússneskir sérsveitarmenn létu til skarar skríða gegn hryðjuverkamönnunum á föstudag. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 54 orð

Gómuðu innbrotsþjóf

SNEMMA á sunnudagsmorgun var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt um yfirstandandi innbrot í hús við Hverfisgötu. Er lögreglu bar að garði var þjófurinn á leið út um dyrnar með fangið fullt af þýfi. Hann var handtekinn og þýfinu skilað. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 699 orð | 1 mynd

Hafísinn mun minnka um 50%

Haldi loftslag áfram að hlýna í svipuðum mæli og verið hefur undanfarin ár getur svo farið að dýr sem fara í felubúning að vetrarlagi, þ.e. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 98 orð | 1 mynd

Handtekinn fyrir rán

LÖGREGLAN í Reykjavík handtók 19 ára pilt í gær, grunaðan um rán á lyfjum úr Hringbrautarapóteki í JL-húsinu á laugardag. Lögreglan lagði einnig hald á loftbyssu sem fannst í fórum hans sem og lambhúshettu. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 155 orð | 1 mynd

Hollenskur sigurvegari á Hálandaleikunum

HOLLENDINGURINN Wout Ziljstra sigraði á Íslandsmótinu í Hálandaleikum sem fram fór á Akranesi um helgina. Mótið fór fram á skógræktarsvæðinu, Garðalundi, og var töluverður fjöldi sem fylgdist með leikunum í blíðskaparveðri. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 441 orð | 2 myndir

Hvert methollið rekur annað í Skógá

RÍFANDI veiði er í Skógá undir Eyjafjöllum og heildartalan í dag er hærri heldur en metveiði í ánni til þessa. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 81 orð

Hættir með verslun á Hótel Loftleiðum

FLUGLEIÐAHÓTEL hf. hafa tekið við verslunarrekstri Rammagerðarinnar hf. á Hótel Loftleiðum en Rammagerðin hefur verið með verslun í kjallara hótelsins í rúm þrjátíu ár, að sögn Bjarna Jóhannessonar, framkvæmdastjóra Rammagerðarinnar. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 103 orð

Icelandair segir upp tíu flugmönnum

ICELANDAIR sagði upp tíu fastráðnum flugmönnum um síðustu áramót. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 67 orð

Innbrot í veghefil

BROTIST var inn í veghefil í eigu Vegagerðarinnar á Patreksfirði um helgina, þar sem hann stóð mannlaus í Kerlingarfirði. Hafði þjófurinn á brott með sér forláta útvarpstæki eftir að hafa brotið rúðu á heflinum. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 106 orð

Íþróttahús

Hafin er bygging nýs íþróttahúss á Suðureyri við Súgandafjörð. Átta börn tóku fyrstu skóflustunguna á dögunum. Ísafjarðarbær bauð út smíði hússins í alútboði, að því er fram kemur á vef bæjarins. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 64 orð | 1 mynd

Jöfn réttindi 2008?

ÞORVALDUR Kristinsson, formaður Samtakanna 78 og einn nefndarmanna, segist ánægður með skýrslu nefndarinnar en það séu þó vonbrigði að ekki náðist samstaða um öll atriði. Hins vegar sé gleðiefni að umræðan sé komin af stað. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 61 orð

Mannúðarmál | Evrópusambandið og mannúðarmál er...

Mannúðarmál | Evrópusambandið og mannúðarmál er yfirskrift lögfræðiþings sem haldið verður í Háskólanum á Akureyri í dag, þriðjudaginn 7. september, kl. 16.30 í stofu 14 í Þingvallastræti. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 40 orð | 1 mynd

Mávager sækir í framkvæmdir

Vatnsmýrin | Mávager safnaðist saman við framkvæmdirnar við færslu Hringbrautar þegar verið var að fylla með skeljasandi ekki langt frá Reykjavíkurtjörn. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 213 orð | 1 mynd

Mikill krapi tefur kajakmennina

FJÓRMENNINGARNIR í kajakleiðangri Blindrafélagsins niður með austurströnd Grænlands eru nú á lokasprettinum og jafnframt erfiðasta hluta leiðarinnar. Á sunnudag reru þeir 31 km og lentu í miklum ís, bæði lagnaðarís og krapa. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 210 orð

Mikilvægt að við tökum fyrstu skrefin

EINAR Oddur Kristjánsson og Magnús Stefánsson, þingmenn Norðvesturkjördæmis, segjast gera sér vonir um að stuðningur við tillögu um háskóla á Vestfjörðum eigi eftir að aukast. Málið hafi mikla þýðingu fyrir Vestfirði. Á síðasta ári lögðu Kristinn H. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 171 orð

Missagnir Pétur Pétursson hefur beðið um...

Missagnir Pétur Pétursson hefur beðið um að birt verði eftirfarandi vegna greinar hans í Morgunblaðinu sl. laugardag: "Nokkrar missagnir eru í grein minni um barnaskólann í Keflavík sl. laugardag. Misritast hefur starfsheiti. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 181 orð | 1 mynd

Myndlyklarnir minnka

Myndtölvur eða afruglarar taka á móti stafrænum merkjasendingum og umbreyta þeim í mynd og hljóð í sjónvarpinu. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 609 orð | 1 mynd

Orðnir vanir athygli fjölmiðlanna

Vestmannaeyjar | "Stansið, kallaði lögregluþjónninn til hóps af krökkum sem voru á röltinu á bryggjunni klukkan tvö eftir miðnætti. Hann nálgaðist þau varfærnislega og rétti þeim lundapysju og fór síðan aftur inn í lögreglubílinn og keyrði í burtu. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 110 orð | 1 mynd

OR styrkir fjórar konur í iðn- og verkfræðinámi

ORKUVEITA Reykjavíkur hefur afhent styrki til fjögurra kvenna í iðnnámi og verk- og tæknifræðinámi og var hver styrkur að upphæð 225.000 krónur. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 47 orð

Ósáttur við startgjaldið

SÍÐDEGIS á sunnudag óskaði leigubílstjóri aðstoðar lögreglunnar í Reykjavík vegna farþega sem hann hafði ekið. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 108 orð | 1 mynd

Óskir rætast

Keflavík | Rán Ísold Eysteinsdóttir, 9 ára Keflavíkurmær, bauð Ljósanæturgestum að velja sér óskastein og henda í óskabrunninn að ósk lokinni. Rán Ísold er mikill steinasafnari og alltaf þegar hún finnur fallega steina tekur hún þá með sér heim. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 73 orð | 1 mynd

Prestar hvattir til að biðja fyrir fólki í Beslan

KARL Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hvetur presta til að minnast fólksins í Beslan í Rússlandi þar sem hundruð manna, börn og fullorðin, létu lífið og margir eru sárir. Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 654 orð | 1 mynd

Pútín sætir harðri gagnrýni í rússneskum blöðum

DAGBLÖÐ í Rússlandi vændu Vladímír Pútín forseta og ríkisstjórn hans í gær um að forðast að taka á sig ábyrgð á dauða þeirra sem týndu lífi þegar hryðjuverkamenn tóku skólann í Beslan í Norður-Ossetíu á sitt vald. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 222 orð | 1 mynd

"Aðeins tímabundnar hindranir"

ÞORVALDUR Kristinsson, formaður Samtakanna 78 og einn nefndarmanna, segist afar ánægður með skýrsluna. Hún sé tímamótaverk þar sem fram komi víðtæk og mikilvæg þekking á högum samkynhneigðra. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 265 orð | 1 mynd

"Besti ferðamáti sem ég veit um"

"KAJAKRÓÐUR getur bæði verið rosalega rómantískur og sömuleiðis farið út í miklar öfgar í hina áttina," segir Þröstur Þórisson, 15 ára kajakræðari frá Ísafirði, sem er kominn í hóp þeirra allra bestu á landinu eftir aðeins 18 mánaða ástundun. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 194 orð | 1 mynd

"Eins og ekkert sé heilagt í þessu lífi"

HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segir atburðina í Norður-Ossetíu þá sorglegustu sem hann man eftir lengi og sé það hræðilegt að saklausum börnum sé beitt í slíkum átökum. "Það er eins og ekkert sé heilagt í þessu lífi," segir hann. Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 576 orð | 1 mynd

"Ekkert umburðarlyndi - aðeins harkan sex"

STRÁK á táningsaldri er bannað að segja "grass", gamall maður og langafi má ekki vera ótuktarlegur í orðum og tvö tónlistarfyrirtæki fá ekki að setja upp auglýsingaspjöld. Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 818 orð | 1 mynd

"Við erum að leita að drengnum okkar"

Harmi lostnir íbúar í borginni Beslan í rússneska sjálfsstjórnarlýðveldinu Norður-Ossetíu báru í gær til grafar á annað hundrað fórnarlamba gíslatökunnar í liðinni viku, þúsundir manna voru í líkfylgdunum sem þokuðust áfram um borgina eins og löng lest á... Meira
7. september 2004 | Minn staður | 223 orð | 1 mynd

Rammasamningur undirritaður

SKRIFAÐ hefur verið undir rammasamning milli Háskólans á Akureyri og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands um samvinnu þessara stofnana. Mikael M. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 81 orð

Reiðhjólaslys | Unglingspiltur slasaðist á höfði...

Reiðhjólaslys | Unglingspiltur slasaðist á höfði er hann hjólaði framan á fólksbíl á gatnamótum Vestursíðu og Bugðusíðu í gærmorgun. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild FSA en fékk að fara heim að lokinni skoðun. Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 260 orð | 1 mynd

Ræður Kerry að hætta að tala um Víetnam

BILL Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem gekkst undir hjartaaðgerð í gær, ræður John Kerry, forsetaframbjóðanda demókrata, að hætta að tala um hermennskuferil sinn í Víetnam en ráðast þeim mun harðar að frammistöðu keppinautar síns, George W. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 756 orð | 2 myndir

Samkynhneigðir fái að skrá sig í sambúð

LAGT er til að samkynhneigð pör geti skráð sig í óvígða sambúð og þeim verði heimilt að ættleiða íslensk börn, í skýrslu nefndar forsætisráðuneytisins um réttarstöðu samkynhneigðra, sem kynnt var í gær. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 212 orð

Samkynhneigðir fái að ættleiða innanlands

SAMKYNHNEIGÐ pör í staðfestri samvist munu fá að ættleiða íslensk börn, nái tillögur nefndar forsætisráðherra um réttarstöðu samkynhneigðra fram að ganga en þær voru kynntar í gær. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 167 orð

Síminn náði viðskiptunum

"MÉR sýnist einfaldlega að samkeppni hafi myndast milli Símans og Stöðvar 2 um kaup á þessu fyrirtæki [Fjörni ehf.] og Síminn hafi náð viðskiptunum," segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um kaup Símans á hlut í Skjá einum. Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 212 orð

Sjö bandarískir hermenn felldir

SJÖ bandarískir hermenn og þrír íraskir féllu í gær í árás rétt við Fallujah vestur af Bagdad. Er um að ræða mesta mannfall, sem Bandaríkjamenn hafa orðið fyrir í langan tíma. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 186 orð | 1 mynd

Skoðar áhrif löggjafar ESB á sveitarfélög

ÁRNI Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, fer um næstu áramót til starfa í Brussel m.a. á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 204 orð | 2 myndir

Skógurinn opnaður með flugeldasýningu

Sólbrekkur | Skógurinn í Sólbrekkum hefur verið opnaður almenningi eftir umbætur sem þar hafa verið gerðar á vegum verkefnisins Opinn skógur. Árni M. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 76 orð

Skóli fyrir sendiráðsbörn í Víkurskóla

ALÞJÓÐASKÓLINN í Reykjavík (Reykjavik International School) sem starfræktur hefur verið á vegum bandaríska sendiráðsins fyrir sendiráðsbörn á Íslandi verður opnaður í Víkurskóla í Grafarvogi nk. miðvikudag. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 1036 orð | 1 mynd

Stafrænt sjónvarp mun nást á 92% heimila

Til að ná stafrænum sjónvarpsmerkjum Símans þarf að virkja svokallaða ADSL-tengingu á heimilinu, kaupa mótald og nýjan myndlykil. Kostnaður við það gæti orðið rúmlega tíu þúsund krónur en ekki hefur verið ákveðið hvort myndlykillinn verður seldur eða leigður. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 130 orð

Standa verður vörð um Íbúðalánasjóð

ALMENNUR fundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík um húsnæðismál fagnar vaxtalækkunum í bönkum, lífeyrissjóðum og hjá Íbúðalánasjóði. Þessar vaxtalækkanir eru lántakendum mjög til hagsbóta. Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 210 orð

Svefn getur gert gæfumuninn

FYRIRTÆKI ættu að sjá starfsfólki sínu fyrir beddum á vinnustaðnum vilji þau auka framleiðni þess og virkni. Ný rannsókn sýnir nefnilega að flest fáum við okkar bestu hugmyndir þegar við erum um það bil að festa svefn. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 111 orð

Sænsku konungshjónin í heimsókn

OPINBER heimsókn Karls 16. Gústafs Svíakonungs, Silvíu drottningar hans og Viktoríu krónprinsessu hefst í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tekur á móti gestunum á Bessastöðum. Svíakonungur sækir m.a. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 85 orð

Tónlistarnám verði í boði í grunnskólunum

STEFNT er að því að bjóða upp á tónlistarnám í grunnskólum borgarinnar á næstu misserum fyrir nemendur í for- og grunnnámi tónlistar. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 91 orð

Ungur glanni tekinn á 152 km hraða

LÖGREGLAN í Reykjavík tók sautján ökumenn fyrir of hraðan akstur um nýliðna helgi. Sá sem hraðast fór var mældur á 152 km hraða á Kringlumýrarbraut þar sem leyfilegur hraði er 70 km/klst. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 378 orð

Úr sveitinni

Eftir gott og gjöfult sumar er lífið smám saman að færast í fastari skorður. Skólastarf er hafið og smám saman hefst ýmis starfsemi sem fylgir vetrinum, íþróttir, kórastarf og ýmiss konar félagsstarf og óðum styttist í göngur og réttir. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 288 orð

Verkefnið mun hafa forgang næstu mánuði

"Menn eru sammála því að þetta verkefni hjá samtökunum þurfi að hafa forgang næstu mánuði," segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, í samtali við Morgunblaðið, aðspurður hvernig miði starfi sameiginlegrar lífeyrisnefndar aðila... Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 159 orð

Vilja bjóða út lóðir fyrir bensínstöðvar

UMHVERFISNEFND Ísafjarðarbæjar nefnir þann möguleika að efna til útboðs meðal olíufélaganna við úthlutun lóða undir bensínstöðvar á Ísafirði. Kemur þetta fram í umsögn um umsóknir fjögurra olíufélaga um lóðir undir bensínstöðvar. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 90 orð | 1 mynd

Vill efna til umræðna

"Mér finnst sjálfsagt að taka tillögum nefndarinnar af opnum huga og efna til umræðna um þær, áður en tekin er afstaða til þess, hvernig á einstökum málum skuli tekið við lagasetningu," segir Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, um... Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 801 orð | 1 mynd

Vonar að menn hafi lært eitthvað af fjölmiðlamálinu

INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði kaup Símans á fjórðungshlut í Skjá einum ásamt fleiri málum, sem hæst hafa borið í stjórnmálunum í sumar, snúast um það hverjir ættu Ísland og hefðu aðgang að völdum og áhrifum samkvæmt... Meira
7. september 2004 | Erlendar fréttir | 143 orð

Þrettán drepnir á Gaza

AÐ minnsta kosti þrettán Palestínumenn biðu bana og tuttugu og fimm særðust þegar ísraelskar hersveitir gerðu árásir á æfingabúðir Hamas-samtakanna austarlega á Gaza-svæðinu í gærkvöldi. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 88 orð

Þrjú sektuð fyrir fíkniefnabrot

TVEIR karlmenn um þrítugt og rúmlega tvítug kona hafa verið dæmd í Héraðsdómi Vestfjarða til greiðslu fjársekta fyrir fíkniefnalagabrot á Ísafirði í febrúar sl. Meira
7. september 2004 | Minn staður | 203 orð

Þúsund börn á heiðurslistum grunnskólanna

Reykjanesbær | Nöfn um eitt þúsund barna eru á heiðurslista grunnskóla Reykjanesbæjar sem nú hafa verið birtir í fyrsta sinn. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 95 orð | 1 mynd

Þúsundir barna sækja kirkju vikulega

BARNASTARF kirkjunnar hófst sl. sunnudag en gert er ráð fyrir að á milli 12 og 15 þúsund börn sæki starfið yfir vetrartímann. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 101 orð | 1 mynd

Æfing breyttist í útkall

ÆFING á Eskifirði hjá Slökkviliði Fjarðabyggðar í gærkvöldi endaði óvænt með alvöru útkalli. Meira
7. september 2004 | Innlendar fréttir | 318 orð

Öryrki borinn út úr félagslegri íbúð

BJÖRK Vilhelmsdóttir, formaður félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar, segir það ekki stefnu borgaryfirvalda að veita öllum sem á þurfi að halda ókeypis húsnæði. Meira

Ritstjórnargreinar

7. september 2004 | Leiðarar | 198 orð | 1 mynd

Aumingja Norðurljós

Norðurljós eiga bágt. Fyrirtækið ræður bara yfir öllum einkareknum sjónvarpsstöðvum á Íslandi nema einni. Það ræður bara yfir hér um bil öllum einkareknum útvarpsstöðvum á Íslandi. Meira
7. september 2004 | Leiðarar | 492 orð

Blindgata Pútíns

Að baki gíslatöku tétsenskra aðskilnaðarsinna í bænum Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi liggur ágreiningur, sem nær langt aftur. Í tvær aldir hafa Tétsenar barist gegn yfirráðum Rússa. Meira
7. september 2004 | Leiðarar | 328 orð

Þjóðarheimilið Gljúfrasteinn

Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði það skrítið fyrir sig að bjóða frú Auði Laxness að ganga í bæinn á Gljúfrasteini, þegar þau tvö opnuðu safn Halldórs Laxness þar við hátíðlega athöfn sl. laugardag. Meira

Menning

7. september 2004 | Menningarlíf | 552 orð | 3 myndir

Bubbarobb

Á Leyndarmáli frægðarinnar klæða Paparnir lög Bubba Morthens í eigin búning. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 117 orð | 1 mynd

Dalgliesh snýr aftur

NÆSTU tvö þriðjudagskvöld sýnir Sjónvarpið breska sakamálamynd í tveimur hlutum sem byggð er á sögu eftir hinn góðkunna höfund P.D. James um Adam Dalgliesh rannsóknarlögreglumann. Hér glímir Dalgliesh við flókna morðgátu í prestaskóla í Austur-Anglíu. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 123 orð | 1 mynd

Damien Rice til Íslands á ný

ÍRSKI tónlistarmaðurinn Damien Rice, sem lék á tónleikum 19. mars sl. fyrir troðfullu húsi á Nasa, mun endurtaka leikinn 23. september nk. og leika aftur á Nasa. Miðar seldust upp á fyrri tónleikana á innan við degi og komust þá miklu færri að en vildu. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 109 orð | 3 myndir

Dans stiginn í Borgarleikhúsinu

NÚ STENDUR yfir Nútímadanshátíð í Reykjavík, sem haldin er í Borgarleikhúsinu. Hátíðin var sett á föstudagskvöldið síðasta af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, og lýkur 11. september. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 104 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Læknar búast við því að hinn ástkæri leikari Rodney Dangerfield nái sér að fullu, en hann gekkst undir skurðaðgerð 25. ágúst sl., þar sem skipt var um hjartaloka. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 63 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Liðalausi fönkboltinn Jay Kay hefur verið sviptur ökuréttindum sínum til næstu 6 mánaða eftir að hafa verið gripinn undir stýri jeppabifreiðar á 168 km hraða. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 129 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Söngvari hljómsveitarinnar Pixies , Frank Black , sem kom hingað til lands í sumar, sendir frá sér nýja plötu 12. október. Meira
7. september 2004 | Tónlist | 841 orð | 1 mynd

Gott að eiga stundir með hljóðfærinu sínu

Tónlistarskólinn í Garðabæ fagnar fjörutíu ára starfsafmæli um þessar mundir, en skólinn tók til starfa haustið 1964. Meira
7. september 2004 | Kvikmyndir | 348 orð | 1 mynd

Grípandi firring

Leikstjórn: Larry Clark og Edward Lachman. Handrit: Harmony Korine eftir sögum Larry Clark. Aðalhlutverk: Tiffany Limos, James Ransone, Stephen Jasso, James Bullard, Wade Williams og Amanda Plummer. 98 mín. BNA. Fortissimo Film Sales 2002. Meira
7. september 2004 | Tónlist | 187 orð | 1 mynd

Í 9. sæti í Bretlandi

NÝJASTA plata Bjarkar Guðmundsdóttur, Medúlla , er í níunda sæti breska vinsældalistans sem gildir frá og með morgundeginum, en hann endurspeglar sölu platna í Bretlandi í nýliðinni viku. Meira
7. september 2004 | Tónlist | 128 orð | 1 mynd

Í fótspor Madonnu

SÖNGSVEITIN Nylon eru staddar í Lundúnum við upptökur í einkastúdíói Nigels Wright. Wright er velkunnur upptökustjóri þar ytra og hefur hann unnið náið með Friðriki Karlssyni síðastliðin ár. Wright hefur m.a. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 100 orð | 1 mynd

Leitað að ballettmeistara Íslenska dansflokksins

UM HELGINA var staða ballettmeistara Íslenska dansflokksins auglýst laus til umsóknar í Morgun blaðinu. Staðan felur í sér umsjón með þjálfun dansara, en ennfremur aðstoð við listrænan stjórnanda. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 266 orð

LISTDANS - Reykjavík Dance Festival

Dans og leikur: Stalle Ahrreman, Bernard Cauchard, Francoise Joyce, Bára Magnúsdóttir. Leikstjórn og leikgerð: Birgitta Egerbladh. Dramatúrg: Bodil Persson, Marie Persson Hedenius. Leikmynd: Peter Lundqvist. Lýsing: Jan Gouiedo. Búningar: Maria Felldin. Borgarleikhúsið 4. september 2004. Meira
7. september 2004 | Kvikmyndir | 296 orð | 2 myndir

Lítið fiskimannaþorp undir Almannaskarði

TÖKUR á kvikmyndinni Beowulf and Grendel eða Bjólfskviðu , eins og myndin nefnist á íslensku, hófust í gær við Jökulsárlónið. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 429 orð | 1 mynd

Metsumar í Hollywood

TEKJUR af kvikmyndaaðsókn í Bandaríkjunum hafa aldrei verið meiri en í sumar, annað sumarið í röð, þrátt fyrir að bíógestum hafi fækkað örlítið. Hefur þar ýmislegt að segja. Meira
7. september 2004 | Kvikmyndir | 262 orð | 1 mynd

Mælt með Næslandi

EINN álitsgjafi kanadíska dagblaðsins Toronto Star mælir með Næslandi sem einni af þeim myndum sem fólk eigi að fylgjast með á Kvikmyndahátíðinni í Toronto. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 181 orð | 1 mynd

...nýjum áherslum í Innliti/útliti

ÞÁTTURINN Innlit/útli t hefur göngu sína enn einn veturinn á Skjá einum í kvöld. Margir hafa áreiðanlega beðið með eftirvæntingu eftir því að þessi vinsæli þáttur snúi aftur eftir sumarfrí. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 763 orð | 1 mynd

Sendi SMS og bað um að fá að spila

Á ÞESSU herrans ári 2004 þegar aldrei hafa fleiri erlendar hljómsveitir og söngvarar sótt Ísland heim og leikið á stórtónleikum fyrir landsmenn, eru sumir á að einna kærkomnasta heimsóknin hafi komið frá Írlandi. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 136 orð | 1 mynd

Stafrænir víkingar í Bjólfskviðu

FYRSTI tökudagur vegna kvikmyndarinnar Bjólfskviðu var í gær. Meira
7. september 2004 | Tónlist | 325 orð

TÓNLIST - Hafnarborg

Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Antonia Hevesi píanóleikari flytja íslensk sönglög. Fimmtudagurinn 2. september kl. 12.00. Meira
7. september 2004 | Menningarlíf | 534 orð | 4 myndir

Vályndir tímar

Varla er hægt að segja að bókaflóðið hefðbundna sé hafið en þó hafa bókaútgefendur látið ýmislegt flakka um væntanlegar bækur. Í liðinni viku barst mér í hendur 4. bindi Sögu Akureyrar sem bókaútgáfan Hólar gefur út. Bókin kom út hinn 29. Meira

Umræðan

7. september 2004 | Bréf til blaðsins | 208 orð

Áfram Siv!

Frá Karli Jónatanssyni tónlistarkennara:: "ÞÁ ERU nú þeir háu herrar búnir að drífa sig til að kasta Siv ráðherra fyrir borð. Ég undirritaður er ekki framsóknarmaður en reyni þrátt fyrir það að meta fólk eftir verðleikum burtséð frá því hvar það stendur í pólitík. Ráðherrar sl." Meira
7. september 2004 | Aðsent efni | 749 orð | 1 mynd

Brottfall og stytting náms til stúdentsprófs

Gísli Baldvinsson skrifar um menntamál: "Þá á ekki að koma neinum á óvart að brottfall er mest við upphaf skólagöngu." Meira
7. september 2004 | Aðsent efni | 810 orð | 1 mynd

Brot úr flugsögu Akureyrar

Svanbjörn Sigurðsson skrifar um flugmál: "Það má þó með sanni segja að flugsaga Akureyrar er mjög merkur þáttur í flugsögu Íslands." Meira
7. september 2004 | Aðsent efni | 562 orð | 1 mynd

Takmarkanir á vegabréfsáritun?

Sigurður Antonsson skrifar um ferðamál: "Tíðar afbókanir hjá hótelum sýna að hér er ekki um einstök tilfelli að ræða..." Meira
7. september 2004 | Bréf til blaðsins | 443 orð

Til Adolfs Inga Erlingssonar íþróttafréttamanns

Frá Sigurði Grétari Guðmundssyni:: "ÞÚ komst í fréttir Sjónvarpsins að kvöldi laugardagsins 4. sept. og sagðir okkur frá úrslitum landleiksins í knattspyrnu, sem fram fór á Laugardalsvelli þann dag, sagðir að Ísland hefði tapað fyrir Búlgaríu 3-1." Meira
7. september 2004 | Aðsent efni | 642 orð | 1 mynd

Um útburð úr félagslegu leiguhúsnæði

Áður en til útburðar kemur er iðulega að baki langur ferill þar sem ítrekað hefur verið reynt að aðstoða hlutaðeigandi með húsaleiguskuldir. Meira
7. september 2004 | Bréf til blaðsins | 233 orð | 1 mynd

Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Þjóðaratkvæðagreiðslu um Símann ÞAÐ á að fara að selja Símann og mér finnst það stórmál því ég vil ekki að Síminn sé seldur því þjóðin á þetta fyrirtæki. Nú heyrist enginn tala um þjóðaratkvæðagreiðslu sem mér finnst eiga rétt á sér í þessu máli. Meira

Minningargreinar

7. september 2004 | Minningargreinar | 1152 orð | 1 mynd

ELÍN SIGRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR

Elín Sigríður Jakobsdóttir fæddist á Litla-Ósi í Miðfirði V-Hún. 21. jan. 1914. Hún lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 31. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jakob Þórðarson, bóndi á Litla-Ósi og víðar í Miðfirði, f. 3. Meira  Kaupa minningabók
7. september 2004 | Minningargreinar | 1384 orð | 1 mynd

ELÍSABET FJÓLA KRISTÓFERSDÓTTIR

Elísabet Fjóla Kristófersdóttir fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1925. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 28. ágúst síðastliðinn. Elísabet var dóttir hjónanna Magnúsar Magnússonar frá Geitagili í V-Barð., f. 6.10. 1882, d. 22.10. Meira  Kaupa minningabók
7. september 2004 | Minningargreinar | 750 orð | 1 mynd

GUÐJÓN LOFTSSON

Guðjón Loftsson fæddist á Böggvisstöðum í Svarfaðardal 7. marz 1914. Hann lést á heimili sínu á Dalvík 29. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Guðjóns voru Loftur Baldvinsson, f. 7. júlí 1881, d. 20. apríl 1940, og Guðrún Friðfinnsdóttir, f. 14. Meira  Kaupa minningabók
7. september 2004 | Minningargreinar | 7244 orð | 1 mynd

GUNNAR G. SCHRAM

Gunnar G. Schram, lagaprófessor og fyrrverandi alþingismaður, fæddist á Akureyri 20. febrúar 1931. Hann lést sunnudaginn 29. ágúst síðastliðinn á líknardeild Landspítala á Landakoti. Meira  Kaupa minningabók
7. september 2004 | Minningargreinar | 2607 orð | 1 mynd

HANSÍNA MARGRÉT BJARNADÓTTIR

Hansína Margrét Bjarnadóttir fæddist á Húsavík 13. júlí 1926. Hún lést á heimili sínu í Mosfellssveit 27. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þórdís Ásgeirsdóttir, f. í Knarrarnesi í Álftaneshreppi á Mýrum 30.6. 1889, d. 23.4. Meira  Kaupa minningabók
7. september 2004 | Minningargreinar | 1772 orð | 1 mynd

SIGRÚN SKARPHÉÐINSDÓTTIR

Sigrún Skarphéðinsdóttir fæddist í Reykjavík 23. júlí 1914. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 28. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Skarphéðinn Ármann Njálsson verkamaður í Reykjavík, f. 23.9. 1889, d. 14.7. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

7. september 2004 | Sjávarútvegur | 218 orð

Hvalir éta tannfisk

HVALIR í Suðurhöfum sækja mjög í tannfisk sem tekið hefur línukróka, sjómönnum til sárrar skapraunar. Meira
7. september 2004 | Sjávarútvegur | 618 orð

Veiðileyfagjald íþyngir ekki á þessu fiskveiðiári

VEIÐILEYFAGJALD sem leggst á útgerðina frá og með fyrsta september síðastliðnum mun ekki íþyngja útgerðinni á þessu fiskveiðiári þar sem á móti falla niður gjöld sem nema hærri upphæð en veiðileyfagjaldið nú. Meira

Viðskipti

7. september 2004 | Viðskiptafréttir | 373 orð | 1 mynd

Áliðnaður Quebec í uppnámi

VERKFALL 800 starfsmanna Becancour-álversins í Quebec í Kanada sem er að 75% hlut í eigu Alcoa, og 25% hlut í eigu Alcan, hefur nú staðið í rúma tvo mánuði. Meira
7. september 2004 | Viðskiptafréttir | 76 orð

Flugleiðir og Atorka hækka mest

HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu liðlega 2,6 milljörðum króna. Þar af námu viðskipti með hlutabréf tæplega 1,1 milljarði. Mest viðskipti voru með bréf KB banka , 585 milljónir, en næstmest með bréf Opinna kerfa , 341 milljón. Meira
7. september 2004 | Viðskiptafréttir | 236 orð | 1 mynd

Samningurinn sagður brot á samkeppnislögum

SAMNINGUR Símans um kaup á 26% hlut í Skjá einum og á eignarhaldsfélaginu Fjörni, og þar með útsendingarréttinum á enska fótboltanum, stenst ekki samkeppnislög að mati stjórnenda Og Vodafone. Meira
7. september 2004 | Viðskiptafréttir | 579 orð | 2 myndir

Tekist á um yfirráðin í Opnum kerfum

ALLT stefnir í að tekist verði á um yfirráðin í Opnum kerfum Group á hluthafafundi félagsins í dag. Meira
7. september 2004 | Viðskiptafréttir | 206 orð

Uppskipting BFG sögð hugsanleg

FJÁRFESTINGARBANKAR eru með á teikniborðinu hjá sér hugsanlega uppskiptingu breska verslunarfyrirtækisins Big Food Group , BFG. Meira

Daglegt líf

7. september 2004 | Daglegt líf | 671 orð | 9 myndir

Klæði hlaðin íslenskri náttúru

Í bakhúsi við Skipholt 33 b, leynist forvitnilegt völundarhús þar sem gengið er úr einu herberginu í annað. Lyktin er það fyrsta sem heillar: Olíulitir. Málverk og höggmyndir út um allt. Ljóð og heimspekilegar pælingar hér og þar. Meira

Fastir þættir

7. september 2004 | Dagbók | 20 orð | 1 mynd

100 ÁRA afmæli .

100 ÁRA afmæli . Í dag, 7. september, er 100 ára Sæmundur Jónsson . Hann dvelur nú á hjúkrunardeild Hrafnistu í... Meira
7. september 2004 | Dagbók | 32 orð | 1 mynd

80 ÁRA afmæli.

80 ÁRA afmæli. Í dag, 7. september, er áttræð Kristbjörg Guðmundsdóttir, Búlandi 8, Djúpavogi . Hún tekur á móti gestum í Safnaðarheimili Kársneskirkju, Borgum, Kastalagerði 7, Kópavogi, laugardaginn 11. september frá kl.... Meira
7. september 2004 | Fastir þættir | 214 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

Á opnu borði. Meira
7. september 2004 | Dagbók | 381 orð | 1 mynd

Miðla niðurstöðum til iðnaðarins

Sigrún Guðmundsdóttir er fædd árið 1966 á Selfossi. Hún nam líffræði í Háskóla Íslands og lauk M.Sc.- gráðu í örverufræði frá Herriot-Watt University í Edinborg, Skotlandi. Sigrún er nú í doktorsnámi við læknadeild HÍ, en verkefni hennar fjallar um týpugreiningar með sameindafræðilegum aðferðum á Listeria monocytogenesstofnum. Sigrún starfar nú sem sérfræðingur á Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Hún er gift Guðmundi Karli Guðjónssyni. Meira
7. september 2004 | Dagbók | 40 orð

Orð dagsins: Gjörið ekkert af eigingirni...

Orð dagsins: Gjörið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillátir og metið aðra meira en sjálfa yður. (Fil. 2, 3.) Meira
7. september 2004 | Fastir þættir | 173 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 O-O 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 b6 7. Bg5 Bb7 8. e3 d6 9. Re2 Rbd7 10. Dd3 c5 11. Rc3 De7 12. Hd1 Hfd8 13. d5 Re5 14. Dc2 h6 15. Bh4 Rg6 16. Bg3 exd5 17. cxd5 Rh5 18. Be2 Rxg3 19. hxg3 a6 20. O-O b5 21. Hfe1 He8 22. Meira
7. september 2004 | Dagbók | 342 orð | 1 mynd

Styrkveiting úr sjóði Önnu Karólínu Nordal

Fiðluleikarinn Ari Þór Vilhjálmsson hlaut í gær, 6. september 2004, viðurkenningu úr Styrktarsjóði Önnu Karólínu Nordal. Meira
7. september 2004 | Dagbók | 75 orð | 1 mynd

Valentine-kvintettinn

Café Kulture | Valentine-kvintettinn leikur á tvennum tónleikum í kvöld kl. 20 á Café Kulture við Hverfisgötu og annað kvöld kl. 22 á Café Rosenberg. Meira
7. september 2004 | Fastir þættir | 268 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Víkverji er mikill aðdáandi norsku Dressmann-búðanna, enda fáir staðir í þessum heimi þar sem hægt er að fá jafn ódýran en um leið áhættulítinn fatnað. Meira

Íþróttir

7. september 2004 | Íþróttir | 117 orð

Breytt byrjunarlið í Búdapest?

EF marka má æfingu knattspyrnulandsliðsins í Búdapest síðdegis í gær verða í það minnsta gerðar tvær breytingar á byrjunarliðinu frá því í leiknum við Búlgari á laugardaginn. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 78 orð

Celtic vill skoða Kjartan og Theodór

SKOSKA meistaraliðið Celtic hefur sent fyrirspurn til Íslandsmeistara KR um að fá tvo leikmenn liðsins til skoðunar. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 110 orð | 1 mynd

Eiður baðaður í sjónvarpsviðtali

ÞAÐ er létt yfir landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu sem nú búa sig undir landsleikinn í Búdapest á morgun. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 331 orð | 1 mynd

* ELMAR Dan Sigþórsson miðju- og...

* ELMAR Dan Sigþórsson miðju- og sóknarmaður KA í knattspyrnu getur ekki leikið með norðanliðinu það sem eftir er leiktíðar. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 153 orð

Engin morgunæfing

ÞAÐ vakti nokkra athygli að í gærmorgun, daginn eftir komuna til Búdapest, var engin morgunæfing, heldur fengu menn að sofa út og síðan var eina æfing dagsins síðdegis. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 879 orð | 1 mynd

Gerir allt til að fá sig laus-an frá Bochum

ÞÓRÐUR Guðjónsson, leikmaður Bochum í Þýskalandi, hefur gert allt sem hann getur síðustu vikur og mánuði til að fá sig lausan frá félaginu enda hefur hann verið úti í kuldanum hjá þjálfara liðsins. Þórður á tæp tvö ár eftir af samningi sínum við liðið en forráðamenn þess vilja ekki leyfa honum að fara, telja að liðið og félagið hafi not fyrir hann þó svo að þjálfarinn sé ekki á sama máli - enn sem komið er í það minnsta. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 221 orð

Heilsu náð á ný

LEIKMENN íslenska 21 árs landsliðsins í knattspyrnu hafa að mestu náð sér af veikindunum sem herjað hafa á þá síðustu sólarhringa. Þeir eru í Ungverjalandi þar sem þeir mæta heimamönnum í dag í bænum Dunaújvaro, um 90 mínútna akstursleið frá höfuðborginni Búdapest. Leikurinn hefst kl. 14.30 að íslenskum tíma en íslensku strákarnir hófu keppnina með glæsibrag síðasta þriðjudag þegar þeir sigruðu Búlgari, 3:1, í Víkinni. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 6 orð

Í KVÖLD

HANDKNATTLEIKUR Meistarakeppni HSÍ, karlar Ásgarður: Haukar - KA 19. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 193 orð | 1 mynd

* JÓN Arnór Stefánsson skoraði 11...

* JÓN Arnór Stefánsson skoraði 11 stig, gaf 7 stoðsendingar, tók 5 fráköst og stal knettinum þrívegis af leikmönnum ítalska liðsins Montecatini í æfingaleik rússneska úrvalsdeildarliðsins Dynamo frá Pétursborg. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 289 orð | 1 mynd

* JULIAN Róbert Duranona er hvergi...

* JULIAN Róbert Duranona er hvergi af baki dottinn á handknattleiksvellinum. Um helgina skoraði hann fjögur mörk, öll úr vítaköstum, þegar 3. deildar liðið HSG Vulkan Vogelsberg , sem hann leikur með, vann 2. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 164 orð

KA hefur samið við Bladt

HANDKNATTLEIKSLIÐ KA hefur samið við danska handknattleiksmanninn Michael Bladt um að hann leiki með félaginu á næstu leiktíð. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 116 orð

Lithái til FH-inga?

LÍKLEGT er að FH-ingar tefli fram litháískum handknattleiksmanni í sínum röðum á komandi tímabili. Sá heitir Romuldas Gincas og er stór og stæðilegur línumaður, rúmlega 1,90 metrar á hæð, sem spilað hefur með Dragunas Klaipeda í heimalandi sínu. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 128 orð

Patrekur verður fyrirliði Minden

PATREKUR Jóhannesson handknattleiksmaður hefur verið skipaður fyrirliði þýska 1. deildar liðsins GWD Minden. Patrekur gekk til liðs við félagið í sumar eftir að hafa verið í herbúðum Bidasoa á Spáni á síðasta vetri. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 84 orð

Sonurinn áfram í liðinu

ZLATKO Kranjcar, landsliðsþjálfari Króatíu, ætlar að tefla fram óbreyttu liði frá sigurleiknum gegn Ungverjalandi - í leiknum gegn Svíum annað kvöld í undankeppni HM. Þannig að sonur hans Niko, 20 ára, verður áfram í byrjunarliðinu. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 160 orð | 1 mynd

Souness tekur við Newcastle

GRAEME Souness var í gær kynntur til sögunnar sem nýr knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle og hefur hann fengið sig lausan frá samningi sínum við enska úrvalsdeildarliðið Blackburn sem hann hefur stýrt frá því í mars árið 2000. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 132 orð | 1 mynd

Torquay vill fá Ólaf Gottskálks í markið

ENSKA 2. deildarliðið Torquay United er á höttunum eftir Ólafi Gottskálkssyni, fyrrum markverði Keflavíkurliðsins í knattspyrnu. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 140 orð

Vijay Singh velti Woods af stalli

VIJAY Singh frá Fiji-eyjum velti í gærkvöld sjálfum Tiger Woods af toppi heimslistans í golfi en þar hefur Woods setið í hvorki meira né minna en fimm ár. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 174 orð | 1 mynd

Væla undan puðinu hjá Felix Magath

FELIX Magath, þjálfari Bayern München, þykir harður í horn að taka á æfingum liðsins og hafa margir þekktir leikmenn þess kvartað yfir æfingaaðferðum Magath sem tók við þýska liðinu í sumar. Magath hefur látið leikmenn sína hafa fyrir hlutunum með óhefðbundnum æfingum undanfarnar vikur þar sem aðaláherslan hefur verið á úthalds- og styrktaræfingar. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 234 orð

Þórey Edda fær hörkukeppni í Rovereto

ÞÓREY Edda Elísdóttir stangarstökkvari verður á meðal keppenda á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Rovereto á Ítalíu annað kvöld og má reikna með að hún fái hörkukeppni. Meðal andstæðinga hennar verða Pólverjarnir Anna Rogovska, bronsverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum, og Monika Pyrek, sem bætti pólska metið í stangarstökki á gullmótinu í Brussel á síðasta föstudag, stökk 4,72 metra. Meira
7. september 2004 | Íþróttir | 774 orð | 1 mynd

Þrjú stig farin - verðum að sækja þau annað

"ÞAÐ er óhjákvæmilegt að við verðum að gera eina breytingu þar sem Brynjar Björn var rekinn út af og verður því ekki með okkur hérna. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.