Greinar miðvikudaginn 14. júní 2006

Fréttir

14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 294 orð | 1 mynd

15.000 tónleikagestir á 7.000 bílum

TÖLUVERÐ umferðarteppa myndaðist í Grafarvogi í fyrradag fyrir tónleika Rogers Waters í Egilshöll. Um fimmtán þúsund manns sóttu tónleikana, að því er talið er á sjö þúsund ökutækjum. Tónleikarnir hófust klukkan átta en húsið var opnað klukkan sjö. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 139 orð

25 milljónir í sekt fyrir skattalagabrot

HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur dæmt karlmann í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 25 milljóna króna sektar til ríkissjóðs fyrir margvísleg brot á skattalögum, lögum um tekjustofna sveitarfélaga og bókhaldsbrot í tengslum við sjálfstæða... Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 68 orð | 1 mynd

Alberto minni en óttast var

FYRSTI hitabeltisstormurinn á Atlantshafi á þessu ári kom upp að Flórída-ströndum í gær en vindstyrkurinn var minni en óttast hafði verið og náði stormurinn ekki nægilegum styrk að teljast fellibylur. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 129 orð

Án netsambands í tæpa viku

Reykhólar | Nettenging komst á í Reykhólasveit í gærmorgun en hún hafði þá að mestu legið niðri frá því á miðvikudagskvöld í síðustu viku, eða í tæpa viku. Stuðst er við örbylgjusamband á vegum Snerpu á Ísafirði. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 274 orð | 1 mynd

Berjast hart gegn vísindaveiðum

Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 201 orð | 1 mynd

Bjarni Ármannsson formaður háskólaráðs HR

AÐALFUNDUR háskólaráðs Háskólans í Reykjavík var haldinn í gær. Á fundinum lét Sverrir Sverrisson af formennsku í ráðinu, en hann hefur setið í háskólaráði frá stofnun HR árið 1998, þar af síðustu sex árin sem formaður þess. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 640 orð | 1 mynd

Borgarbúar finni strax að nýr og samhentur meirihluti sé tekinn við

Nýr meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokks tók formlega við völdum í gær, kynnti áherslur sínar og skipaði í ráð og nefndir Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 96 orð

Bruninn í Keflavík enn í rannsókn

RANNSÓKNARDEILD lögreglunnar í Keflavík segir að rannsókn á brunanum á lóð Aðalstöðvarinnar í Keflavík, sem varð á föstudagskvöld, sé komin vel á veg. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 449 orð

Burðardýr til að greiða skuldir

Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 26 ára karlmann, Mikael Má Pálsson, til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir stórfelld fíkniefnabrot. Honum er jafnframt gert að greiða rúma eina milljón króna í sakarkostnað. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 72 orð

Ef englarnir fá flensu

Yfir þrjátíu höfundar skiluðu inn botnum og vísum í Vísnakeppni Safnahúss Skagafjarðar. Besti botninn var við hringhenduna: Fellur gengi, falla bréf fúna strengir ljóða. Allt of lengi eytt ég hef illa fengnum gróða. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 729 orð | 1 mynd

Efla þarf forvarnirnar

Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Kallað eftir fordómalausri umræðu um málefnið Erlendar rannsóknir sýna að 2-10% þeirra sem eru 65 ára og eldri verða fyrir ofbeldi af einhverjum toga, hvort heldur það er t.d. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 60 orð | 1 mynd

Eiður Smári í Barcelona

EIÐUR Smári Guðjohnsen og Arnór faðir hans héldu í gær til Barcelona þar sem þeir munu ræða hugsanleg kaup Evrópumeistaranna á íslenska landsliðsfyrirliðanum. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 151 orð

Ekkert gagn að lyfjunum

Chicago. AFP. | Fram kemur í niðurstöðum bandarískrar rannsóknar, sem birt var í gær, að þunglyndislyf hjálpa ekki þeim, sem þjást af lystarstoli. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 400 orð | 1 mynd

Engin lausn í sjónmáli

Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 105 orð | 1 mynd

Fagur frambjóðandi

París. AFP. | Segolene Royal, líklegur frambjóðandi jafnaðarmanna í forsetakosningunum í Frakklandi á næsta ári, hefur verið kjörin ein af kynþokkafyllstu konum í heimi. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 107 orð

Fangabúðum verði lokað

Strassborg. AFP. | Evrópuþingið vill að leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins ræði á leiðtogafundi í næstu viku kröfur um að stjórnvöld í Bandaríkjunum loki fangabúðum sínum við Guantanamo-flóa á Kúbu. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 182 orð

Fleiri en nokkru sinni á vegum Nordjobb

140 ungmenni koma til landsins í sumar á vegum verkefnisins Nordjobb og er þetta metár. Íslenskir vinnuveitendur hafa tekið afar vel í að ráða til sín norrænan starfskraft í ár. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 810 orð | 1 mynd

Fráveita OR fær gæðavottun

FRÁVEITAN, sú deild Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem annast fráveitulagnir á starfssvæði OR, hefur uppfyllt kröfur þriggja vottaðra gæðakerfa. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 184 orð

Gagnrýna fréttaflutning af matvöruverði

BÆNDASAMTÖK Íslands sendu í gær frá sér yfirlýsingu undir yfirskriftinni: "Af hverju hækkaði verð á mjólk um 16%?" Yfirlýsingin hljóðar svo í heild sinni: "Morgunblaðið segir frá því í forsíðufrétt í dag, þriðjudaginn 13. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 101 orð

Gæsluvarðhald staðfest

HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Litháa, sem grunaður er um aðild að stórfelldum innflutningi á fíkniefnum til landsins. Litháinn skal sæta gæsluvarðhaldi á meðan máli hans er ólokið, en þó ekki lengur en til 21. júlí nk. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 96 orð

Halda norrænt karlakóramót í Húnavatnssýslu

Skagaströnd | Norrænt karlakóramót verður haldið á Skagaströnd og Blönduósi næstkomandi föstudag og laugardag. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 689 orð | 4 myndir

Hanna Birna kjörin forseti borgarstjórnar

VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson var kjörinn borgarstjóri, án atkvæðagreiðslu, á borgarstjórnarfundi í gær. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 1103 orð | 1 mynd

Hefur vantað stefnumótun og sýn fyrir þróun samfélagsins

Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Garður | "Það hefur vantað stefnumótun og sýn fyrir þróun þessa samfélags," segir Oddný G. Harðardóttir, sem í gærmorgun tók við starfi bæjarstjóra Sveitarfélagsins Garðs af Sigurði Jónssyni. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 71 orð | 1 mynd

Heillandi náttúrufegurð Námaskarðs

DULÚÐIN ræður ríkjum í litbrigðum náttúrunnar við Námaskarð í Mývatnssveit. Tignarlegir gufustrókar stíga upp af yfirborðinu og heilla gestina sem þangað leggja leið sína í stríðum straumi allan ársins hring. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 357 orð

Heimta frítt niðurhal í Svíþjóð

Eftir Steingerði Ólafsdóttur í Gautaborg steingerdur@telia.com SKRÁASKIPTUM á netinu má líkja við bókasafn, að mati forsvarsmanns sænska Sjóræningjaflokksins svokallaða, sem mun líklega bjóða fram lista í sænsku þingkosningunum í haust. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 146 orð

Hjálpartækjamiðstöð TR fær aðstöðu á Kristnesspítala

Hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnunar fær inni á Kristnesspítala í Eyjafirði til að sýna og gefa notendum kost á að prófa hjálpartæki. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 104 orð | 1 mynd

Hlutu styrk frá Fulbright-stofnuninni

ÁRLEG móttaka Fulbright-stofnunarinnar var haldin 8. júní sl. í Iðnó, til heiðurs þeim íslensku styrkþegum er hlutu Fulbright-styrk í ár til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Þetta árið voru veittir alls 10 styrkir. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 2116 orð | 3 myndir

Hlýnun lofthjúpsins ógnar þeim allra fátækustu

Prófessor Jeffrey D. Sachs er forstöðumaður Jarðarstofnunar Kólumbíuháskóla. Baldur Arnarson ræddi við Sachs um hlutverk Íslands í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 454 orð

Hugmynd um olíuframleiðslu á Grundartanga

Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 130 orð | 1 mynd

Húsleit hjá kortafyrirtækjunum

FIMMTÁN starfsmenn Samkeppniseftirlitsins gerðu húsleit í höfuðstöðvum VISA Íslands í gærmorgun og gerðu þar upptæk gögn. Síðar sama dag fóru fimm starfsmenn eftirlitsins einnig í höfuðstöðvar Kreditkorta hf., umboðsaðila Mastercard á Íslandi. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 574 orð | 1 mynd

Húsleit hjá VISA vegna gruns um brot á ákvæðum samkeppnislaga

Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is STARFSMENN Samkeppniseftirlitsins gerðu í gærmorgun húsleit í höfuðstöðvum VISA Íslands og gerðu þar upptæk ýmis gögn. Fimm starfsmenn stofnunarinnar heimsóttu svo höfuðstöðvar Kreditkorta hf. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 52 orð

Höfnuðu ofan í skurði

ERLEND hjón voru flutt á heilsugæslustöðina á Selfossi eftir að bifreið þeirra hafnaði ofan í skurði við Biskupstungnabraut um miðjan dag í gær. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 95 orð | 1 mynd

Íbúðarhús skemmdist mikið í eldi

ENGAN sakaði þegar eldur kviknaði í einlyftu steinhúsi á Hornafirði í gærdag. Íbúar voru heima þegar eldsins varð vart og komust þeir út í tæka tíð og hringdu í kjölfarið á hjálp. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 293 orð

Ísraelar bera af sér árás

Jerúsalem. AP, AFP. | Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels, sagði í gær að Ísraelar hefðu enga ábyrgð borið á sprengingunni á Gazaströnd í síðustu viku en hún varð átta manns að bana, þar af sjö manns í sömu fjölskyldunni. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 90 orð | 1 mynd

Jötunn í miðju Leirhnjúkahrauni

Mývatnssveit | Það var létt yfir bormönnum á Jötni, þeim Þorsteini, Trausta og Haraldi Orra, í sól og hita um helgina, þar sem þeir voru að koma Jötni fyrir á nýju athafnasvæði. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 116 orð | 1 mynd

KB banki styrkir Skógræktarfélagið

SKÓGRÆKTARFÉLAG Íslands og KB banki hafa endurnýjað samning um fræðslusamstarf. Samningurinn er gerður við upphaf tíunda árs samstarfs sem hófst árið 1997. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 239 orð | 1 mynd

Kirkjuþing verður haldið í október

KIRKJUÞINGSKOSNINGUM er lokið en árlegt kirkjuþing verður haldið í lok október. Kosningarnar fóru fram samkvæmt nýju fyrirkomulagi sem samþykkt var á auka kirkjuþingi í mars sl. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 153 orð

Lamaður eftir barsmíðar

FU Xiancai, kínverskur baráttumaður gegn Þriggja gljúfra-virkjuninni í Kína, var barinn til óbóta skömmu eftir að hann var kallaður til yfirheyrslu í síðustu viku. Liggur hann nú á spítala, hálsbrotinn og lamaður fyrir neðan axlir. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 94 orð

Landsflug riftir kaupsamningi

LANDSFLUG hefur rift kaupsamningi við Flugfélag Vestmannaeyja frá 24. maí sl. vegna vanefnda. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 181 orð | 1 mynd

Leynd yfir ferð Bush til Bagdad

Bagdad. AFP. | George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kom öllum að óvörum til Bagdad, höfuðborgar Íraks, í gær þar sem hann átti fund með Nouri al-Maliki, forsætisráðherra landsins. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 86 orð | 1 mynd

Lék við hvurn sinn fingur

Skralli trúður fór á kostum á sumarhátíð leikskólans Garðasels á Akranesi sem haldin var í gær. Ekki spillti fyrir hvað veðrið var gott, sól skein í heiði og sannkallað sumarveður. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 145 orð

Lokaáfangi kominn í gagnið

Kirkjubæjarklaustur | Lokaáfangi hjúkrunar- og dvalarheimilisins Klausturhóla á Kirkjubæjarklaustri var formlega tekinn í notkun síðastliðinn fimmtudag. Heimilið hefur nú 17 hjúkrunarrými og fjögur dvalarrými. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 150 orð

Málþing um orkugjafa framtíðarinnar

ALÞJÓÐLEGT málþing verður í Háskóla Íslands í dag, miðvikudaginn 14. júní, um orkugjafa framtíðarinnar og aðgerðir gegn aukinni losun gróðurhúsalofttegunda. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 68 orð

Málþing um siglingar á norðurslóðum

Háskólinn á Akureyri stendur fyrir málþingi um mögulegar siglingar um Norðurheimskautið, í dag, miðvikudag, á Hótel KEA. Málþingið hefst kl. 9.30 og stendur til kl. 16. Allir eru velkomnir. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 287 orð | 1 mynd

Náttúran þjónar sem sviðsmynd

"ÞAÐ er með árunum orðið mér hjartfólgið að fara á staðina þar sem hlutirnir gerðust og hafa sem leiktjöld sjálfa náttúruna, hvort heldur það er Hvalfjörður, Herdísarvík, Viðey eða Mosfellsdalur. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 222 orð

Nýr fjögurra kílómetra kafli á Kili

Suðurland | Fjórir kílómetrar á suðurhluta Kjalvegar verða endurbyggðir í sumar og lagðir bundnu slitlagi. Vegagerðin hefur boðið verkið út. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 340 orð | 1 mynd

Nýr meirihluti ætlar að hreinsa til í borginni

Eftir Árna Helgason og Örnu Schram FYRSTA verk þeirra Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og Björns Inga Hrafnssonar verður að fara í hreinsunar- og fegrunarátak í borginni í júlí. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 132 orð | 1 mynd

Ný stöð á 98,7

NÝ útvarpsstöð, Voice, hóf útsendingar á Akureyri fyrir helgina. Sent er út á tíðninni 98,7 á FM. Að sögn Ásgeirs Ólafssonar, eins eigenda stöðvarinnar, verður á stöðinni leikin mjög fjölbreytt tónlist, gömul og ný. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 737 orð | 2 myndir

"Nokkuð sem ég vona að ég lendi aldrei í aftur"

Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 76 orð | 1 mynd

Ráðin framkvæmdastýra VG

GENGIÐ hefur verið frá ráðningu Drífu Snædal í starf framkvæmdastýru Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Drífa hefur störf með haustinu og tekur við af Svandísi Svavarsdóttur sem gegnt hefur starfinu síðastliðið ár en er nú sest í borgarstjórn. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 103 orð

Reykjafell opnað á Reyðarfirði | Reykjafell er gamalgróið fyrirtæki í...

Reykjafell opnað á Reyðarfirði | Reykjafell er gamalgróið fyrirtæki í raflagnaefni á Íslandi og hefur það nú opnað útibú á Reyðarfirði, að Nesbraut 10. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 410 orð | 1 mynd

Rove verður ekki ákærður

Washington. AFP, AP. | Saksóknari í Bandaríkjunum hefur tilkynnt Karl Rove, einum nánasta stjórnmálaráðgjafa George W. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 164 orð

Skrifaði undir Álaborgarskuldbindingarnar

ÁRNI Þór Sigurðsson, formaður umhverfisráðs, skrifaði fyrir hönd Reykjavíkurborgar undir Álaborgarskuldbindingarnar 25. febrúar sl. en þær snúast um sjálfbær samfélög. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 79 orð | 1 mynd

Sláttur hafinn undir Eyjafjöllum

SLÁTTUR hófst í gær á bæjunum Þorvaldseyri og Ásólfsskála undir Eyjafjöllum í Rangárþingi eystra. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 207 orð | 1 mynd

Svartfellingar hrifnir af Íslandi

SVO virðist sem Svartfellingar hafi tekið ástfóstri við Ísland og Geir H. Haarde, utanríkisráðherra og verðandi forsætisráðherra. Ástæðan er sú að Ísland varð fyrsta ríkið til að viðurkenna fullveldi Svartfjallalands. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 95 orð

Tafir á leiðangri slökkviliðsmanna yfir Vatnajökul

BRESKU slökkviliðsmennirnir sjö, sem hyggjast ganga um 150 km leið yfir Vatnajökul, eru nú degi á eftir áætlun. Ingþór Bjarnason fararstjóri leiðir hópinn, sem kom að Kverkfjöllum á föstudag. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 179 orð | 1 mynd

Talsvert tjón í íþróttavöruverslun

SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðisins var kallað að íþróttavöruverslun, sem er til húsa í verslunarmiðstöð í Grafarvogi, upp úr klukkan fjögur í fyrrinótt vegna eldsvoða. Töluvert tjón hlaust af brunanum þar sem reykur barst um allt húsnæðið og torveldaði... Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 240 orð | 1 mynd

Tvöföldun gistirýma á Hálandi í Hrauneyjum

BREYTINGAR hafa staðið yfir á Hótel Hálandi í Hrauneyjum og hefur fjöldi gistirýma aukist úr liðlega 100 í 220. Eru gistirýmin annars vegar í húsnæði Landsvirkjunar við Hrauneyjafossvirkjun, sem Hrauneyjar ehf. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 143 orð

Töluverð hækkun á matvörum

ÞRJÁTÍU krónum munaði á vörukörfunni hjá Bónus og Krónunni í gær þegar Morgunblaðið kannaði verð þar á 18 vörutegundum. Vörukarfan í Bónus kostaði 3.218 krónur og 3.248 krónur í Krónunni. Í 17 tilvikum af 18 var einnar krónu verðmunur milli búðanna. Meira
14. júní 2006 | Erlendar fréttir | 520 orð | 1 mynd

Umdeildur stjórnmálaforingi fallinn frá

Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is CHARLES Haughey, sem nú er látinn áttræður að aldri, var án nokkurs vafa umdeildasti stjórnmálaforingi sinnar samtíðar á Írlandi. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 400 orð

Úr bæjarlífinu

Frægur húsgangur | Jón Eiríksson skrifaði Sunnlenska fréttablaðinu til að leiðrétta frægan húsgang sem þar hafði verið birtur og sagði frá tilurð hans og er pistill hans birtur á sudurland.is. Meira
14. júní 2006 | Innlendar fréttir | 436 orð | 1 mynd

Vilhjálmur nýr borgarstjóri

Eftir Örnu Schram arna@mbl.is VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna, var kjörinn borgarstjóri Reykjavíkur á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir sveitarstjórnarkosningarnar, sem haldinn var í gær. Meira

Ritstjórnargreinar

14. júní 2006 | Staksteinar | 290 orð

Minnihlutinn í borgarstjórn

Um leið og nýr meirihluti tók við stjórn Reykjavíkurborgar í gær varð líka til nýr minnihluti í borgarstjórninni. Og það verður ekki síður forvitnilegt að fylgjast með honum og þeim einstaklingum, sem þar koma við sögu, en meirihlutanum. Meira
14. júní 2006 | Leiðarar | 682 orð

Nýr meirihluti í borgarstjórn

Í gær tók nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks við völdum í borgarstjórn Reykjavíkur og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tók jafnframt við embætti borgarstjóra eftir tæplega aldarfjórðungs starf í borgarstjórn. Meira

Menning

14. júní 2006 | Bókmenntir | 153 orð

Afmælisrit Örnólfs Thorlacius

HINN 9. september næstkomandi verður Örnólfur Thorlacius, fyrrverandi rektor Menntaskólans í Hamrahlíð, 75 ára. Af því tilefni hafa vinir og velunnarar hans tekið höndum saman og ákveðið að gefa út vandað afmælisrit honum til heiðurs. Meira
14. júní 2006 | Tónlist | 404 orð | 1 mynd

Ástir og óknytti

Lög eftir Clöru Schumannn, R. Strauss, Wolf, Walton og Ívar Helgason. Margrét Árnadóttir sópran, Iwona Ösp Jagla píanó. Sunnudaginn 11. júní kl. 18. Meira
14. júní 2006 | Tónlist | 443 orð | 1 mynd

Bjartir sumartónar, tregi og Tsjajkovskí

Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands mun frumflytja nýtt íslenskt tónverk í Háskólabíói annað kvöld og verður það í þriðja skiptið á jafnmörgum vikum sem það gerist. Meira
14. júní 2006 | Fjölmiðlar | 247 orð | 1 mynd

Enn af vestrinu

Í ljósvakapistli mínum sem birtist í blaðinu í gær, þar sem ég mærði bandarísku sjónvarpsþættina Deadwood, gaf ég óréttilega til kynna að íslensk sjónvarpsstöð hefði aldrei sýnt þessa þætti. Meira
14. júní 2006 | Tónlist | 70 orð | 4 myndir

Fjölmenni á Roger Waters

UM 15.000 manns sóttu tónleika Roger Waters í Egilshöll í fyrrakvöld, en eins og allir vita er Waters einn af forsprökkum bresku rokkhljómsveitarinnar Pink Floyd. Waters þótti standa sig með afbrigðum vel, en fjöldi tónlistarmanna lék með kappanum. Meira
14. júní 2006 | Kvikmyndir | 216 orð | 1 mynd

Fjör á vegum úti

Hin bandaríska mynd R.V. er gamanmynd fyrir fjölskylduna sem skartar Robin Williams í aðalhlutverki. Hann leikur vinnuþjarkinn Bob Munro sem ákveður að lyfta sér upp með því að bregða sér úr borginni sinni ásamt eiginkonu og tveimur börnum. Meira
14. júní 2006 | Tónlist | 82 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Þriðju og fjórðu tónleikar í tónleikaröð Reykjavík Grapevine og Smekkleysu verða haldnir á morgun. Á fyrri tónleikunum, sem hefjast kl. 17, mun hljómsveitin Sign leika fyrir gesti af alkunnum móð. Meira
14. júní 2006 | Fólk í fréttum | 227 orð | 2 myndir

Fólk folk@mbl.is

Aðþrengda leikkonan Eva Longoria stendur í samningaviðræðum þessa dagana við bókaforlag en hún hyggst skrifa sína fyrstu skáldsögu. Meira
14. júní 2006 | Fólk í fréttum | 213 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Leikkonan Uma Thurman biður kvikmyndaframleiðendur í Hollywood vinsamlegast að afskrifa sig ekki þótt hún sé farin að "eldast". Meira
14. júní 2006 | Tónlist | 933 orð | 1 mynd

Geðshræring og gæsahúð

Tónleikar Roger Waters í Egilshöll mánudagskvöldið 12. júní 2006. Með honum léku og sungu gítarleikararnir Andy Fairweather-Low, Snowy White og Dave Kilminster, Graham Broad trommari og Nick Mason trommari (eftir hlé). Meira
14. júní 2006 | Fjölmiðlar | 110 orð | 1 mynd

Græna álman í loftið

GRÆNA álman (Green Wing) er ný bresk gamanþáttaröð gerð af sama fólki og stóð að þáttunum vinsælu Smack the Pony sem voru kallaðir Út í hött þegar Sjónvarpið sýndi þá fyrir nokkrum árum. Meira
14. júní 2006 | Myndlist | 467 orð | 1 mynd

Línudans

Sýningin stendur til 18. júní. Meira
14. júní 2006 | Bókmenntir | 176 orð | 1 mynd

Ljóð fólksins

HÓPUR alþýðuskálda, sem tekið hefur þátt í námskeiðinu "Skapandi skrif" í Hæðargarði í vetur, kom saman í gær og fagnaði útkomu ljóðakvers þar sem verk þeirra er að finna. Meira
14. júní 2006 | Myndlist | 92 orð | 1 mynd

Ljósmyndir á striga

SÍÐASTLIÐINN mánudag opnaði Reynir Þorgrímsson myndlistamaður sýningu á Café Mílanó í Faxafeni. Reynir hefur sérhæft sig í nálgun náttúrulegs viðfangsefnis og eru verk hans ljósmyndir sem prentaðar eru á sérstakan hátt á striga. Meira
14. júní 2006 | Tónlist | 654 orð | 2 myndir

Lofsöngvar á HM

Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu er í algleymingi um þessar mundir. Þrjátíu og tvö knattspyrnulið jafnmargra þjóðlanda eru samankomin í Þýskalandi og innan mánaðar (9. júlí) mun ein þjóð standa uppi sem sigurvegari í vinsælustu íþrótt veraldar. Meira
14. júní 2006 | Hönnun | 405 orð | 1 mynd

Lykilbyggingar í borgarlandslaginu

Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is GESTUM gefst kostur á að skoða byggingar Einars Erlendssonar húsameistara í miðborg Reykjavíkur með leiðsögn annað kvöld kl. 20. Meira
14. júní 2006 | Myndlist | 494 orð | 1 mynd

Með blik í augum

Sýningin stendur til 18. júní. Opið alla daga kl. 11.00 - 17.00 Meira
14. júní 2006 | Bókmenntir | 124 orð | 1 mynd

Nýjar bækur

JPV útgáfa hefur sent frá sér Don Kíkóta í kiljuútgáfu en sagan hefur áður komið út í tveimur bindum í innbundinni útgáfu. Don Kíkóti eftir spænska rithöfundinn Miguel de Cervantes (1547-1616) er án efa ein vinsælasta skáldsaga heimsbókmenntanna. Meira
14. júní 2006 | Bókmenntir | 79 orð | 1 mynd

Nýjar bækur

ÚT ER komin hjá Sögufélagi bókin Gamli sáttmáli. Tilurð og tilgangur eftir brasilíska sagnfræðinginn Patricia Pires Boulhosa. Rit herma að á árunum 1262-1264 hafi Íslendingar gengist undir vald Noregskonungs. Meira
14. júní 2006 | Tónlist | 86 orð | 1 mynd

Píanótónlist fyrir alla

Salurinn | Roman Rudnytsky er þekktur píanóleikari frá Úkraínu og reyndur konsertpíanisti, sem hefur ferðast vítt og breitt um heiminn. Meira
14. júní 2006 | Fólk í fréttum | 92 orð | 3 myndir

Söngvar hafsins

MARGT var um manninn í Hafnarhúsinu á laugardag þegar sérstök tónlistardagskrá í tilefni af Hátíð hafsins fór fram þar innandyra. Meira
14. júní 2006 | Hönnun | 83 orð | 2 myndir

Vel heppnuð opnun um helgina

UM HELGINA var opnuð á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn sýning á hönnun Steinunnar Sigurðardóttur. Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, opnaði sýninguna og Elísabet Þórisdóttir, framkvæmdastjóri Gerðubergs, ávarpaði gesti. Meira

Umræðan

14. júní 2006 | Bréf til blaðsins | 358 orð | 1 mynd

Að eiga í sjóði

Frá Jóni Bergsteinssyni: "Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn voru settir á stofn upp úr síðari heimsstyrjöld. Hlutverk þeirra var í byrjun að rétta hag stríðshrjáðra landa í Evrópu og örva viðskipti." Meira
14. júní 2006 | Aðsent efni | 322 orð | 1 mynd

Alþjóða blóðgjafardagurinn

Ólafur Helgi Kjartansson fjallar um Alþjóða blóðgjafardaginn: "Til hamingju með blóðgjafardaginn, íslenzkir blóðgjafar, og þakkir fyrir ómetanlegt, sjálfboðið og óeigingjarnt framlag ykkar." Meira
14. júní 2006 | Bréf til blaðsins | 186 orð | 1 mynd

Enn um verð svefnlyfja

Frá Matthíasi Halldórssyni: "REYNIR Eyjólfsson lyfjafræðingur skrifar bréf til Morgunblaðsins um verð svefnlyfja hinn 12. júní sl." Meira
14. júní 2006 | Aðsent efni | 739 orð | 3 myndir

Glamrað á skipsklukku

Guðjón Ármann Eyjólfsson, Sverrir Konráðsson og Helgi Jóhannesson svara greinum Kristjáns Guðmundssonar varðandi athugasemdir við fræðslurit Siglingastofnunar: "Við munum ekki svara fleiri stóryrðum Kristjáns Guðmundssonar fyrrv. skipstjóra í tengslum við fræðslurit Siglingastofnunar um alþjóðasiglinga- og vaktreglur og stjórnskipanir í brú og vélarrúmi. Skrif hans eru niðurrifsstarf." Meira
14. júní 2006 | Aðsent efni | 918 orð | 1 mynd

Mannréttindaskilningur dómsmálaráðherra

Eftir Ragnar Aðalsteinsson: "Dómsmálaráðherra ber stjórnskipulega ábyrgð á lögreglu og ákæruvaldi. Hann fer með úrslitavald um það hverjir fara með dómsvaldið þar sem hann ræður hverjir skipa dómarastöður." Meira
14. júní 2006 | Aðsent efni | 1101 orð | 1 mynd

Opið bréf til íslenskra unglinga

Njörður P. Njarðvík fjallar um vímuefnavanda unglinga: "Ef þið hafnið vímuefnum, verða þau brátt úr sögunni. Það yrði ykkur mikill og veglegur sigur, og allrar þjóðarinnar." Meira
14. júní 2006 | Bréf til blaðsins | 360 orð

Róleg, Valgerður Opið bréf til iðnaðarráðherra

Frá Úrsúlu Jünemann: "RÓLEG, Valgerður, það ætlar enginn að ráða þig af dögum. Mótmælagangan á kosningadeginum sem "Íslandsvinir" skipulögðu voru friðsamleg mótmæli friðsams fólks. Það gátu allir séð sem fylgdust með." Meira
14. júní 2006 | Velvakandi | 344 orð

Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Meira tónlistarkrydd, takk! UNDANFARNA mánuði hefur verið á dagskrá Ríkisútvarpsins, Rásar 1, þátturinn "Pipar og salt" í umsjá Helga Más Barðasonar. Meira
14. júní 2006 | Bréf til blaðsins | 99 orð

Örstutt athugasemd

Frá Jakobi Björnssyni: "Í GREIN í Morgunblaðinu hinn 9. júní síðastliðinn sem nefnist "Ofvirkjunarforkólfarnir" segir höfundur, Hafsteinn Hjaltason, m.a.: "Sýnum því biðlund að aðrar þjóðir virki bara sín vatnsföll til jafns við Íslendinga." Meira

Minningargreinar

14. júní 2006 | Minningargreinar | 617 orð | 1 mynd

EINAR ÖGMUNDSSON

Einar Ögmundsson fæddist í Hólabrekku á Grímsstaðaholti 23. október 1916. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 13. júní. Meira  Kaupa minningabók
14. júní 2006 | Minningargreinar | 1456 orð | 1 mynd

HILDIGUNNUR ADOLFSDÓTTIR DIXON

Hildigunnur Adolfsdóttir Dixon fæddist á Patreksfirði 12. júlí 1945. Hún andaðist á heimili sínu í Burlington í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum fimmtudaginn 18. maí síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Helgu Guðmundsdóttur, f. 13. september 1908,... Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

14. júní 2006 | Sjávarútvegur | 279 orð | 1 mynd

Leyft að veiða 50 hrefnur

Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út leyfi fyrir því að Hafrannsóknastofnun veiði í vísindaskyni allt að 50 hrefnur á þessu ári. Einar K. Meira
14. júní 2006 | Sjávarútvegur | 236 orð | 1 mynd

Vélbátar í hundrað ár

Á sjómannadaginn var opnuð sýning í Sögumiðstöðinni á Grundarfirði sem kynnir á nýstárlegan hátt sögu vélbátaútgerðar í Grundarfirði sem hófst árið 1906 með komu fyrsta vélknúna bátsins til Kvíabryggju. Meira

Viðskipti

14. júní 2006 | Viðskiptafréttir | 231 orð | 1 mynd

Enn greinist mikil þensla í hagkerfinu

LANDSFRAMLEIÐSLA jókst um 5% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við fyrsta ársfjórðung í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofa Íslands birti í gær. Meira
14. júní 2006 | Viðskiptafréttir | 93 orð | 1 mynd

Forstjóri FIH fær 253 milljónir í kaupauka

Danski bankinn FIH Erhvervsbank , sem er í eigu Kaupþings , mun greiða forstjóra bankans, Brian Kudsk , allt að 20 milljónir danskra króna, 253 milljónir íslenskra króna , í kaupauka . Meira
14. júní 2006 | Viðskiptafréttir | 275 orð | 1 mynd

Gefa út skuldabréf í Bandaríkjunum fyrir 37 milljarða

GLITNIR banki hefur gefið út víkjandi skuldabréf í Bandaríkjunum að upphæð 500 milljónir dollara, jafnvirði um 37 milljarða króna. Útgáfan telst til eiginfjárþáttar B (e. Tier 2) og er til 10 ára með innköllunarákvæði eftir fimm ár af hálfu Glitnis. Meira
14. júní 2006 | Viðskiptafréttir | 79 orð

Hlutabréf lækka og krónan veikist

HLUTABRÉF héldu áfram að lækka í Kauphöll Íslands í gær. Nam lækkunin 2,5% og stóð úrvalsvísitalan í 5.450 stigum við lokun markaða. Meira
14. júní 2006 | Viðskiptafréttir | 266 orð | 1 mynd

Óróa gætir enn víða á mörkuðum

TÖLUVERÐS óróa virðist enn gæta á erlendum hlutabréfamörkuðum en gærdagurinn einkenndist af miklum lækkunum nær hvarvetna í heiminum, og er þetta annar dagurinn í röð sem umtalsverðar lækkanir eiga sér stað. Meira
14. júní 2006 | Viðskiptafréttir | 91 orð | 1 mynd

Sund óskar eftir hluthafafundi í TM

BOÐAÐ hefur verið til hluthafafundar í Tryggingamiðstöðinni að ósk Sunds ehf. , sem nýlega seldi 32,9% hlut sinn í félaginu til Blátjarnar ehf. fyrir um 10,4 milljarða króna . Meira
14. júní 2006 | Viðskiptafréttir | 207 orð

Útgáfu krónubréfa fram haldið eftir mánaðarhlé

ÞÝSKI landbúnaðarsjóðurinn, KfW, gaf út krónubréf fyrir 5 milljarða króna í gær og bætti þar með við sig skuldabréfum í íslenskum krónum en KfW hefur verið iðinn við kolann í þeim efnum og gefið út krónubréf fyrir 51 milljarð króna frá því í fyrrahaust. Meira
14. júní 2006 | Viðskiptafréttir | 89 orð

Wyndeham Press Group skipt upp

WYNDEHAM Press Group í Bretlandi, sem er 98% í eigu Dagsbrúnar , verður skipt upp í tvö svið , svið útgáfulausna og svið markaðslausna , að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Meira

Daglegt líf

14. júní 2006 | Neytendur | 348 orð | 2 myndir

Einnar krónu verðmunur áberandi

Það munaði einni krónu á verði sautján vörutegunda af átján þegar Morgunblaðið gerði verðkönnun í Krónunni og Bónus í gær. Alls nemur verðmunurinn á vörukörfunum þrjátíu krónum, Bónus í hag. Vörukarfan kostaði 3.218 krónur í Bónus en 3. Meira
14. júní 2006 | Daglegt líf | 165 orð | 2 myndir

Fjölga á kvennaherbergjum

Sú var tíð að í viðskiptaferðir fóru aðeins karlmenn. Konur eru nú sívaxandi markhópur hótela sem skilgreina sig sem gististaði og "heimili" fólks á viðskiptaferðalögum. Meira
14. júní 2006 | Daglegt líf | 458 orð | 3 myndir

Íslenski vindurinn og blómabollarnir

Eftir Ingveldi Geirsdóttur i ngveldur@mbl.is Þessi hugmynd kom upphaflega út frá hugsuninni um þjóðarblómið. Meira
14. júní 2006 | Daglegt líf | 213 orð | 1 mynd

Jákvæðu tilfinningarnar lífseigari

Þegar fólk rifjar upp gamlar minningar um ýmsa atburði úr lífi sínu sem hafa átt þátt í að skapa sjálfsmynd þess, hefur það tilhneigingu til að gera lítið úr neikvæðum tilfinningum sem upp komu í tengslum við viðkomandi atburð en muna frekar jákvæðar... Meira
14. júní 2006 | Daglegt líf | 128 orð

Ostur og fyrirtíðaspenna

Neysla á mjólk og ostum er sögð geta komið í veg fyrir fyrirtíðaspennu og verki. Meira
14. júní 2006 | Daglegt líf | 188 orð

Samband kynlífslöngunar og erfðavísis

70% mannkyns ber í sér erfðasamsetningu sem tengist minni kynlífslöngun en 20% bera hins vegar í sér þá samsetningu sem getur leitt til meiri kynlífslöngunar, að því er ísraelsk rannsókn bendir til. Á vefnum forskning. Meira

Fastir þættir

14. júní 2006 | Fastir þættir | 186 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | ritstjórn@mbl.is

Líkindafræðin. Meira
14. júní 2006 | Fastir þættir | 14 orð

Gætum tungunnar

Sagt var: Hjónin litu á hvort annað. RÉTT VÆRI: Hjónin litu hvort á... Meira
14. júní 2006 | Í dag | 21 orð | 1 mynd

Hlutavelta | Þeir Stefán Trausti Njálsson, Sölvi Halldórsson og Patrekur...

Hlutavelta | Þeir Stefán Trausti Njálsson, Sölvi Halldórsson og Patrekur Atli Njálsson söfnuðu kr. 2.010 til styrktar Rauða krossi Íslands,... Meira
14. júní 2006 | Í dag | 15 orð

Orð dagsins: Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir...

Orð dagsins: Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir. (Fil. 4, 13. Meira
14. júní 2006 | Fastir þættir | 182 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | ritstjórn@mbl.is

1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f3 c6 6. Be3 a6 7. c5 b5 8. cxb6 Dxb6 9. Dd2 O-O 10. Hc1 Da5 11. Bc4 Rbd7 12. Rge2 He8 13. O-O Hb8 14. Bb3 c5 15. Kh1 cxd4 16. Rxd4 Bb7 17. Bh6 Bh8 18. Rf5 Dd8 19. Ba4 Rh5 20. Re3 Rhf6 21. Re2 Bg7 22. Meira
14. júní 2006 | Í dag | 568 orð | 1 mynd

Vel tekið á móti blóðgjöfum í dag

Ólafur Helgi Kjartansson fæddist í Reykjavík 1953. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1972 og cand. jur. frá HÍ 1978. Ólafur leggur nú stund á MPA-nám við HÍ. Meira
14. júní 2006 | Fastir þættir | 324 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Víkverji er að leita sér að notuðum bíl. Það kemur honum á óvart að sjá hversu algengt er að bílar séu með áhvílandi lán. Dæmi eru um að verðmæti bílsins rétt merji að vera meira en lánið. Meira

Íþróttir

14. júní 2006 | Íþróttir | 84 orð | 1 mynd

Aðsókn

FH (2) 4.5722.286 KR (3) 5.8051.935 ÍA (2) 2.4861.243 Víkingur R. (4) 4.5641.141 Keflavík (3) 3.3951.132 Fylkir (2) 2.1641.082 Valur (3) 3.1611.054 Grindavík (3) 3.0491.016 Breiðablik (4) 3.903976 ÍBV (4) 2.684671 Samtals 35.783. Meðaltal 1.193. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 240 orð | 1 mynd

Arsenal og Chelsea eiga flesta leikmenn

YFIR hundrað leikmenn sem eru á leikmannalistum hjá enskum liðum taka þátt í heimsmeistarakeppninni í Þýskalandi. Það segir mikið um styrk ensku deildarkeppninnar. Á nafnalistum þýskra liða má finna 73 leikmenn, sem taka þátt í HM. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 93 orð

Ármann Smári fékk fullt hús

ÁRMANN Smári Björnsson, FH, var eini leikmaðurinn sem fékk atkvæði í lið umferða 1-6 frá öllum í valnefndinni en í henni eru Morgunblaðið, Blaðið, Fótbolti.net. Gras.is. Íslenskar getraunir, XFM, RÚV, Sport.is, Sýn og Landsbankinn. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 274 orð

Eiður kominn til Barcelona

Eftir Guðmund Hilmarsson og Kristján Jónsson CHELSEA gaf í gær Eiði Smára Guðjohnsen leyfi til að halda til Spánar og ræða við forráðamenn Evrópumeistara Barcelona. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 175 orð | 1 mynd

Einkunnagjöfin

Þessir eru efstir í einkunnagjöf Morgunblaðsins: Leikmenn Viktor B. Arnarsson, Víkingi 9 Jónas G. Sævarsson, Keflavík 7 Atli Jóhannsson, ÍBV 6 Bjarni Guðjónsson, ÍA 6 Peter Gravesen, Fylki 6 Atli Sveinn Þórarinsson, Val 5 Ásgeir G. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 612 orð | 1 mynd

Enn markalaust hjá Frökkum

FRAKKLAND og Sviss gerðu markalaust jafntefli í G-riðli á HM í Þýskalandi í gær. Hið sterka lið Frakka á í miklum vandræðum uppi við mark andstæðinganna en þetta er fjórði leikurinn í röð í lokakeppni HM þar sem Frökkum mistekst að skora. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 86 orð

FH-ingar með bestu skytturnar

LEIKMENN FH-liðsins eru með bestu skytturnar í Landsbankadeildinni. Eftir sex umferðir hafa 63% af skotum þeirra hafnað á markinu - þeir hafa átt 65 skot og hefur 41 þeirra hafnað á markinu. 29% af skotunum hafa farið inn fyrir marklínuna. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 137 orð | 1 mynd

Fimm leikmenn frá FH

FIMM leikmenn úr röðum Íslandsmeistaraliðs FH voru valdir í úrvalslið fyrstu sex umferðanna í Landsbankadeild karla í knattspyrnu en líkt og undanfarin ár verða veittar viðurkenningar fyrir ákveðnar umferðir í Landsbankadeildinni. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 203 orð

Gagnrýnin hvassari en oftast áður

Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is KRISTINN Jakobsson fékk enn eina viðurkenninguna fyrir dómarastörf sín í gær þegar hann var útnefndur besti dómari 1.-6. umferða í Landsbankadeildinni. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 407 orð | 1 mynd

* GUNNAR Einarsson lék í fyrradag sinn 200. leik fyrir meistaraflokk KR...

* GUNNAR Einarsson lék í fyrradag sinn 200. leik fyrir meistaraflokk KR , gegn ÍBV . Hann er sautjándi leikmaðurinn sem nær þessum áfanga fyrir félagið. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 155 orð

Gylfi og félagar sluppu fyrir horn

GYLFI Gylfason og félagar hans í þýska handknattleiksliðinu Wilhelmshavener rétt sluppu fyrir horn í gærkvöldi þegar liðið lék síðari leikinn við Dormagen um laust sæti í fyrstu deildinni þýsku. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 163 orð

Hefði aldrei keypt Keane til Celtic

BILLY McNeill, fyrrverandi leikmaður, fyrirliði Evrópumeistara Celtic, og knattspyrnustjóri Celtic, segir að ef hann hefði verið við stjórnvölinn hjá félaginu þá hefði hann aldrei keypt Roy Keane. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 55 orð

Í kvöld

KNATTSPYRNA Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikar karla: Eskifj. Fjarðabyggð - Sindri 20 Landsbankadeild kvenna: Keflavík: Keflavík - FH 19.15 Fylkisvöllur: Fylkir - Stjarnan 19.15 3. deild karla, A-riðill: Gróttuvöllur: Grótta - Víðir 20 3. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 96 orð

Keflvíkingar fá flest spjöld

LEIKMENN Keflavíkurliðsins hafa fengið flest spjöld hjá dómurum í sex fyrstu umferðunum í Landsbankadeildinni. Þeir hafa mátt sjá 16 gul spjöld og þrjú rauð - eru með 28 refsistig. Víkingar koma næstir á blaði með 16 gul spjöld og tvö rauð. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 417 orð

KNATTSPYRNA 1. deild kvenna, A-riðill: Haukar - Þróttur R. 0:0...

KNATTSPYRNA 1. deild kvenna, A-riðill: Haukar - Þróttur R. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 80 orð

Marel með sex mörk

MAREL Baldvinsson, leikmaður Breiðabliks, er markahæstur í Landsbankadeildinni með 6 mörk eftir fyrstu sex umferðirnar í deildinni. Hann hefur skorað 50% af mörkum Blika, sem hafa skorað flest mörk, eða 12. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 101 orð | 1 mynd

Markhæstu menn

Marel Baldvinsson, Breiðabliki 6 Garðar B. Gunnlaugsson, Val 5 Christian Christiansen, Fylki 4 Davíð Þór Rúnarsson, Víkingi 4 Jóhann Þórhallsson, Grindavík 4 Tryggvi Guðmundsson, FH 4 Viktor B. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 459 orð | 1 mynd

Mikil pressa á Svíum

EFTIR markalaust jafntefli gegn Trínidad og Tóbagó er mikil pressa á leikmönnum Svía fyrir leikinn gegn Paragvæum sem fram fer í Berlín á morgun. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 212 orð

Neeskens aðstoðarþjálfari hjá Barcelona

HOLLENDINGURINN Johan Neeskens skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Evrópumeistara Barcelona um að starfa þar sem aðstoðarþjálfari hjá landa sínum Frank Rijkaard. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 504 orð | 1 mynd

Of snemmt að krýna okkur

ÓLAFUR Jóhannesson, þjálfari Íslandsmeistara FH, var eins við var búist útnefndur besti þjálfarinn í umferðum 1-6. Lærisveinar hans tróna á toppi Landsbankadeildarinnar, hafa unnið fimm leiki og gert eitt jafntefli og stefna í átt að þriðja Íslandsmeistaratitli sínum í röð. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 261 orð

Óvænt mótspyrna Tógó

LIÐ SUÐUR-Kóreu, sem kom allra liða mest á óvart í heimsmeistarakeppninni fyrir fjórum árum þegar það komst í undanúrslit, lagði í gær Tógó með tveimur mörkum gegn einu í fyrsta leik G-riðils. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 37 orð | 1 mynd

Skot á mark

Hér má sjá markskot liðanna, skot sem hitta á mark innan sviga og síðan mörk skoruð: Valur 89(46)10 Fylkir 87(48)7 Breiðablik 77(37)12 Keflavík 70(41)8 KR 69(25)6 FH 65(41)12 Víkingur R. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 1503 orð | 5 myndir

Spánverjar sterkastir

SPÁNVERJAR eru afar sigurstranglegir í H-riðlinum á HM og það kæmi verulega á óvart ef þeir yrðu ekki í efsta sætinu. Hvað þá ef þeir kæmust ekki áfram - það yrði flokkað undir stórslys. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 44 orð | 1 mynd

Spjöldin

Gul Rauð Stig KR 6110 FH 9113 Breiðablik 14014 Fylkir 14014 Valur 14014 ÍBV 15015 Grindavík 13221 ÍA 17121 Víkingur R. 16224 Keflavík 16328 * Gefið er eitt refsistig fyrir gult spjald og fjögur fyrir rautt spjald. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 29 orð

Staðan

STAÐAN er þessi eftir sex umferðir í Landsbankadeildinni: FH 651012:416 Víkingur R. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 462 orð | 1 mynd

Titilvörnin hafin hjá Brasilíu

HEIMSMEISTARAR Brasilíu hófu titilvörn sína á HM í gær með 1:0 sigri á Króatíu. Leikurinn var fjörugur og menn í báðum liðum óragir við að skjóta á mark mótherjanna. Króatar fengu sín færi og hefðu hæglega getað náð einu stigi ef ekki öllum þremur. Kaka gerði eina mark leiksins skömmu fyrir leikhlé. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 290 orð | 1 mynd

* UEFA-meistararnir í Sevilla hafa gengið frá kaupum á danska...

* UEFA-meistararnir í Sevilla hafa gengið frá kaupum á danska landsliðsmanninum Christian Poulsen frá þýska liðinu Schalke. Poulsen , sem er 26 ára gamall miðjumaður, gerði þriggja ára samning við Sevilla en hefur verið í herbúðum Schalke frá árinu... Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 96 orð | 1 mynd

Viktor Bjarki efstur á blaði

VIKTOR Bjarki Arnarsson, hinn skemmtilegi leikmaður Víkingsliðsins, er efstur í einkunnagjöf Morgunblaðsins eftir sex fyrstu umferðirnar í Landsbankadeildinni. Hann hefur fengið níu M. Næstur á blaði er Keflvíkingurinn Jónas G. Sævarsson með sjö M. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 125 orð

Þrír Keflvíkingar í leikbann

ÞRÍR Keflvíkingar voru úrskurðaðir í eins leiks bann hver um sig á fundi aganefndar KSÍ í gær. Meira
14. júní 2006 | Íþróttir | 870 orð | 1 mynd

Ætlaði ekki að þora aftur til Víkings

VIKTOR Bjarki Arnarsson, sóknarmaðurinn snaggaralegi hjá nýliðum Víkings, hefur heldur betur sprungið út á fótboltavellinum í sumar. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.