Greinar mánudaginn 23. október 2006

Fréttir

23. október 2006 | Innlendar fréttir | 157 orð

Banaslys á vegslóða við Hrauneyjar

KARLMAÐUR á sextugsaldri lést þegar jeppabifreið sem hann ók valt á fáförnum vegslóða sem liggur af Sprengisandsleið áleiðis að Búðarhálsi, um svonefnt Tryppavað á Þóristungum ofan við Hrauneyjar. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 72 orð

Ekki syngja í sturtunni

Sydney. AFP. | Ástralar ættu að láta af þeirri iðju að syngja og dreyma dagdrauma í sturtunni vegna þess að þeir sóa peningum í að hita upp vatn, að því er einn stærsti orkusali landsins tilkynnti í gær. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 268 orð

Fjórar líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur

TILKYNNT var um fjórar líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur frá kl. 3 aðfaranótt sunnudags til kl. 9 um morguninn. Ungan karlmann þurfti að flytja á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss til aðhlynningar. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 119 orð | 1 mynd

Fjölsótt ljósahátíð á Austur-Indlandi

MUNAÐARLAUS börn kveiktu á kertum í indversku borginni Gauhati í gær. Alls er talið að börnin hafi kveikt á fimm þúsund svokölluðum Diwa-lömpum á ljósahátíðinni Diwali. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 129 orð

Fulltrúa SÞ gert að fara frá Súdan

Khartúm. AFP. | Súdönsk stjórnvöld gáfu í gær Jan Pronk, fulltrúa Sameinuðu þjóðanna, frest þangað til á miðvikudag til að yfirgefa landið, eftir að honum var gefið að sök að hafa tjáð sig um "viðkvæm málefni". Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 111 orð | 1 mynd

Glúmur sækist eftir 5. til 8. sæti

GLÚMUR Baldvinsson alþjóðastjórnmálafræðingur sækist eftir 5. til 8. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar vorið 2007. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 107 orð | 1 mynd

Hálf öld frá uppreisn Ungverja

FIMMTÍU ár eru í dag liðin frá uppreisninni í Ungverjalandi sem Sovétmenn brutu á bak aftur með hervaldi. Fjöldi þjóðarleiðtoga verður viðstaddur minningarathöfn um uppreisnina í Búdapest í dag, þeirra á meðal Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 288 orð | 1 mynd

Íslenskar björgunarsveitir vekja athygli

RÁÐSTEFNUNNI Björgun 2006, sem slysavarnafélagið Landsbjörg gekkst fyrir á Grand hóteli í Reykjavík, lauk í gær. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 59 orð | 1 mynd

Kjötsúpa á Skólavörðustígnum

ÁRLEGUR kjötsúpudagur var haldinn hátíðlegur á Skólavörðustígnum á laugardag. Þar gæddu ungir sem aldnir sér á súpunni þjóðlegu. Þessi unga snót kunni sýnilega að meta það sem í boði var en gestir gátu einnig gætt sér á grænmetissúpu. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 735 orð | 1 mynd

Konan mín hvatti mig áfram

"Ég tel mig heppinn að vera heill heilsu. Ég stunda íhugun, jóga, gönguferðir og sund. Þessir þættir gefa mér kraft og vilja," segir Bragi Þórðarson, bókaútgefandi á Akranesi. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 203 orð | 1 mynd

Lífsspursmál fyrir Þórshöfn að vegirnir komist í lag

ÍBÚAR á Þórshöfn í Langanesbyggð eru orðnir langþreyttir á aðgerðaleysi í vegamálum á svæðinu og vonast eftir úrbótum hið fyrsta. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 977 orð | 3 myndir

Mun stækka mjög á næstu árum

Við gangsetningu Hellisheiðarvirkjunar sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra að virkjunin væri góður vitnisburður um umhverfisvæna nýtingu auðlinda. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 134 orð | 1 mynd

Obama íhugar framboð

Washington. AFP. | Öldungadeildarþingmaðurinn og demókratinn Barack Obama tilkynnti í gær að hann væri að íhuga framboð í forsetakosningunum árið 2008. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 134 orð

Omar hótar hrinu árása í Afganistan

Dubai. AFP. | Mohammad múllah Omar, æðsti leiðtogi talibana í Afganistan, hótar að draga Hamid Karzai, forseta landsins, fyrir íslamskan rétt, ásamt því sem hann varar við hrinu ofbeldisaðgerða í landinu. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 65 orð | 1 mynd

Opnað samkvæmt áætlun

NÝJU mislægu gatnamótin á mótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar verða tekin í notkun 1. nóvember næstkomandi. Það er samkvæmt verkáætlun, að sögn Guðfinnu Hinriksdóttur, verkefnisstjóra hjá Eykt. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 80 orð | 1 mynd

Prestsvígsla í Hóladómkirkju

Sauðárkrókur | Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup vígði í gær Sigríði Gunnarsdóttur guðfræðing til prestsþjónustu í Sauðárkrókssöfnuði að viðstöddu fjölmenni í Hóladómkirkju. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 1938 orð | 2 myndir

"Ég skil ekki hvað hinir ungversku félagar okkar eru að gera"

Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 2501 orð | 7 myndir

"Fyrir öllu að tala ekki úr sér kjarkinn"

Bjart er yfir kauptúninu Þórshöfn sem nú tilheyrir Langanesbyggð enda þótt aflasamdráttur hafi verið í loðnuveiðum á þessu ári en á þær veiðar stólar burðarásinn í atvinnulífinu, Hraðfrystistöð Þórshafnar. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 193 orð

"Illa ígrunduð og óheppileg tillaga"

TILLAGAN um byggingu hálendismiðstöðvar í Skálpanesi við Langjökul sem samvinnunefnd um breytingu á staðfestu svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015 hefur lagt fram er illa ígrunduð og óheppileg að mati Náttúruvaktarinnar. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 209 orð | 1 mynd

"Ógleymanlegur dagur á Langasandi"

Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Vélhjólamenn og konur á öllum aldri vöktu mikla athygli á laugardaginn í veðurblíðunni á Langasandi á Akranesi. Þar fór fram mótorkrosskeppni og er þetta í fyrsta sinn sem slík keppni fer fram á Langasandi. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 75 orð | 1 mynd

"Schumi" með gamla takta

ÞJÓÐVERJINN Michael Schumacher gaf ekkert eftir í síðustu keppni sinni í formúlu 1 í Brasilíu í gær. Kom "Schumi" fjórði í mark eftir að hafa sýnt gamalkunnugt keppnisskap sitt á rauða Ferrari-fáknum eftir erfiða byrjun. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 896 orð | 6 myndir

"Stund sem ég hef beðið eftir"

Eftir Andra Karl andri@mbl.is Þetta er bara eins og sjá má í Alaska þegar þeir koma með hvalinn að landi, þá er allt þorpið mætt á svæðið. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 293 orð | 1 mynd

"Þeir hafa engu gleymt"

Eftir Andra Karl andri@mbl.is HVALVEIÐAR í atvinnuskyni hófust formlega aftur eftir 20 ára hlé þegar fyrsta langreyðurin af þeim níu, sem heimilt er að veiða, var dregin á land við mikinn fögnuð viðstaddra á tíunda tímanum í gærmorgun. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 195 orð | 1 mynd

Skóflustunga að nýju pósthúsi

Stykkishólmur | Skóflustunga hefur verið tekin að nýju pósthúsi í Stykkishólmi. Árni Helgason, fyrrverandi stöðvarstjóri, tók fyrstu skóflustunguna að nýrri byggingu á fimmtudag í liðinni viku. Margir voru viðstaddir athöfnina, þ.ám. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 385 orð

Sprengjuheldu flugskýlin á afmörkuðu svæði

Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÁKVEÐIÐ hefur verið að afmarka tiltekið svæði á Keflavíkurflugvelli, sem nefnt verður öryggissvæði eða varnarsvæði. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 74 orð | 1 mynd

Starfshópur um veiðar

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að setja á fót starfshóp til að fara yfir hvaða breytingar og viðbætur er rétt að gera á íslenskri löggjöf til að geta tekið fastar á sjóræningjaveiðum við landið. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 229 orð | 1 mynd

Stjórnsýsluréttur og stjórnsýsla sveitarfélaga

Í nóvember og desember nk. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 144 orð

SUS gagnrýnir útgjaldaaukningu

EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Sambands ungra sjálfstæðismanna sl. þriðjudag: "Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna gagnrýnir harðlega þá miklu útgjaldaaukningu sem fram kemur í nýframkomnu fjárlagafrumvarpi. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 270 orð | 1 mynd

Takmarka fjöldann

London. AFP. | Bresk stjórnvöld munu í þessari viku kynna áætlun um að takmarka fjölda innflytjenda frá Rúmeníu og Búlgaríu þegar þjóðirnar ganga í Evrópusambandið (ESB) hinn 1. janúar næstkomandi. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 70 orð

Tekinn réttindalaus á bifhjóli

LÖGREGLAN í Hafnarfirði stöðvaði för 19 ára ökumanns bifhjóls á fimmta tímanum í gærdag. Áður hafði lögreglan í Keflavík mælt bifhjólið á 156 km hraða skammt frá Vogavegi en ökumaður ekki sinnt stöðvunarmerkjum. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 293 orð | 1 mynd

Ummæli embættismanns um Írak falla í grýtta jörð

Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl. Meira
23. október 2006 | Erlendar fréttir | 106 orð

Viðurkenna notkun fosfór-sprengna

Jerúsalem. AFP. | Ísraelskt dagblað fullyrti í gær að Íraelsstjórn hefði í fyrsta sinn viðurkennt að hafa beitt svokölluðum hvítum fosfór-sprengjum gegn hernaðarlegum skotmörkum í átökunum í Suður-Líbanon í sumar. Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 234 orð | 1 mynd

Þrír kjörnir heiðursdoktorar við Háskóla Íslands

AÐ LOKINNI brautskráningu stúdenta frá Háskóla Íslands á laugardag, sem að þessu sinni voru 386 talsins, var kjöri á þremur heiðursdoktorum lýst jafnframt því sem Kristín Ingólfsdóttir rektor veitti þremur starfsmönnum skólans viðurkenningar fyrir... Meira
23. október 2006 | Innlendar fréttir | 289 orð

Þverpólitísk andstaða við stækkun álversins

SÓL í Straumi nefnist hópur áhugafólks um stækkun álversins í Straumsvík sem stendur fyrir fundi í Haukahúsinu Ásvöllum klukkan 20 í kvöld. Meira

Ritstjórnargreinar

23. október 2006 | Leiðarar | 467 orð

Að fyrirgefa hið ófyrirgefanlega

Fyrir tólf árum voru framin einhver hryllilegustu voðaverk tuttugustu aldarinnar. Á þremur mánuðum voru átta hundruð þúsund manns myrt í Rúanda. Hútúar hugðust útrýma tútsum í landinu. Meira
23. október 2006 | Leiðarar | 375 orð

Aldalöngum deilum lokið

Samkomulag ríkisvaldsins og þjóðkirkjunnar um eignarráð yfir prestssetrum og jörðum þeirra markar tímamót í samskiptum ríkis og kirkju. Það felur í sér að áralöngum - og raunar aldalöngum - deilum um eignir kirkjunnar er lokið. Við upphaf 20. Meira
23. október 2006 | Staksteinar | 240 orð | 1 mynd

Góðar fréttir

Það eru góðar fréttir, sem fram komu í Morgunblaðinu í gær frá forsvarsmönnum Norðuráls, að rússneska álfyrirtækið Rusal væri ekki komið með eignatengsl inn í Norðurál. Meira

Menning

23. október 2006 | Fólk í fréttum | 460 orð | 18 myndir

Amadeus, Airwaves og amatörar

Fluga tók leigubíl í leikhúsið að kveldi fyrsta vetrardags þegar loftið í Reykjavík víbraði af Airwaves en bílstjórinn reyndist ekki alveg í takt við tónlistarandrúmsloftið og blastaði ,,Á skíðum skemmti ég mér" með Helenu Eyjólfsdóttur . Meira
23. október 2006 | Myndlist | 81 orð | 1 mynd

Arnór G. Bieltvedt sýnir í Hamborg

Íslenski myndlistarmaðurinn Arnór G. Bieltvedt er einn fimm listamanna sem mun sýna verk sín á sýningunni Zur Vernissage í Marziart Internationale Galerie í Hamborg í Þýskalandi. Hinir listamennirnir koma frá Bandaríkjunum, Brasilíu, Kúbu og Hollandi. Meira
23. október 2006 | Bókmenntir | 86 orð | 1 mynd

Ágúst Borgþór á Skáldaspírukvöldi

Ágúst Borgþór Sverrisson les upp úr ritverkum sínum á Skáldaspírukvöldi sem fer fram annað kvöld í Iðu kl. 20. Meira
23. október 2006 | Tónlist | 510 orð | 1 mynd

Engin venjuleg ábreiða

VON er á nýrri plötu í vikunni þar sem þeir félagarnir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson leiða saman hesta sína. Meira
23. október 2006 | Tónlist | 256 orð | 1 mynd

Fimm nýjar plötur í haust

ÓVENJU mikil gróska hefur verið í útgáfu á djassplötum upp á síðkastið. Eigi færri en fjórar djassplötur hafa litið dagsins ljós á þessu hausti og von er á þeirri fimmtu á næstu dögum. Meira
23. október 2006 | Fólk í fréttum | 113 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Bandaríski leikarinn Nicolas Cage hefur sett heimili sitt í Bel-Air hverfinu í Los Angeles á sölu. Söluverð hússins er 35 milljónir Bandaríkjadala en það mun vera fimm sinnum hærra verð en hann greiddi fyrir húsið árið 1998. Meira
23. október 2006 | Fólk í fréttum | 116 orð

Fólk folk@mbl.is

Frændi breska rokkarans Petes Dohertys segir að Pete og ofurfyrirsætan Kate Moss eigi von á barni,. Frá þessu greindi breska blaðið Sunday Mirror í gær. Segist frændinn tvisvar hafa rætt málið við Pete, sem hafi staðfest að Kate sé barnshafandi. Meira
23. október 2006 | Fólk í fréttum | 132 orð | 2 myndir

Fólk folk@mbl.is

Faðir malavíska drengsins sem poppdívan Madonna hyggst ættleiða, sagði í viðtali við Reuters -fréttastofuna að hann hefði aldrei ætlað sér að veita Madonnu leyfi til ættleiðingar, heldur aðeins leyfi um að hún æli hann upp. Meira
23. október 2006 | Fólk í fréttum | 83 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Sérfræðingar á vegum UNESCO, Menningarmálastofnunar SÞ, heimsóttu í dag Tower of London , en þeir segja að óttast sé að ný mannvirki ógni sögulegu gildi þessa forna virkis sem reist var á elleftu öld að skipan Vilhjálms I. Englandskonungs . Meira
23. október 2006 | Fólk í fréttum | 151 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Breski leikarinn Daniel Radcliffe sem er hvað þekktastur fyrir að leika töfradrenginn Harry Potter mun stíga á leiksvið í London á næsta ári þegar verðlaunaleikritið Equus eftir Peter Shaffer verður sett upp. Meira
23. október 2006 | Fólk í fréttum | 213 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Fyrrum blaðafulltrúi Sir Paul McCartney hefur komið tónlistarmanninum til hjálpar og segir að ásakanir Heather Mills séu illkvittnar lygar. Meira
23. október 2006 | Tónlist | 135 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Hljómsveitastjórinn Christoph Eschenbach mun láta af störfum sem hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Fíladelfíu þegar tónlistarárinu 2007-08 lýkur. Meira
23. október 2006 | Fólk í fréttum | 133 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Ástralska leikkonan Nicole Kidman er í öngum sínum yfir ástandi eiginmanns síns, nýsjálenska sveitasöngvaran Keiths Urban , en hann innritaði sig á dögunum í áfengis- og vímuefnameðferð. Meira
23. október 2006 | Kvikmyndir | 261 orð | 1 mynd

Heragi og sjávarháski

Leikstjórn: Andrew Davis. Leikstjórn: Kevin Costner, Ashton Kutcher, Melissa Sagemiller og Bonnie Bramlett. Bandaríkin, 139 mín. Meira
23. október 2006 | Bókmenntir | 83 orð | 1 mynd

Ítölsk tunga í hávegum höfð

Bókmenntaráðstefna með ítalska rithöfundinum Dacia Maraini hefst nú á fimmtudaginn í Norræna húsinu. Er hún haldin í viku sem er tileinkuð ítalskri tungu um víða veröld og er þetta í sjöunda skipti sem slík ráðstefna er haldin. Meira
23. október 2006 | Menningarlíf | 64 orð | 1 mynd

Kóranlestur á ramadan

Palestínsk kona rýnir í Kóraninn sinn í Al-Aqsa-moskunni í Jerúsalem síðasta föstudag. Þá var föstumánuðinum ramadan um það bil að ljúka og hátíð framundan. Meira
23. október 2006 | Tónlist | 606 orð | 2 myndir

Langt laugardagskvöld

Iceland Airwaves var vel heppnuð í ár, en hún er erfið, það var arkað fulloft yfir Lækjartorg um helgina og bölvað yfir bæklingnum og tónlistarmönnum sem þurftu endilega að koma fram samtímis, svo týndist Jens Lekman í bæklingnum sem var leitt. Meira
23. október 2006 | Fjölmiðlar | 197 orð | 1 mynd

Mikið á einn lagt

EFTIR því sem árin færast yfir mann slæðist með þeim áhugi á alls kyns hlutum sem áður þóttu ekki ýkja merkilegir. Meira
23. október 2006 | Tónlist | 346 orð

Smitandi haustfagnaður

Stjórnandi: Elín Ósk Óskarsdóttir. Peter Máté píanó. Miðvikudaginn 18. október kl. 20. Meira
23. október 2006 | Tónlist | 352 orð | 1 mynd

Strokið af lífi og sál

Verk eftir Karin Rehnqvist, Gunnar A. Kristinsson, Eivind Buene og Jukka Tiensuu. Kammersveit Reykjavíkur. Einleikarar: Einar Jóhannesson klarínett og Mikko Luoma harmonika. Stjórnandi: Jan Söderblom. Sunnudaginn 8. október kl. 20:30. Meira
23. október 2006 | Myndlist | 581 orð | 1 mynd

Undir og yfirliggjandi þræðir

Sýningin stendur til 28. okt. Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 11-17 og laugardaga 13-17 Meira
23. október 2006 | Leiklist | 920 orð | 1 mynd

Verndardýrlingur meðalmennskunnar

Höfundur: Peter Shaffer, þýðing: Valgarður Egilsson og Katrín Fjeldsted. Leikstjóri: Stefán Baldursson, leikmynd: Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir, búningar: Helga I. Meira
23. október 2006 | Bókmenntir | 185 orð | 1 mynd

Von á annarri bók frá Hosseini

AFGANSKI rithöfundurinn Khaled Hosseini og höfundur skáldsögunnar Flugdrekahlauparinn tilkynnti á dögunum að hann myndi senda frá sér sína aðra skáldsögu snemma á næsta ári. Meira
23. október 2006 | Kvikmyndir | 253 orð

Þjófagengi í Feneyjum

Leikstjórn: Richard Claus. Aðalhlutverk: Aaron Johnson, Alexei Sayle, Jasper Harris, Jim Carter, Rollo Weeks. Lúxemborg, Bretland, Þýskaland, 98 mín. Meira

Umræðan

23. október 2006 | Aðsent efni | 890 orð | 1 mynd

Af rangfærslum um raflækningar

Héðinn Unnsteinsson skrifar um raflækningar: "Varðandi raflost meðferð, þá er mér það ljóst að hún hefur gagnast mörgum vel og komið fólki fram úr rúminu og upp úr djúpu þunglyndi." Meira
23. október 2006 | Aðsent efni | 554 orð | 1 mynd

Breyttar áherslur í málefnum fatlaðra

Gunnar Axel Axelsson fjallar um málefni fatlaðra: "Ég tel brýnt að stjórnvöld uppfæri stefnu sína í málaflokki fatlaðra í takt við almenna lífskjaraþróun og tryggi þeim sem skilgreindir eru fatlaðir sömu mannréttindi og öðrum þegnum landsins." Meira
23. október 2006 | Aðsent efni | 746 orð | 1 mynd

Ekki er allt sem sýnist

Sigrún Viktorsdóttir skrifar um vinnu barna og unglinga í tilefni af Evrópskri vinnuviku: "...forsjáraðilar hafa eftirlitsskyldu með börnum sínum þegar þau fara á vinnumarkað." Meira
23. október 2006 | Aðsent efni | 372 orð | 1 mynd

Fjölgun hjúkrunarrýma er forgangsmál

Dögg Pálsdóttir fjallar um hjúkrunarrými og málefni aldraðra: "Samfélaginu ber að tryggja öldruðum sem lokið hafa farsælu ævistarfi vist á hjúkrunarrými þegar slíkrar vistar er þörf." Meira
23. október 2006 | Aðsent efni | 361 orð | 1 mynd

Ný lög um Lánasjóðinn

Björgvin G. Sigurðsson fjallar um Lánasjóð íslenskra námsmanna: "Vitað er um mörg dæmi þess að ungt og efnilegt fólk hefur orðið að hverfa frá áætlunum um frekara nám vegna þess að það hefur ekki getað framvísað ábyrgðarmönnum sem lánasjóðurinn tekur gilda." Meira
23. október 2006 | Aðsent efni | 510 orð | 1 mynd

Samkeppni - eitthvað ofan á brauð?

Sigurður Eiríksson skrifar um samruna fyrirtækja í mjólkuriðnaði: "Slíkar fullyrðingar hljóta að vera settar fram í pólitískum tilgangi og ætlaðar til þess að slá ryki í augu almennings." Meira
23. október 2006 | Aðsent efni | 544 orð | 1 mynd

Svar til þingmanns Frjálslynda flokksins

Árni Finnsson skrifar um hvalveiðar: "Það er því rangt hjá Magnúsi Þór að halda fram að hvalveiðar snúist um sjálfsákvörðunarrétt íslensku þjóðarinnar." Meira
23. október 2006 | Aðsent efni | 341 orð

Sýn Framsóknarflokksins á markaðslögmálin

Í STAKSTEINUM Morgunblaðsins er 17. okt. sl. lýst eftir viðskiptastefnu Framsóknarmanna. Meira
23. október 2006 | Velvakandi | 628 orð | 1 mynd

velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Erfið lífsbarátta katta NÚ þegar veturinn nálgast er sorglegt að hugsa til allra þeirra katta sem eiga eymdarlíf á vergangi í og við marga þéttbýlisstaði á landinu. T.d. á Akranesi, í fjörunni nálægt Vesturgötu, er ástandið að sögn kunnugra skelfilegt. Meira
23. október 2006 | Aðsent efni | 566 orð | 1 mynd

Þörf á nýrri sýn

Valdimar Leó Friðriksson svarar Ólafi Flóvenz: "Í uppsiglingu er stórslys á Ölkelduhálsi." Meira

Minningargreinar

23. október 2006 | Minningargreinar | 360 orð | 1 mynd

Anna Sumarliðadóttir

Anna Margrét Guðrún Sumarliðadóttir fæddist á Meiðastöðum í Garði 25. ágúst 1917. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 22. september síðastliðinn og var jarðsungin frá Útskálakirkju í 30. september. Meira  Kaupa minningabók
23. október 2006 | Minningargreinar | 360 orð | 1 mynd

Arna Ploder

Arna Ploder fæddist 17. maí 2006. Hún andaðist 14. október 2006. Foreldrar hennar eru Svafa Arnardóttir og Björgvin Ploder. Bræður hennar eru Fróði Ploder, f. 1992, og Sindri Ploder, f. 1997. Útför Örnu fer fram í dag. Meira  Kaupa minningabók
23. október 2006 | Minningargreinar | 221 orð | 1 mynd

Birgir Kristinsson

Birgir Kristinsson fæddist í Reykjavík hinn 7. september 1958. Hann lést á heimili sínu hinn 11. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Víðistaðakirkju 20. október. Meira  Kaupa minningabók
23. október 2006 | Minningargreinar | 231 orð | 1 mynd

Eyjólfur Valgeirsson

Eyjólfur Valgeirsson fæddist í Norðurfirði í Strandasýslu hinn 12. apríl 1914. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 13. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 20. október. Meira  Kaupa minningabók
23. október 2006 | Minningargreinar | 2834 orð | 1 mynd

Guðrún Pálsdóttir

Guðrún Pálsdóttir fæddist í Hafnarfirði 21.8. 1930. Hún andaðist á hjartadeild LSH við Hringbraut 8. okt. síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 17. september. Meira  Kaupa minningabók
23. október 2006 | Minningargreinar | 1715 orð | 1 mynd

Halldór Þorvaldur Ólafsson

Halldór Þorvaldur Ólafsson, sjómaður og matsveinn, fæddist á Ísafirði 17. maí 1923. Hann andaðist á Landspítala Landakoti 12. október síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
23. október 2006 | Minningargreinar | 684 orð | 1 mynd

Jóhann Guðmundsson

Jóhann Guðmundsson fæddist í Reykjavík 16. febrúar 1930. Hann varð bráðkvaddur 16. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Halldór Guðmundsson togarasjómaður og Solveig Jóhannsdóttir húsmóðir. Meira  Kaupa minningabók
23. október 2006 | Minningargreinar | 2189 orð | 1 mynd

Jón Guðlaugsson

Jón Guðlaugsson fæddist á Steinstúni í Norðurfirði í Árneshreppi 15. ágúst 1909. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 14. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðlaugur Jónsson bóndi, f. í Norðurfirði 2. des. 1865, d. 7. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

23. október 2006 | Sjávarútvegur | 62 orð | 1 mynd

Dala-Rafn hlýtur umhverfisverðlaun LÍÚ

Umhverfisverðlaun LÍÚ Umhverfisverðlaun LÍÚ hafa nú verið veitt í áttunda sinn. Að þessu sinni hlaut fyrirtækið Dala-Rafn ehf. í Vestmannaeyjum verðlaunin. Verðlaunin eru veitt aðilum innan samtakanna sem þykja hafa skarað fram úr á sviði umhverfismála. Meira
23. október 2006 | Sjávarútvegur | 474 orð | 1 mynd

Kæru Ýslendingar

Eins og allir vita er ýsan sérstaklega fallegur og gáfaður fiskur. Fallega og gáfaða fiska á ekki að drepa og éta. Þess vegna leggur bryggjuspjallari til að ýsan verði friðuð. Meira
23. október 2006 | Sjávarútvegur | 289 orð | 1 mynd

Minna framboð á botnfiski á næsta ári

FRAMBOÐ á botnfiski í heiminum mun dragast saman á næsta ári vegna meiri niðurskurðar á leyfilegum heildarafla á alaskaufsa, en búizt hafði verið við. Þetta kom fram á ráðstefnunni Groundfish Forum, sem nú var haldin í 15 sinn, að þessu sinni í... Meira
23. október 2006 | Sjávarútvegur | 383 orð | 1 mynd

Nýliðun úthafsrækju mjög slök

Nýliðun í úthafsrækjustofninum er mjög slök eða um einn tíundi meðaltals síðustu ári. Mjög lítið er af rækju fyrir austan land, nánast ördeyða, en fyrir norðan land er stofnvísitala um fjórðungi hærri en á síðasta ári. Meira

Viðskipti

23. október 2006 | Viðskiptafréttir | 105 orð | 1 mynd

Chrysler lækkar verð til að auka sölu

CHRYSLER bílaframleiðandinn, bandaríska einingin af Daimler-Chrysler samsteypunni, ætlar að lækka verð á öllum seldum bílum fyrirtækisins í Bandaríkjunum um þúsund dollara , eða í kringum 70 þúsund krónur. Meira
23. október 2006 | Viðskiptafréttir | 316 orð | 1 mynd

Kostnaður eykst umfram verðlag

Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is BYGGINGAVÍSITALAN hækkaði um 0,6% á milli september og október, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Síðastliðna tólf mánuði hefur byggingavísitalan hækkað um 11,9%. Meira
23. október 2006 | Viðskiptafréttir | 48 orð

Óbreyttir útlánsvextir hjá Íbúðalánasjóði

ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefur ákveðið að útlánsvextir sjóðsins verði óbreyttir, 4,95% . Vextir af lánum með sérstöku uppgreiðsluálagi verða einnig óbreyttir, 0,25 prósentustigum lægri, eða 4,70% . Meira
23. október 2006 | Viðskiptafréttir | 206 orð

Von á miklum hagnaði

ÞRIÐJA uppgjörstímabilið í Kauphöll Íslands á þessu ári er hafið. Nýherji reið á vaðið fyrir helgina en félagið birti níu mánaða uppgjör sitt fyrir þetta ár síðastliðinn föstudag. Meira

Daglegt líf

23. október 2006 | Daglegt líf | 597 orð | 2 myndir

Af hverju sanngjörn viðskipti?

Eftir Sigrúnu Ásmundar sia@mbl. Meira
23. október 2006 | Daglegt líf | 257 orð | 1 mynd

Félagsmál sem sérstakt fag

Eftir Ingólf Arason FÉLAGSMÁL eru meðal þess sem elstu nemendur Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi eiga kost á að kynna sér í sérstöku valfagi í skólanum. Meira
23. október 2006 | Daglegt líf | 351 orð | 2 myndir

Hálfrar aldar gamall Moggi

Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Heldur er það stökkt og gulnað Morgunblaðið sem fannst bak við þil í risíbúð á Flókagötunni fyrir skemmstu, enda komið til ára sinna, dagsett 9. júlí 1955. Meira
23. október 2006 | Daglegt líf | 362 orð | 3 myndir

Herkænska í hávegum

Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is NOKKRUM sinnum í mánuði dregur Bergur Þórmundsson fram tindátana sína, raðar þeim upp til árásar og fer að leika. Meira
23. október 2006 | Daglegt líf | 549 orð | 2 myndir

Kolféllu fyrir litla Lubba

Lubbi Daníelsson var í afmælispakkanum hennar Halldóru Hermannsdóttur þegar hún varð tíu ára og það var ást við fyrstu sýn. Jóhanna Ingvarsdóttir heimsótti Halldóru og Lubba. Meira
23. október 2006 | Daglegt líf | 618 orð | 2 myndir

Þarf að virkja unglinginn?

Unglingar eru yfirleitt skrefi á undan foreldrum sínum þegar kemur að tækninni og þeim síðarnefndu finnst þeir varla geta þverfótað í herbergjum þeirra sem þeir lýsa oft eins og tæknistúdíói. Unnur H. Meira

Fastir þættir

23. október 2006 | Fastir þættir | 165 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is

Evrópubikarinn. Norður &spade;ÁG1054 &heart;64 ⋄854 &klubs;K43 Vestur Austur &spade;-- &spade;9876 &heart;10973 &heart;5 ⋄KDG92 ⋄Á763 &klubs;9875 &klubs;ÁG102 Suður &spade;KD32 &heart;ÁKDG82 ⋄10 &klubs;D6 Suður spilar fimm &heart;. Meira
23. október 2006 | Fastir þættir | 313 orð | 1 mynd

BRIDS - Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

Bridsfélag Selfoss og nágrennis Spilamennsku lauk í Málarabutlernum 19. október sl. Þessi pör skoruðu mest um kvöldið: Garðar Garðarss. - Gunnar Þórðarson 30 Sigurður Vilhj.s. Meira
23. október 2006 | Fastir þættir | 39 orð

Gætum tungunnar

Sagt var : Þeir hafa birt aðvaranir. RÉTT VÆRI: Þeir hafa birt viðvaranir . (Dönsku orðin at advare eru á íslensku að vara við , en ekki að vara að , og advarsel er því á íslensku viðvörun . Meira
23. október 2006 | Í dag | 40 orð | 1 mynd

Hjörtur sýnir í Anima

HJÖRTUR Hjartarson sýnir málverk í Anima Gallerí. Á sýningunni eru málverk unnin á þessu og síðasta ári, þar sem myndlistamaðurinn vinnur með náttúruform, liti og ljós. Sýningin er opin þriðjudaga til laugardaga kl. 13-17 og stendur til 4. nóvember.... Meira
23. október 2006 | Í dag | 25 orð

Orð dagsins : Jesús horfði á þá og sagði: "Fyrir mönnum eru engin...

Orð dagsins : Jesús horfði á þá og sagði: "Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en fyrir Guði. Guð megnar allt." (Mk. 10, 27. Meira
23. október 2006 | Í dag | 70 orð | 1 mynd

Sigtryggur sýnir í Listasafni Reykjanesbæjar

Sigtryggur Bjarni Baldvinsson hefur opnað sýningu í Listasafni Reykjanesbæjar og ber sýningin heitið Sog. Viðfangsefni listamannsins er straumvatn og sýnir hann þarna ný málverk unnin með olíu á striga og rýmisverk. Meira
23. október 2006 | Fastir þættir | 143 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 5. c3 Bd7 6. O-O g6 7. d4 Bg7 8. He1 Rge7 9. d5 Rb8 10. c4 b5 11. Bc2 O-O 12. Rc3 h6 13. b4 a5 14. bxa5 bxc4 15. Rd2 Hxa5 16. Rxc4 Ha8 17. Hb1 f5 18. a4 Ra6 19. a5 Rc5 20. Be3 Rxe4 21. Rxe4 fxe4 22. Bxe4 Rf5 23. Meira
23. október 2006 | Dagbók | 147 orð

Spurt er... ritstjorn@mbl.is

1 Stjórnsýsluútekt á Strætó leiðir í ljós að stefnumörkun vanti fyrir fyrirtækið. Hvað heitir forstjóri Strætós? 2 Mýrin eftir Baltasar Kormák var frumsýnd á fimmtudag. Björn Hlynur Haraldsson fer með hlutverk aðstoðarmanns Erlends. Hvað heitir hann? Meira
23. október 2006 | Í dag | 43 orð | 1 mynd

Sýning í Gallerí Hún og Hún

Sorin Dan Cojocaru, sem er rúmenskur listmálari, opnaði sýningu sl. laugardag í Gallerí Hún og Hún sem er staðsett á Skólavörðustíg 17 B. Sorin hefur verið með sýningar víðs vegar um Evrópu. Sýningin stendur til 17. Meira
23. október 2006 | Dagbók | 531 orð | 1 mynd

Vinnuvernd: örugg frá upphafi

Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir fæddist í Kópavogi 1967. Hún lauk B.A. prófi í sálfræði frá HÍ 1992, M.A. í endurhæfingarráðgjöf frá University of Maryland, College Park 1996 og M.Sc. í viðskiptafræði frá HÍ 2004. Ása hefur m.a. Meira
23. október 2006 | Fastir þættir | 282 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Í dag, mánudag, er nákvæmalega hálf öld liðin frá uppreisninni frægu í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, þegar hugrakkir íbúar borgarinnar reyndu að varpa af sér viðjum alræðishyggjunnar. Meira

Íþróttir

23. október 2006 | Íþróttir | 39 orð | 1 mynd

Adidasmótið Adidas-stigamótið fór fram í TBR-húsinu, sunnudaginn 22...

Adidasmótið Adidas-stigamótið fór fram í TBR-húsinu, sunnudaginn 22. október. Meistaraflokkur karla: 1. Matthías Stephensen, Víkingi 2. Magnús K. Magnússon, Víkingi 3.-4. Ólafur P. Geirsson, KR 3.-4.Daði Guðmundsson, Víkingi Meistaraflokkur kvenna 1. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 580 orð | 1 mynd

Alonso heimsmeistari og Renault hafði Ferrari

SPÁNVERJINN Fernando Alonso á Renault tryggði sér í gær heimsmeistaratitil ökumanna í formúlu-1 kappakstrinum og Renault sigraði einnig í keppni bílaframleiðenda. Alonso varð annar í síðasta kappakstri tímabilsins, en hann fór fram í Brasilíu. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 134 orð | 1 mynd

Björgvin Þór er markahæstur

BJÖRGVIN Þór Hólmgeirsson, leikmaður ÍR-liðsins, er markahæstur í úrvalsdeild karla í handknattleik, DHL--deildinni, eftir fjórar umferðir. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 1269 orð | 2 myndir

England Úvalsdeild Wigan - Man. City 4:0 Emile Heskey 2., Richard Dunne...

England Úvalsdeild Wigan - Man. City 4:0 Emile Heskey 2., Richard Dunne 4. (sjálfsmark), Henri Camara 65., Antonio Valencia 67. - 16.235. Charlton - Watford 0:0 27.011. Aston Villa - Fulham 1:1 Gareth Barry 26. (víti) - Moritz Volz 45. - 30.919. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 435 orð | 3 myndir

Fólk sport@mbl.is

Didier Zo kora , miðjumaður enska knattspyrnuliðsins Tottenham Hotspur , er úr leik í bili þar sem hann hefur greinst með hitabeltissjúkdóminn malaríu. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 415 orð | 3 myndir

Fólk sport@mbl.is

Íslendingaliðið Skjern tapaði með einu marki fyrir Álaborg , 29:28, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik á föstudagskvöldið. Vignir Svavarsson gerði fjögur mörk og var einu sinni rekinn af velli fyrir Skjern sem er í 7. sæti. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 307 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Rúnar Kristinsson tognaði aftan í öðru læri í síðasta leik Lokeren og gat því ekki tekið þátt í viðureign liðsins gegn Antwerpen í belgísku bikarkeppni í knattspyrnu á laugardagskvöld. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 433 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Brasilíumaðurinn Fernando Baiano var hetja Celta sem vann góðan útisigur á Bilbao, 1:0. Hann skoraði sigurmarkið eftir aðeins sex mín. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 317 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Flensburg , lið ið sem Viggó Sigurðsson þjálfar í þýsku 1. deildinni í handknattleik, færðist upp í þriðja sæti deildarinnar í gær þegar liðið vann Hamburg , 40:35, á heimavelli, Campushalle í Flensburg . Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 427 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Jakob Sigurðsson og félagar í spænska liðinu Vigo töpuðu enn og aftur á föstudagskvöldið þegar þeir tóku á móti Provincia de Palencia í 2. deildinni. Lokatölur urðu 72:87 og gerði Jakob sex stig, en hann lék stóran hluta af leiknum. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 312 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Haraldur Freyr Guðmundsson og félagar í Aalesund tryggðu sér í dag sæti í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir eins árs fjarveru þegar þeir sigruðu Bodö/Glimt á útivelli, 2:0. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 306 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

ÍR-ingurinn Björgvin Þór Hólmgeirsson, sem er markahæstur í úrvalsdeild karla með 32/4 mörk, hefur skorað mörk sín þannig - 16 með langskotum, fjögur úr vítaköstum, fjögur eftir hraðaupphlaup, fjögur eftir gegnumbrot, þrjú úr horni og eitt af línu. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 898 orð | 1 mynd

Fram - Celje Lasko 30:33 Framhús, meistaradeild Evrópu, F-riðill...

Fram - Celje Lasko 30:33 Framhús, meistaradeild Evrópu, F-riðill, laugardagur 21. október 2006. Gangur leiksins: 2:3, 5:7, 8:9, 10:14, 12:16 , 15:19, 18:20, 20:25, 23:25, 26:31, 29:31, 30:33. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 169 orð

Garðar og Stefán á skotskónum í Svíþjóð

GARÐAR Gunnlaugsson skoraði þrennu fyrir Norrköping í lokaumferð sænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu á laugardaginn, í stórsigri á Qviding, 5:1. Stefán Þ. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 451 orð | 2 myndir

Góður leikur Fram dugði skammt gegn Celje

ÍSLANDSMEISTARAR Framara í handknattleik karla létu leikmenn slóvenska stórliðsins Celje Lasko finna til tevatnsins er liðin mættust í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í Framheimilinu á laugardag. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 203 orð | 1 mynd

Gummersbach í kröppum dansi

ALFREÐ Gíslason og lærisveinar hans í þýska stórliðinu Gummersbach lentu í kröppum dansi gegn norska liðinu Sandefjord er leikið var í Noregi á laugardag, en liðin eru í sama riðli og Fram og Celje í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 216 orð | 1 mynd

Henry og Lineker styðja Platini

Michel Platini, fyrrverandi knattspyrnukappi frá Frakklandi, sem varð knattspyrnumaður Evrópu þrjú ár í röð, 1983, 1984 og 1985, hefur hafið kosningabaráttu sína, en hann gefur kost á sér sem forseti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, þegar kosið verður... Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 404 orð | 1 mynd

HK náði ekki að halda aftur af Val

FJÖR og læti einkenndu leik HK og Vals, sem mættust í Digranesinu á laugardaginn þegar tvö spræk lið áttust við. Úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu mínútunni þegar Valsmenn misstu HK framúr sér en náðu að sér aftur á strik og unnu 27:25. Með sigrinum hirtu Valsmenn toppsætið af Kópavogsliðinu. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 10 orð

Í kvöld

KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Iceland Express-deildin: Keflavík: Keflavík - KR 19. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 1163 orð | 1 mynd

ÍR-ingar fögnuðu stórsigri á Selfossi

"ÞAÐ var alveg skelfilegt hvernig við byrjuðum leikinn og ekki fólki bjóðandi. Ég skil bara ekki hvaða einbeitingarleysi þetta var. En kosturinn við góð lið er að þau ná að snúa við blaðinu inni í leiknum og við gerðum það. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 9 orð | 1 mynd

Íslandsmót karla SR - SA 5:2 (4:1, 0:1, 1:0)...

Íslandsmót karla SR - SA 5:2 (4:1, 0:1,... Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 959 orð | 2 myndir

Jolanta kom Valsliðinu í toppsætið

Valsstelpur unnu góðan útisigur á Haukastelpum í gærkvöldi í hörðum, skemmtilegum og spennandi leik. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 202 orð | 1 mynd

Kemur hægt og sígandi

ÖRFHENTA skyttan Jóhann Gunnar Einarsson hefur sótt sig mjög með Fram í Meistaradeildinni þrátt fyrir að vera rétt rúmlega tvítugur og sprakk út gegn Celje er hann skoraði fjórtán mörk: ,,Ég er mjög sáttur við seinni hálfleikinn hjá mér en ég var... Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 870 orð | 2 myndir

Langþráður sigur Stjörnumanna í höfn

ÁN þriggja lykilleikmanna og nýlega lausir við þjálfara sína gerðu Stjörnumenn sér lítið fyrir og unnu sinn fyrsta deildarleik þegar ÍR sótti þá heim í Garðabæinn í gær. Stjarnan hafði alltaf forystu, nauma stundum og vann 30:25. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 137 orð | 1 mynd

Leikmenn Arsenal fóru á kostum

ÍVAR Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og samherjar þeirra hjá Reading áttu ekki möguleika gegn léttleikandi liði Arsenal. Leikmenn Lundúnarliðsins léku sér af þeim eins og köttur af mús og unnu stórsigur, 4:0. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 316 orð

Logi skoraði átta mörk í sigri Lemgo

LEMGO komst upp í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik þegar liðið lagði Melsungen, 35:30, á heimavelli þar sem Logi Geirsson átti framúrskarandi leik. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 180 orð | 1 mynd

Markmaðurinn jafnaði

FRAM náði jafntefli við Íslandsmeistara ÍBV í 1. deild kvenna í íþróttahúsinu við Safamýri á laugardaginn. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 146 orð | 1 mynd

Planið er að vinna Sandefjord

BJÖRGVIN Gústavsson varði tuttugu skot í marki Fram og segir að liðið geti unnið Sandefjord á heimavelli: ,,Þetta er alveg mennskir menn hjá Celje þó þeir séu kannski aðeins skotfastari en maður á að venjast í deildinni hér heima. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 586 orð | 1 mynd

"Þessi dagur hefur verið sannkallaður draumur"

"ÞESSI dagur hefur verið sannkallaður draumur," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona hjá þýska liðinu Duisburg. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 813 orð | 1 mynd

Real Madrid hefndi niðurlægingarinnar frá í fyrra

REAL Madrid tókst að koma fram hefndum gegn Barcelona fyrir tapið á Bernabeu fyrir ári þegar liðin mættust í höfuðborg Spánar í gær. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 623 orð | 1 mynd

Scholes hélt upp á 500. leikinn á viðeigandi hátt

MANCHESTER United endurheimti í gær efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með verðskulduðum sigri á Liverpool á Old Trafford, 2:0, með mörkum frá Paul Scholes og Rio Ferdinand, eitt í hvorum hálfleik. Scholes hélt þar með upp á 500. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 699 orð | 1 mynd

Shevchenko í gang

NÝJU mennirnir í liði Chelsea, Andry Shevchenko og Michael Ballack tryggðu meisturum Chelsea sigur á Harry Redknapp og piltum hans í Portsmouth þegar liðin mættust á Stamford Bridge á laugardaginn. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 740 orð | 1 mynd

Snæfell - Fjölnir 67:60 Íþróttahúsið Stykkishólmi, Iceland-Express-deild...

Snæfell - Fjölnir 67:60 Íþróttahúsið Stykkishólmi, Iceland-Express-deild karla í körfuknattleik, sunnudaginn 22. október 2006. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 200 orð | 1 mynd

Spænsku liðin standa vel að vígi

BARCELONA hefur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum meistaradeildar Evrópu í handknattleik þótt enn séu tvær umferðir eftir óleiknar. Barcelona lagði Hammarby, 31:34, í Svíþjóð í gær og tryggði þar með stöðu sína í G-riðli keppninnar. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 124 orð

Stuðningur við Beckham

THIERRY Henry, fyrirliði Arsenal, sagði fyrir helgi að enska landsliðið gæti ekki verið án David Beckham, fyrrverandi fyrirliða landsliðsins. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 38 orð

Svona skoraði Fram

FRAMARAR skoruðu sjö marka sinna gegn Celje Lesko með langskotum og önnur sjö komu af línunni. Jóhann G. Einarsson skoraði síðan sjö mörk úr vítaköstum. Fjögur mörk Fram komu eftir gegnumbrot, þrjú úr hornunum og tvö eftir... Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 149 orð

Varði tvær vítaspyrnur

BOLTON er áfram í þriðja sætinu eftir sigur á Blackburn á útivelli, 1:0, þar sem Jussi Jaaskelainen markvörður Bolton varði tvær vítaspyrnur. Bolton er sem fyrr tveimur stigum á eftir Manchester United og Liverpool og þremur stigum á undan Arsenal. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 233 orð

Viggó verður lengur hjá Flensburg

Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is VIGGÓ Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik, verður lengur við stjórnvölinn hjá þýska liðinu Flensburg en til stóð í upphafi. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 125 orð

Villa enn taplaust

ASTON Villa er enn eina liðið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem ekki hefur tapað leik það sem af er deildinni. Villa tók á móti Heiðari Helgusyni og félögum í Fulham á laugardaginn og náðu heimamenn á Villa Park forystu á 25. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 126 orð | 1 mynd

West Ham vill hafa Eggert til vara

ENSKA dagblaðið The Observer fullyrðir í gær að enska knattspyrnufélagið West Ham hafi neitað Eggerti Magnússyni um að skoða bókhald sitt en hins vegar veitt hinum íranska Kia Joorabchian heimild til þess sama. Meira
23. október 2006 | Íþróttir | 755 orð | 2 myndir

Þunglamalegt jafntefli í Fylkishöllinni

FYLKIR og Haukar skiptu með sér stigunum þegar liðin áttust við í DHL-deild karla í handknattleik í gær. Meira

Fasteignablað

23. október 2006 | Fasteignablað | 419 orð | 2 myndir

Brunaslys

Að undanförnu hafa orðið óhugnanleg slys tengd heitu kranavatni sem kemur frá hitaveitum. Heitt kranavatn frá hitaveitum hefir verið notað hér á landi alveg síðan 1. desember 1943 og virðist ekki hafa verið mikið um svona slys fyrstu áratugina. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 264 orð | 1 mynd

Byggingarkostnaður hækkar enn

Samkvæmt byggingavísitölu Hagstofu Íslands sem birt var sl. föstudag hækkaði byggingarkostnaður um 0,6% frá fyrri mánuði í október en á síðustu tólf mánuðum hefur hann hækkað um 11,9%. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 104 orð | 1 mynd

Dúkkur amishfólksins

AMISHFÓLKIÐ eða mennonítar eru trúarhreyfing mótmælenda sem eiga rætur í Sviss 1525, kenndir við siðbótarmanninn Menno Simons. Biblían er þeirra bók og kennivald, þeir hafna barnaskírn, sverja ekki eiða né gegna herþjónustu. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 883 orð | 2 myndir

Einfaldar lausnir eru alltaf bestar

Innflytjendur og verslunarmenn hafa haft afgerandi áhrif á þróun lagnamála á Íslandi á undanförnum áratugum. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 290 orð | 4 myndir

Florida húseignir

Íslendingar hafa verið áhugasamir um eignir á Florída. Af þeim sökum verður kynning á Hótel Loftleiðum næstu helgi á vegum fasteignasalanna Garðatorgs og Meredith Mahn í Orlando og byggingaverktaka Park Square Home Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 568 orð | 3 myndir

Fríkirkjuvegur 11

"Hún var alltaf eins. Óx aðeins," segir Ólafur Thors um móður sína í ævisögunni sem Matthías Johannessen ritaði. Sagt var að Thor Jensen léti reisa þetta stórhýsi árið 1908 vegna ríkar löngunar til að búa vel að Margréti Þorbjörgu, elskaðri eiginkonu sinni og hinum fjölmörgu börnum þeirra. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 307 orð | 3 myndir

Frostrósir

Nú eru rósir í görðum sem óðast að breytast í frostrósir. Það er afskaplega leiðinlegt að sjá hvernig hinir fögru litir blikna fyrir kuldanum og krónublöðin drúpa af hryggð yfir örlögum sínum. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 100 orð | 1 mynd

Handavinna haustsins

Á haustin vaknar oft vilji fólks til þess að hafa eitthvað milli handanna. Konur fara að hyggja að handavinnu en karlar t.d. að hnýta flugur fyrir veiðitímabil næsta árs. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 763 orð | 6 myndir

Handhnýtt teppi skapa hlýtt umhverfi

Í sextán ár hefur sérverslunin Persía boðið upp á breytt úrval teppa, en meðal þeirra má finna handhnýtt teppi frá helstu teppahnýtingalöndum heims eins og Íran, Pakistan, Afghanistan og Indlandi. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 630 orð | 3 myndir

Haustar að

eftir Guðríði Helgadóttur Blóm vikunnar 589. þáttur Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 120 orð | 1 mynd

Hilla í barnaherbergið

Í BARNAHERBERGINU er oft mikið rót á hlutum. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 191 orð | 1 mynd

Hólmatún 39, Álftanesi

Álftanes - Hraunhamar er með í sölu fallegt einbýlishús við Hólmatún 39. Um er að ræða nánast fullbúið 208 fm hús með innbyggðum bílskúr á 1.100 fm eignarlóð í enda botnlanga við óbyggt svæði, á frábærum stað á nesinu. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 892 orð | 2 myndir

Íbúðalán á netinu

ÞAÐ hefur verið einkennt íbúðamarkaðinn undanfarin ár að markaðurinn lifni við í september eftir rólegt sumar. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 283 orð | 1 mynd

Kringlan 71

Reykjavík | Eignamiðlun er með í sölu raðhús, 173 fm endaraðhús ásamt 26 fm stæði í bílageymslu að Kringlunni 71. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 600 orð | 10 myndir

Ljúft að búa í Leynigarði

Guðlaugu Gísladóttur hefur dreymt um að byggja sinn eigin Leynigarð allar götur frá því hún las barnabókina "Secret Gardens" eftir ensk-ameríska rithöfundinn Frances Hodgson Burnett. Kristján Guðlaugsson heimsótti hana í Leynigarðinum í Mosfellssveit. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 173 orð | 2 myndir

Lómasalir 14-16

Reykjavík Eignaval er með í sölu núna 3 herbergja 91 fermetra íbúð á 3. hæð með útsýni yfir Kópavoginn í suðvestur. Íbúðin er með sér inngangi af svölum og henni fylgir stæði í bílageymslu. Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum skáp. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 536 orð | 5 myndir

Sala íbúða hafin á Arnarneshæð

Hanza Hópurinn hefur samið um kaup á Laugarakri ehf sem er eigandi að öllu fjölbýlishúsaverkefninu á Arnarneshæð í Garðabæ en auk þess er innan þess verkefnis rað- og keðjuhús. Um er að ræða eitt stærsta fjölbýlishúsaverkefni á einni hendi hér á landi. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 534 orð | 1 mynd

Uppsögn húsaleigusamninga

eftir Guðfinnu Jóh. Guðmundsdóttur hdl. HÚSALEIGUSAMNINGAR eiga að vera skriflegir og geta þeir annað hvort verið tímabundnir eða ótímabundnir. Teljast leigusamningar ótímabundnir nema um annað sé ótvírætt samið. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 255 orð | 3 myndir

Vogasel 7

Reykjavík| Eignamiðlun er með í sölu Vogasel 7, 3 hæða einbýli, 365,3 fm, byggt árið 1981 Húsið er með vinnustofu, möguleika á aukaíbúð, innbyggðum bílskúr o.fl. Stór og falleg lóð er sunnan hússins. Heitur pottur. Fallegt útsýni. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 124 orð | 2 myndir

Ytri-Tunga

Staðarsveit | Fasteignamiðstöðin er með í sölu jörðina Ytri-Tungu í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Jörðin er talin vera 136,2 hektarar, ræktað land er um 18 til 20 hektarar. Rekin hefur verið ferðaþjónusta á jörðinni sl. Meira
23. október 2006 | Fasteignablað | 70 orð | 1 mynd

Þegar lítið er plássið

ÞEGAR lítið pláss er í eldhúsinu, sem er víða í t.d. einstaklingsíbúðum, þá er mjög skemmtileg lausn að hengja eldhúsáhöld á þar til gerða stöng. Þar taka þau lítið pláss, eru handhæg og auk þess til prýði ef þau eru vel útlítandi. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.