Greinar þriðjudaginn 20. mars 2007

Fréttir

20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 915 orð | 1 mynd

Af nógu að taka í nánasta umhverfi

Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Landsveit | Nýir eigendur Leirubakka í Landsveit eru að byggja upp fjölþætta ferðaþjónustu sem byggir á gömlum grunni og áhugamálum þeirra sjálfra, menntun og reynslu. Anders Hansen blaðamaður og Valgerður Kr. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 71 orð

Allir nemendurnir leika á tónleikum

Reykjanesbær | Forskóladeild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og lúðrasveit næstelstu nemenda skólans halda alls fimm tónleika fyrir nemendur í grunnskólum Reykjanesbæjar þessa dagana. Tónleikarnir eru haldnir í öllum grunnskólum bæjarins í gær og í dag. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 71 orð | 1 mynd

Atli fer úr snjónum í sólina

Atli Jóhannsson, 24 ára Eyjamaður sem nú leikur með KR, var í gær valinn í landsliðshópinn í knattspyrnu í fyrsta skipti. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 71 orð

Árekstur á brú

ENGAN sakaði þegar fólksbifreið og jepplingur rákust saman á eystri enda Skjálfandafljótsbrúar í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar á Húsavík skemmdust ökutækin hinsvegar talsvert og þurfti að kalla eftir kranabifreið til þess að draga þær á brott. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 127 orð

Borgin reki einn framhaldsskóla

SAMÞYKKT var á fundi menntaráðs Reykjavíkurborgar í gær að mælast til þess við borgarráð að hefja viðræður við menntamálaráðuneytið um að borgin tæki við rekstri eins framhaldsskóla. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 351 orð | 1 mynd

Börn eru berskjölduð fyrir klámi á Netinu

Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is UM þriðjungur þeirra 3.500 ábendinga sem Barnaheillum hafa borist frá almenningi undanfarin fjögur ár varðar meint ólöglegt efni á Netinu, aðallega barnaklám. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 1003 orð | 1 mynd

Ekki augljóst að greiðslurnar frá Baugi hafi farið í skemmtibátinn

Eftir Andra Karl andri@mbl.is VITNALEIÐSLUM í Baugsmálinu svokallaða lauk í gær, á 26. degi málsins. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 195 orð | 1 mynd

Ekki skoðað sem skyldi

RÍKISENDURSKOÐUN hefur ekki tekist að fylgja því eftir sem skyldi að kanna og staðfesta hvort þeir fjármunir sem Alþingi samþykkir að veita til aðila utan kerfisins skili sér í þeirri þjónustu sem til er ætlast eða hvort styrkveitingar gangi til þeirra... Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 522 orð | 1 mynd

Ekki spurt um trúarafstöðu þegar leitað er til kirkjunnar

Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Eskifjörður | Talsverðar umræður hafa spunnist um málefni innflytjenda á Austurlandi undanfarið, í kjölfar þess fjölda útlendinga sem býr og starfar í fjórðungnum. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 233 orð | 1 mynd

Engar tafir í Heiðmörk

Eftir Hörpu Lind Hrafnsdóttur FRAMKVÆMDIR við lagningu vatnslagnanna um Heiðmörk eru hafnar á ný eftir að dísilolía lak niður á veginn á föstudag. Sigþór Ari Sigþórsson, forstjóri verktakfyrirtækisins Klæðningar ehf. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 106 orð

Enn viðbúnaður vegna snjóflóðahættu

ENN er viðbúnaður á norðanverðum Vestfjörðum vegna hættu á snjóflóðum en í gær var þó ekki talin þörf á að rýma byggð eða loka vegum, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 1220 orð | 5 myndir

Fagna umræðu um umhverfismál

Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is RÚMUM sólarhring eftir að Framtíðarlandið kynnti sáttmála sinn um framtíð Íslands höfðu vel á annað þúsund manns skrifað undir sáttmálann, þar af var á annan tug þingmanna. Á vefnum framtidarlandid. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 760 orð | 4 myndir

Fiskur ratar æ sjaldnar á disk unga fólksins

Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is FISKNEYSLA ungs fólks hefur dregist töluvert saman á undanförnum árum og borðar ungt fólk fisk sem aðalrétt að meðaltali 1,3 sinnum í viku. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar Matís ohf. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 57 orð

Fíkniefni á veitingastöðum

LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni á gestum fjögurra veitingastaða af þeim sex sem farið var inn á um helgina. Á þessum stöðum voru höfð afskipti af 25–30 manns og fannst maríjúana, hass, kókaín og amfetamín. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 319 orð | 1 mynd

Fjögur ár frá innrás í Írak

London, New York. AFP. | Þess var minnst víða um heim í gær að fjögur ár voru liðin frá því að Bandaríkjamenn gerðu innrás í Írak. Andstæðingar stríðsrekstrarins í Bandaríkjunum hugðust standa fyrir mótmælaaðgerðum á a.m.k. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 77 orð | 1 mynd

Fjögur ár frá því ráðist var inn í Írak

BARÁTTUSAMKOMA var haldin í gærkvöldi, í tilefni af því að fjögur ár eru síðan innrás var gerð í Írak. Hópur félagasamtaka stóð að samkomunni og segir innrásina hörmuleg mistök sem notið hafi fulltingis íslensku ríkisstjórnarinnar. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 115 orð

Forvarnir á fyrstu árum

MIÐGARÐUR, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, stendur fyrir málþingi undir heitinu "Forvarnir á fyrstu árunum". Málþingið verður í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, í dag, þriðjudaginn 20. mars, frá kl. 13 til 17. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 103 orð

Fundur um lækkun matarskattsins

FÉLAG viðskiptafræðinga MBA frá Háskóla Íslands stendur fyrir opnum morgunverðarfundi á Nordica hóteli, miðvikudaginn 21. mars nk. kl. 8.15. Yfirskrift fundarins er ,,Hefur lækkun virðisaukaskatts og vörugjalds á matvæli skilað sér til neytenda? Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 95 orð | 1 mynd

Grafið í Halla við Vesturlandsveg

VINNA við lóð Bauhaus í Halla við Vesturlandsveg er nú hafin. Háfell ehf. vinnur þessa dagana að því að undirbúa flutning stofnæða vatns- og hitaveitulagna milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 466 orð | 1 mynd

Grjótnáman verður notuð sem útivistarsvæði bæjarbúa

Eftir Reyni Sveinsson og Helga Bjarnason helgi@mbl.is Sandgerði | Gert er ráð fyrir því að gömul grjótnáma í Miðnesheiði verði notuð sem útivistarsvæði Sandgerðinga. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 55 orð

Grunaður um milligöngu um vændi

LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið skýrslu af íslenskum karlmanni sem grunur leikur á um að hafi haft milligöngu um störf tveggja erlendra vændiskvenna í Reykjavík. Konurnar eru af brasilískum uppruna en talið er að þær hafi m.a. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 94 orð | 1 mynd

Heltekinn af íslensku víkingunum

GREGORY Cattaneo er ekki við eina fjölina felldur. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 70 orð | 1 mynd

Hita sig upp fyrir söngferð til Ítalíu

Sandgerði | Kvennakór Suðurnesja fer á alþjóðlegt kóramót sem haldið verður á Ítalíu í haust. Kórinn heldur nú tónleika þar sem fluttur er hluti af dagskránni sem farið verður með til Ítalíu. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 171 orð

Í gæsluvarðhald vegna nauðgunar

ÁTJÁN ára karlmaður sem grunaður er um að hafa nauðgað sér litlu eldri konu á salerni Hótel Sögu um helgina var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. mars næstkomandi. Hann neitar sök. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 433 orð | 1 mynd

Íranskar konur enn í miklum baráttuhug

Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is KLERKASTJÓRNIN í Íran hefur lengi haft illan bifur á öllum tilraunum kvenna til að tryggja jafnrétti en þær hafa áratugum saman reynt að vekja athygli á kröfum sínum á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 114 orð

Íslendingi sleppt

ÍSLENDINGI, sem ísraelskir lögreglumenn höfðu afskipti af í borginni Hebron í fyrradag, hefur verið sleppt. Á vefnum palsolidarity. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 719 orð | 2 myndir

Klæðir kolefniskvóti landið?

Hekluskógarverkefnið gæti rutt brautina fyrir virka þátttöku stórfyrirtækja í umhverfismálum. Guðmundur Halldórsson, rannsóknarstjóri hjá Landgræðslu ríkisins, sagði Baldri Arnarsyni frá verkefninu. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 321 orð | 1 mynd

Kynntist leiðum til eflingar menntunar í þróunarríkjum

UNGUR Íslendingur, Ragnar Þorvaldsson, sótti nýlega ráðstefnuna "Menntun án landamæra" sem haldin var í Abu Dhabi, höfuðborg Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 80 orð | 1 mynd

Lést í vinnuslysi

ELDRI karlmaður lést eftir að hafa orðið milli dráttarvagns og bifreiðar í Reyðarfirði um hádegisbil í gær. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 275 orð | 1 mynd

Líklega villst inn í Ólafsfjarðarvatn

TVEIR hnýðingar, kýr með kálfi, fundust dauðir í Ólafsfjarðarvatni í gærmorgun. Ekki er vitað hvort þeir hafi synt inn í vatnið og ekki fundið leiðina út eða hvort þá hafi rekið dauða um ósinn. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 46 orð

Mikill áhugi

DAGANA 18. til 25. mars stendur yfir hér á landi alþjóðlegt námskeið um vatnsaflsvirkjanir. Námskeiðið er ætlað háskólanemum á sviði verkfræði. Alls sækja á þriðja hundrað erlendir nemendur námskeiðið. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 329 orð | 1 mynd

Milljónamæringamáltíð við pýramídana í Giza

Bangkok. AP. | Það er líklega ástæða fyrir fjársterka sælkera til að merkja dagsetninguna 12. desember 2008 strax í dagatalið sitt. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 292 orð | 1 mynd

Milljón egg á markaðinn

Eftir Steinþór Guðbjartsson steg@mbl.is PÁSKAEGG eru farin að taka sitt pláss í verslunum og kemur sjálfsagt fáum á óvart enda innan við þrjár vikur til páska. Eins og undanfarin ár eru framleidd tæplega milljón páskaegg hérlendis fyrir vertíðina. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 62 orð

Mörg snjóflóð

TÍU snjóflóð féllu á vegi á norðanverðum Vestfjörðum um helgina. Skv. upplýsingum frá Vegagerðinni féllu þrjú flóð á Kirkjubólshlíð á laugardag og tvö á sunnudag. Þá féllu tvö flóð á Súðavíkurveg á sunnudag. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 30 orð

Óánægja í ESB

UM 44% íbúa Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Spánar og Þýskalands telja ástandið hafa versnað í löndum þeirra eftir inngöngu í Evrópusambandið. Þó vildu aðeins 22% úrsögn úr ESB, samkv. nýrri... Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 311 orð | 1 mynd

Pantað plagg pöntuð niðurstaða?

Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 775 orð | 1 mynd

Páfagarður varar við frelsunarguðfræði

Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is PÁFAGARÐUR hefur á ný varað við svonefndri frelsunarguðfræði sem löngum hefur notið fylgis í Rómönsku Ameríku. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 312 orð | 1 mynd

"Finnst hann ekki góður"

Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is "MÉR finnst hann ekki góður," segir Jóhanna Gísladóttir, 18 ára nemi í Menntaskólanum í Reykjavík, en hún er ekki mikið fyrir að borða fisk. Hið sama virðist gilda um marga jafnaldra hennar, en skv. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 674 orð | 1 mynd

"Kynþokkafullar háskólastelpur" óboðnar í heimsókn

Eftir Sunnu Ósk Logadóttur og Helga Snæ Sigurðsson ÞÆR eru fátækar af fötum, stúlkurnar í auglýsingum sem birst hafa við hlið hins vinsæla barnatölvuleiks Wicky woo, sem finna má á vefnum Leikjaneti.is. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 105 orð | 1 mynd

"Óþarfi að drekkja í pósti"

ÞINGMÖNNUM hafði í gær borist fjöldi áskorana um að skrifa undir sáttmála Framtíðarlandsins. Fjölmargir stjórnarandstöðuþingmenn eru nú orðnir "grænir", en auk þeirra hefur Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra skrifað undir. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 203 orð | 1 mynd

"Varð ekki fyrir nokkrum þrýstingi"

MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæstaréttardómara: "Í fréttum af yfirheyrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir Ingibjörgu Pálmadóttur í dag, mánudag, er haft eftir henni að ég hafi sagt henni að ég... Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 43 orð | 1 mynd

Ráðherrar framtíðarinnar?

BÖRN af Bangsadeildinni á leikskólanum Kirkjubóli í Garðabæ heimsóttu Geir H. Haarde forsætisráðherra í stjórnarráðinu í gær. Geir tók vel á móti börnunum og sagði þeim m.a. sögu hússins. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 114 orð

Runnu í hálku og duttu í brekkum

NOKKUÐ hefur verið um að fólk renni í hálku á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga og slasi sig. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 362 orð | 1 mynd

Ræddi í trúnaði við Guðmund

Í NÝJASTA hefti Þjóðmála skrifar Björn Bjarnason greinina "Kosningaskjálfti" og ræðir hann þar m.a. ástæður þess að slitnaði upp úr stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, auk aðdraganda samstarfs núverandi stjórnarflokka.... Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 82 orð | 1 mynd

Rætt um vernd og nýtingu auðlinda

OPIÐ hús skógræktarfélaganna verður í kvöld, þriðjudagskvöldið 20. mars, og hefst kl. 19.30, í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni. Þar fjallar Ari Trausti Guðmundsson náttúrufræðingur um náttúrunýtingu og náttúruvernd í landinu. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 29 orð

Sagður játa

FANGI Bandaríkjahers í Guantanamo hefur játað aðild að sprengjuárás á bandarískt herskip í hafnarborginni Aden í Jemen árið 2000, að sögn Bandaríkjastjórnar. 17 sjóliðar biðu bana og 37... Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 266 orð

Samorka gagnrýnir sáttmála

SAMORKA, samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem athugasemdir eru gerðar við málflutning af hálfu Framtíðarlandsins og "það sem samtökin kalla sáttmála um framtíð Íslands". Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 200 orð | 1 mynd

Samskonar varðstofa og í borginni

VARÐSTOFA Neyðarlínunnar, 112, var opnuð á Akureyri fyrir helgi. Þar verða þrír neyðarverðir við störf. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 114 orð

Senn samið um EES

Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is SAMKOMULAG hefur í grundvallaratriðum náðst um aðild Búlgaríu og Rúmeníu að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 408 orð | 1 mynd

Sjö milljónir króna til Hákarlasafnsins í Hrísey

SPARISJÓÐUR Svarfdæla hefur ákveðið að styrkja Hákarlasafnið í Hrísey um sjö milljónir króna, sem væntanlega mun duga aðstandendum til að ljúka þessu mikla verkefni sem staðið hefur um 10 ára skeið. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 33 orð

Skáldaspírukvöld í kvöld

Í MORGUNBLAÐINU í gær kom ranglega fram að skáldaspírukvöld með Lindu Vilhjálmsdóttur ljóðskáldi færi fram þá um kvöldið. Hið rétta er að Linda les ljóð sín í kvöld. Er beðist velvirðingar á... Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 558 orð | 2 myndir

Skipuleg leit hefst á næsta ári

Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Skipuleg leit að krabbameini í ristli og endaþarmi á að hefjast á næsta ári, samkvæmt þingsályktunartillögu sem Alþingi samþykkti síðastliðinn laugardag. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 134 orð

Snjóflóð féll á vélsleðamann

VÉLSLEÐAMAÐUR varð fyrir nokkrum meiðslum þegar hann varð fyrir snjóflóði sem féll í hlíðum Kálfstinds norðan Lyngdalsheiðar um tvöleytið í gær. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 109 orð

Spá stjórn hægri- og miðflokka

STJÓRNMÁLASKÝRENDUR í Finnlandi spáðu því í gær að Matti Vanhanen, forsætisráðherra og leiðtogi Miðflokksins, myndaði stjórn með hægriflokknum Þjóðarbandalaginu sem jók fylgi sitt verulega í þingkosningum á sunnudag. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 96 orð

Standa við bakið á Vestfirðingum

Seyðisfjörður | Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) hefur samþykkt stuðningsyfirlýsingu við Vestfirðinga og landsbyggðina þar sem segir að SSA styðji heils hugar þær áherslur sem sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum setja fram í viðleitni sinni til... Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 593 orð | 1 mynd

Tekjuauki af stækkun Alcan yrði 3,4–4,7 milljarðar

Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is TEKJUAUKI Hafnfirðinga vegna stækkunar álvers Alcan í Straumsvík og að meðtöldum heildartekjum Straumsvíkurhafnar yrði 3,4–4,7 milljarðar króna, að mati Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 55 orð

Tilræði í Kabúl

BIFREIÐ hlaðinni af sprengjuefni var ekið inn í bílalest frá bandaríska sendiráðinu í Kabúl í Afganistan í gær með þeim afleiðingum að þrír Afganar biðu bana, auk tilræðismannsins. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 63 orð

Tíu sóttu um

TÍIU umsóknir bárust um embætti héraðsprests II í Kjalarnessprófastsdæmi. Umsóknarfrestur rann út hinn 15. mars sl. Embættið er veitt frá 1. maí næstkomandi. Meira
20. mars 2007 | Erlendar fréttir | 113 orð | 1 mynd

Tugir fórust í kolanámu

Moskva. AFP. | Að minnsta kosti 78 námumenn fórust í gassprengingu í kolanámu í Síberíu í Rússlandi í gær. Embættismenn sögðu að 83 námumönnum hefði verið bjargað. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 101 orð | 1 mynd

Vandræði með spenna Fljótsdalslína 3 og 4

Kárahnjúkavirkjun | Bilun hefur komið fram í þrepastillum spenna Fljótsdalslína 3 og 4 sem flytja eiga rafmagn frá Kárahnjúkavirkjun til nýs álvers á Reyðarfirði. Meira
20. mars 2007 | Innlendar fréttir | 344 orð

Vilja fella niður opinbera verðlagningu á mjólk

Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is "ÞAÐ er orðið mjög tímabært að við beitum okkur fyrir því að hin opinbera verðlagning á mjólk verði felld niður," er mat Guðbrands Sigurðssonar, forstjóra Mjólkursamsölunnar. Meira

Ritstjórnargreinar

20. mars 2007 | Leiðarar | 382 orð

Hagvöxtur 21. aldar

Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM Vallár, flutti athyglisvert erindi á Iðnþingi fyrir nokkrum dögum. Í erindi þessu leitaðist Víglundur við að sýna fram á að hagvöxtur á Íslandi á 21. Meira
20. mars 2007 | Leiðarar | 460 orð

Stefna fjórðungs þjóðarinnar?

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur mikinn meðbyr þessa dagana samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana. Um fjórðungur þjóðarinnar og um þriðjungur kvenna segist myndu greiða flokknum atkvæði sitt í þingkosningum. Meira
20. mars 2007 | Staksteinar | 220 orð | 1 mynd

Þar sem hægri og vinstri mætast

Það fer ekkert á milli mála að innan vébanda Framtíðarlandsins er öflugt fólk með skýra sýn, ferskar hugmyndir og nef fyrir markaðsmálum, eins og sáttmáli um framtíð Íslands sýnir. Meira

Menning

20. mars 2007 | Kvikmyndir | 270 orð | 2 myndir

300 setur Íslandsmet!

ÍSLENDINGAR hreinlega flykktust í bíó um helgina. Sem fyrr voru frumsýningarmyndir helgarinnar tekjuhæstar en samtals 12.657 áhorfendur reiddu fram tæpar 11 milljónir til að sjá 300 og Epic Movie . Þar af lokkaði 300 rúmlega 9. Meira
20. mars 2007 | Menningarlíf | 107 orð | 1 mynd

Bókabanki fær óvænta vexti

HINN venesúelski Banco del Libro, eða Bókabankinn, hlýtur Minningarverðlaun Astridar Lindgren í ár. Bókabankinn er ekki rekinn í ágóðaskyni en hefur dreift bókum til barna í Venesúela í nærri hálfa öld. Meira
20. mars 2007 | Fólk í fréttum | 454 orð | 3 myndir

Capone

Úr ösku rokkútvarpsins X-FM er nú risin ný útvarpsstöð og ber hún heitið Reykjavík FM 101,5. Þeir Búi Bendtsen og Andri Freyr Viðarsson eru þar mættir aftur til leiks með þáttinn Capone. Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 177 orð

Eðalraddir á eðalkvöldi

Stravinskíj: Flugeldar. Rakhmaninoff: Eyja hinna dauðu. Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 14. Einsöngur: John Tomlinson og Tatjana Monogarova. Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Rumons Gamba. Fimmtudaginn 15.3. kl. 19:30. Meira
20. mars 2007 | Menningarlíf | 449 orð | 1 mynd

Fann fjölskyldudrama í tilgangslausa gríninu

Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is "VIÐ erum að setja upp Ímyndunarveikina eftir Molière í nafni Franska vorsins. Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 63 orð

Fjöldi sótti sér Mínus

Á SJÖTTA hundrað manns hafði sótt sér eintak af nýrri smáskífu rokkhljómsveitarinnar Mínus á mbl.is þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt. Hægt var að sækja lagið, sem nefnist "Futurist", framundir morgun. Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 196 orð

Gammar geysast fram

Jazz. Fimmtudagskvöld 15.4. 2007. Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 360 orð

Glymjandi glæsileikur

Beethoven: Píanótríó í G Op. 1,2. Hafliði Hallgrímsson: Metamorphoses Op. 16 (1993). Debussy: Píanótríó í G. Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó, Una Sveinbjarnardóttir fiðla og Sigurgeir Agnarsson selló. Laugardaginn 10. marz kl. 17. Meira
20. mars 2007 | Fjölmiðlar | 214 orð | 1 mynd

Hetjurnar mínar

SKJÁR einn sýnir um þessar mundir alveg frábæran sjónvarpsþátt sem ber nafnið Heroes eða Hetjur. Þessar nýju hetjur á öldum ljósvakans eru með þeim skemmtilegri sem fram hafa komið síðustu ár. Meira
20. mars 2007 | Hugvísindi | 64 orð | 1 mynd

Hugmyndafræði og rannsóknir

SAGNFRÆÐINGAFÉLAG Íslands stendur fyrir hádegisfyrirlestri í dag í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu, klukkan 12.05–12.55. Meira
20. mars 2007 | Fólk í fréttum | 453 orð | 2 myndir

Hvað er Hinrik prins að væla?

Ég fór að velta fyrir mér þessari spurningu þegar ég sá frétt á mbl.is á dögunum með fyrirsögninni: Hinrik vill verða kóngur . Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 129 orð | 1 mynd

Kaþólskar kórperlur

Kórverk eftir Victoria, des Préz og Morales. Kammerkórinn Carmina ásamt meðlimum úr The Tallis Scholars og Kór Westminster Abbeys. Stjórnandi: Árni Heimir Ingólfsson. Sunnudaginn 11. marz kl. 20. Meira
20. mars 2007 | Fólk í fréttum | 237 orð | 1 mynd

Kreddur Coca Cola

NÝJA Coke Zero-auglýsingin hefur vakið þónokkra athygli enda er auglýsingar Vífilfells að finna víða um þessar mundir, bæði í sjónvarpi og í efnislegu formi, svo sem á stórum borðum í Smáralind og Kringlunni. Meira
20. mars 2007 | Fólk í fréttum | 195 orð | 2 myndir

Matthías Árni myndar fyrir Rolling Stone

MATTHÍAS Árni Ingimarsson ljósmyndari fékk það spennandi verkefni að taka myndir fyrir tímaritið Rolling Stone á dögunum. Meira
20. mars 2007 | Fólk í fréttum | 91 orð | 1 mynd

Mel C þráir barn

FYRRUM Kryddpían Mel C vill stofna fjölskyldu með kærasta sínum, Thomas Starr. "Ég er virkilega spennt yfir að hefja nýtt tímabil í lífinu. Ég á mér dagdrauma um að búa í Wales og fara með börnin í skólann," sagði hin 33 ára söngkona. Meira
20. mars 2007 | Menningarlíf | 132 orð

Menningarbullur á Beale Street

Í götunni sem eignar sér þann heiður að vera vagga blússins og rokksins, Beale Street í Memphis, Tennessee, ríkir óöld. Meira
20. mars 2007 | Menningarlíf | 65 orð | 1 mynd

Mig hefur dreymt þetta áður

LJÓÐVEISLA til heiðurs Jóhanni Hjálmarssyni skáldi verður í Listasal Mosfellsbæjar í kvöld kl. 20. Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 163 orð | 1 mynd

Mýrarbúggí

MUGISON sagðist vera flökkutík í viðtali við Lesbók á dögunum. Meira
20. mars 2007 | Fólk í fréttum | 152 orð | 2 myndir

Ryan Phillippe og Ashlee Simpson í eina sæng

FREGNIR herma að ungstirnið Ryan Phillippe hafi átt ástarnótt með Ashlee Simpson. Ryan, sem skildi nýlega við eiginkonu sína til sjö ára, Reese Witherspoon, hitti hina 22 ára gömlu söngkonu á næturklúbbi í Los Angeles. Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 65 orð | 1 mynd

Spænskar tilfinningar í HÍ

FLUTT verða spænsk einsöngslög og dúettar frá ýmsum tímabilum á Háskólatónleikum, sem fram fara í Norræna húsinu klukkan 12.30 á morgun, miðvikudag. Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 151 orð | 8 myndir

Stelpur rokka

Músíktilraunum verður fram haldið í kvöld í Loftkastalanum. Árni Matthíasson kynnti sér hvaða tíu hljómsveitir keppa í kvöld og komst að því að meðal þeirra er ein kvennasveit. Meira
20. mars 2007 | Kvikmyndir | 506 orð | 3 myndir

Stormasamt á Veðramótum

Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl. Meira
20. mars 2007 | Leiklist | 505 orð | 1 mynd

Sæmundur góður – frekar en fróður

Höfundur: Pétur Eggerz. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Tónlist og hljóðmynd: Guðni Franzson. Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir. Lýsing: Ólafur Pétur Georgsson. Leikarar: Sæmundur: Pétur Eggerz; Faðir Sæmundar, Kölski o.fl. Meira
20. mars 2007 | Menningarlíf | 514 orð | 1 mynd

Taktu þér tíma

Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is YFIRLITSSÝNING á verkum Ólafs Elíassonar mun opna í Nýlistasafninu í San Francisco (SFMOMA) í byrjun september á þessu ári. Meira
20. mars 2007 | Tónlist | 122 orð | 1 mynd

Uppselt í forsölu á GusGus og Petter & the Pix

UPPSELT er í forsölu á útgáfutónleika GusGus sem haldnir verða í NASA á laugardaginn. Þá verður ár liðið frá því sveitin spilaði síðast í Reykjavík. Meira
20. mars 2007 | Fólk í fréttum | 108 orð | 1 mynd

Watson verður með

ÞAÐ HAFA eflaust margir gripið andann á lofti í gær þegar komst í hámæli að leikkonan Emma Watson, sem leikið hefur Hermione Granger í Harry Potter-myndunum, hefði neitað að skrifa undir samning um að leika í síðustu tveimur myndunum. Meira

Umræðan

20. mars 2007 | Blogg | 292 orð | 2 myndir

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 19. mars Nafnleysið á blogginu...

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 19. mars Nafnleysið á blogginu Moggabloggið heldur áfram að vaxa og um helgina þegar ég var að ráfa um moggablogg heima þá fann ég bara sem dæmi bloggsíðu eðlisfræðikennara míns síðan í 10. Meira
20. mars 2007 | Velvakandi | 574 orð | 1 mynd

dagbók velvakandi

Umhverfismál ALLT er breytingum undirorpið. Náttúran sjálf orsakar breytingar á umhverfinu. Jökullón í Mið-Evrópu, sem fyllst hafa af árframburði, eins og spáð er um Hálslón, eru nú einhver frjósömustu ræktunarlönd álfunnar. Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 657 orð | 1 mynd

Enn um samgöngur í höfuðborginni

Örn Sigurðsson svarar grein umhverfisráðherra: "Samgönguráðherrann gerir gys að augljósu orsakasamhengi milli Vatnsmýrarflugvallar, bílasamfélags og mikilla hörmunga í splundraðri byggð." Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 302 orð

Eru þinglokin eitt af náttúrulögmálunum?

ENN einu sinni ríður alþingismönnum á að yfirgefa vinnustað sinn og kasta til höndunum á harðaspretti við mikilvæga löggjöf landsins. Ég spyr; hvað liggur á, af hverju verður Alþingi að ljúka einmitt nú um miðjan mars? Meira
20. mars 2007 | Blogg | 76 orð | 1 mynd

Eyþór Arnalds | 18. mars 2007 Æi...á nú að kenna Mogganum um...

Eyþór Arnalds | 18. mars 2007 Æi...á nú að kenna Mogganum um fylgistapið? Guðmundur Steingrímsson hefur nokkurt nef fyrir því spaugilega og skemmtilega sem er að ske hverju sinni. Ég les oft bakþanka hans sem eru smellnir. Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 592 orð | 2 myndir

Framlag til SÁÁ var minnkað um 40 milljónir árið 2006

Eftir Þórarin Tyrfingsson: "...heldur hvernig þjónustan verður þegar SÁÁ hefur dregið úr þjónustunni sem nemur 100 milljónum." Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 1148 orð | 1 mynd

Kraftar Morgunblaðsins – viðnám Vestfirðinga

Eftir Einar Hreinsson: "Ef greinarhöfundur hefði til þess kjark og heilindi ætti hann að viðurkenna það að flutningur opinberra starfa út á landbyggðina sé andstæður hagsmunum Reykvíkinga og nærsveitunga þeirra." Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 774 orð | 1 mynd

Laugardalur, svæði IV

Hildur Björg Hafstein skrifar um skipulagsmál í Laugardal: "Þessi grænu opnu svæði eru hluti af lífsgæðum okkar íbúanna í hverfinu og borgarbúa allra." Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 674 orð | 1 mynd

Mál að linni og uppbygging hefjist?

Aðalbjörn Þorsteinsson skrifar um skipulagsmál á Landspítalanum: "Meirihluti lækna var á því að samskipti lækna við yfirstjórn spítalans væru komin í viðunandi farveg og ekki væri ástæða til harðorðra yfirlýsinga á meðan." Meira
20. mars 2007 | Blogg | 61 orð | 1 mynd

Páll Vilhjálmsson | 19. mars 2007 Auðmenn og fjölmiðlar Ýfingar milli...

Páll Vilhjálmsson | 19. mars 2007 Auðmenn og fjölmiðlar Ýfingar milli fjölskyldnanna um Krónikuna gefa til kynna að einhver samkeppni sé á milli þeirra á fjölmiðlamarkaðnum. Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 287 orð

"Drengir, sjáið þið ekki veisluna?"

Á ÁHRIFARÍKRI ráðstefnu Félags félagsfræðinga, sem ég sat í síðustu viku, fóru sérfræðingar yfir afleiðingar fátæktar á íslensk börn. Hér á landi búa um 5. Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 771 orð | 5 myndir

Rangfærslur ráðuneyta um hag aldraðra

Einar Árnason, Ólafur Ólafsson og Stefán Ólafsson skrifa um kaupmátt eldri borgara.: "Samkvæmt mælingum Hagstofunnar eru ellilífeyrisgreiðslur á hvern ellilífeyrisþega lægstar hér á landi." Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 646 orð | 1 mynd

Sneypuför Jóns

Jóhanna Sigurðardóttir skrifar um formenn stjórnarflokkanna: "Það er því sérlega ósvífið og ómerkilegt af Jóni og Geir að halda því fram að stjórnarandstaðan hafi gengið á bak orða sinna." Meira
20. mars 2007 | Blogg | 184 orð | 1 mynd

Stefán Friðrik Stefánsson | 19. mars Íslandshreyfingin mun það verða Það...

Stefán Friðrik Stefánsson | 19. mars Íslandshreyfingin mun það verða Það er nú ljóst að nýtt hægra grænt framboð mun heita Íslandshreyfingin – lifandi land, en ekki Íslandsflokkurinn eins og margir hafa talað um. Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 371 orð

Stórfelldar réttarbætur – tóm vonbrigði?

UM helgina varð sá ánægjulegi atburður, að samþykkt var á alþingi frumvarp frá mér til breytinga á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Þetta var langþráður áfangi, því að lengi hafði verið unnið að réttarbótum á þessu sviði. Meira
20. mars 2007 | Blogg | 63 orð | 1 mynd

Viggó H. Viggósson | 15. mars 2007 Olé! Það er auðvelt að fordæma...

Viggó H. Viggósson | 15. mars 2007 Olé! Það er auðvelt að fordæma nautaat, grimmd eða ómannúðleg villimennska er sennilega það fyrsta sem kemur upp í huga margra þegar þeir hugsa um nautaat. Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 221 orð

Virðisaukaskattur lækkaður af fleiru en matvælum

ÞRÁTT fyrir að lækkun matarverðs hafi fengið mikla umfjöllun nú um síðustu mánaðamót er það ekki svo að einungis matvæli hafi lækkað í verði. Meira
20. mars 2007 | Aðsent efni | 369 orð

Þjóðleikhúsið, þéttidúkurinn og Morgunblaðið

AÐ LOKINNI leiksýningu stóð starfsmaður Þjóðleikhússins í teppaklæddum stigaganginum til að passa að prúðbúnir leikhúsgestir álpuðust ekki undir vatnslekann úr loftinu. Það er pollur á gólfinu og ljótir, brúnir lekataumar á veggjum leikhúss þjóðarinnar. Meira

Minningargreinar

20. mars 2007 | Minningargreinar | 3223 orð | 1 mynd

Áslaug Hrefna Sigurðardóttir

Áslaug Hrefna Sigurðardóttir fæddist í Hafnafirði þ. 12. mars 1916. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð í Reykjavík þ. 5. mars s.l. Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson lyfsali og skáld f. 15. september 1879 í Kaupmannahöfn, d. 4. Meira  Kaupa minningabók
20. mars 2007 | Minningargreinar | 995 orð | 1 mynd

Guðrún Sigríður Baldvinsdóttir

Guðrún Sigríður Balvinsdóttir fæddist í Bændagerði í Glerárhverfi þann 21. des 1917. Hún lést í dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri aðfararanótt laugardagsins 10. mars sl. Foreldar hennar voru hjónin Anna Soffía Jónsdóttir f. 10.10. Meira  Kaupa minningabók
20. mars 2007 | Minningargreinar | 2176 orð | 1 mynd

Hermann Björn Haraldsson

Hermann Björn Haraldsson fæddist á Hamri í Fljótum 20. mars 1947. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 18. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrarkirkju 28. desember. Meira  Kaupa minningabók
20. mars 2007 | Minningargreinar | 1256 orð | 1 mynd

Ragnheiður Hulda Þórðardóttir

Ragnheiður Hulda Þórðardóttir fæddist í Reykjavík 30. mars 1910. Hún andaðist sunnudaginn 11. mars síðastliðinn. Foreldrar Ragnheiðar Huldu voru Þórður Sigurðsson, stýrimaður í Reykjavík, fæddur á Minna-Mosfelli í Kjós 19. maí 1863, dáinn 8. Meira  Kaupa minningabók
20. mars 2007 | Minningargreinar | 2590 orð | 1 mynd

Salvör Jakobsdóttir

Salvör Jakobsdóttir fæddist í Vopnafirði 29. ágúst 1920. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 11. mars sl. Foreldrar hennar voru Jakob Benediktsson, f. 27.6. 1886, d. 19.7. 1971, og Jónína Jónsdóttir, f. 6.6. 1887, d. 23.1. 1963. Meira  Kaupa minningabók
20. mars 2007 | Minningargreinar | 2289 orð | 1 mynd

Sigurveig Stella Konráðsdóttir

Sigurveig Stella Konráðsdóttir fæddist í Reykjavík 28. febrúar 1922. Hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 13. mars sl. Foreldrar hennar voru Konráð Ingimundarson, f. 26. júní 1886, d. 6. júlí 1957, og Guðrún Sigríður Einarsdóttir, f.... Meira  Kaupa minningabók
20. mars 2007 | Minningargreinar | 1819 orð | 1 mynd

Sveinn Þórðarson

Sveinn Þórðarson fæddist á Kleppi 13. janúar 1913. Hann lést á heimili dóttur sinnar í Red Deer, Alberta í Kanada 13. mars sl. Foreldrar hans voru Þórður Sveinsson, yfirlæknir og prófessor, f. 20.12. 1874, d. 21.11. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

20. mars 2007 | Sjávarútvegur | 466 orð

Leiguverð á þorski komið í 190 krónur

Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is LEIGUVERÐ á þorski er nú komið í 190 krónur á kílóið og hefur aldrei verið hærra. Björn Jónsson, kvótamiðlari hjá LÍÚ, segir að framboðið sé afskaplega lítið og hann telji að verðið fari fljótlega í 200 krónurnar. Meira

Viðskipti

20. mars 2007 | Viðskiptafréttir | 159 orð | 1 mynd

Barkleys sameinast ABN Amro?

BARKLEYS-bankinn breski er sagður ætla að bjóða um 80 milljarða punda í hollenska bankann ABN Amro. Það svarar til um 10 þúsund milljarða íslenskra króna. Frá þessu er greint í frétt á fréttavef BBC -fréttastofunnar. Meira
20. mars 2007 | Viðskiptafréttir | 233 orð | 1 mynd

Glitnir breytir útibúum sínum hér á landi

GLITNIR hefur endurskilgreint hlutverk útibúa bankans hér á landi. Í tilkynningu frá Glitni segir að breytingarnar muni gera bankanum kleift að sinna hlutverki sínu sem þjónustufyrirtæki enn betur. Meira
20. mars 2007 | Viðskiptafréttir | 68 orð

Hækkun í Kauphöll

ÚRVALSVÍSITALA aðallista Kauphallar Íslands hækkaði um 0,2% í gær og er lokagildi hennar 7.331 stig. Mest hækkun varð á hlutabréfum Alfesca , en þau hækkuðu um 8,3% í gær. Meira
20. mars 2007 | Viðskiptafréttir | 60 orð

Kaupréttarsamningar hjá Kaupþingi banka

KAUPÞING banki hefur gert kaupréttarsamninga við Sigurð Einarsson stjórnarformann og Hreiðar Má Sigurðsson forstjóra sem heimila hvorum um sig að kaupa liðlega 2,4 milljónir hluta í bankanum á genginu 1.007 krónur fyrir hvern hlut. Meira
20. mars 2007 | Viðskiptafréttir | 160 orð | 1 mynd

Verslun minnkar í febrúar

VELTA í dagvöruverslun minnkaði um 5,8% í febrúar síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra, á föstu verðlagi, en var 2,1% meiri ef miðað er við breytilegt verðlag. Þetta kemur fram í mælingu Rannsóknarseturs verslunarinnar við Háskólann á Bifröst. Meira

Daglegt líf

20. mars 2007 | Daglegt líf | 399 orð | 3 myndir

Að kenna krökkum um umhverfið

Börnin erfa jú landið – það vitum við – og reyndar allt sem því fylgir hvort sem um er að ræða gróðurhúsaáhrif eða grunnvatnsmengun. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 228 orð

Aðstoð við erfiðar ákvarðanir

Hvers kyns meðhöndlun vill sjúklingur fá sem getur ekki lengur gert sig skiljanlegan? Ný rannsókn bendir til þess að tölvuforrit geti komist nær óskum sjúklingsins en nánustu aðstandendur hans að því er forskning.no greinir frá. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 141 orð

Af fótbolta og gömlu fólki

Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd tekur eftir því að framboðum fjölgar: Gamla fólkið fer af stað, framboð kýs að mynda. Einkum vegna þess að það þarfnast mannréttinda! Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 610 orð | 2 myndir

BOLUNGARVÍK

Í Bolungarvíkinni er björgulegt lífið segir í upphafi "þjóðsöngs" Bolvíkinga sem kyrjaður er við öll tækifæri, lítil sem stór. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 252 orð | 1 mynd

Gelgjan leggst fyrr á þéttvaxin stúlkubörn

STÚLKUBÖRN, sem eru í yfirvigt í kringum þriggja ára aldurinn, eiga það á hættu að byrja á gelgjuskeiðinu allt að níu ára gömul, samkvæmt bandarískri nýlegri rannsókn, sem birtist í tímariti barnalækna. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 934 orð | 2 myndir

Heilsupósturinn stefnir á toppinn

Þetta byrjaði þannig að Heilsupósturinn ákvað að stefna á hnjúkinn," segir Sveinbjörn R. Svavarsson, vinnslustjóri hjá Póstinum. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 503 orð | 1 mynd

Iðnmenntaðir jákvæðari en stúdentar í garð fyrra náms

Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Iðn- og starfsmenntuðum einstaklingum með frumgreinapróf vegnar vel í námi í tækni- og verkfræði við Háskólann í Reykjavík samanborið við aðra nemendur. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 425 orð | 1 mynd

Iðraverkirnir fylgifiskur fullkomnunaráráttu

Þeim einstaklingum, sem haldnir eru fullkomnunaráráttu, hættir frekar en öðrum til að þróa með sér magabólgur og heilkenni ristilertingar í kjölfar sýkinga, að því er segir í nýlegri frétt á netmiðli BBC. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 1183 orð | 1 mynd

Í víking frá Frakklandi

Teiknimyndahetjan Thorgal Aegisson á sök á því að bókabéusinn, afrekssundmaðurinn, tungumálaséníið og ástríðukokkurinn Gregory Cattaneo dreif sig á hjara veraldar til að grufla í íslenskum miðaldaskruddum. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 357 orð | 2 myndir

Kraftmiklar í körfunni

Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Spurðu ekki hver sé uppáhaldsleikmaðurinn í NBA, spurðu frekar hver sé uppáhaldsleikmaðurinn í WNBA. Og auðvitað er það fullkomlega rökrétt og réttmæt ábending hjá hinum kraftmiklu körfuboltastelpum í 9. Meira
20. mars 2007 | Daglegt líf | 54 orð | 1 mynd

Sætur í bleiku

HANN virðist ekkert voðalega ánægður með fyrirsætustarfið kötturinn Goblin sem hér trítlar niður sýningarpalllinn í bleikum klæðnaði á Petco-vortískusýningunni í San Diego í Bandaríkjunum fyrir skemmstu. Meira
20. mars 2007 | Neytendur | 241 orð | 1 mynd

Vilja ódýran kjúkling

HÆTTAN á að krækja sér í örlagaríka salmonellusýkingu er ekki ofarlega í huga danskra neytenda þegar þeir standa á haus ofan í kæliborðum verslana, að því er ný rannsókn sýnir og sagt er frá á fréttavef Berlingske Tidende . Meira

Fastir þættir

20. mars 2007 | Fastir þættir | 153 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is

Á þunnum þvengjum. Meira
20. mars 2007 | Viðhorf | 886 orð | 1 mynd

Fordómar vísindanna

Ekki er að ófyrirsynju útbreidd sú skoðun að vísindin séu krýningardjásn mannlegrar skynsemi, og hvergi virðast framfarir jafn greinilegar og í vísindum. Meira
20. mars 2007 | Í dag | 384 orð | 1 mynd

Forvarnir á fyrstu árum

Ingibjörg Sigurþórsdóttir fæddist í Seattle 1962. Hún lauk verslunarskólaprófi frá Verslunarskóla Íslands 1980, leikskólakennaranámi frá Fóstruskólanum 1984, lauk framhaldsnámi við sama skóla 1994 og lagði stund meistaranám við Kennaraháskóla Íslands. Meira
20. mars 2007 | Í dag | 72 orð | 1 mynd

Kvikmyndasafn Íslands sýnir ungan Hopkins

Í BÆJARBÍÓI í Hafnarfirði stendur kvikmyndasafn Íslands fyrir sýningum valinna mynda á þriðjudögum klukkan 20 og laugardögum klukkan 16. Í kvöld verður sýnd myndin When eight bells toll frá 1971 en hún er gerð eftir skáldsögu Alistair MacLean. Meira
20. mars 2007 | Í dag | 20 orð

Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í...

Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. (Jh. 15, 13. Meira
20. mars 2007 | Fastir þættir | 137 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is

1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 Be7 5. Bg5 0-0 6. e3 Re4 7. Bxe7 Dxe7 8. cxd5 Rxc3 9. bxc3 exd5 10. Be2 c5 11. 0-0 Hd8 12. dxc5 Dxc5 13. Dd4 De7 14. Db4 Df6 15. Rd4 Rc6 16. Db5 Re5 17. Hab1 b6 18. f4 Rg4 19. Bxg4 Bxg4 20. f5 Dg5 21. Hf4 Hac8 22. Meira
20. mars 2007 | Í dag | 147 orð | 1 mynd

Spurter... ritsjorn@mbl.is

1 Ungur íslenskur fiðluleikari hlaut verðlaun úr evrópska menningarsjóðnum Pro Europa sem veitt eru ungu og efnilegu tónlistarfólki í álfunni. Hvað heitir hún? 2 Hvað heitir minnsti hestur heims sem er aðeins 44,5 sm hár og 26 kg að þyngd? Meira
20. mars 2007 | Fastir þættir | 350 orð | 1 mynd

víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

Hlutafélög stór og smá halda aðalfundi sína þessa dagana þar sem rekstur síðasta árs er gerður upp. Meira

Íþróttir

20. mars 2007 | Íþróttir | 443 orð

Einar úr leik með brjósklos

"ÞAÐ hefur verið staðfest að um brjósklos er að ræða. Neðsti hryggjarliðurinn er svo mikið skaddaður, að mati læknis, að hann segir að það sé ekkert vit í öðru en að skera strax. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 781 orð | 1 mynd

Eyjólfur valdi tvo nýliða – Heiðar gaf ekki kost á sér

EYJÓLFUR Sverrisson landsliðsþjálfari valdi tvo nýliða í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Spánverjum í undankeppni EM sem fram fer á sólareyjunni Mallorca á miðvikudaginn í næstu viku. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 332 orð | 2 myndir

Fólk folk@mbl.is

Vilhjálmur Halldórsson , handknattleiksmaður hjá Skjern í Danmörku, segir í samtali við dagblað þar í bæ að hann eigi enn í viðræðum við Lemvig , sem einnig sé í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 438 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Jón Arnór Stefánsson , körfuknattleiksmaður hjá ítalska liðinu Lottomatica Roma , var hetja liðs síns á sunnudagskvöldið. Þá tók liðið á móti efsta liði deildarinnar, Siena og sigraði 84:82 eftir framlengdan leik. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 146 orð

Guðrún á sigurbraut

GUÐRÚN Jóhannsdóttir, landsliðskona og Íslandsmeistari í skylmingum, vann nú um helgina Quebec-meistaramótið í skylmingum með höggsverði en hún vann þetta mót einnig í fyrra. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 238 orð | 1 mynd

Höskuldur til Viking á fimmtudaginn

Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is SAMNINGAR tókust í gær á milli Víkings í Reykjavík og norska félagsins Viking frá Stavanger um Höskuld Eiríksson, fyrirliða knattspyrnuliðs Víkings. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 200 orð

KNATTSPYRNA England Bikarkeppnin, átta liða úrslit, aukaleikir: Man...

KNATTSPYRNA England Bikarkeppnin, átta liða úrslit, aukaleikir: Man. United – Middlesbrough 1:0 Cristiano Ronaldo 76. (víti) Rautt spjald: James Morrison (Middlesbrough) 90. – 71.325. *Manchester United mætir Watford í undanúrslitum. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 198 orð

Lampard áfram hjá Chelsea

FRANK Lampard, miðjumaðurinn snjalli í liði Chelsea, segist ekki hafa uppi nein áform um að yfirgefa Englandsmeistarana og vilji hans er að ljúka knattspyrnuferli sínum með Lundúnaliðinu. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 136 orð

Liðsauki norður

KVENNALIÐ Þórs/KA sem leikur í úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefur fengið góðan liðsauka. Milenka Stevanovska, landsliðsmarkvörður Makedóníu, hefur samið um að leika með Akureyrarliðinu í sumar. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 321 orð | 1 mynd

Líkur á úrslitaleik milli Chelsea og Man.Utd

ÞAÐ eru orðnar yfirgnæfandi líkur á því að tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, Chelsea og Manchester United, mætist í úrslitaleik ensku bikarkeppninar í vor. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 417 orð | 1 mynd

Send heim af slysadeild með hættulegan áverka

Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is HÓLMFRÍÐUR Magnúsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu úr KR, verður frá keppni næstu tvo til þrjá mánuðina. Hún slasaðist í leik gegn Stjörnunni í deildabikarnum í fyrrakvöld þegar hún fékk slæma byltu. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 435 orð

Svindal og Hosp skutust á toppinn

NORÐMAÐURINN Aksel Lund Svindal og austurríska skíðakonan Nicole Hosp fögnuðu um helgina sigri í heimsbikarnum en síðustu mót keppninnar voru í Lenzerheide í Sviss. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 470 orð

Töpum ekki aftur heima

"VIÐ ætlum okkur að sjálfsögðu ekki að tapa aftur fyrir ÍR á heimavelli og erum alls ekki tilbúnir að fara í sumarfrí núna," segir Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR-inga í körfuknattleik karla, en Reykjavíkurfélögin mætast í þriðja leiknum í... Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 132 orð

Vandræði Kínverja

MA Liangxing, landsliðsþjálfari kvennaliðs Kína í knattspyrnu, neitar að segja af sér og vill frekar láta reka sig. Kínverska knattspyrnusambandið bauð honum að segja af sér en hann segist frekar vilja láta reka sig. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 460 orð | 1 mynd

Verður afrek fyrir okkur að komast áfram

"VIÐ getum unnið hvaða lið sem er á góðum degi en ég finn ekki fyrir því að bæjarbúar og stuðningsmenn liðsins geri þá kröfu að við vinnum Íslandsmeistaratitilinn. Meira
20. mars 2007 | Íþróttir | 114 orð

Þeir mæta Spánverjum

LANDSLIÐSHÓPUR Eyjólfs Sverrissonar landsliðsþjálfara, sem hann hefur valið til að leika Evrópuleik gegn Spánverjum á Mallorka miðvikudaginn 28. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.