Lítill vafi er á því, að svikin varðandi Lissabonsáttmálann og þessir síðustu tilburðir hafa ýtt undir það, að ýmsir gamlir kjósendur Íhaldsflokksins hafa hallað sér að UKIP.
Meira
Yfirlitssýning á verkum eins merkasta fatahönnuðar Bretlands, Alexanders McQueen, Alexander McQueen: Savage Beauty, er væntanleg í Victoria & Albert-safnið í London. Frá 14. mars til 19.
Meira
Það getur verið varasamt að stökkva strax á spennandi raftæki um leið og þau koma í sölu. Hvað ef varan stendur ekki undir væntingum, eða hvað ef verðið lækkar nokkrum vikum síðar? Ásger Ingvarsson ai@mbl.is
Meira
Augnförðun í málmtónum kemur sterk inn í vetur. Þá eru ýmsar útfærslur af þessum fallegu litum fáanlegar, allt frá mjög ljósum litum niður í dekkri tóna.
Meira
Frá því hún lauk leiklistarnámi árið 1968 hefur Anna Kristín Ólafsdóttir verið nánast óstöðvandi og uppfærslurnar hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu orðnar ótalmargar.
Meira
Hin áhrifamikla bók Sally Magnusson, Handan minninga, er á toppi metsölulista Eymundsson. Þar segir Sally sögu móður sinnar, Mamie Baird, sem greindist með heilabilun og persónuleiki hennar gjörbreyttist.
Meira
Jóhanna Jóhannsdóttir aðstoðarleikskólakennari er mikil amma og hélt sannkallað ömmuboð á dögunum og bauð barnabörnunum upp á það besta sem þau vita í þríréttaðri máltíð. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Meira
Harðbannað er að sækja vegabréf sem sætt hefur almennri afgreiðslu á skrifstofu Þjóðskrár Íslands. Í póst skal það fara. Og hananú! Það er ekki fyrr en búið er að greiða kr. 10.000 aukalega að þær ágætu dyr opnast. Að undangenginni flýtimeðferð. Hverju sætir þetta? Tja, tölvan segir einfaldlega nei!
Meira
Evrópusambandið heldur úti skemmtilegum heilsuvef sem ber nafnið www.we-love-eating.eu. Sérfræðingar og stofnanir víðs vegar að í Evrópu standa á bak við vefinn sem byggist á hugmyndinni að það að borða sé ánægjulegt og skemmtilegt.
Meira
Lovísa Árnadóttir eignaðist son fimm dögum eftir að eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi árið 2010. Fjórum árum síðar eignaðist hún tvíbura sléttum fimm dögum eftir að eldgosið í Holuhrauni fór af stað. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Meira
Snjallúrum fjölgar á markaði þó hið fullkomna snjallúr láti á sér standa. Moto 360 fer óvenjulega leið þegar snjallúr er annars vegar, þó þeir sem nota á annað borð armbandsúr kunni eflaust að meta hönnunina – það má segja að það sé tölva í búningi úrs, en ekki úlnliðstölva.
Meira
Fjármálavefurinn MarketWatch tók nýlega saman lista yfir bestu hitabeltiseyjarnar til að flytja til í ellinni. Á listanum er að finna eyjar eins og Caye Caulker í Belize þar sem bílar eru bannaðir og sjórinn iðar af fiski.
Meira
Bók Sally Magnusson um móður sína er sterk og minnisstæð. Sænskur krimmi er líklegur til að falla í góðan jarðveg. Lokabindi í þríleik fyrir unglinga er komið út og nokkur ævintýri H. C. Andersen fyrir yngstu kynslóðina eru komin í fallega bók.
Meira
Kúrbítur eða zucchini er að ganga í gegnum endurnýjun lífdaga segir Sólveig Eiríksdóttir. Kúrbítur sé dásamlegt hráefni sem drekki í sig annað bragð enda hafi hann ekki sitt eigið, sem hægt sé að tala um. Grikkir kalla kúrbít heimskt grænmeti vegna bragðleysisins. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Meira
Börnum, foreldrum, ömmum, öfum og öðrum forráðamönnum er boðið að koma í Þjóðminjasafnið á sunnudag kl. 14. Þar verður hægt að fræðast um þjóðsagnaverur, atburði og fyrirbæri íslenskra þjóðsagna.
Meira
Dómhildur Arndís Sigfúsdóttir kaupir frekar fáar en vandaðar flíkur. Dómhildur hefur lagt það í vana sinn að fjárfesta í klassískum flíkum sem endast lengi.
Meira
Aurapúkinn á oft í mesta basli með að halda aftur af hreiðurgerðarhvötinni. Hann þræðir ósjaldan raftækjaverslanir og horfir löngunaraugum á risavaxanar þvottavélar, þríbreiða ísskápa og heimabíókerfi sem þekja heilu veggina.
Meira
Það er fátt skemmtilegra en að heimsækja flóamarkaði á stað eins og í París í Frakklandi. Þar er að finna ýmsar djásnir, fatnað, skartgripi, húsmuni og margt margt fleira.
Meira
Lögfræðingar, læknar og löggur, varið ykkur! Matreiðslumeistarar eru nýjasta tíska í kvikmyndum. Helstu Hollywoodhetjur berjast nú um hlutverk í myndum um mat og matreiðslufólk. Jon Favreau kom æðinu af stað með mynd sinni Chef, sem sló óvænt í gegn.
Meira
Menningarráð Suðurlands hefur veitt Eldeimum 2,5 milljónir í styrki. „Safnabyggingin er byggð yfir hús, sem verið hefur undir ösku frá árinu 1973. Safnið segir og sýnir einstaka jarðfræðisögu Vestmannaeyja,“ segir...
Meira
Síðustu árin hafa frægar skáldsagnapersónur snúið aftur í bókum nútímahöfunda. Þannig má enn lesa um ævintýri Sherlocks Holmes , James Bond og Jeeves og Wooster , þótt Arthur Conan Doyle , Ian Fleming og P.G. Wodehouse séu löngu látnir.
Meira
Fyrir tveimur vikum lýsti Helgi Sigurðsson, krabbameinslæknir á Landspítalanum, undrun sinni á því að nýútskrifaðir læknar sem ráðnir eru til spítalans væru á lægri launum en nýútskrifaðir lögfræðingar og viðskiptafræðingar sem spítalinn ræður.
Meira
Í þennan hóp völdust 73 einstaklingar. Reglurnar voru þessar: Minna en 30% af daglegri orkuinntöku komi frá fitu. Að hámarki komi 7% orkunnar frá mettaðri fitu og 55% frá kolvetnum. Ekki sérstök mörk á kaloríufjölda.
Meira
Fjölskyldusýningunni fjörugu, „Trúðleik“ , lýkur um helgina. Hægt er að sjá síðustu sýninguna um trúðavinina Skúla og Spæla á sunnudaginn kl. 14. Sýningin hæfir eldri áhorfendum og börnum niður í 4-5...
Meira
Betra er að sleppa brauðinu en smjörinu ef marka má nýja rannsókn á árangri breytts mataræðis. 148 þátttakendum var skipt í tvo hópa; annar skar niður fitu, hinn skar niður kolvetni í sínu fæði.
Meira
Sunnudaginn 12. október kl. 15-16 verður boðið upp á föndur fyrir alla fjölskylduna undir leiðsögn myndlistarkonunnar og rithöfundarins Kristínar Arngrímsdóttur í Borgarbókasafni, aðalsafni Tryggvagötu...
Meira
Mikið hefur verið rætt og ritað um að nýjasti iPhone síminn, iPhone 6, bogni við minnsta tilefni. Tímaritið Consumer Reports ákvað að gera tilraun og athuga hvað snjallsímar nútímans þyldu af þrýstingi. iPhone 6 þoldi 70 punda þrýsting eins og HTC One.
Meira
Óskarsverðlaunahafinn, leikkonan og rithöfundurinn Gwyneth Paltrow mun að öllum líkindum hefja framleiðslu á eigin fatalínu á næsta ári fyrir vefsíðu sína Goop.
Meira
Ný glæpasaga, Í innsta hring, eftir hina sænsku Vivecu Sten er komin út í íslenskri þýðingu. Varaformaður konunglega sænska lystisnekkjuklúbbsins er skotinn til bana við upphaf stærstu kappsiglingakeppni á Norðurlöndum.
Meira
Ódýrt: Google Maps Fæst í: Google play store og Apple Store Verð: 0 krónur Aðeins um: Ótrúlega nákvæmt og getur bjargað ólíklegasta fólki í að rata um stræti og torg stórborga. Miðlungs: Garmin HUD - Head Up Display Fæst í: Garmin búðinni Verð: 26.
Meira
Í Franska hverfinu í New Orleans er slegið upp veislu á hverju einasta kvöldi. Tónlist tekur að óma frá börunum og hljóðfæraleikarar telja í á fjölförnum götuhornum.
Meira
Dómhildur Arndís Sigfúsdóttir hefur ákaflega flottan og eftirtektarverðan stíl. Dómhildur kaupir yfirleitt vandaðan, klassískan fatnað sem ber aldurinn vel og hún getur notað lengi. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Meira
Það er erfitt að velja uppáhaldsbók, en Grimmsystur er eiginlega uppáhaldsbókin mín. Mér finnst svo gaman að lesa um þær vegna þess að þær eru alltaf að lenda í ævintýrum og eru á svo mörgum stöðum.
Meira
Hunang hefur lengi verið talið gott til lækninga og þekkja þeir sem nota röddina mikið hversu gott það getur gert. Í hráu hunangi er að finna A-og B-vítamín og C, D, E og K vítamín.
Meira
Stöð 2 kl. 20:40 Tveir fyrstu þættirnir í fjórðu seríu bandaríska spennumyndaflokksins Homeland í opinni dagskrá. Við höldum áfram að fylgjast Með Carrie Mathieson, starfsmanni bandarísku leyniþjónustunnar. RÚV kl.
Meira
Kaldbakshorn í Árneshreppi á Ströndum er 508 metra hátt og gengur beint í sjó fram. Um hamrastálið liggur þjóðvegur, þar sem aldrei verða slys. Kemur þar til að leiðin er blessuð, vígð af Guðmundi góða biskup á Hólum sem uppi var snemma á 13. öld.
Meira
Skrifstofa Sýslumannsins á Seyðisfirði er í þessu glæsilega húsi við Bjólfsgötu 7. Sennilega er leitun á opinberum kontór í jafn fallegum umbúðum.
Meira
Í bjartri íbúð í Hafnarfirði hafa Bryndís og Hermann komið sér vel fyrir ásamt syni sínum. Parið segir heimilið einkennast af skandinavískum stíl og góðri blöndu af hönnun, ódýrum lausnum og einhverju heimatilbúnu. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Meira
Fasteignaverð hefur rokið upp í Lundúnum undanfarin ár og því brugðu nokkrir frumkvöðlar á það ráð að festa kaup á gömlu almenningsklósettunum í borginni og breyta þeim í kaffihús.
Meira
Í þennan hóp völdust 75 einstaklingar. Reglurnar voru þessar: Neyta minna en 40 gramma á dag af meltanlegum kolvetnum (kolvetni mínus trefjar). Ekki sérstök mörk á kaloríufjölda. Dagleg hreyfirútína látin halda sér, þ.e.
Meira
Kristinn Jakobsson knattspyrnudómari er kempa vikunnar og gefur góð heilsuráð. Hann segir lykilinn að góðum árangri vera að setja sér takmark, nálgast það af fagmennsku, hugsa vel um líkamann, æfa, nærast og hvílast vel.
Meira
Kristín Rúnarsdóttir verður með listamannaspjall á sunnudag kl. 15 og leiðir gesti í gegnum sýningu sína, „Leikfléttur“, sem sýnd verður í sýningasal Listasafns Reykjanesbæjar í...
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 12.
Meira
Kvikmyndin „Gone girl“ , í leikstjórn hins vinsæla Davids Lynch, fjallar um dularfullt mannshvarf. Stórskotalið leikara fer með hlutverk í myndinni en þar má nefna Ben Affleck, Rosamund Pike, Neil Patrick Harris og...
Meira
„Ferðamenn eru vitaskuld góðir fyrir Ísland, þjóðin þurfti á þeim að halda til að koma sér út úr kreppunni. En þið getið valið, þið þurfið ekki að eyðileggja allt bara til þess að fá ferðamenn,“ segir svissneski ljósmyndarinn Marco Paoluzzo.
Meira
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, ræðir um áherslur sínar í starfi og þær breytingar sem hún vill gera, en hún segist sjá ýmis sóknarfæri. Hún vill að enn betur sé tekið á ofbeldismálum og kynbundnu ofbeldi. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Meira
Viðburðurinn Lífsneistar Leifs Þórarinssonar verður haldinn á morgun, sunnudag, klukkan 17.15 í Norðurljósasal Hörpu. Um er að ræða tónleika þar sem tónlist tónskáldsins Leifs Þórarinssonar fær að njóta sín.
Meira
Eins og getið er um hér fyrir ofan þá eru margir um hituna þegar snjallúr eru annars vegar og framleiðendum fjölgar með hverjum degi. Þau úr sem keyra Android Wear, t.d.
Meira
Hjá Eldum rétt er passað upp á skammtastærðir, næringarinnihald og fjölbreytni matarins en uppskriftirnar hjá þeim eru unnar í samvinnu við næringarfræðing og sem minnst á að fara til spillis.
Meira
Nú er von á nýrri Vísindabók Villa, er margar nýjar uppgötvanir og tilraunir að finna þar? Já, það verður fullt af glænýjum tilraunum, fleiri en í síðustu bók og svo kaflar um hitt og þetta sem er spennandi að velta fyrir sér.
Meira
Stefán Jón Heiðarsson, flugvirki hjá Icelandair, hefur farið í nokkrar vinnuferðir til Moskvu. Höfuðborg Rússlands kom honum að mörgu leyti á óvart. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Meira
Aðdáendur Nigellu Lawson geta farið að hlakka til því hún tilkynnti á heimasíðu sinni í vikunni að ný bók væri væntanleg á næsta ári. Vinnuheitið er Simply Nigella, 150 auðveldir réttir fyrir líkama og sál.
Meira
Blómkál hefur notið vaxandi vinsælda að undanförnu og hefur meðal annars verið notað í svokölluð blómkálsgrjón og líka sem snarl bakað í ofni í stað popps. Jafnan er fólk hvatt til að borða litríkan mat því hann sé næringarríkastur.
Meira
Skipulagsfræðingurinn Bjarni Reynarsson gaf á dögunum út ritverkið Borgir og borgarskipulag þar sem farið er vandlega yfir þróun borga á Vesturlöndum, Kaupmannahafnar og Reykjavíkur.
Meira
Ævintýri H. C. Andersen eru komin út í afar fallega myndskreyttri útgáfu hjá Skruddu. Öll börn verða að lesa ævintýri þessa mikla snillings, en þau fylgja þeim sem kynnast þeim alla ævi.
Meira
Beinahús heitir ný skáldsaga Guðrúnar Guðlaugsdóttur, rithöfundar og blaðamanns, en atvik sem hún skrifaði frétt um sem blaðamaður varð kveikjan að sögunni. Guðrún segir blaðaskrif og leiklistarnám alltaf hafa gagnast sér í skáldskap þótt ólíkt sé. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Meira
Enn vilja menn beisla kaldan samruna. En nú hafa sænskir og ítalskir vísindamenn ef til vill uppgötvað nýja leið til að hagnýta hræódýra kjarnorku sem ekki mengar og veldur ekki geislun fyrir utan kjarnaofninn.
Meira
Erla Sigríður Sigurðardóttir er fyrsta konan til að verða Íslandsmeistari í kvartmílu í mótorhjólaflokki og var jafnframt eini kvenkyns keppandinn. Það má segja að hún hafi unnið tvöfalt því hún á jafnframt von á barni í janúar. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Meira
Fyrir rúmum 20 árum, eða árið 1995, kom Raddskipuleggjarinn á markað hér á landi. Slagorð skipuleggjarans var: „Ef þú getur talað getur þú skipulagt.
Meira
Reglugerð 814 frá 2010 hafði mikil áhrif á aðgengi Vopnfirðinga að sundlaug. Heitt vatn rann beint úr holu í laugina í 65 ár og þar syntu menn að vild allan sólarhringinn.
Meira
Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl kom með örlitla játningu á Facebook-síðu sinni á fimmtudag þegar hann skrifaði: „Ég verð svo miður mín af minnimáttarkennd af að bíða þess að tilkynnt verði um nýjan nóbelsverðlaunahafa að mér gengur ekkert að...
Meira
Bonbon er nýr ilmur frá Vicktor & Rolf sem þekktir eru fyrir vinsæla ilminn Flowerbomb. Aðaltónar ilmsins eru mandarínur og appelsínur en þessi stórskemmtilegi ilmur sækir innblástur til sælgætis og freistinga.
Meira
Viltu sjá vatn úr nokkrum helstu jöklum Íslands í einu og sama herberginu? Mundu þá, í næstu ferð á Snæfellsnes, að koma við í Vatnasafni Roni Horn í Stykkishólmi. Varla verður nokkur maður svikinn af heimsókn í það listræna safn.
Meira
Náttúrusýn og umhverfisvitund í íslenskri ljóðagerð frá 19. öld og til nútímans er umfjöllunarefni Sveins Yngva Egilssonar í bókinni Náttúra ljóðsins.
Meira
Breska stórhljómsveitin Smokie heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu föstudaginn 13. mars 2015. Fyrirtækið Dægurflugan flytur þá inn til landsins. Þetta verður í þriðja sinn sem hljómsveitin spilar fyrir Íslendinga.
Meira
Snjallúr virðast vera það sem koma skal. Hin snjöllu úr mæla skrefafjölda, púls og veita notanda ýmsar upplýsingar sem deila má um hvort eru gagnlegar eða ekki.
Meira
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn er haldinn hátíðlegur 10. október ár hvert. Talsmenn segja miklar framfarir hafa orðið hvað varðar réttindi og þjónustu þeirra sem glíma við geðræna erfiðleika en þó séu enn miklir fordómar sem þurfi að uppræta.
Meira
Reglugerð númer 814 frá 2010 hafði mikil áhrif á Selárlaug í Vopnafirði. „Einhverjir piltar í Brüssel náðu ekki svefni yfir því hvernig ástandið var á lauginni,“ segir „Óli alls staðar“ umsjónarmaður.
Meira
Svar: Ég hugsaði svolítið um veiruna þegar ég var í London því þar millilenda svo margir sem hafa verið í Afríku. En á Íslandi finnst mér ég vera...
Meira
Skráning í Bókatíðindi er nú hafin hjá skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda . Nokkur breyting er fyrirhuguð á útliti Bókatíðinda að þessu sinni.
Meira
Stigar eru mis árennilegir og lyftan getur oftar en ekki virst ákjósanlegri kostur. En með því að beina huganum að öllum þeim jákvæðu áhrifum sem stigapríl hefur á heilsuna, s.s. bætt úthald og meiri gleði, má gera tröppurnar meira heillandi.
Meira
Flestir hafa séð þá Neil Armstrong og Buzz Aldrin stíga, fyrstir manna, fæti á tunglið. Myndböndin eru óskýr enda var árið 1969 þegar þeir félagar lentu.
Meira
Hvað þýðir 40 mm driver, 20.000 HZ og annað álíka tæknimál þegar kemur að því að velja heyrnatól. Sunnudagsblaðið skoðaði tölurnar á bak við hljóminn. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Meira
Hilary Mantel , tvöfaldur Booker-verðlaunahafi, sendi nýlega frá sér smásagnasafn sem ber hinn athyglisverða titil The Assassination of Margaret Thatcher , eftir einni af sögum bókarinnar.
Meira
Agnar Sverrisson, sem er eini íslenski kokkurinn sem hefur hlotið Michelin-stjörnuna eftirsóttu, gaf upp uppskrift í viðtali á Sjávarútvegsdeginum sem haldinn var í vikunni.
Meira
Þótt það blasi við að aflétting áratuga gamalla hafta í viðskiptum milli Evrópu og Bandaríkjanna sé forsenda hagvaxtar í Evrópu verða úrtöluraddirnar alltaf háværar.
Meira
Gælunafn: Kiddi – en oftast kallaður Dómarinn. Íþróttagrein/Atvinna: Knattspyrnudómari. Á og stýri Kjöthúsinu ehf. sem er kjötvinnsla í Kópavogi. Hversu oft æfir þú í viku? Ég hreyfi mig á einhvern hátt sex daga vikunnar.
Meira
Listamaðurinn Finnbogi Pétursson opnaði nýverið einkasýningu í Wood Street Galleries í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Sýningin er fyrsta einkasýning Finnboga vestanhafs en hún ber nafnið SECOND/SECOND.
Meira
Að sögn landlæknis er aukið aðgengi að áfengi líklegt til að auka tíðni ofbeldis og annarra samfélagslegra vandamála. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Meira
Ágústa Sveinsdóttir vöruhönnuður útskrifaðist úr vöruhönnunardeild listaháskóla íslands síðastliðið vor og var lokaverkefni hennar áhugaverðir skartgripi gerðir úr ryki.
Meira
Vilhelm Anton Jónsson, sem flestir þekkja sem Villa naglbít en þau yngstu eflaust sem Vísinda-Villa, er margt til lista lagt. Hvort sem er að leika, syngja, stýra spurningaþætti eða gefa út bækur.
Meira
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna verkefna sem geta eflt nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífs við Eyjafjörð. Sækja má um til 22. okt., úthlutað verður í...
Meira
Fyrir fjórum árum lést ungt íslenskt par, Dagbjört Þóra Tryggvadóttir og Jóhann Árnason, í hörmulegu bílslysi í Tyrklandi. Sex mánaða gamall sonur þeirra, Daníel Ernir, lifði á hinn bóginn af. Hlaut ekki skrámu.
Meira
Vel þjálfaðir vöðvar gera það auðveldara fyrir líkamann að losa sig við skaðlegt prótín sem tengist þunglyndi, að því er ný rannsókn á músum hefur leitt í ljós.
Meira
Framleiðandinn Björn Þórir Sigurðsson (Bússi) hefur verið ráðinn til RVK Studios. Hann mun hafa umsjón með innlendri framleiðslu fyrirtækisins og fylgja eftir örum vexti þess á þeim vettvangi. Í framleiðslu hjá RVK Studios á innlendum vettvangi eru m.a.
Meira
Íslensk-þýska arkitektastofan a2f arkitektar vann tveggja þrepa samkeppni um hönnun íþróttahallar og félags- og menningarmiðstöðvar í Rendsburg í Þýskalandi. Tillaga a2f arkitekta ber nafnið Treffpunkt Mastbrook eða Miðstöð Mastbrook.
Meira
Á hátíðinni komu saman fulltrúar góðgerðarfélaga, hlauparar, starfsmenn og stuðningsaðilar til að fagna góðum árangri áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka sem fram fór á vefnum hlaupastyrkur.is. Í ár söfnuðu hlauparar 85.634.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.