Greinar mánudaginn 21. janúar 2019

Fréttir

21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 51 orð

1.146 umsagnir

Alls hafa borist 1.146 umsagnir um greinargerð um tímareikning á Íslandi á vef Samráðsgáttar. Til skoðunar er hvort færa eigi staðartíma nær sólartíma miðað við hnattræna legu landsins. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 149 orð | 1 mynd

Ákvörðun Fiskistofu frestað

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur frestað réttaráhrifum ákvörðunar Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis Kleifabergs RE 70, togara Útgerðarfélags Reykjavíkur (ÚR). Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 581 orð | 1 mynd

Áskoranir eru margar

„Hjúkrun er starf möguleika og tækifæra,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. „Það er gefandi að vera með fólki á þess erfiðustu sem gleðilegustu stundum. Hjúkrunarfræðingar eru hryggjarstykkið í heilbrigðiskerfinu.“ Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 217 orð | 1 mynd

Dugleg að bera sig eftir fóðrinu

„Mér finnst alltaf gott að koma í fjós og vera í fjósi og innan um kýrnar. Þær eru yndislegar og gaman að vera með þeim. Þetta er með því skemmtilegra sem ég geri,“ segir Fjóla Kjartansdóttir, bóndi í Birtingaholti 4 í Hrunamannahreppi. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 29 orð | 1 mynd

Eggert

Fjör Vísindasmiðja Háskóla Íslands kom í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar um helgina, en markmið hennar er að efla áhuga ungmenna á vísindum og fræðum með gagnvirkum og lifandi... Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 301 orð | 1 mynd

Ekkert erindi borist póstnúmeranefnd

Póstnúmeranefnd hefur ekki fengið neitt formlegt erindi varðandi breytingu á póstnúmeri á Vatnsmýrinni í 102. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á föstudaginn tillögu borgarstjóra um að þess verði farið á leit við póstnúmeranefnd Íslandspósts að Vatnsmýri fái póstnúmerið 102, en lagt var til að sá hluti póstnúmers 101 sem er sunnan Hringbrautar breytist í póstnúmerið 102 en mörk við 107 og 105 haldist óbreytt. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 257 orð | 1 mynd

Fyrsti áfangi göngu- og hjólastígs

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Skútustaðahreppur hefur ákveðið, með stuðningi Vegagerðarinnar, að leggja göngu- og hjólastíg meðfram þjóðveginum frá Reykjahlíð að afleggjaranum að Dimmuborgun. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 61 orð

Færri ósáttir með laun sín

Nokkru færri félagsmenn í Grafíu stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum eru ósáttir með launakjör sín í könnun sem gerð var seint á seinasta ári en í sambærilegum könnunum á umliðnum árum. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 54 orð | 1 mynd

Grípa tækifærið og draga fram snjósleða í stilltu veðri

Töluvert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga og grípa íbúar tækifærið og draga fram snjósleða og snjóþotur og njóta góðrar samverustundar í snjónum. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 100 orð | 1 mynd

Hald lagt á kannabisvökva fyrir rafrettur

Lögreglan á Suðurnesjum fann meint fíkniefni, lyf og stera í húsleit sem gerð var nýverið í umdæminu að fenginni heimild. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 558 orð | 3 myndir

Heyin skutu þeim á toppinn

Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Afburðagóð hey sem bændurnir á Hóli í Svarfaðardal öfluðu sumrin 2017 og 2018 skjóta þeim á topp listans yfir afurðamestu kúabúin á nýliðnu ári. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 65 orð

Hver er hún?

• Guðbjörg Pálsdóttir er fædd 1966. Ólst upp í Reykjavík og er stúdent frá Verslunarskóla Íslands. Útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá HÍ árið 1990 og með meistaragráðu í bráðahjúkrun frá Maryland-háskólanum í Baltimore í Bandaríkjunum 1997. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 221 orð

Hæst laun í stóriðju og orkugeira

Mánaðarlaun félagsmanna í VM, Félagi vélstjóra og málmtæknimanna, sem starfa í landi, eru einna hæst í orkuverum og stóriðju ef litið er á niðurstöður eftir mismunandi starfsgreinum í nýbirtri launakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir félagið, sem... Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 46 orð | 1 mynd

Íslenskar perlur í Bæjarbíói á fimmtudag

Íslensku perlurnar er yfirskrift tónleika sem Jóhanna Guðrún heldur í Bæjarbíói á fimmtudag kl. 20.30. Á efnisskránni eru uppáhalds íslensku sönglögin að mati söngkonunnar. Þeirra á meðal eru Tvær stjörnur, Vetrarsól, Álfar og Slá í gegn. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 369 orð | 1 mynd

Krefjandi aðstæður í fjallahlaupi í Hong Kong

Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Átta Íslendingar tóku þátt í hundrað kílómetra fjallahlaupinu Hong Kong 100 Ultra, sem lauk um helgina, en aðeins fimm þeirra luku keppni. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 320 orð | 1 mynd

Kynna niðurstöður á morgun

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Niðurstöður átakshóps um húsnæðismál verða kynntar í kjölfar fundar samráðshóps stjórnvalda og heildarsamtaka á vinnumarkaði á morgun, en hópurinn lauk störfum um helgina. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 436 orð | 2 myndir

Lengja beinar útsendingar úr Eldey

Vinnu við að endurnýja búnað „súluvarpsins“ úr Eldey er lokið. Útsendingar lágu niðri frá því um miðjan desember vegna skemmda á sólarrafhlöðum en þær komast í samt lag einhvern næstu daga. Stefnt er að því að lengja beinar útsendingar úr Eldey. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 178 orð | 1 mynd

Loka OZ-appinu um næstu mánaðamót

Til stendur að loka OZ-appinu um næstu mánaðamót. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegu viðtali við æðstu stjórnendur hugbúnaðarfyrirtækisins OZ sem birt hefur verið á fréttavef mbl.is. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 123 orð

Lækkun á debetkort?

Í greinargerð frumvarpsins er opnað á þann möguleika að hámark á milligjöld vegna debetkortafærslna verði einnig lækkað. Í ljósi örrar þróunar smágreiðslumiðlunar, m.a. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 92 orð | 1 mynd

Netöryggissveitin fái ekki næg gögn

Netöryggissveit mun ekki geta sinnt hlutverki sínu samkvæmt frumvarpi til laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða þar sem það tryggir ekki aðgengi sveitarinnar að nauðsynlegum upplýsingum með ótvíræðum hætti. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 574 orð | 2 myndir

Ónógar upplýsingar um netógn

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfi mikilvægra innviða tryggir ekki aðgengi netöryggissveitar að nauðsynlegum upplýsingum með ótvíræðum hætti þannig sveitin geti uppfyllt hlutverk sitt samkvæmt... Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 158 orð | 2 myndir

Samiðn skoðar vinnutíma

Samtök atvinnulífsins (SA) og iðnaðarmannafélögin ræddu um styttingu vinnuvikunnar í síðustu viku og samkvæmt frétt á vef Samiðnar er ekki ósennilegt að hægt verði að landa því máli í kjaraviðræðunum. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 545 orð | 1 mynd

Stuttur tímarammi til að ljúka málum

Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að hlutverk stjórnvalda muni ráða úrslitum um framhaldið í yfirstandandi kjaraviðræðum. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 338 orð | 2 myndir

Tvær rútur lentu utan vegar í aftakaveðri á Kjalarnesi

Magnús Heimir Jónasson Þorsteinn Ásgrímsson Þrír einstaklingar fengu minniháttar áverka í tveimur slysum sem áttu sér stað í gærkvöldi þegar tvær rútur með alls um 40 manns innanborðs fóru út af Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 93 orð | 1 mynd

Töp gegn stórþjóðunum í Köln á HM

Ísland tapaði fyrir Þýskalandi og Frakklandi á HM karla í handknattleik í Köln um helgina. Liðið mætir Brasilíu á morgun og þá kemur í ljós um hvaða sæti íslenska liðið spilar í keppninni. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 63 orð | 1 mynd

Veiðileyfissviptingu Kleifabergs frestað

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur ákveðið að fresta réttaráhrifum ákvörðunar Fiskistofu um að svipta togarann Kleifaberg RE 70 veiðileyfi sínu í tólf vikur vegna brottkasts, á meðan kæra Útgerðarfélags Reykjavíkur (ÚR) er til skoðunar. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 440 orð | 2 myndir

Vöruverð lækki með lækkun milligjalda

Fréttaskýring Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Lægri þjónustugjöld verða vegna kreditkortanotkunar og lægra vöruverð til neytenda verði frumvarp fjármálaráðherra um svonefnd milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur lögfest á Alþingi. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 296 orð | 1 mynd

,,Þetta er stórt skref í rétta átt“

Kennsla hefst seinna í grunnskólanum NÚ í Hafnarfirði heldur en hjá skólum hins opinbera og hefur fyrirkomulagið reynst vel, en í janúar og desember hefst kennslan klukkan 10 og er til kl. 15. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 490 orð | 1 mynd

Þingmenn taka upp þráðinn í dag

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Alþingi kemur saman á ný í dag eftir jólahlé og hefst þingfundur með munnlegri skýrslu forsætisráðherra og almennum umræðum um stöðuna í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin framundan. Meira
21. janúar 2019 | Innlendar fréttir | 207 orð

Þurfa að komast lengra

Jón Birgir Eiríksson Magnús Heimir Jónasson Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir samningsaðila þurfa að komast lengra í viðræðum sínum áður en stjórnvöld grípi til aðgerða til að greiða fyrir samningum. Meira

Ritstjórnargreinar

21. janúar 2019 | Leiðarar | 208 orð

Brugðið á gömul ráð

Arftakar Mugabes taka gagnrýni illa Meira
21. janúar 2019 | Staksteinar | 211 orð | 1 mynd

Jafnari og hærri tekjur hér á landi

Innan OECD eru öll þróuð ríki, þau ríki sem við berum okkur saman við. Hvergi innan OECD fer hærri hluti heildarframleiðslunnar í laun til almennings en á Íslandi, eða 63%. Meira
21. janúar 2019 | Leiðarar | 368 orð

Trump og Kim: Taka 2

Enn hefur lítið gerst eftir fundinn í fyrra. Vonandi verður meiri árangur af næsta fundi Meira

Menning

21. janúar 2019 | Kvikmyndir | 1218 orð | 2 myndir

„Þú veður ekki bara í svona rekstur og sýnir hvað sem er“

Það tók nokkur ár fyrir fólkið á bak við Bíó Paradís að ná tökum á rekstrinum og segir Hrönn Sveinsdóttir að lykillinn að góðri aðsókn hafi verið fólginn í að byggja upp stemningu í kringum sýningarnar: „Þær sýningar sem fólk var að biðja um á Facebook voru ekki alltaf vel sóttar. Ef t.d. fimmtíu manns höfðu verið að grenja yfir því á netinu að við þyrftum að sýna Predator, þá mættu kannski ekki nema sjö – þegar búið var að eyða bæði miklum tíma og peningum í að bóka myndina og auglýsa,“ segir hún. Meira
21. janúar 2019 | Fjölmiðlar | 191 orð | 1 mynd

Hungurmorða yfir sjónvarpinu

Undirrituð hefur lengi haft mikinn áhuga á mat. Að borða hann er þó helsta áhugamálið en skemmtilegt er þó líka að elda hann, mynda hann, skrifa um hann og lesa. Meira
21. janúar 2019 | Kvikmyndir | 143 orð

Pólverjarnir fylla bíóið

Bíó Paradís er menningarstofnun með ótal hlutverk, og nú síðast að kvikmyndahúsið er farið að skipa veigamikinn sess í menningarlífi aðfluttra Pólverja. Meira
21. janúar 2019 | Myndlist | 45 orð | 4 myndir

Sýningin Þetta vilja börnin sjá! var opnuð í Gerðubergi í gær en á henni...

Sýningin Þetta vilja börnin sjá! var opnuð í Gerðubergi í gær en á henni má sjá myndlýsingar úr íslenskum barnabókum sem komu út í fyrra. Slíkar sýningar hafa verið haldnar 16 sinnum áður og að þessu sinni taka 19 myndhöfundar þátt og sýna verk... Meira
21. janúar 2019 | Myndlist | 70 orð | 5 myndir

Tvær sýningar voru opnaðar í Ásmundarsafni í fyrradag, annars vegar ný...

Tvær sýningar voru opnaðar í Ásmundarsafni í fyrradag, annars vegar ný yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar, Undir sama himni, og hins vegar Skúlptúr og nánd, sýning á verkum Sigurðar Guðmundssonar. Meira

Umræðan

21. janúar 2019 | Aðsent efni | 838 orð | 1 mynd

Ísinn á Þingvallavatni og atburðir honum tengdir

Eftir Ómar G. Jónsson: "Ísbrestir sem heyrðust þarna gjarnan á vetrum á kyrrum vetrarkvöldum svo buldi í fjallasal Þingvalla- og Grafningsfjalla heyrast ekki lengur." Meira
21. janúar 2019 | Pistlar | 391 orð | 1 mynd

Mikið traust til kennara og vellíðan nemenda

Rannsóknastofa í tómstundafræðum birti á dögunum niðurstöður rannsóknarinnar Heilsa og lífskjör skólanema sem unnin er að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (e. WHO). Niðurstöðurnar byggjast á svörum rúmlega 7. Meira
21. janúar 2019 | Aðsent efni | 1830 orð | 1 mynd

Misnotkun Alþingis

Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson: "Þrátt fyrir áhuga þingforseta á málinu virðist hann ekki hafa neinn áhuga á að rannsaka brotið, hvað þá að verja þá sem urðu fyrir því. Markmiðin liggja í augum uppi og tilgangurinn helgar meðalið. Lög og réttur eiga að víkja í tilraunum forseta til að svala hefndarþorsta sínum." Meira
21. janúar 2019 | Aðsent efni | 884 orð | 1 mynd

Ríkistjórn Katrínar Jakobsdóttur og kjarasamningarnir

Eftir Gunnar Guðmundsson: "Það verður aldrei friður til frambúðar á íslenskum vinnumarkaði á meðan hróplegt launamisrétti er í gangi." Meira

Minningargreinar

21. janúar 2019 | Minningargreinar | 375 orð | 1 mynd

Árdís Jóna Freymóðsdóttir

Árdís Jóna Freymóðsdóttir fæddist 25. júlí 1922. Hún lést 27. september 2018. Bálför Árdísar hefur farið fram í Kaliforníu og jarðarför á Íslandi fór fram í kyrrþey. Meira  Kaupa minningabók
21. janúar 2019 | Minningargreinar | 600 orð | 1 mynd

Bjarni Bragi Jónsson

Bjarni Bragi Jónsson fæddist 8. júlí 1928. Hann lést 1. júlí 2018. Útför Bjarna fór fram 13. júlí 2018. Meira  Kaupa minningabók
21. janúar 2019 | Minningargreinar | 749 orð | 1 mynd

Elena Gurevich

Elena Gurevich fæddist í Moskvu 5. janúar 1957. Hún lést fyrir einu ári, 18. janúar 2018. Foreldrar hennar voru Aaron Ja. Gurevich, f. 12.5. 1924 í Moskvu, d. 5.8. 2006 í Moskvu, doktor í sagnfræði (PhD Hab. Meira  Kaupa minningabók
21. janúar 2019 | Minningargreinar | 119 orð | 1 mynd

Eymundur Kristjánsson

Eymundur Kristjánsson fæddist 12. október 1945. Hann lést 18. desember 2018. Útför hans fór fram 28. desember 2018. Meira  Kaupa minningabók
21. janúar 2019 | Minningargreinar | 129 orð | 1 mynd

Fjóla Steinsdóttir Mileris

Fjóla Steinsdóttir Mileris fæddist 27. maí 1923. Hún lést 25. desember 2018. Útför Fjólu fór fram 11. janúar 2018. Meira  Kaupa minningabók
21. janúar 2019 | Minningargreinar | 1165 orð | 1 mynd

Kristín Ingveldur Ingólfsdóttir

Kristín Ingveldur Ingólfsdóttir, Kiddý, fæddist 7. febrúar 1938. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 17. desember 2018. Foreldrar hennar voru Sigurjóna Anna Sófusdóttir, f. 26. janúar 1916, d. 16. febrúar 1984, og Ingólfur Eyjólfsson, f. 3. Meira  Kaupa minningabók
21. janúar 2019 | Minningargreinar | 820 orð | 1 mynd

Kristín Jóna Guðlaugsdóttir

Kristín Jóna Guðlaugsdóttir fæddist í Reykjavík 17. febrúar 1937. Hún lést á Landakoti hinn 7. desember 2018. Foreldrar hennar voru þau Guðlaugur Júlíus Þorsteinsson, stýrimaður og síðar fisksali, f. 27. júlí 1909 í Reykjavík, d. 9. Meira  Kaupa minningabók
21. janúar 2019 | Minningargreinar | 1093 orð | 1 mynd

Þórdís Jóhannesdóttir

Þórdís Jóhannesdóttir fæddist á Ferjubakka í Borgarhreppi 5. ágúst 1938. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 11. janúar 2019. Foreldrar hennar voru Eva Jónsdóttir frá Bíldudal í Arnarfirði og Jóhannes Einarsson, f. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

21. janúar 2019 | Viðskiptafréttir | 266 orð | 1 mynd

Framúrkeyrsla opinberra framkvæmda á niðurleið

Ný skýrsla Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) bendir til að kostnaðarstjórnun hins opinbera hafi farið batnandi undanfarin ár, og það heyri til undantekninga að mikil frávik verði frá kostnaðaráætlunum. Meira
21. janúar 2019 | Viðskiptafréttir | 274 orð | 1 mynd

Styttist í franskan skatt á netrisa

Bruno Le Maire, efnahags- og fjármálaráðherra Frakklands segir stjórnvöld þar í landi vinna að því að innleiða nýjan skatt á netfyrirtæki. Meira
21. janúar 2019 | Viðskiptafréttir | 156 orð | 1 mynd

Wall Street réttir enn úr kútnum

Bjartsýni á að takist að finna farsæla lausn á viðskiptadeilum Bandaríkjanna og Kína er talin ein helsta skýringin á að bandarísku hlutabréfavísitölurnar hækkuðu töluvert í síðustu viku. Meira

Daglegt líf

21. janúar 2019 | Daglegt líf | 183 orð | 1 mynd

Rithöfundur í fyrsta sinn valinn

Fyrir helgina var Sólveig Pálsdóttir rithöfundur útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness 2019. Þetta var í 23. sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnarness var valinn, sem nú er í fyrsta sinn rithöfundur. Nafnbót þessari fylgir einnar millj. kr.... Meira
21. janúar 2019 | Daglegt líf | 214 orð | 4 myndir

Veröld í deiglu

Á líðandi stundu. Litríkur gangur tilverunnar birtist í myndum fréttaveitunnar AFP. Veröldin öll er undir og margt brasar mannfólkið! Fögnum fjölbreytileika. Meira

Fastir þættir

21. janúar 2019 | Fastir þættir | 179 orð | 1 mynd

1. c4 e6 2. g3 d5 3. Bg2 Rf6 4. Rf3 dxc4 5. Da4+ Rbd7 6. Dxc4 a6 7. Dc2...

1. c4 e6 2. g3 d5 3. Bg2 Rf6 4. Rf3 dxc4 5. Da4+ Rbd7 6. Dxc4 a6 7. Dc2 c5 8. 0-0 b6 9. d4 Bb7 10. Rc3 cxd4 11. Rxd4 Bxg2 12. Kxg2 Bc5 13. Hd1 Dc8 14. e4 0-0 15. De2 Db7 16. f3 Re5 17. Bf4 Rg6 18. Be3 Hfd8 19. Rc2 Bxe3 20. Dxe3 Re5 21. Hd4 Hxd4 22. Meira
21. janúar 2019 | Í dag | 119 orð | 1 mynd

6 til 9 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif rífa...

6 til 9 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif rífa landsmenn á fætur með gríni og glensi alla virka morgna. Sigríður Elva les traustar fréttir á hálftíma fresti. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn. Meira
21. janúar 2019 | Í dag | 314 orð

Af limrugaldri

Sigurlín Hermannsdóttir segir svo frá á Leir á fimmtudaginn: „Ég fór í bráðskemmtilegt 75 ára afmæli Ragnars Inga og varð mér úti um nýju limrubókina hans. Frábær bók og nú hugsa ég bara í limrum. Meira
21. janúar 2019 | Árnað heilla | 47 orð | 1 mynd

Björgvin Helgi Jóhannsson

40 ára Björgvin er Reykvíkingur og tölvunarfræðingur. Maki : Ása Björk Valdimarsdóttir, f. 1988, tölvunarfræðingur hjá Cyren. Börn : Fenrir Breki, f. 2017. Foreldrar : Jóhann Helgi Helgason, f. 1959, leigubílstjóri, bús. Meira
21. janúar 2019 | Árnað heilla | 257 orð | 1 mynd

Björn O. Björnsson

Björn Hannes Ragnar Oddsson Björnsson fæddist í Kaupmannahöfn 21. janúar 1895. Foreldrar hans voru hjónin Oddur Björnsson, f. 1865, d. 1945, prentmeistari og prentsmiðjustjóri á Akureyri, og Ingibjörg Benjamínsdóttir, f. 1861, d. 1945, húsfreyja. Meira
21. janúar 2019 | Í dag | 88 orð | 2 myndir

Dánardagur Peggy Lee

Söng- og leikkonan Peggy Lee lést á heimili sínu í Bel Air á þessum degi árið 2002. Dánarorsökin var sykursýki og hjartaáfáll. Lee varð 81 árs gömul en hún fæddist 26. maí árið 1920. Meira
21. janúar 2019 | Í dag | 22 orð

Ef einhver er í Kristi er hann orðinn nýr maður, hið liðna varð að engu...

Ef einhver er í Kristi er hann orðinn nýr maður, hið liðna varð að engu, nýtt er orðið til. (Síðara Korintubréf 5. Meira
21. janúar 2019 | Fastir þættir | 171 orð

Feginleiki. N-AV Norður &spade;Á52 &heart;ÁD87 ⋄ÁD32 &klubs;D10...

Feginleiki. N-AV Norður &spade;Á52 &heart;ÁD87 ⋄ÁD32 &klubs;D10 Vestur Austur &spade;G10987 &spade;K4 &heart;1064 &heart;9532 ⋄75 ⋄KG104 &klubs;854 &klubs;ÁK6 Suður &spade;D63 &heart;KG ⋄986 &klubs;G9732 Suður spilar 3G. Meira
21. janúar 2019 | Árnað heilla | 262 orð | 1 mynd

Í lifandi málverki

Að aka til vinnu á Þingvöllum héðan úr Hveragerði á morgnana er gæðastund dagsins. Meira
21. janúar 2019 | Í dag | 94 orð | 1 mynd

Lög á bannlista

Þriðja sería amerísku stjörnuleitarinnar, American Idol, var sýnd í sjónvarpi á þessum tíma árið 2004. Fyrir slysni lak í fjölmiðla listi yfir lög sem ekki voru leyfileg í áheyrnarprufunum það árið. Meira
21. janúar 2019 | Í dag | 52 orð

Málið

Varla verður þetta tungunni að bana, en „fjölgun“ er ögn áberandi í nafnorðavæðingunni. Dæmi: „Mikil fjölgun er meðal þeirra“ sem annars fjölgar mikið . „Fjölgun þeirra sem eru of feitir er mest í Tyrklandi.“ Þ.e.a.s. Meira
21. janúar 2019 | Árnað heilla | 30 orð | 1 mynd

Ólafsfjörður Natalía Fönn Jónsdóttir fæddist 16. maí 2018 kl. 17.21. Hún...

Ólafsfjörður Natalía Fönn Jónsdóttir fæddist 16. maí 2018 kl. 17.21. Hún vó 2.896 g og var 47 cm löng. Foreldrar hennar eru Alda Hrönn Magnúsdóttir og Jón Bjarni Sigurjónsson... Meira
21. janúar 2019 | Árnað heilla | 54 orð | 1 mynd

Sigrún Vala Vilmundardóttir

30 ára Sigrún Vala fæddist í Vestmannaeyjum en býr á Selfossi. Hún er snyrtifr. á Snyrtistofunni Evu. Maki : Sindri Karl Kristinsson, f. 1989, bifvélavirki á Bílaþjónustu Péturs. Börn : Vilmundur Kristinn, f. 2011, og Patrekur Óliver, f. 2013. Meira
21. janúar 2019 | Fastir þættir | 591 orð | 4 myndir

Situr í viðsjárverðri stöðu

Við uppsetningu þessa pistil sl. laugardag var stöðumyndum víxlað þannig að textinn passaði ekki við þær. Er pistillinn því birtur aftur og beðist er velvirðingar á mistökunum. Meira
21. janúar 2019 | Árnað heilla | 205 orð

Til hamingju með daginn

95 ára Erna Kristjánsdóttir 90 ára Svanhildur L. Aðalsteinsdóttir 85 ára Alda Sófusdóttir Árni Reynir Óskarsson Ástdís Lilja Óskarsdóttir Margrét Guðmundsdóttir Ragnar Birkir Jónsson 80 ára Guðmundur Sigurjónsson Gunnar J. Meira
21. janúar 2019 | Árnað heilla | 742 orð | 3 myndir

Tvíburarnir frá Kóngsstöðum

Árni Reynir Óskarsson og Ástdís Lilja Óskarsdóttir fæddust 21. janúar 1934 á Sjúkrahúsinu á Akureyri en ólust upp á Kóngsstöðum í Skíðadal. Haustið 1949 fluttu tvíburarnir og foreldrar frá Kóngsstöðum til Dalvíkur. Meira
21. janúar 2019 | Fastir þættir | 291 orð

Víkverji

Margt forvitnilegt var að finna í Morgunblaði helgarinnar. Áhugaverð var frásögn af breytingum sem spáð er að verði á lífsháttum Vesturlandabúa. Hafragrautur í morgunmat, hrísgrjón í hádeginu og baunir í kvöldmat. Kjöt aðeins til spari. Meira
21. janúar 2019 | Í dag | 126 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

21. janúar 1918 Mesta frost hér á landi, 38 stig á Celcius, mældist á Grímsstöðum og Möðrudal á Fjöllum. Þessi vetur var nefndur frostaveturinn mikli. 21. Meira
21. janúar 2019 | Árnað heilla | 47 orð | 1 mynd

Þórir Þorsteinsson

40 ára Þórir er Keflvíkingur og er lögreglumaður hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Maki : Berglind Ósk Guðmundsdóttir, f. 1976, talmeinafræðingur hjá Reykjanesbæ. Börn : Andrea Ósk, f. 2003, og Ari Sævar, f. 2008. Foreldrar : Þorsteinn Marteinsson,... Meira

Íþróttir

21. janúar 2019 | Íþróttir | 74 orð | 1 mynd

Aníta og Guðbjörg Jóna fóru vel af stað

Fremstu hlaupakonur landsins, Aníta Hinriksdóttir og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, fara vel af stað í ár. Þær settu báðar mótsmet á Stórmóti ÍR í Laugardalshöll í gær. Guðbjörg í 200 metra hlaupi og Aníta í 800 metra hlaupi. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 367 orð | 1 mynd

England Southampton – Everton 2:1 • Gylfi Þór Sigurðsson lék...

England Southampton – Everton 2:1 • Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton og skoraði mark liðsins. Watford – Burnley 0:0 • Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 96 orð | 1 mynd

Fínir sprettir hjá Barein

Lærisveinar Arons Kristjánssonar í Barein höfnuðu í 20. sæti á heimsmeistaramóti karla í handbolta eftir 27:29-tap fyrir Austurríki í leiknum um 19. sætið í gær. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 55 orð | 1 mynd

Frumraun á stórmóti gegn heimsmeisturum

„Að sjálfsögðu var gaman að koma inn á leikvöllinn í fyrri hálfleik. Það hefur lengi verið draumur minn að leika á heimsmeistaramóti í handbolta með landsliðinu og ekki var það verra að draumurinn rættist í leik á móti heimsmeisturunum. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 208 orð | 1 mynd

Geysisbikar kvenna 8-liða úrslit: Stjarnan – Skallagrímur 71:49...

Geysisbikar kvenna 8-liða úrslit: Stjarnan – Skallagrímur 71:49 Snæfell – Haukar 72:68 Breiðablik – ÍR 80:44 Keflavík – Valur 71:89 1. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 152 orð | 1 mynd

Góðar 20 mínútur og tveir úr leik

Ívar Benediktsson Köln Íslenska landsliðið í handknattleik karla tapaði fyrir þýska landsliðinu með fimm marka mun, 24:19, í fyrsta leik sínum í milliriðlakeppni HM í handknattleik í Lanxess-Arena á laugardagskvöldið. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 607 orð | 2 myndir

Horft til framtíðar

Í Köln Ívar Benediktsson iben@mbl. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 138 orð | 2 myndir

Ísland – Frakkland22:31

Lanxess-Arena, Köln, milliriðlakeppni HM, annar leikur sunnudag 20. janúar 2019. Gangur leiksins : 0:2, 0:4, 2:7, 6:10, 8:13, 11:15 , 14:17, 14:21, 16:23, 18:24, 19:27, 22:31. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 99 orð | 1 mynd

Japanir neðstir

Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans, þurfti að sætta sig við tap í öllum sjö leikjum liðsins á HM karla í handbolta. Japan hafnar því í 24. og neðsta sæti mótsins eftir 29:32-tap fyrir Angóla í gær. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 332 orð | 1 mynd

Kristján í baráttunni

Svíar, undir stjórn Kristjáns Andréssonar, eru í mikilli baráttu um að komast í undanúrslit á HM karla í handknattleik og að spila þar af leiðandi um verðlaun. Svíþjóð hefur jafn mörg stig og Danmörk á toppi milliriðils II. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 20 orð | 1 mynd

KÖRFUKNATTLEIKUR Geysisbikar karla, 8-liða úrslit: Hertz-hellirinn: ÍR...

KÖRFUKNATTLEIKUR Geysisbikar karla, 8-liða úrslit: Hertz-hellirinn: ÍR – Skallagrímur 19.15 Ljónagryfjan: Njarðvík – Vestri 19.15 DHL-höllin: KR – Grindavík 19. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 315 orð | 2 myndir

Markaveisla í Liverpool

England Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Liverpool er enn með fjögurra stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 4:3-sigur á Crystal Palace á Anfield á laugardaginn var í 23. umferðinni. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 155 orð | 1 mynd

Meistararnir í miklu stuði í Eyjum

Íslands- og bikarmeistarar kvenna í handknattleik í Fram voru í miklu stuði í Vestmannaeyjum í gær og unnu átta marka sigur á öflugu liði ÍBV, 31:23, í Olís-deildinni. Leikurinn var liður í 13. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 202 orð | 1 mynd

MILLIRIÐILL I Leikið í Köln, Þýskalandi: Frakkland – Spánn 33:30...

MILLIRIÐILL I Leikið í Köln, Þýskalandi: Frakkland – Spánn 33:30 Þýskaland – Ísland 24:19 Brasilía – Króatía 29:26 Ísland – Frakkland 22:31 Staðan: Frakkland 4310113:997 Þýskaland 321083:655 Króatía 320180:754 Spánn 310281:812... Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 61 orð | 1 mynd

Olís-deild kvenna ÍBV – Fram 23:31 Staðan: Fram 13913376:30919...

Olís-deild kvenna ÍBV – Fram 23:31 Staðan: Fram 13913376:30919 Valur 12912300:24019 ÍBV 13715320:31415 Haukar 12705308:29114 KA/Þór 12516280:29311 Stjarnan 12336288:3239 HK 12318255:3187 Selfoss 12129288:3274 EHF-bikar kvenna A-riðill: Esbjerg... Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 77 orð | 1 mynd

Reykjavíkurmót karla A-riðill: Valur – Leiknir R 1:1 Víkingur R...

Reykjavíkurmót karla A-riðill: Valur – Leiknir R 1:1 Víkingur R. – Fjölnir 0:1 *Fjölnir 12, Leiknir R. 4, Valur 4, Víkingur R. 3, ÍR 0. Reykjavíkurmót kvenna Þróttur R. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 98 orð | 1 mynd

Sigur gegn Taívan í lokaleiknum

Ísland hafnaði í 5. sæti í 3. deild heimsmeistaramóts karla 20 ára og yngri í íshokkí en mótinu lauk í Skautahöllinni í Laugardal í gær. Ísland hafði betur gegn Taívan, 5:3, í leiknum um 5. sætið í gær. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 416 orð | 1 mynd

Skólabókardæmi um gott franskt landslið

Kristján Jónsson kris@mbl.is „Á heildina litið þá sjáum við að margt er hægt að laga hjá okkar liði, bæði í vörn og sókn. En einnig er margt gott í leik liðsins. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 150 orð | 1 mynd

Spánn Real Madrid – Sevilla 2:0 Huesca – Atlético Madrid 0:3...

Spánn Real Madrid – Sevilla 2:0 Huesca – Atlético Madrid 0:3 Barcelona – Leganés 3:1 Staða efstu liða: Barcelona 20144256:2146 Atlético Madrid 20118130:1341 Real Madrid 20113630:2436 Sevilla 2096531:2233 Alavés 2095622:2332 Getafe... Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 422 orð | 4 myndir

* Sverrir Ingi Ingason , landsliðsmaður í knattspyrnu, gæti verið á...

* Sverrir Ingi Ingason , landsliðsmaður í knattspyrnu, gæti verið á förum frá Rússlandi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er gríska félagið PAOK í viðræðum við Rostov um kaup á miðverðinum. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 75 orð | 1 mynd

Tvöfaldir bikarmeistarar úr leik

Tvöfaldir bikarmeistarar Keflavíkur eru úr leik í Geysisbikar kvenna í körfubolta eftir 71:89-tap á heimavelli fyrir Val í átta liða úrslitum í gær. Valskonur eru því komnar í undanúrslit. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 403 orð | 2 myndir

Var geggjað að koma inn á

Í Köln Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Að sjálfsögðu var gaman að koma inn á leikvöllinn í fyrri hálfleik. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 96 orð | 1 mynd

Vonbrigði hjá Patreki

Patrekur Jóhannesson stýrði Austurríki til 29:27-sigurs á Barein í leiknum um 19. sæti á heimsmeistaramóti karla í handbolta í gær. Með því lauk þátttöku Austurríkis á HM og verður niðurstaðan að teljast vonbrigði. Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 127 orð | 2 myndir

Þýskaland – Ísland 24:19

Lanxess-Arena, Köln, milliriðlakeppni HM, fyrsti leikur laugardaginn 19. janúar 2019. Gangur leiksins : 1:0, 1:1, 3:2, 5:4, 5:6, 6:6, 6:7, 9:8, 12:9, 14:10 , 15:11, 17:15, 18:15, 20:16, 22:17, 24:19 . Meira
21. janúar 2019 | Íþróttir | 459 orð | 2 myndir

Þær bestu settu mótsmet

Í Laugardal Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Aníta Hinriksdóttir og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, fremstu hlaupakonur Íslands í dag, settu báðar mótsmet á Stórmóti ÍR í Laugardalshöll í gær. Meira

Ýmis aukablöð

21. janúar 2019 | Blaðaukar | 265 orð | 1 mynd

300 handteknir við mótmælin

Franskar öryggissveitir hnepptu um 300 manns í varðhald sem efnt höfðu til spellvirkja eða veitt lögreglu mótstöðu á tíundu laugardagsmótmælum gulvestunga í röð. Meira
21. janúar 2019 | Blaðaukar | 148 orð | 1 mynd

Biðu bana á skíðahóteli í Courchevel

Tveir menn biðu bana og 20 slösuðust, þar af fjórir lífshættulega, í miklum eldsvoða í skíðabænum Courchevel í frönsku Ölpunum í gærmorgun. Um 60 manns var bjargað út úr brennandi þriggja hæða gistihúsi. Meira
21. janúar 2019 | Blaðaukar | 116 orð | 1 mynd

Eldur kom upp í þotu Cargolux

Flugmenn þotu Cargolux sendu út neyðarkall og sneru aftur til flugvallarins í Kuala Lumpur í Malasíu eftir að eldur kviknaði og reyk lagði inn í stjórnklefann. Atvikið átti sér stað síðastliðinn miðvikudag, 16. janúar. Meira
21. janúar 2019 | Blaðaukar | 75 orð

Kærður fyrir drónaflug við flugvöllinn

Karlmaður hefur verið kærður fyrir að fljúga dróna nærri Heathrow-flugvellinum við London á aðfangadag. Maðurinn, George Rusu, flaug drónanum á opnu svæði skammt frá flugbrautum. Meira
21. janúar 2019 | Blaðaukar | 404 orð | 1 mynd

Trump gremst synjun demókrata

Donald Trump Bandaríkjaforseti reiddist demókrötum í gær fyrir að hafna nýjustu tillögum hans til lausnar deilunni vegna lokunar ríkisstofnana. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.