Greinar föstudaginn 2. ágúst 2019

Fréttir

2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 28 orð | 1 mynd

Arnþór Birkisson

Sumarkvöld Nýi vitinn við Sæbrautina laðar fólk til sín og þar getur verið notalegt að fanga stemninguna á fallegu sumarkvöldi þegar sólin kastar geislum sínum yfir sundin... Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 88 orð | 1 mynd

Ákvörðunin ógild

„Manni finnst bara komið alveg nóg. Seljast þessar nýju íbúðir miðsvæðis? Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 111 orð | 1 mynd

Bjuggu til völl fyrir strandhandbolta

Unglingalandsmót UMFÍ fer nú fram á Höfn í Hornafirði um helgina. Þar er búist við um 8.000 gestum, þar af á annað þúsund keppendum á aldrinum 11-18 ára. Þeim fylgja síðan foreldrar, systkini, afar og ömmur, auk annarra stuðningsmanna. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 202 orð | 1 mynd

Bróðir Jóns fluttur til Dyflinnar

Daníel Örn Wiium hefur flutt tímabundið til Dublin, þaðan sem bróðir hans, Jón Þröstur Jónsson, hvarf sporlaust í febrúar. Segir hann að ákvörðunin hafi verið óundirbúin en hann flutti út snemma í júní. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 172 orð

Díselolía fór í set-tjörn í Elliðaárdal

Litlu mátti muna að slæmt mengunaróhapp ætti sér stað í gærmorgun þegar díselolía fór niður við Valshóla í Breiðholti. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 133 orð | 1 mynd

Dregur úr aukningu umferðar

Umferð á hringvegi í júlí jókst um 1,4% frá síðasta ári, en þetta er minnsta aukning í umferðinni í þessum mánuði síðan árið 2012. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 172 orð | 1 mynd

Ekkert komið fram sem bendir til íkveikju

Ekkert hefur komið fram í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á eldsvoða í húsnæðinu í Fornubúðum í Hafnarfirði á miðvikudagsmorgun sem bendir til íkveikju. Þetta kom fram á mbl.is í gær. Meira
2. ágúst 2019 | Erlendar fréttir | 277 orð | 2 myndir

Ekki taldar hafa mikil áhrif á fylgið

Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, þótti standa sig betur í sjónvarpskappræðum demókrata í fyrrinótt en fyrir mánuði þegar hann var álitinn fara halloka fyrir Kamala Harris, þingkonu í öldungadeildinni. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 316 orð | 2 myndir

Fasteignamarkaðurinn á Akureyri er í hringekju

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á fasteignamarkaði á Akureyri hefur verið ágæt sala að undanförnu og sérstaklega hefur aukið framboð af íbúðum í nýjum fjölbýlishúsum eflt markaðinn. Þetta segir Björn Guðmundsson, lögg. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 277 orð | 1 mynd

Fá ekki að byggja sjö hæða hús

Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi nýverið úr gildi ákvörðun borgarráðs Reykjavíkurborgar frá 2018 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi fyrir hluta Skúlagötusvæðis, sem lýtur að fyrirhugaðri byggingu að Frakkastíg 1. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 30 orð

Ferðahelgi nálgast

Vaxandi umferð var um þjóðvegi í gær, en í hönd fer mesta ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgi. Gríðarlegur fjöldi hefur þegar sótt Vestmannaeyjar heim, en þar fór fram Húkkaraball í gær. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 285 orð | 1 mynd

Fjárhæðirnar ekki tapaðar

Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Þúsundir launafólks, sem ekki hafa gengið frá kjarasamningum, fengu í gær 105.000 króna innágreiðslu vegna tafa á frágangi samninga. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 73 orð | 1 mynd

Fjölbreytilegur Innipúki á Grandanum

Fjölmargir höfuðborgarbúar steðja út á land um helgina en þeir sem heima sitja geta sótt hina sívinsælu hátíð Innipúkann sem í ár fer fram á nýjum stað, Grandagarði 8. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 1076 orð | 3 myndir

Formlegur endir á málinu

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að með afgreiðslu sérstakrar forsætisnefndar í tengslum við Klaustursmálið hafi öðru sinni verið reynt að efna til pólitískra réttarhalda hér á landi. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 160 orð | 1 mynd

Færeyskt skip stöðvað

Færeyska skipinu Stapin var fylgt til Vopnafjarðar og skipstjóri þess yfirheyrður, eftir að eftirlitsdróni Landhelgisgæslunnar stóð skipverja að verki við meint ólöglegt brottkast. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 449 orð | 2 myndir

Hvítu tjöldin reist fyrir Þjóðhátíð í Eyjum

Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Mikil spenna ríkir í Vestmannaeyjum um þessar mundir. Fjölmargir gestir komu til Eyja í gær en flestir sem ætla að verja verslunarmannahelginni á Þjóðhátíð sigla til Eyja í dag. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 706 orð | 6 myndir

Nýtt glæsihótel á Laugaveginum

Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is CenterHótel Laugavegur tekur á móti sínum fyrstu gestum í dag. Hótelið er á horni Laugavegar og Snorrabrautar. Vesturhluti þess er í nýbyggingu við Laugaveg en austurhlutinn í endurbyggðu húsi við Snorrabraut. Meira
2. ágúst 2019 | Erlendar fréttir | 740 orð | 1 mynd

Óttast útbreiðslu ebólu til grannríkja

Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Rúanda lokuðu í gær landamærunum að Austur-Kongó vegna skæðs ebólufaraldurs eftir að skýrt var frá þriðja smittilfellinu í austurkongósku borginni Góma en opnuðu þau aftur átta klukkustundum síðar. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 203 orð | 1 mynd

Skipin lífga upp á mannlífið á Ísafirði

Skemmtiferðaskipið Costa Mediterranea batt landfestar við Ísafjarðarhöfn á þriðjudaginn. Tæplega 2.500 farþegar skipsins voru fluttir í land, sem gerði sitthvað fyrir bæjarlífið að sögn Lindu Björgólfsdóttur, framkvæmdastjóra Vesturferða. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 113 orð

Super Break í Bretlandi er hætt rekstri

Breska ferðaskrifstofan Super Break er hætt rekstri. Hún hefur boðið upp á beinar flugferðir milli Bretlands og Akureyrar. Til stóð að bjóða upp á minnst 14 bein flug á milli vorið 2020. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 104 orð | 1 mynd

Tannlæknar sameinast

Tannlæknastofa Heimis Hallgrímssonar, fv. landsliðsþjálfara í knattspyrnu, hefur sameinast Tannlæknastofunni í Glæsibæ í Reykjavík. Sú síðarnefnda er með starfsemi í Glæsibæ og Faxafeni og nú bætast Vestmannaeyjar við. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 45 orð | 1 mynd

Theatre of Voices og Michala Petri í Hörpu

Hinn heimskunni blokkflautuleikari Michala Petri kemur fram ásamt rómaða Grammy-verðlaunakórnum Theatre of Voices í Norðurljósasal Hörpu á laugardagskvöldið kl. 19.30. Stjórnandi er Paul Hillier. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 317 orð | 2 myndir

Tóku höndum saman og keyptu píanó

Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Íbúar Hraunvangs 3 lögðust á eitt og söfnuðu fyrir píanói, svo hægt væri að halda viðburði og til dæmis tónleika, líkt og gert var á þriðjudaginn síðasta. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 261 orð | 1 mynd

Valgarð Briem

Valgarð Briem hæstaréttarlögmaður lést á Landspítalanum 31. júlí síðastliðinn. Hann var fæddur 31. janúar 1925 í Reykjavík, sonur hjónanna Ólafs Jóhanns Gunnlaugssonar Briem og Önnu Valgerðu Valgardsdóttur Briem, f. Claessen. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 368 orð

Vanáætlun veldur hækkun á íbúðum FEB

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Ófyrirséður kostnaðarauki veldur því að hækka þarf verð íbúða á vegum Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni í Árskógum í Reykjavík að því er fram kemur í bréfi sem var sent kaupendum í gær. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 599 orð | 3 myndir

Vegir á Vestfjörðum eru margir illa farnir

Fréttaskýring Guðni Einarsson gudni@mbl.is Klæðning sem var lögð á Bíldudalsveg árið 2017 er nánast alveg horfin af yfirborðinu og skín í burðarlag undir eldri klæðningu. Klæðningin er metin ónýt og einnig burðarlag vegarins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um úttektir á klæðningum á Vestfjörðum sem var gerð 11.-13. júní 2019. Skýrslan var gerð fyrir rannsóknasjóð Vegagerðarinnar og er eftir þá Gunnar Bjarnason og Pétur Pétursson. Hana má lesa á vef Vegagerðarinnar. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 275 orð | 1 mynd

Vilji ekki innflutt lambakjöt

Ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara ákvað í gær að leggja ekki til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að opna tollkvóta fyrir lambahryggi. 26. júlí ákvað nefndin hið gagnstæða og til stóð að opna á tollkvóta tímabilið 29. Meira
2. ágúst 2019 | Innlendar fréttir | 50 orð | 1 mynd

Þykkur mökkur lá yfir Borgarfirði í norðaustanáttinni

Þykkt mengunarmistur lá yfir Borgarfirði þegar ljósmyndari Morgunblaðsins flaug yfir Kleppjárnsreyki og Reykjadalsá í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var líklega um að ræða mengunarloft frá Evrópu sem hingað kom með hlýrri... Meira

Ritstjórnargreinar

2. ágúst 2019 | Leiðarar | 234 orð

Misnotkun persónuupplýsinga

Það er ekki sjálfsagt að hleypa Facebook inn í einkalíf sitt Meira
2. ágúst 2019 | Leiðarar | 373 orð

Verslunarmannahelgi

Hvers konar hátíð á að halda? Meira
2. ágúst 2019 | Staksteinar | 200 orð | 1 mynd

Öfugmæli sanntrúaðs

Sanntrúaður Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, ritar lofgjörð til Evrópusambandsins í Fréttablaðið í gær. Þar lýsir hann ánægju með EES-samninginn, en segir að hann sé þó aðeins „næstbesti kosturinn“. Besti kosturinn að mati Loga er full aðild að ESB „með möguleikum til ríkari áhrifa á daglegt líf okkar til framtíðar“! Meira

Menning

2. ágúst 2019 | Tónlist | 46 orð | 4 myndir

ASA tríó gladdi djassunnendur á lokasumartónleikum Múlans þetta árið sem...

ASA tríó gladdi djassunnendur á lokasumartónleikum Múlans þetta árið sem haldnir voru í Hörpu fyrradag. Tríóið hefur verið starfrækt frá árinu 2005 og gefið út ýmislegt efni jafnt í föstu formi sem og ýmsar hljómleikaútgáfur á stafrænu formi. Meira
2. ágúst 2019 | Kvikmyndir | 179 orð | 1 mynd

„Ég er orðin gömul og feit“

Leikkonan Kelly McGillis upplýsti nýverið í viðtali við Entertainment Tonight að ekki hefði verið leitað til hennar um að leika í framhaldsmyndinni um Top Gun frá 1986 sem nefnist Top Gun: Maverick og frumsýnd verður um mitt næsta ár. Meira
2. ágúst 2019 | Tónlist | 173 orð | 1 mynd

„Listagyðjan hefur yfirgefið mig“

Kanadíska tónlistarkonan KD Lang segist líta svo á að hún sé hálfpartinn sest í helgan stein og telur mögulegt að hún muni aldrei aftur hljóðrita nýja tónlist. „Ég finn enga þörf hjá mér til að semja nýja tónlist. Listagyðjan hefur yfirgefið mig. Meira
2. ágúst 2019 | Tónlist | 80 orð | 1 mynd

Hátíðin Woodstock 50 blásin af

Ákveðið hefur verið að blása af tónlistarhátíðina Woodstock 50 sem halda átti 16.-18. ágúst. „Það hryggir okkur að röð ófyrirséðra bakslaga útilokar að við getum haldið hátíðina,“ skrifar Michael Lang í yfirlýsingu til fjölmiðla. Meira
2. ágúst 2019 | Fjölmiðlar | 202 orð | 1 mynd

(H)legið í sófanum hjá Hemma Gunn

Á vef ríkisfjölmiðlanna má finna gamalt efni úr safni sjónvarpsins. Er það endursýnt á daginn og er aðgengilegt á vefnum. Þar á meðal þættirnir: Á tali hjá Hemma Gunn. Meira
2. ágúst 2019 | Myndlist | 479 orð | 2 myndir

Hæfi beint í hjartastað

Einar Falur Ingólfsson efi@mbl. Meira
2. ágúst 2019 | Kvikmyndir | 27 orð | 1 mynd

Keach fékk stjörnu

Bandaríski leikarinn Stacy Keach var í vikunni heiðraður með stjörnu sem felld var í Frægðarbrautina í Hollywood. Keach hefur einkum leikið lögreglumenn í fjölda kvikmynda og... Meira
2. ágúst 2019 | Myndlist | 131 orð | 1 mynd

Málverkið að hluta eftir Titian sjálfan

Eftir að vera hreinsað er málverk sem lengi hefur verið í eigu bresku hertoganna af Wellington, og sagt eftir lítt þekktan ítalskan listamann, nú sagt af sérfræðingum hafa verið málað á verkstæði ítalska endurreisnarmeistarans Titians (1488-1576). Meira
2. ágúst 2019 | Tónlist | 120 orð | 1 mynd

Menningarviðburðir norðan Djúps

Snjáfjallasetur og Steinshús standa að þremur viðburðunum við norðanvert Ísafjarðardjúp um helgina. Í kvöld, föstudag, kl. Meira
2. ágúst 2019 | Kvikmyndir | 210 orð | 1 mynd

Ósátt við að hæðst sé að föður hennar

Shannon Lee, dóttir Bruce Lee, er afar ósátt við þá mynd sem Quentin Tarantino dregur upp af föður hennar í myndinni Once Upon a Time ... in Hollywood . Þetta kemur fram í viðtali við hana í The Wrap . Meira
2. ágúst 2019 | Fjölmiðlar | 48 orð | 1 mynd

Stöð 2 kl. 21.10 White Boy Rick

Dramatísk mynd frá 2018, byggð á sönnum atburðum, með Matthew McConaughey og Richie Merritt sem segir sögu unglingsins Richards Wershe Jr. Meira

Umræðan

2. ágúst 2019 | Aðsent efni | 1437 orð | 1 mynd

Eðli og inntak EES-samnings

Eftir Vilhjálm Bjarnason: "Sjálfstæði og fullveldi er verndað með því að eiga í samvinnu við önnur lönd og aðrar þjóðir á jafnréttisgrundvelli." Meira
2. ágúst 2019 | Pistlar | 459 orð | 1 mynd

Hver er hinn raunverulegi kostnaður?

Fyrir okkur Íslendinga er ekki alltaf auðvelt að átta okkur á þeim raunveruleika sem heimurinn allur stendur frammi fyrir vegna hamfarahlýnunar. Meira
2. ágúst 2019 | Velvakandi | 166 orð | 1 mynd

Í svefni réttlátra

„Við sáum aldrei peninga, bara skuldir, sagði bóndinn í Uppsveit sem í fyrra tók u-beygju frá kindahaldi yfir í túristaúthald. Þó hafði hann haft óheftan aðgang að vænum hluta Íslands með afrétt fyrir sitt fé. Meira
2. ágúst 2019 | Aðsent efni | 397 orð | 1 mynd

Ofhitnun jarðar

Eftir Einar Ingva Magnússon: "Háalvarlegt ástand er að skapast vegna ofhitnunar jarðar." Meira
2. ágúst 2019 | Aðsent efni | 736 orð | 1 mynd

Um veiðar á hreindýrum, lífvænleika hreindýrskálfa og stjórnun hreindýrastofnsins

Eftir Áka Ármann Jónsson: "Að snúa út úr opinberum tölum er ekki málefnalegt og ekki ásættanlegt að bera slíkar rangfærslur ítrekað á borð til að afla sínum skoðunum fylgis." Meira

Minningargreinar

2. ágúst 2019 | Minningargreinar | 813 orð | 1 mynd

Anna Kristín Jónsdóttir

Anna Kristín Jónsdóttir fæddist 3. júní 1931. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 12. júlí 2019. Foreldrar hennar voru Jón Sigurðsson, f. í Krossgerði, Beruneshreppi, S-Múlasýslu 8. janúar 1879, d. 6. janúar 1964, og Ingibjörg Eyjólfsdóttir, f. Meira  Kaupa minningabók
2. ágúst 2019 | Minningargreinar | 1574 orð | 1 mynd

Gunnar Ámundason

Gunnar Ámundason fæddist í Hafnarfirði 30. október 1934. Hann lést á Hrafnistu Hafnarfirði 28. júlí 2019. Foreldrar hans voru Andrea Helga Ingvarsdóttir, f. 3.9. 1910 í Hafnarfirði, d. 21.4. 1986, og Ámundi Eyjólfsson, f. 29.9. Meira  Kaupa minningabók
2. ágúst 2019 | Minningargreinar | 1787 orð | 1 mynd

Hafdís Hannesdóttir

Hafdís Hannesdóttir fæddist í Reykjavík 19. febrúar 1950. Hún lést á Landspítalanum 24. júlí 2019. Foreldrar hennar eru Hannes Þórólfsson, f. í Litlu-Ávík í Árneshreppi 9. des. 1922, d. 24. nóv. 1990, lögregluþjónn, og Guðrún Kjartansdóttir, f. Meira  Kaupa minningabók
2. ágúst 2019 | Minningargreinar | 2042 orð | 1 mynd

Stefán Haukur Ólafsson

Stefán Haukur Ólafsson fæddist á Sigríðarstöðum í Vesturhópi í Vestur-Húnavatnssýslu 4. janúar 1927. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði 27. júlí 2019. Foreldrar Hauks voru Ólafur Dýrmundsson bóndi, f. 24.11. 1889, d. 18.2. Meira  Kaupa minningabók
2. ágúst 2019 | Minningargreinar | 659 orð | 1 mynd

Sveinn Skarphéðinsson

Sveinn Skarphéðinsson fæddist á Sauðárkróki 25. ágúst 1962. Hann lést 27. júlí 2019 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Foreldrar hans voru Skarphéðinn Pálsson, f. 5. sept. 1906, d. 8. des. 1978, og Þórleif Elísabet Stefánsdóttir, f. 27. mars 1918, d. 10. Meira  Kaupa minningabók
2. ágúst 2019 | Minningargreinar | 483 orð | 1 mynd

Þorvarður Geir Höskuldsson

Þorvarður Geir Höskuldsson fæddist 15. september 1954. Hann lést 15. júlí 2019. Útför Þorvarðar fór fram í kyrrþey 24. júlí 2019. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

2. ágúst 2019 | Viðskiptafréttir | 125 orð | 1 mynd

57,5 ma. velta með hlutabréf

Heildarviðskipti með hlutabréf í júlímánuði námu 57,7 milljörðum króna í Kauphöll Íslands. Að meðaltali námu viðskiptin því 2.507 milljónum á dag. Veltan reyndist 77% meiri en frá fyrri mánuði en í júní voru dagleg viðskipti að meðaltali 1. Meira
2. ágúst 2019 | Viðskiptafréttir | 349 orð | 1 mynd

5 milljarða tap á 2. ársfjórðungi

Heildartap Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi nam 40,9 milljónum Bandaríkjadala, eða rúmlega 5 milljörðum króna, samkvæmt hálfsársuppgjöri félagsins sem birt var í gærkvöldi. Meira
2. ágúst 2019 | Viðskiptafréttir | 117 orð | 1 mynd

Hagnaður jókst milli ára

Sælgætisgerðin Góa skilaði ríflega 90 milljón króna hagnaði í fyrra. Það er ríflega 18 milljón króna aukning frá árinu 2017 þegar hagnaðurinn nam tæplega 73 milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins fyrir árið 2018. Meira
2. ágúst 2019 | Viðskiptafréttir | 340 orð | 3 myndir

Lúxusmerki mjög líkleg

Baksvið Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins, segir enn á dagskrá hjá félaginu að fá inn lúxusvörumerkin Louis Vuitton, Gucci og Prada á Hafnartorg í Kvosinni í Reykjavík. Meira

Fastir þættir

2. ágúst 2019 | Fastir þættir | 173 orð | 1 mynd

1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. Bf4 Be7 4. a3 d5 5. h3 0-0 6. e3 b6 7. c4 Bb7 8...

1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. Bf4 Be7 4. a3 d5 5. h3 0-0 6. e3 b6 7. c4 Bb7 8. Rc3 c5 9. dxc5 bxc5 10. Be2 Rbd7 11. 0-0 Hc8 12. Hc1 He8 13. cxd5 exd5 14. Da4 Db6 15. Db5 a6 16. Dxb6 Rxb6 17. Hfd1 Bf8 18. Re5 h6 19. Rg4 Rh7 20. Bf3 g5 21. Bg3 f5 22. Re5 Rf6 23. Meira
2. ágúst 2019 | Í dag | 100 orð | 2 myndir

6 til 10 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif vakna með...

6 til 10 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif vakna með hlustendum K100 alla virka morgna. Þú ferð fram úr með bros á vör. Fréttir á klukkutíma fresti. 10 til 14 Erna Hrönn Skemmtileg tónlist og létt spjall með Ernu alla virka daga á K100. Meira
2. ágúst 2019 | Árnað heilla | 86 orð | 1 mynd

Kristbjörg Eiríksdóttir

50 ára Kristbjörg býr á Höfn í Hornafirði og hefur gert nær alla tíð. Hún lauk þar skyldunámi og starfar í Húsasmiðjunni. Börn: Sævar Ingi, f. 1997, Tómas Leó, f. 1998, og Steinar Logi, f. 2004. Kærasta Sævars er Selma Jóhannsdóttir, f. 1998. Meira
2. ágúst 2019 | Í dag | 51 orð

Málið

Vei þeim núlifandi víkingi er segði „drykkshorn“. Maklegast væri að taka af honum sverðið og flengja hann með því. Drykkur, um drykk, frá drykk, til drykkjar . Meira
2. ágúst 2019 | Í dag | 247 orð

Ný ljóðabók og fagurt á fjöllum

Það eru góð tíðindi að nú skuli Sigurlín Hermannsdóttir senda frá sér nýja bók, „Nágrannar, stuðlamál og stuttsögur“. Ég hlakka til að fá hana í hendur. Meira
2. ágúst 2019 | Árnað heilla | 85 orð | 1 mynd

Pétur Snorrason

40 ára Pétur er fæddur í Reykjavík og uppalinn á Seltjarnarnesi. Hann lærði húsasmíði í Iðnskólanum og hefur starfað við það síðan. Hann rekur eigið smíðafyrirtæki. Hann býr á Byggðarenda í Reykjavík. Börn: Gabríel, f. 2000, Snorri, f. 2001, Óttar, f. Meira
2. ágúst 2019 | Í dag | 96 orð | 1 mynd

Skyrbarir í Texas

Rósa Amelía Arnardóttir er ung stúlka og frumkvöðull sem ætlar sér stóra hluti með íslenskt skyr í Ameríku. Hún kíkti í heimsókn í Ísland vaknar og sagði söguna á bak við verkefnið. Meira
2. ágúst 2019 | Árnað heilla | 54 orð | 1 mynd

Theodór Jakob Guðmundsson

Theodór Jakob Guðmundsson er 75 ára í dag. Hann starfaði lengst af sem bókagerðarmaður. Þá spilaði hann með KR gegn Liverpool 1964 og varð Íslandsmeistari með liðinu 1968. Hann er ættaður frá Bolungarvík. Meira
2. ágúst 2019 | Árnað heilla | 982 orð | 3 myndir

Vinnudagurinn var langur

Guðmundur Hauksson fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1949. Hann bjó í Miðtúni 58 fyrstu tuttugu árin með fjölskyldu sinni. Guðmundur ólst upp í Túnunum í hópi líflegra krakka. Hann gekk til náms í Laugarnesskólanum og síðan í Verslunarskóla Íslands. Meira

Íþróttir

2. ágúst 2019 | Íþróttir | 82 orð

Arnar ráðinn til Roeselare

Arnar Grétarsson var í gær ráðinn þjálfari belgíska knattspyrnuliðsins Roeselare sem hafnaði í sjötta sæti B-deildarinnar þar í landi á síðasta tímabili. Þar með eru tveir íslenskir þjálfarar í deildinni en Stefán Gíslason tók við liði Lommel í sumar. Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 853 orð | 5 myndir

Átta daga umskipti Fylkis

12. umferð Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Heilt tímabil getur umturnast á átta dögum. Það fengum við svo sannarlega að sjá gerast hjá kvennaliði Fylkis í fótbolta dagana 23. til 31. júlí. Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 362 orð | 4 myndir

Blikar misstigu sig

Í Kópavogi Edda Garðarsdóttir eddagardars@gmail.com Þór/KA sótti eitt stig á heimavöll ríkjandi Íslandsmeistara Breiðabliks í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 498 orð | 4 myndir

Espanyol gaf Stjörnunni aldrei færi á kraftaverki

Í Garðabæ Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Heillastjörnurnar röðuðu sér ekki upp fyrir Stjörnuna í leitinni að kraftaverki í Garðabænum í gærkvöld þegar spænska stórliðið Espanyol kom í heimsókn í síðari viðureign liðanna í 2. Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 252 orð | 1 mynd

Ég skellti mér á Víkingsvöll 29. júlí síðastliðinn þar sem Víkingar...

Ég skellti mér á Víkingsvöll 29. júlí síðastliðinn þar sem Víkingar fengu Breiðablik í heimsókn í 14. umferð deildarinnar. Víkingar voru í fallsæti fyrir leikinn, liðið hafði ekki unnið leik síðan 23. júní, á meðan Breiðablik vann síðast deildarleik 22. Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 455 orð | 1 mynd

Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik – Þór/KA 0:0 Staðan: Breiðablik...

Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik – Þór/KA 0:0 Staðan: Breiðablik 13112043:1235 Valur 12111044:834 Þór/KA 1363424:2021 Selfoss 1261515:1519 Fylkir 1251615:2516 Stjarnan 1241711:2413 ÍBV 1240821:3112 Keflavík 1231821:2610 KR 1231812:2510... Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 438 orð | 3 myndir

* Rúnar Már Sigurjónsson landsliðsmaður í knattspyrnu skoraði fyrsta...

* Rúnar Már Sigurjónsson landsliðsmaður í knattspyrnu skoraði fyrsta mark kasakstönsku meistaranna Astana í gær þegar þeir sigruðu Santa Coloma frá Andorra, 4:1, í 2. umferð Evrópudeildarinnar. Liðin höfðu áður gert markalaust jafntefli í Andorra. Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 155 orð | 1 mynd

Sindri fyllir skarð Arnars á Akranesi

Skagamenn keyptu fyrirliða ÍBV, Sindra Snæ Magnússon, af Eyjamönnum í fyrrakvöld, rétt áður en lokað var fyrir félagaskiptin í knattspyrnunni innanlands á þessu ári. Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 416 orð | 1 mynd

Taka þarf nokkur skref til að komast inn á stórmót

Kristján Jónsson kris@mbl.is Eyjamaðurinn Arnar Pétursson verður næsti landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik og tekur við af Akureyringnum Axel Stefánssyni sem stýrði liðinu í þrjú ár. Meira
2. ágúst 2019 | Íþróttir | 613 orð | 4 myndir

Valsmenn úr leik eftir skell í Búlgaríu

Evrópudeild Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Valsmenn eru úr leik í Evrópukeppnunum í fótbolta í ár eftir 0:4-tap fyrir Búlgaríumeisturum Ludogorets á útivelli í gærkvöldi. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.