Greinar fimmtudaginn 12. mars 2020

Fréttir

12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 556 orð | 5 myndir

1.100 færri brottfarir en á sama tíma í fyrra

Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Alls 1.100 færri brottfarir voru frá Keflavíkurflugvelli til og með 8. mars en sama tímabil í fyrra. Fækkunin milli ára er sýnd á grafi hér til hliðar. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 187 orð | 1 mynd

900 manna herlið væntanlegt

Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Búist er við um 900 manna herliði hingað til lands í tengslum við varnaræfinguna Norðurvíkingur sem áætlað er að halda dagana 20.-26. apríl næstkomandi. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 135 orð | 1 mynd

Afgreiðslu TR lokað en fjarþjónusta er veitt

Afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins (TR) er lokuð meðan neyðarstig almannavarna varir. Í tilkynningu frá TR segir að hún bjóði upp á aukna fjarþjónustu fyrir viðskiptavini sína við þær aðstæður sem nú hafa skapast í samfélaginu vegna kórónuveirunnar. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 251 orð | 1 mynd

Blátindur verði ekki tifandi slysagildra

Framundan er að meta ástand Blátinds VE, gera kostnaðaráætlanir og greiningar um hvernig best sé að varðveita hann. Eins þarf að meta kostnað við förgun ef til þess kæmi. Sipið losnaði af stæði sínu við Skansinn í aftakaveðri 14. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 596 orð | 1 mynd

Blekið fraus í byttunni

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Guðrún Valdimarsdóttir frá Teigi í Vopnafirði er 100 ára í dag. „Árin líða eins og dagur eftir dag,“ segir hún, þar sem hún býr við gott atlæti á Sólvöllum á Eyrarbakka. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 133 orð | 1 mynd

Dráttarbáturinn Jötunn á söluskrá

Stjórn Faxaflóahafna sf. samþykkti á síðasta fundi sínum að fela hafnarstjóra að auglýsa dráttarbátinn Jötunn til sölu og ganga frá sölu bátsins þegar viðunandi tilboð lægi fyrir. Faxaflóahafnir hafa haft yfir að ráða fjórum dráttar- og hafnsögubátum. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 85 orð

Efnahagsspá Seðlabankans „úrelt“

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að lækka stýrivexti bankans um hálft prósent. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 519 orð | 3 myndir

Endurunnið sem aldrei fyrr

Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sigurvegarinn í rannsókn Sorpu á flokkun og endurvinnslu heimilissorps á síðasta ári er hinn almenni neytandi. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 1496 orð | 4 myndir

Fagnar fimmtugsafmæli í sóttkví

Viðtal Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Mér finnst eitthvað skemmtilegt við að vera öll saman lokuð inni á okkar eigin heimili. Mér finnst ekkert mál að aðlagast þessu, ég les heilmikið og þarf ekki að fara neitt eða gera neitt, af því að ég get það ekki. Engin pressa að hitta fólk, skutla eða sækja. Fyrir vikið er alveg nýr taktur í heimilislífinu. Þetta er mjög gott fyrir fjölskyldu að vera lokuð inni í tvær vikur, vera saman í núinu. Kannski er verið að segja okkur eitthvað í stóra samhenginu, þegar við erum tekin svona niður á jörðina og út úr öllum hraða nútíma samfélags,“ segir Marta Nordal leikkona, leikstjóri og núverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 139 orð | 1 mynd

Fimm þúsund fyrir merkt hrognkelsi

Nú í upphafi grásleppuvertíðar vekur Hafrannsóknastofnun athygli á merkingum, en stofnunin og BioPol ehf. á Skagaströnd hafa um langt árabil átt í samstarfi varðandi merkingar á hrognkelsum. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 127 orð | 1 mynd

Flugið í uppnámi

Samkvæmt greiningu Ferðamálastofu fækkaði brottförum erlendra farþega um 13% í janúar og um 11% í febrúar, miðað við fyrra ár. Alls komu 1.986 þúsund erlendir ferðamenn til landsins um Keflavíkurflugvöll í fyrra. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 432 orð | 3 myndir

Geðheilbrigði og aukið tæknilæsi til umræðu

Margrét Þóra Þórsdóttir skrifar frá Akureyri Fjölmörg og áhugaverð málefni bar á góma á bæjarstjórnarfundi unga fólksins sem haldinn var í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í vikunni, en Ungmennaráð Akureyrarbæjar hafði veg og vanda af undirbúningi... Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 162 orð | 1 mynd

Gestum fækkað

Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Eitthvað hefur borið á því að fólk mæti síður í jarðarfari vegna kórónuveirunnar sem veldur öndunarfærasjúkdómnum COVID-19. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 262 orð | 1 mynd

Geymslugjöld felld niður vegna COVID-19

Pósturinn mun fella niður geymslugjöld á pósthúsum til að minnsta kosti 1. apríl til að koma til móts við viðskiptavini sem eru í sóttkví eða einangrun vegna kórónuveirunnar sem veldur sjúkdómnum COVID-19. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 495 orð | 4 myndir

Gröf Rómúlusar sögð fundin

Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 47 orð | 1 mynd

Gústi guðsmaður sá eini á ferli

Mikil snjókoma var á landinu norðan- og austanverðu í gær. Á Siglufirði kyngdi niður snjónum og var styttan af Gústa guðsmanni heldur einmana þar til ljósmyndara bar að garði. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 134 orð | 1 mynd

Herjólfur lll var tekinn í þurrkví í Hafnarfirði

Herjólfur lll, eins og þessi gamla og trausta ferja heitir núna, var nýlega tekinn upp í þurrkví hjá Vélsmiðju Orms & Víglundar ehf. í Hafnarfirði. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 542 orð | 2 myndir

Horft til öryggis við úthlutun 5G-leyfa

Sviðsljós Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 405 orð | 1 mynd

Hver vill þróa starf í Toppstöðinni?

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt tillögu skrifstofa borgarstjóra og borgarritara um að auglýsa að nýju eftir samstarfsaðila um þróun Toppstöðvarinnar í Elliðaárdal. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 242 orð

Íhuga að loka á Evrópu

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, tilkynnti í gær að stofnunin skilgreindi nú útbreiðslu kórónuveirunnar sem heimsfaraldur. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 67 orð | 1 mynd

Kórónuveirufaraldurinn heldur áfram að breiðast út

Alls höfðu 90 tilfelli kórónuveirunnar verið staðfest hér á landi þegar Morgunblaðið fór í prentun í gær og rúmlega 700 einstaklingar voru í sóttkví. Kórónuveirufaraldurinn nær nú til 113 landa, og hafa rúmlega 124.000 tilfelli komið upp á heimsvísu. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 239 orð | 1 mynd

Landlæknir lokar móttöku sinni

Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir Ragnhildur Þrastardóttir Embætti landlæknis hefur nú ákveðið að loka móttöku embættisins. Áfram verður símasvörun hjá embættinu frá kl. 10-12 og aftur frá kl. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 290 orð | 2 myndir

Landsbankinn lækkar vextina

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Landsbankinn hyggst lækka vexti í kjölfar vaxtalækkunar Seðlabankans. Samkvæmt tilkynningu frá bankanum munu breytilegir vextir íbúðalána lækka um 0,40 prósentustig. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 179 orð

Leigusamningum fækkaði milli mánaða

Þinglýstum leigusamningum um íbúðarhúsnæði fækkaði verulega í febrúarmánuði frá mánuðinum á undan, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 140 orð | 1 mynd

Leyft að bera nafnið Vetrarsól

Mannanafnanefnd hefur fallist á beiðni umsækjanda um kvenkynsnafnið Vetrarsól. Skal færa nafnið sem eiginnafn á mannanafnaskrá. Mannanafnanefnd samþykkti beiðnina um eiginnafnið Vetrarsól 5. febrúar síðastliðinn. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 70 orð | 1 mynd

María syngur í hádeginu um vorið og vonina

Söngkonan María Magnúsdóttir kemur fram á hádegistónleikum í Borgarbókasafninu í Grófinni í dag kl. 12.15. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 133 orð

Náðu ekki samkomulagi í gær

Samningar náðust ekki á fundi Eflingar og samninganefndar sveitarfélaga í gær, en Félagsmenn Eflingar sem sinna ýmsum störfum í Kópavogi, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og sveitarfélaginu Ölfusi hafa verið í ótímabundnu verkfalli frá því á... Meira
12. mars 2020 | Erlendar fréttir | 371 orð | 1 mynd

Neyðarástandi lýst yfir í nítján ríkjum vestanhafs

Nítján ríki Bandaríkjanna höfðu í gær lýst yfir neyðarástandi vegna kórónuveirunnar eftir því sem dagblaðið Washington Post greindi frá. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 86 orð | 2 myndir

Ný Múmínlína komin

Það heyrir alltaf til tíðinda þegar nýjar vörur koma í Múmínlínuna frá Arabia enda um safngripi að ræða sem til eru á ansi mörgum heimilum. Að þessu sinni eru tvær nýjar vörulínur kynntar til leiks. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 831 orð | 8 myndir

Ólga, óvissa og Schumacher

FORMÚLAN Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Andrúmsloft óþols og óvissu hangir yfir Formúlu-1 þessa dagana. Nýtt keppnistímabil, hið 71. í röðinni, hefst í Melbourne í Ástralíu um komandi helgi og þangað hafa liðin verið að streyma með sitt hafurtask. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 139 orð | 1 mynd

Páskabjórinn kominn í Vínbúðirnar

Páskabjórinn er kominn í Vínbúðirnar. Alls verða 19 tegundir til sölu í ár að því er fram kemur í frétt á vinbudin.is. Þetta eru öllu fleiri tegundir en í fyrra en þá voru þær 14. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 242 orð | 1 mynd

Shake&Pizza og Eva Laufey í spennandi samstarf

Hin eina sanna Eva Laufey er komin í samstarf við Shake&Pizza þar sem hún kynnir til leiks fjórar nýjar pítsur sem hún hannaði og þykja afar frumlegar og spennandi. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 231 orð | 5 myndir

Skyldueign í hverjum kæliskáp

Komin er á markað ný kjúklingalína frá Ali sem ætti að gleðja hjörtu matgæðinga hér á landi. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 520 orð | 1 mynd

Stendur undir nafninu illviðravetur

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Febrúarmánuður var þriðji illviðramánuðurinn í röð á landinu. Og sá fjórði, marsmánuður, gæti bæst í hópinn, en gular viðvaranir voru í gildi á norðanverðu landinu í gær. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 154 orð | 1 mynd

Steypubifreið stolið

Lögregla veitti í gær stolinni steypubifreið eftirför frá Laugavegi og út á grasbala við Sæbraut. Bifreiðinni var stolið frá Vitastíg í gærmorgun samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 42 orð | 1 mynd

Tónleikasögustund með Gísla og Herdísi

Tónleikasögustund verður í menningarhúsinu Hannesarholti við Grundarstíg í kvöld kl. 20 með Gísla Helgasyni blokkflautuskáldi og Herdísi Hallvarðsdóttur bassaleikara. Þau hafa lengi fengist við tónlist, meðal annars með Grýlunum og Hálft í hvoru. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 544 orð | 4 myndir

Tæknivæddir frumherjar á heimsvísu

Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar stígur stórt skref í uppbyggingu æfingaaðstöðu innanhúss er nýtt húsnæði verður tekið í notkun næsta haust. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 346 orð | 1 mynd

Um 11% færri brottfarir frá Keflavíkurflugvelli

Fækkun brottfara erlendra farþega frá landinu í febrúarmánuði var allt að 11% frá sama mánuði á síðasta ári. Meira
12. mars 2020 | Erlendar fréttir | 428 orð | 1 mynd

Upphaf endaloka Sanders

Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, hefur sótt í sig veðrið eftir rólega byrjun í forkosningum Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 3. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 1080 orð | 3 myndir

Veiran hefur breytt kauphegðun fólks

Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Mjög hefur verið fjallað um kórónuveiru að undanförnu og afleiðingar hennar á íslenskt samfélag. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 79 orð | 1 mynd

Veita 28 milljónir vegna COVID-19

Rauði krossinn á Íslandi ákvað í gær með stuðningi utanríkisráðuneytisins að veita tæpar 28 milljónir króna til aðgerða Alþjóða Rauða krossins í Afríku og á Mið-Austurlöndum vegna öndunarfærasjúkdómsins COVID-19. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 187 orð

Verð á laxi lækkar á ný

Verð á laxi hefur tekið að falla á ný eftir skammlífa uppsveiflu í kjölfar mikillar lækkunar í byrjun árs. Stendur meðalverð nú á mörkuðum í 67,07 norskum krónum á kíló, jafnvirði 904 íslenskra króna, samkvæmt laxavísitölu Nasdaq. Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 211 orð | 2 myndir

Verðlaunaljósmyndari með fyrirlestur

Blaðaljósmyndarafélag Íslands efnir til fyrirlestrar í kvöld með Catalinu Martin-Chico í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23. Hefst fyrirlesturinn kl. 20 og er öllum opinn. Meira
12. mars 2020 | Innlent - greinar | 421 orð | 1 mynd

Verður miklu flottara „show“

Páll Óskar fagnar 50 ára afmæli sínu á mánudaginn kemur en tók ákvörðun í vikunni um að fresta stórafmælistónleikum sínum, sem halda átti í Háskólabíói um helgina, vegna kórónuveirunnar. Meira
12. mars 2020 | Erlendar fréttir | 86 orð

Weinstein fékk 23 ára fangelsisdóm

Kvikmyndamógúllinn Harvey Weinstein var í gær dæmdur í 23 ára fangelsi fyrir nauðgun og kynferðisbrot af dómstóli í New York. Hann var fundinn sekur af kviðdómi fyrir tveimur vikum. Weinstein hefði mest getað fengið 29 ára dóm fyrir brotin tvö... Meira
12. mars 2020 | Innlendar fréttir | 542 orð | 2 myndir

Þriðja stigs smitin orðin fjögur

Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Alls höfðu 90 manns greinst með kórónuveiruna sem veldur öndunarfærasjúkdómnum COVID-19 hér á landi um kvöldmatarleytið í gær. Meira
12. mars 2020 | Innlent - greinar | 350 orð | 1 mynd

Þurfum ekki að geyma allt föndur sem börnin gera

Virpi Jokinen, fyrsti vottaði skipuleggjandinn hér á landi, fræddi hlustendur K100 um leyndardóma skipulagningar í Síðdegisþættinum í vikunni. Meira

Ritstjórnargreinar

12. mars 2020 | Staksteinar | 241 orð | 1 mynd

Má ekki byggja á rannsóknum?

Vísindin efla alla dáð, sagði Jónas og undir það tók Háskóli Íslands. En nú eru það frekar mótmælafundir No Border Iceland – sem viðeigandi er að nefnt sé upp á erlenda tungu – og fleiri félagasamtaka sem efla „dáð“ Háskólans og fá hann til að hætta að aðstoða Útlendingastofnun við að finna út aldur þeirra sem koma hingað til lands og vilja dvelja hér, geta ekki fært sönnur á aldur sinn og þurfa þess vegna að gangast undir rannsóknir til að finna út hvort um börn er að ræða. Meira
12. mars 2020 | Leiðarar | 342 orð

Óvissa ýtir undir ótta

Ótti almennings er skiljanlegur og úr honum mun ekki draga á meðan talað er í gátum Meira
12. mars 2020 | Leiðarar | 325 orð

Treystum undirstöður

Nú þurfa Íslendingar á öllu að halda og mega ekki þvælast fyrir sjálfum sér Meira

Menning

12. mars 2020 | Fjölmiðlar | 209 orð | 1 mynd

Algert aðgengi og tímans tönn

Aðgengi að efni í fjölmiðlum er í raun orðið algert. Það er ekki lengur hægt að segja að maður hafi misst af einhverju í sjónvarpinu af því að maður var ekki heima kvöldið sem það var sýnt. Það er hægt að horfa og hlusta hvenær sem er. Meira
12. mars 2020 | Tónlist | 271 orð | 1 mynd

„Að uppskera fyrir sönginn öll þessi ár“

Hin ástsæla sópransönkona Sigrún Hjálmtýsdóttir – Diddú, hlaut í gærkvöldi heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna sem Samtón veitir og var hyllt af viðstöddum. Meira
12. mars 2020 | Kvikmyndir | 1620 orð | 8 myndir

„Allar myndirnar eru góðar“

viðtal Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Kvikmyndahátíðin Stockfish verður sett í kvöld með sýningu á dönsku heimildarmyndinni Q's Barbershop og stendur hátíðin yfir í ellefu daga, til og með 22. mars. Meira
12. mars 2020 | Leiklist | 2023 orð | 2 myndir

„Ástríðan fyrir leikhúsinu er meiri“

Viðtal Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er dásamlegt að vera kominn aftur í leikhúsið, enda hef ég alla tíð litið fyrst og fremst á mig sem leikhúsmann,“ segir Magnús Geir Þórðarson, sem um áramótin var skipaður þjóðleikhússtjóri til næstu fimm ára. Magnús Geir hefur víðtæka leiklistarreynslu sem leikstjóri og leikhússtjóri, því hann hefur stýrt þremur öðrum leikhúsum, þ.e. Leikfélagi Íslands 1995-2001, Leikfélagi Akureyrar 2004-2008 og Borgarleikhúsinu 2008-2014, þar til hann var útvarpsstjóri 2014-2019. Meira
12. mars 2020 | Tónlist | 154 orð | 1 mynd

Coachella verður haldin í október

Hinni vinsælu tónlistarhátíð Coachella í Suður-Kaliforníu, sem stóð til að halda um tvær helgar í apríl eins og vant er, hefur verið frestað vegna kórónuveirufaraldursins. Meira
12. mars 2020 | Hönnun | 109 orð | 1 mynd

HönnunarMars frestað fram í júní

Hinni vinsælu og árlegu hönnunarhátíð HönnunarMars mun verða seinkað í ár vegna kórónuveirufaraldursins. Meira
12. mars 2020 | Kvikmyndir | 888 orð | 2 myndir

Sumarið er tíminn...

Leikstjórn og handrit: Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson. Aðalleikarar: Þorsteinn Bachmann, Halldór Gylfason, Hilmir Snær Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Hjálmar Hjálmarsson og Þröstur Leó Gunnarsson. Ísland, 2020. 80 mín. Meira
12. mars 2020 | Tónlist | 56 orð | 1 mynd

Tónleikar um að það vori samt

Ásta Marý Stefánsdóttir sópransöngkona og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari koma fram á hádegistónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudag, og hefjast þeir klukkan 12. Meira
12. mars 2020 | Tónlist | 91 orð | 1 mynd

Tónlist Hildar á bíótónleikum

Margverðlaunuð tónlist Hildar Guðnadóttur við kvikmyndina Joker , sem færði henni bæði Óskars- og Bafta-verðlaun, verður flutt á tveimur tónleikabíósýningum hér á landi af Kvikmyndahljómsveit Íslands, SinfoniaNord. Meira
12. mars 2020 | Tónlist | 626 orð | 1 mynd

Vök og Auður sigursæl

Vök, Auður, Hildur Guðnadóttir, Kristín Anna, Grísalappalísa, Páll Ragnar Pálsson, Ásta og Ingi Bjarni Skúlason voru meðal vinningshafa á verðlaunahátíð Íslensku tónlistarverðlaunanna sem fram fór í Hörpu í gær og voru alls veitt 38 verðlaun auk... Meira

Umræðan

12. mars 2020 | Aðsent efni | 337 orð | 1 mynd

Aðgerðir sem gagnast öllum

Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson: "Aðgerðir stjórnvalda til að bregðast við fyrirsjáanlegum auknum hremmingum í samfélaginu gagnast ekki einungis fyrirtækjum í landinu heldur einnig launafólki." Meira
12. mars 2020 | Aðsent efni | 860 orð | 2 myndir

Ísland þrýsti á Tyrkland

Eftir Ögmund Jónasson: "Enn hefur NATÓ lýst stuðningi við ofbeldisaðgerðir Tyrkja. Getur það virkilega verið að ríkisstjórn Íslands þyki sæmandi að standa að slíkri yfirlýsingu og slíkum stuðningi? Ég leyfi mér að efast um að það sé í samræmi við íslenskan þjóðarvilja." Meira
12. mars 2020 | Aðsent efni | 337 orð | 1 mynd

Treystum fólkinu

Eftir Eyþór Arnalds: "Það væri við hæfi þegar við glímum við nýjan kórónuvírus að borgin létti byrðunum af þeim sem berjast nú í bökkum." Meira
12. mars 2020 | Velvakandi | 44 orð | 1 mynd

Útrýmum fátækt

Sú frétt sló mig verulega að 34.000 Íslendingar byggju við fátækt. Mér ofbauð þessi frétt. Hvernig má það vera að svona geti ástandið verið í einu ríkasta landi heims? Hér hafa stjórnmálamenn sannarlega brugðist, að hafa ekki tekið á þessari... Meira
12. mars 2020 | Aðsent efni | 681 orð | 1 mynd

Veiruleg tækifæri

Eftir Hildi Sólveigu Sigurðardóttur: "Heimsfaraldur skapar óvissu og kvíða en verður hugsanlega uppspretta tímabærra framfara og aukins frelsis mannkynsins. Er tilefni til bjartsýni?" Meira
12. mars 2020 | Pistlar | 429 orð | 1 mynd

Við tryggjum ekki eftir á!

Fyrsta kórónusmitið hér á landi greindist 28. febrúar. Aðeins um hálfum mánuði síðar eru þau orðin tæplega 100. Ég styrkist stöðugt í þeirri trú að grípa hefði átt til harðari aðgerða strax í upphafi. Meira
12. mars 2020 | Aðsent efni | 637 orð | 1 mynd

Það góða með því slæma

Eftir Guðmund Franklín Jónsson: "Það mátti vel hindra komu ferðamanna strax á flugstöðvum erlendis, sem voru með vegabréf frá sýktum svæðum t.d. eins og frá Kína." Meira

Minningargreinar

12. mars 2020 | Minningargreinar | 1102 orð | 1 mynd

Agnes Pálsdóttir

Agnes Pálsdóttir hárgreiðslumeistari fæddist í Reykjavík 25. nóvember 1947. Agnes lést á Landspítalanum, Fossvogi, 4. mars 2020. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Jóhanna Ólafsdóttir hárgreiðslumeistari, f. 30.8. 1915, d. d. 11.3. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 3310 orð | 1 mynd

Dagbjört Guðmundsdóttir

Dagbjört Guðmundsdóttir fæddist á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V-Skaftafellssýslu, 14. október 1931. Hún lést 23. febrúar 2020 á Hrafnistu í Hafnarfirði. Foreldrar hennar voru Guðmundur Bjarnason bóndi, f. 21. mars 1891, d. 7. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 721 orð | 1 mynd

Gísli Eyjólfsson

Gísli Eyjólfsson fæddist 1. mars 1932. Hann lést 25. febrúar 2020. Útför hans fór fram 11. mars 2020. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 617 orð | 1 mynd

Halldóra Elísabet Kristjánsdóttir

Halldóra Elísabet Kristjánsdóttir fæddist 25. júní 1944. Hún andaðist 29. feb. 2020. Halldóra var jarðsungin 11. mars 2020. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 1039 orð | 1 mynd

Matthildur Ó. Bjarnadóttir

Matthildur Ó. Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 27. maí 1952. Hún lést í Bandagerði á Lögmannshlíð á Akureyri 4. mars 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni S. Bjarnason og Ingunn Jónsdóttir. Bræður Matthildar eru Jón Bjarni, f. 16. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 889 orð | 1 mynd

Reinhold Greve

Reinhold Greve fæddist 10. september 1926 í Lübeck, Þýskalandi. Hann lést á Borgarspítalanum 3. mars 2020. Foreldrar hans voru Jóhannes Greve, f. 2.1. 1894, og Elisabet Eulert, f. 5.11. 1898. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 1602 orð | 1 mynd

Sólveig Hulda Jónsdóttir

Sólveig Hulda Jónsdóttir fæddist í Bolungarvík 1. ágúst 1934. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ 20. febrúar 2020. Foreldrar hennar voru Jón Hákon Kristjánsson stýrimaður, f. 13. september 1911, d. 29. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 2928 orð | 1 mynd

Steinvör Bjarnadóttir

Steinvör Bjarnadóttir fæddist 2. ágúst 1930 í Reykjavík. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 5. mars 2020. Foreldrar hennar voru Elín Guðmundsdóttir, f. í Ívarshúsum á Hvalsnesi 1. október 1897, d. 18. október 1974, og Bjarni Bjarnason vélstjóri, f. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 211 orð | 1 mynd

Steinvör Valgerður Þorleifsdóttir

Steinvör Valgerður Þorleifsdóttir fæddist 24. september 1963. Hún lést 26. febrúar 2020. Útför Steinvarar fór fram 11. mars 2020. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargreinar | 1475 orð | 1 mynd

Þorbjörg Elsa Magnúsdóttir

Þorbjörg Elsa Magnúsdóttir fæddist að Laugavegi 70 í Reykjavík 1. septembe 1928. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut 1. mars 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Magnús Skúlason, vélstjóri og trésmiður, frá Fossi í Mýrdal, f. 1896, d. Meira  Kaupa minningabók
12. mars 2020 | Minningargrein á mbl.is | 1368 orð | 1 mynd | ókeypis

Þorbjörg Elsa Magnúsdóttir

Þorbjörg Elsa Magnúsdóttir fæddist að Laugavegi 70 í Reykjavík 1.9. 1928. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut 1.3. 2020. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

12. mars 2020 | Viðskiptafréttir | 114 orð | 1 mynd

Borgun til Salt Pay

Alþjóðlega greiðslumiðlunarfyrirtækið Salt Pay Co Ltd. hefur keypt 63,5% hlut Íslandsbanka í greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun. Í tilkynningu frá bankanum segir að samhliða kaupi Salt Pay Co einnig eignarhlut Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf. Meira
12. mars 2020 | Viðskiptafréttir | 670 orð | 2 myndir

Fullkomin óvissa í kortunum

Baksvið Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Íslenski hlutabréfamarkaðurinn tók í gærmorgun vel í þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að lækka meginvexti bankans um 0,5 prósentur. Meira

Daglegt líf

12. mars 2020 | Daglegt líf | 507 orð | 2 myndir

Lungnateppa sé greind og meðhöndluð

Langvinn lungnateppa er langvinnur lungnasjúkdómur sem á oftast upptök sín löngu áður en hann er greindur. Sjúkdómurinn veldur öndunarerfiðleikum, því berkjurnar sem flytja loft til lungnanna eru að þrengjast og skemmast. Meira
12. mars 2020 | Daglegt líf | 231 orð | 1 mynd

Snúningur í rennibekknum

Yfirskrift sýningar Félags trérennismiða á Íslandi sem hefst næstkomandi sunnudag, 15. mars, í Borgarbókasafninu í Árbæ í Reykjavík, er Skáldað í tré, snúningur í rennibekk. Meira
12. mars 2020 | Daglegt líf | 818 orð | 4 myndir

Úthald, þol og andlega hliðin

Sprettur! Þúsundir Íslendinga æfa hlaup og geta nú fundið góð ráð í Hlaupabókinni eftir Arnar Pétursson. Hann segir hóf og fast mynstur í æfingum mikilvægt og í raun uppskrift að því að vel takist til. Meira

Fastir þættir

12. mars 2020 | Fastir þættir | 159 orð | 1 mynd

1. e4 e6 2. Rf3 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. d4 c5 6. dxc5 Rc6 7. Bf4...

1. e4 e6 2. Rf3 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. d4 c5 6. dxc5 Rc6 7. Bf4 Rxc5 8. Be2 Be7 9. 0-0 0-0 10. He1 f6 11. exf6 Bxf6 12. Bg3 Re4 13. Bd3 Rxg3 14. hxg3 Kh8 15. Dd2 e5 16. Bb5 e4 17. Rh2 Be6 18. Had1 Db6 19. Ba4 Bd4 20. Rf3 Bxc3 21. bxc3 Bg4 22. Meira
12. mars 2020 | Árnað heilla | 66 orð | 1 mynd

Auðunn Bergsveinsson

40 ára Auðunn er Akureyringur en býr í Garðabæ. Hann er hótelstjóri. Maki : Elísabet Kvaran, f. 1980, vinnur á veitingahúsinu Hjá Höllu. Börn : Anna Þrúður, f. 2003, Antonína Björk, f. 2007, og Viðar Darri, f. 2012. Foreldrar : Bergsveinn Auðunsson, f. Meira
12. mars 2020 | Í dag | 69 orð | 1 mynd

Chris Rock hættir með kærustunni

Chris Rock er hættur með kærustunni sinni leikkonunni Megalyn Echikunwoke eftir fjögurra ára samband. Meira
12. mars 2020 | Árnað heilla | 33 orð | 1 mynd

Demantsbrúðkaup

Í dag eiga hjónin Elín Kristmundsdóttir og Oddleifur Þorsteinsson 60 ára brúðkaupsafmæli. Þau gengu í hjónaband í Hrunakirkju 12. mars 1960. Oddleifur og Elín hafa búið í Haukholtum í Hrunamannahreppi allan sinn... Meira
12. mars 2020 | Fastir þættir | 176 orð

Liðin tíð. N-Enginn Norður &spade;10 &heart;ÁKG2 ⋄ÁKG8 &klubs;ÁK54...

Liðin tíð. N-Enginn Norður &spade;10 &heart;ÁKG2 ⋄ÁKG8 &klubs;ÁK54 Vestur Austur &spade;ÁG &spade;98754 &heart;9864 &heart;753 ⋄9432 ⋄5 &klubs;D96 &klubs;G1072 Suður &spade;KD632 &heart;D10 ⋄D1076 &klubs;83 Suður spilar 6⋄. Meira
12. mars 2020 | Í dag | 50 orð

Málið

Þegar sagt er um mann að hann sé óásjálegur þykir hann lítill fyrir mann að sjá, ekki álitlegur . Ýmislegt annað óásjálegt þykir lítilfjörlegt , lítilmótlegt, ómerkilegt. Meira
12. mars 2020 | Árnað heilla | 680 orð | 4 myndir

Samheldin og stór fjölskylda

Anna Júlíusdóttir er fædd 12. mars 1960 í Reykjavík og bjó fyrst í Skaftahlíð og síðan í Bólstaðarhlíð en fluttist 12 ára í Fossvoginn, í Haðaland 23. Meira
12. mars 2020 | Árnað heilla | 68 orð | 1 mynd

Sigrún Halldórsdóttir

70 ára Sigrún er fædd og uppalin á Ísafirði en býr nú í Hafnarfirði. Hún var skurðhjúkrunarfræðingur á St. Jósefsspítala en lengst af á Landspítalanum. Börn : Halldór, f. 1973, Hildigunnur, f. 1977, Björn Viðar, f. 1986, og Margrét, f. 1991. Meira
12. mars 2020 | Í dag | 264 orð

Veirubrautir og lífsins ólgupyttur

Ólafur Stefánsson yrkir braghendu: Fór í búð á föstudag í fyrri viku. Sprittað bæði' á brjóst og attan, bíta ætti' á veiruskrattann. Meira

Íþróttir

12. mars 2020 | Íþróttir | 52 orð | 1 mynd

Ari með Hauka til vorsins

Ari Gunnarsson var í gær ráðinn þjálfari kvennaliðs Hauka í körfuknattleik í stað Ólafar Helgu Pálsdóttur sem var sagt upp störfum á dögunum. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 76 orð | 1 mynd

Böðvar í hópnum gegn Rúmenum?

Svo virðist sem Böðvar Böðvarsson, vinstri bakvörður pólska félagsins Jagiellonia, verði í íslenska landsliðinu sem mætir Rúmeníu í EM-umspilinu á Laugardalsvellinum 26. mars. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 78 orð | 1 mynd

Dominos-deild kvenna KR – Skallagrímur 65:50 Snæfell &ndash...

Dominos-deild kvenna KR – Skallagrímur 65:50 Snæfell – Grindavík 79:65 Keflavík – Valur (frl) 94:85 Breiðablik – Haukar 75:67 Staðan: Valur 252232164:167144 KR 251871903:163536 Keflavík 241681795:170932 Skallagrímur... Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 73 orð | 1 mynd

Guðmundur í hópi þeirra efstu

Íslandsmeistarinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson varð efstur íslenskra kylfinga á Catalunya Resort Championship-mótinu í Barcelona sem lauk í gær. Mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni. Guðmundur Ágúst hafnaði í 7.-9. sæti á alls sjö höggum undir... Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 121 orð | 2 myndir

ÍBV – ÍR 29:31

Vestmannaeyjar, Olísdeild karla, miðvikudag 11. mars 2020. Gangur leiksins : 5:2, 6:5, 9:6, 11:9, 15:10, 17:12, 20:12, 2 0:14 , 21:16, 22:19, 25:23, 26:26, 29:28, 29:31 . Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 156 orð | 1 mynd

Kasakstan Astana – Ordabasy 1:1 • Rúnar Már Sigurjónsson lék...

Kasakstan Astana – Ordabasy 1:1 • Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 80 mínúturnar með Astana. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 326 orð | 2 myndir

Keflvíkingar sendu skilaboð

Körfubolti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Keflavík sendi öðrum liðum í Dominos-deild kvenna í körfubolta skilaboð með því að vinna 94:85-sigur á Íslandsmeisturum Vals á heimavelli. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 71 orð | 1 mynd

KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Origo-höllin: Valur...

KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Origo-höllin: Valur – KR 19.15 MG-höllin: Stjarnan – Haukar 19.15 Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – Fjölnir 19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍR 19.15 1. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 124 orð | 1 mynd

Olísdeild karla ÍBV – ÍR 29:31 Valur – HK 33:26 Fram &ndash...

Olísdeild karla ÍBV – ÍR 29:31 Valur – HK 33:26 Fram – Stjarnan 23:22 Afturelding – Fjölnir 25:21 Staðan: Valur 201424558:48530 Afturelding 201235545:52927 FH 191225569:51326 Haukar 191135512:49925 Selfoss 191216593:57425 ÍR... Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 774 orð | 1 mynd

Ótrúleg endurkoma ÍR

Handbolti Guðmundur Tómas Sigfússon Víðir Sigurðsson Einn af leikjum ársins í Olísdeild karla í handknattleik fór fram í gærkvöldi þegar ÍR-ingar unnu magnaðan endurkomusigur á nýkrýndum bikarmeisturum Eyjamanna. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 78 orð | 1 mynd

Óvæntur sigur Aftureldingar

Afturelding vann gríðarlega óvæntan sigur á HK, 33:30, í fyrsta leik nítjándu umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik að Varmá í gærkvöld. Þetta er fyrsti sigur Mosfellinga á tímabilinu en þeir eru fyrir nokkru fallnir úr deildinni. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 618 orð | 1 mynd

Stöðvaður á síðustu stundu

Kórónuveiran Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er enn í Brescia á Ítalíu og óvíst er hvort eða hvenær honum verður heimilað að fara þaðan til Íslands vegna landsleiksins gegn Rúmeníu 26. mars. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 89 orð | 1 mynd

Thea er á leiðinni til Árósa

Thea Imani Sturludóttir, landsliðskona í handknattleik, hefur samið við danska félagið Aarhus United um að leika með því frá og með næsta tímabili. Meira
12. mars 2020 | Íþróttir | 227 orð | 1 mynd

Verða áhorfendur á leik Íslands og Rúmeníu á Laugardalsvellinum 26...

Verða áhorfendur á leik Íslands og Rúmeníu á Laugardalsvellinum 26. mars? Fer sá leikur yfirleitt fram á þeim tíma? Á næstu vikum ætti að draga til úrslita á Íslandsmótunum í handbolta og körfubolta með tilheyrandi spennu og skemmtun. Meira

Ýmis aukablöð

12. mars 2020 | Blaðaukar | 1417 orð | 5 myndir

Fegurð á fjöllum

Hvað eiga Þjóðleikhúsið og Höskuldsskáli sameiginlegt? Við þessari spurningu eru án vafa mörg ólík svör en líklega er það besta tengt því að bæði þessi hús fá drjúgan hluta af persónuleika sínum í hrafntinnu. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.