Greinar fimmtudaginn 21. október 2021

Fréttir

21. október 2021 | Innlendar fréttir | 293 orð | 1 mynd

Beint flug úr norðannepjunni í sólina

Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Ferðaheimurinn er að lifna við eftir kórónuveirufaraldurinn og tilheyrandi takmarkanir sem honum fylgdu. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 284 orð

Besti ársfjórðungur Icelandair Group síðan 2019

Icelandair Group skilaði hagnaði í fyrsta sinn síðan árið 2019 á þriðja fjórðungi þessa árs. Tap félagsins nam 6,9 milljörðum á öðrum fjórðungi ársins og fjórum milljörðum á þeim fyrsta. Meira
21. október 2021 | Innlent - greinar | 439 orð | 7 myndir

Bestu hlaðvörpin frá Ása

Ásgrímur Geir eða Ási heldur úti hlaðvarpinu „Betri helmingurinn með Ása“ en hann mælir hér með sínum uppáhaldshlaðvörpum. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 493 orð | 2 myndir

Bjargar Adam og Evu

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Eden í Hveragerði brann til grunna fyrir rúmum áratug en útskornar útihurðir eftir Erlend F. Magnússon stóðu eftir. „Skelin bjargaðist, þökk sé slökkviliðsmanni sem sprautaði stöðugt vatni á hurðirnar að utanverðu,“ segir listamaðurinn og horfir hugfanginn á Evu upp við stofuvegginn og Adam liggjandi á búkkum framan við hann. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 560 orð | 1 mynd

Brugðist við hallarekstri kirkjunnar

Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Fyrir kirkjuþingi, sem hefst um helgina, liggur tillaga um að ráðningabann presta verði framlengt og að ráðist verði í hagræðingu á mannahaldi þjóðkirkjunnar m.a. með fækkun presta á tilteknum stöðum og sameiningu prestkalla. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 245 orð | 1 mynd

Býst við að smitum fari brátt fjölgandi

Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir líklegt að kórónuveirusmitum eigi eftir að fjölga á næstunni en í fyrradag greindust 66 smit innanlands. Átta sjúklingar liggja á Landspítalanum vegna Covid-19, allir fullorðnir. Meira
21. október 2021 | Erlendar fréttir | 80 orð | 1 mynd

Drottningunni ráðlagt að hvíla sig

Elísabet 2. Bretadrottning frestaði í gær fyrirhugaðri heimsókn sinni til Norður-Írlands að læknisráði. Sagði í yfirlýsingu frá bresku krúnunni að læknar hefðu ráðlagt drottningunni að hvíla sig næstu daga, en hún er 95 ára gömul. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 24 orð | 1 mynd

Eggert

Spilað Mannlífið í miðbænum færist í aukana, enda styttist í aðventuna. Hljómsveitin Mandólín lék fyrir gesti bókabúðar Máls og menningar eitt kvöldið í... Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 1049 orð | 2 myndir

Ein blaðsíða í Sjálfstæðu fólki á viku

Viðtal Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 955 orð | 4 myndir

Eldað fyrir einn

Nanna Rögnvaldar er ókrýnd drottning íslenskra matarbókmennta en á dögunum sendi hún frá sér nýja bók sem ber titilinn Borð fyrir einn. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 284 orð | 1 mynd

Eskja hf. fyrst til að kolefnisjafna

Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Eskja hf. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 464 orð | 1 mynd

Eyrarrokk á Akureyri um helgina

Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Eyrarrokk er tónlistarhátíð sem haldin verður í fyrsta sinn á Akureyri nú um komandi helgi, föstudag og laugardag. „Þessi hátíð er okkar framlag til að auka við annars fjölbreytt tónlistarlíf á Akureyri,“ segja þeir Rögnvaldur Bragi, Sumarliði Helgason og Helgi Gunnlaugsson sem standa fyrir tónlistarveislunni sem fram fer á Verkstæðinu við Strandgötu 53 á Akureyri, þar sem í eina tíð var Oddviti og síðar Norðurslóðasafn. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 236 orð | 1 mynd

Facebook trónir enn á toppnum

Facebook er enn sem áður mest notaði samfélagsmiðillinn meðal fullorðinna Íslendinga en níu af hverjum tíu segjast nota miðilinn. Þetta kemur fram í nýrri samfélagsmiðlagreiningu greiningarfyrirtækisins Gallup. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 339 orð | 2 myndir

Flogið frá Akureyri til Amsterdam

Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Hollenska ferðaskrifstofan Voigt Travel mun hefja vetrarflug frá Amsterdam til Akureyrar eftir áramót, fyrsta flugið er 11. febrúar 2022. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 1078 orð | 3 myndir

Framkvæmdastjóri með svuntu

Viðtal Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 631 orð | 2 myndir

Fyrst mælt fyrir um uppkosningar 1903

Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Uppkosning er orð sem er svo fáheyrt að það rataði ekki inn í orðabók Menningarsjóðs. En eftir hina dæmalausu atburðarás í kjölfar talningarinnar í Borgarnesi er sá möguleiki fyrir hendi að endurtaka þurfi atkvæðagreiðsluna í Norðvesturkjördæmi. Það kallast uppkosning á lagamáli. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 630 orð | 3 myndir

Gamla bólverkið verður sýnilegra

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Unnið er að breytingum og lagfæringum á einu sögufrægasta húsi Reykjavíkur, Bryggjuhúsinu Vesturgötu 2. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 153 orð | 1 mynd

Góðar horfur hjá Icelandair Group

Icelandair Group skilaði hagnaði upp á tvo og hálfan milljarð króna á þriðja fjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins sem verður kynnt á fjarfundi í dag. Meira
21. október 2021 | Erlendar fréttir | 249 orð | 1 mynd

Hvetur til aukinna bólusetninga

Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði í gær að Rússar fengju vikufrí úr vinnu á launum frá 30. október næstkomandi. Er aðgerðinni ætlað að stemma stigu við auknum fjölda kórónuveirusmita í landinu, en 1. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 337 orð | 1 mynd

Íbúðarhús í stað bensínstöðvar

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Atlantsolía hefur verið í viðræðum við Reykjavíkurborg um að loka bensínstöð fyrirtækisins við Háaleitisbraut 12. Áformar Atlantsolía að fjarlægja stöðina og breyta notkun lóðarinnar í íbúðabyggð. Meira
21. október 2021 | Innlent - greinar | 451 orð | 1 mynd

Jón og Baldur stefna hátt

Jón Arnór, 15 ára og Baldur, 14 ára eru saman í hljómsveit og gáfu á dögunum út lagið Partý í kvöld (Arí Arí Ó) í samvinnu við stjörnuframleiðanda frá LA sem hefur meðal annars unnið með Miley Cyrus, Selenu Gomez og Katy Perry. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 453 orð | 1 mynd

KS heldur matargjöfunum áfram

Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl. Meira
21. október 2021 | Erlendar fréttir | 117 orð | 1 mynd

Leggja til ákæru á hendur Bolsonaro

Nefnd á vegum öldungadeildar brasilíska þingsins lagði til í gær að Jair Bolsonaro, forseti landsins, yrði ákærður vegna þess hversu slælega hann hefði brugðist við heimsfaraldrinum. Rúmlega 600. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 433 orð | 1 mynd

Loftbrú til að koma bók Láru og Ljónsa til landsins

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Bókaunnendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að grípa í tómt þegar kemur að því að kaupa vinsælustu titlana í jólabókaflóðinu. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 519 orð | 1 mynd

Málmar úr norðri gætu nýst í Evrópu

Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Góðir möguleikar eru taldir á Norðurlöndum til vinnslu á málmum og öðrum jarðefnum til notkunar í tækni í lágkolefnishagkerfum framtíðarinnar í Evrópu. Í nýrri skýrslu er augunum ekki síst beint að norðanverðri Skandinavíu og Grænlandi, auk hefðbundinna málmvinnslusvæða á Norðurlöndum. Á Íslandi eru meðal annars nefnd svæði í Lóni þar sem sé að finna títan og kopar. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 119 orð | 1 mynd

Milli fjalls og fjöru frumsýnd í dag

Milli fjalls og fjöru nefnist ný heimildarmynd eftir Ásdísi Thoroddsen sem frumsýnd er í Bíó Paradís í dag. „Í kvikmyndinni er fjallað um skógrækt 20. aldar til okkar tíma þar sem nauðsyn skógræktar verður æ meiri til að sporna við hamfarahlýnun. Meira
21. október 2021 | Innlent - greinar | 112 orð | 1 mynd

Mætti í buxum og kjól

Harry Potter-stjarnan Emma Watson vakti athygli á græna dreglinum á Earthshot-verðlaunahátíðinni í London um helgina. Watson var ekki bara í hvítum kjól heldur einnig í svörtum buxum. Fötin voru umhverfisvæn í anda verðlaunanna. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 232 orð | 1 mynd

Náðu að staðfesta ártalið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Lengi hafa verið uppi getgátur um viðveru norrænna manna í Norður-Ameríku fyrir um þúsund árum. Nú telja vísindamenn sig hafa sannað búsetu þeirra á Nýfundnalandi, árið 1021. Meira
21. október 2021 | Erlendar fréttir | 628 orð | 3 myndir

Ný „Spútník-krísa“ runnin upp?

Sviðsljós Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 113 orð | 1 mynd

Nýtt vegstæði í botni Tálknafjarðar

Tálknafjörður | Starfsmenn Borgarverks hafa unnið við það síðustu daga að leggja slitlag á nýjan veg fyrir botni Tálknafjarðar. Alls er um 1,8 km kafla að ræða en einnig var smíðuð tvíbreið brú yfir Botnsá, 20 metra löng. Meira
21. október 2021 | Innlent - greinar | 566 orð | 2 myndir

Ráðlagður dagskammtur af drama með Ernu Hrund

Erna Hrund Hermannsdóttir áhrifavaldur mun stýra nýjum þáttum sem aðgengilegir verða í Sjónvarpi Símans Premium í vetur. Þættirnir bera titilinn Rósin, sem er tilvísun í aðalútgangspunkt Bachelorette-þáttanna. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 477 orð | 1 mynd

Rækjan enn veikburða

Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Illa hefur gengið að byggja upp rækjustofna í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi ef marka má tækniskýrslur og ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar vegna rækjuveiða á fiskveiðiárinu 2021/2022. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 126 orð

Sátt í skaðabótamáli gegn Sorpu

Stjórn Sorpu hefur samþykkt að ganga til samninga við Björn Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins, en Björn höfðaði skaðabótamál gegn Sorpu eftir að honum var sagt upp störfum í byrjun síðasta árs. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 365 orð | 3 myndir

Sorpa semur við Björn

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég held að það sé best fyrir alla að þetta sé frágengið og við getum farið að snúa okkur að uppbyggingunni,“ segir Líf Magneudóttir, formaður stjórnar Sorpu. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 137 orð | 1 mynd

Stuðningur við lang-veik börn

Barnauppeldissjóður Thorvaldsensfélagsins hefur gefið út árlegt jólamerki sitt en allur ágóði af sölunni rennur óskertur til líknarmála sem tengjast börnum. Félagið hefur staðið að útgáfunni allt frá árinu 1913, eða í 108 ár. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 379 orð | 1 mynd

Talningarsalurinn var ólæstur

Baldur S. Blöndal Oddur Þórðarson Dyr inn í talningarsal á Hótel Borgarnesi voru ólæstar á meðan kjörgögn úr Norðvesturkjördæmi lágu þar inni óinnsigluð eftir að talningu lauk í kjölfar þingkosninganna í síðasta mánuði. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 255 orð | 2 myndir

Veitu- og orkufyrirtæki bæta netöryggi

Aðildarfyrirtæki Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, og norska fyrirtækið KraftCert hafa gert með sér samstarfssamning um varnir og viðbúnað fyrir netöryggi. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 54 orð | 1 mynd

Viðgerðir í vetrargeislum

Viðgerðarmenn sinntu reglubundnu viðhaldi á fjarskiptamastri við Þorlákshöfn í gær. Fjarskiptainnviðir á Íslandi hafa verið í sviðsljósinu undanfarna daga. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 246 orð | 1 mynd

Þekkingarmiðuð löggæsla

Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Á sama tíma og flækjustig brotastarfsemi hefur aukist hefur lögreglan aldrei haft jafn mikinn aðgang að rafrænum upplýsingum og nú. Meira
21. október 2021 | Innlendar fréttir | 116 orð | 1 mynd

Þingvallabærinn lagfærður

Þingvallabærinn, aðsetur þingvallanefndar, þjóðgarðsvarðar og prests, og sumardvalarstaður forsætisráðherra, verður ónothæfur næstu vikur og jafnvel mánuði, þar sem umfangsmiklar viðgerðir á þakklæðningu bæjarins standa nú yfir. Meira

Ritstjórnargreinar

21. október 2021 | Staksteinar | 212 orð | 1 mynd

Minnisvarði um lýðræðisstefnu?

Reykjavíkurborg samþykkti í fyrradag „lýðræðisstefnu“ og gildir hún til ársins 2030 þegar óvissa um lýðræði í borginni tekur við á ný. Og það er ekki nóg með að samþykkt hafi verið lýðræðisstefna, heldur liggur einnig fyrir „aðgerðaáætlun“, sem tryggir auðvitað að stefnan verður ekki orðin tóm. Stefnudrögin voru unnin í „opnu samráðsferli“ og að auki voru handahófsvaldir „rýnihópar“ fengnir til að „ræða lýðræðismál“. Þá voru haldnir „vinnufundir í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar“ til að undirbúa stefnuna og „opinn rafrænn fundur“ um framtíð lýðræðisins í Reykjavík. Meira
21. október 2021 | Leiðarar | 679 orð

Þrengt að Póllandi

Það er ekki víst að það sé skynsamlegt af ESB til lengdar að ganga svo hart fram gegn Póllandi Meira

Menning

21. október 2021 | Bókmenntir | 525 orð | 1 mynd

„Áráttuhneigð sem er erfitt að losna við“

Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Jón Hjartarson hlaut í gær Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2021 fyrir handrit sitt að ljóðabókinni Troðningar . Afhenti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri honum verðlaunin við athöfn í Höfða. Meira
21. október 2021 | Dans | 1182 orð | 3 myndir

„Eigum fallega listræna samleið“

Viðtal Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Orðið aiôn kemur úr grísku og vísar, ásamt orðunum kairos og chronos, í þrjár mismunandi tegundir af tíma. Meira
21. október 2021 | Menningarlíf | 1122 orð | 2 myndir

„Hún heillaði mig upp úr skónum“

Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Ég ber mikla virðingu fyrir Vigdísi og er mjög heilluð af henni sjálfri og líka af þeirri staðreynd að kona geti verið forseti. Meira
21. október 2021 | Bókmenntir | 741 orð | 8 myndir

Fjölbreyttar bækur Sölku

Á útgáfulista bókaforlagsins Sölku er venju fremur fjölbreytt útval bóka, veiðibækur, matreiðslubækur, barnabækur, bækur um gönguferðir, fjármálalæsi, glæpi og hlutabréfaviðskipti. Meira
21. október 2021 | Kvikmyndir | 622 orð | 2 myndir

Hjónabandssæla?

Leikstjórn: Christoffer Boe. Handrit: Christoffer Boe og Tobias Lindholm. Kvikmyndataka: Manuel Alberto Claro. Tónlist: Anthony Lledo og Mikkel Maltha. Aðalleikarar: Katrine Greis-Rosenthal, Nikolaj Coster-Waldau og Flora Augusta. Danmörk, 2021. 104 mínútur. Meira
21. október 2021 | Tónlist | 96 orð | 1 mynd

Saman á ný með Vocal Project

Poppkórinn Vocal Project kemur fram á tónleikum í Guðríðarkirkju í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20 undir yfirskriftinni Saman á ný. „Það er söngþyrstur hópur sem bíður þess að halda fyrstu tónleikana í tæp tvö ár. Meira
21. október 2021 | Fjölmiðlar | 199 orð | 1 mynd

Skyggnst að tjaldabaki fjölmiðla

Sagt er að fjölmiðlafólk sé sjálfhverft, að fjölmiðlar fjalli meira um fjölmiðla en tilefni sé til. Meira
21. október 2021 | Menningarlíf | 64 orð | 1 mynd

Volk fjallar um samtímamyndlist

Bandaríski sýningarstjórinn og listgagnrýnandinn Gregory Volk heldur í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20 fyrirlestur í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Meira

Umræðan

21. október 2021 | Aðsent efni | 370 orð | 1 mynd

Húsnæðisskortur í borginni

Eftir Hildi Björnsdóttur: "Borgarstjóri segir umræðu um húsnæðismál vera pólitískt útspil. Það er sérkennilegt viðhorf þegar húsnæðismál eru grundvallarmál í lífi borgarbúa." Meira
21. október 2021 | Velvakandi | 165 orð | 1 mynd

Hvar eru strákarnir?

Eins og fleiri hlusta ég á útvarp, og meina þá rásirnar tvær á Rúv, hvor annarri betri. Þar koma fram margir stjórnendur, viðmælendur, lesarar og pistlahöfundar. Meira
21. október 2021 | Aðsent efni | 478 orð | 2 myndir

Íslendingar heimsmeistarar í bridge

Eftir Jafet Ólafsson: "„Það mun enginn muna hverjir voru númer tvö, þið verðið að vinna.“ Mönnum hljóp kapp í kinn og þetta gekk eftir. Fyrsta sæti og Bermúdaskálin í höfn." Meira
21. október 2021 | Pistlar | 359 orð | 1 mynd

Samningar um þjónustutengda fjármögnun

Í samræmi við heilbrigðisstefnu hefur á síðustu árum verið unnið að því að innleiða þjónustutengda fjármögnun í heilbrigðiskerfinu. Slík fjármögnun hefur tíðkast um árabil í nágrannalöndum okkar og byggist á svokölluðu DRG-flokkunarkerfi sjúkdóma (e. Meira
21. október 2021 | Aðsent efni | 758 orð | 5 myndir

Um sýndarsamráð við fagfólk á sjúkrahúsi

Eftir Björn Rúnar Lúðvíksson, Ísleif Ólafsson, Jón Jóhannes Jónsson, Pál Torfa Önundarson og Svein Guðmundsson: "Er ekki eitthvað öfugsnúið við að tala um notendasamráð þegar sjónarmið lögformlegra faglega ábyrgra stjórnenda og læknaráðs Landspítala eru sniðgengin?" Meira
21. október 2021 | Aðsent efni | 804 orð | 1 mynd

Vegið úr launsátri

Eftir Brynjólf Jónsson: "Við höldum hiklaust áfram að gróðursetja stafafuru og bætum landið, bindum mikið kolefni og búum í haginn fyrir komandi kynslóðir." Meira
21. október 2021 | Aðsent efni | 538 orð | 1 mynd

Vilji dönsku þjóðarinnar

Eftir Hauk Arnþórsson: "Í Danmörku virðist þjóðþingið standa nær almenningi en hér á landi og síður er litið á þjóðaratkvæðagreiðslur sem andstætt afl við þingið." Meira

Minningargreinar

21. október 2021 | Minningargreinar | 311 orð | 1 mynd

Agnar Þorsteinsson

Agnar Þorsteinsson fæddist 18. mars 1935. Hann lést 3. október 2021. Útför Agnars fór fram 14. október 2021. Meira  Kaupa minningabók
21. október 2021 | Minningargreinar | 659 orð | 1 mynd

Árni Marinósson

Árni Marinósson fæddist 30. júlí 1945. Hann lést 12. október 2021. Útför Árna fór fram 19. október 2021. Meira  Kaupa minningabók
21. október 2021 | Minningargreinar | 2755 orð | 1 mynd

Helgi Eiríksson

Helgi fæddist í Reykjavík 27. júní 1936. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar 12. október 2021 á heimili sínu í Stykkishólmi. Foreldrar Helga voru Eiríkur Helgason rafvirkjameistari, f. 14. desember 1907, d. 24. október 1983, og Unnur Jónsdóttir húsmóðir,... Meira  Kaupa minningabók
21. október 2021 | Minningargreinar | 2848 orð | 1 mynd

Hólmfríður Sigurðardóttir

Hólmfríður Sigurðardóttir fæddist í Hafnarfirði 31. ágúst 1942. Hún lést á Landspítalanum 10. október 2021. Foreldrar hennar voru Sigurður Guðmundsson (1891-1966) og Guðný Pálína Guðvarðardóttir (1901-1959). Meira  Kaupa minningabók
21. október 2021 | Minningargreinar | 394 orð | 1 mynd

Jón Bernódusson

Jón E. Bernódusson fæddist 18. febrúar 1952. Hann lést 22. september 2021. Útför hans var gerð 1. október 2021. Meira  Kaupa minningabók
21. október 2021 | Minningargreinar | 2960 orð | 1 mynd

Svanhildur Gestsdóttir

Svanhildur Gestsdóttir fæddist í Reykjavík 7. mars 1930. Hún lést á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík 14. október 2021. Foreldrar hennar voru Gestur Pálsson lögfræðingur og leikari og Dóra Þórarinsdóttir húsmóðir. Meira  Kaupa minningabók
21. október 2021 | Minningargreinar | 4767 orð | 1 mynd

Theodór Máni Fannarsson

Theodór Máni fæddist á fæðingardeild Landspítalans við Hringbraut 18. september 2020. Hann lést í fangi foreldra sinna umvafinn ást og kærleik á heimili sínu þann 7. október 2021. Foreldrar Theodórs Mána eru Anna Gréta Oddsdóttir markaðsfræðingur, f.... Meira  Kaupa minningabók
21. október 2021 | Minningargreinar | 912 orð | 1 mynd

Þóra Jónsdóttir

Þóra Jónsdóttir fæddist í Hvítanesi í Kjósarhreppi í Kjós 18. september 1938. Hún lést á heimili sínu 6. október 2021. Foreldrar hennar voru Helgi Jónsson, f. 1896, d. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

21. október 2021 | Viðskiptafréttir | 192 orð | 1 mynd

Pósturinn breytir verðskrá

Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Verðskrá Póstsins mun taka talsverðum breytingum 1. nóvember næstkomandi og taka breytingarnar til pakkasendinga sem eru 0-10 kg og eins til fjölpósts. Meira
21. október 2021 | Viðskiptafréttir | 693 orð | 2 myndir

Tvöfalt íslenska lífeyriskerfið

Fréttaskýring Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Franska fyrirtækið Ardian, sem hefur skrifað undir samkomulag um einkaviðræður og helstu skilmála vegna áformaðra kaupa þess á Mílu, dótturfélagi Símans, er alþjóðlegt sjóðsstýringarfyrirtæki með höfuðstöðvar í París. Það leggur áherslu á ábyrgar langtímafjárfestingar. Félagið er í meirihlutaeigu starfsfólks, sem á 70% í félaginu. Meira

Daglegt líf

21. október 2021 | Daglegt líf | 787 orð | 1 mynd

Markmiðið er að valdefla foreldra ungbarna

„Svefn og matur er svo nátengt, og það sem ungabörn gera er að sofa og borða, og svo þurfa þau ást,“ segir Hafdís Guðnadóttir ljósmóðir um ástæðu þess að hún gaf nýja fyrirtækinu sínu um svefnráðgjöf nafnið Sofa Borða Elska. Meira
21. október 2021 | Daglegt líf | 1424 orð | 4 myndir

Mæðgin og bæði rithöfundar

„Ef við foreldrarnir værum skósmiðir þá væru strákarnir okkar sennilega líka að smíða skó,“ segir Þórunn Jarla rithöfundur um það að báðir synir hennar skrifi skapandi texta. Meira

Fastir þættir

21. október 2021 | Fastir þættir | 166 orð | 1 mynd

1. d4 d5 2. Rc3 c6 3. e4 dxe4 4. Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. c3 e6 7. R1e2 h6...

1. d4 d5 2. Rc3 c6 3. e4 dxe4 4. Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. c3 e6 7. R1e2 h6 8. Db3 Db6 9. Rf4 Bh7 10. Bc4 Rd7 11. 0-0 Rgf6 12. He1 Dxb3 13. axb3 Bd6 14. Rfh5 0-0 15. Bf4 Be7 16. Rxf6+ Rxf6 17. b4 a6 18. Re2 Hfd8 19. Meira
21. október 2021 | Í dag | 79 orð | 1 mynd

Breytingaskeiðið á ekki að vera tabú

Konur geta upplifað um 30-50 einkenni á breytingaskeiðinu, bæði andleg og líkamleg, og geta afleiðingarnar verið margs konar. Geta konur meðal annars dottið út af vinnumarkaði og geta einkennin haft áhrif á sambönd og hjónabönd. Meira
21. október 2021 | Árnað heilla | 42 orð | 1 mynd

Demantsbrúðkaup

Í dag, fimmtudaginn 21. október 2021, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Magnús Haraldur Magnússon og Helga Benediktsdóttir , Hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði. Þau voru gefin saman á heimili sr. Guðmundar Guðmundssonar á Útskálum. Meira
21. október 2021 | Í dag | 27 orð | 3 myndir

Framúrskarandi fyrirtæki kynnt í dag

Stefán Einar Stefánsson ræðir í Dagmálum við Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra SA, og Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur, framkvæmdastjóra Creditinfo, um þau framúrskarandi fyrirtæki sem kynnt verða í... Meira
21. október 2021 | Í dag | 252 orð

Maður í Líma og móðir Jörð

Kristján Karlsson yrkir: Það lagði sig maður í Líma, mjög langur, í fáeina tíma og vaknaði lár, bæði grettinn og grár en gat ekki varist að kíma. Meira
21. október 2021 | Í dag | 54 orð

Málið

Keppinautur er sá sem keppir við e-n (um e-ð). Að skora á hólm þýðir að bjóða til einvígis . Hvort sem ganga á frá keppinautnum fyrir fullt og allt eða reyna sig við hann í viðskiptum, grindahlaupi eða tertubakstri er hann keppinauturinn . Meira
21. október 2021 | Árnað heilla | 102 orð | 1 mynd

Snærós Sindradóttir

30 ára Snærós Sindradóttir er Reykvíkingur, ólst upp í Vesturbænum og býr þar. Hún er dagskrárgerðarkona á RÚV. „Áhugamál mín eru ferðalög og ég er einmitt stödd á Ítalíu. Ég ætla að verja afmælisdeginum á siglingu um Capri og á Capri. Meira
21. október 2021 | Árnað heilla | 755 orð | 4 myndir

Tónlistar- og náttúruunnandi

Flóki Kristinsson fæddist 21. október 1951 í Reykjavík og ólst upp á Barónsstígnum og frá 11 ára aldri í Sólheimum, í öðru af 12 hæða húsunum þar. „Mig langaði alltaf í sveit og mér fannst ég vera sá eini í hverfinu sem ekki komst í sveit. Meira

Íþróttir

21. október 2021 | Íþróttir | 86 orð | 1 mynd

Hetjuleg frammistaða í Frakklandi

Helena Sverrisdóttir skoraði 15 stig fyrir Hauka þegar liðið tapaði 53:66-fyrir Tarbes í L-riðli Evrópubikarsins í körfuknattleik í Frakklandi í gær. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 57 orð | 1 mynd

KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: HS Orku-höllin...

KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: HS Orku-höllin: Grindavík – KR 18.15 Garðabær: Stjarnan – Þór Þ. 19.15 Sauðárkr.: Tindastóll – Breiðablik 19.15 TM-Hellirinn: ÍR – Keflavík 20. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 154 orð | 1 mynd

Meistaradeild Evrópu E-RIÐILL: Barcelona – Dynamo Kiev 1:0 Benfica...

Meistaradeild Evrópu E-RIÐILL: Barcelona – Dynamo Kiev 1:0 Benfica – Bayern München 0:4 Staðan: Bayern München 330012:09 Benfica 31113:44 Barcelona 31021:63 Dynamo Kiev 30120:61 F-RIÐILL: Man. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 353 orð | 2 myndir

Meistararnir án taps í deildinni

Körfuboltinn Kristján Jónsson kris@mbl.is Á meðan bikarmeistarar Hauka voru í Frakklandi að glíma við atvinnumennina í Evrópukeppni, mættust í Subway-deildinni þau lið sem hafa byrjað best í deildinni. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 176 orð | 1 mynd

Olísdeild karla Selfoss – Stjarnan 20:25 Staðan: Valur 4400111:868...

Olísdeild karla Selfoss – Stjarnan 20:25 Staðan: Valur 4400111:868 Stjarnan 4400121:1078 ÍBV 4301112:1106 Fram 4301107:1006 FH 5302133:1246 Haukar 4211114:1055 Afturelding 4121117:1164 KA 4202106:1084 Selfoss 5104116:1342 Grótta 401396:1011 HK... Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 169 orð | 1 mynd

Ótrúleg endurkoma United

Cristiano Ronaldo reyndist enn og aftur hetja Manchester United í Meistaradeildinni þegar liðið tók á móti Atalanta í F-riðli keppninnar á Old Trafford í Manchester í gær. Leiknum lauk með 3:2-sigri United en Ronaldo skoraði sigurmark leiksins á 81. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 84 orð | 1 mynd

Óvæntur sigur HK gegn ÍBV

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti frábæran leik fyrir HK og skoraði átta mörk þegar liðið tók á móti ÍBV í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, í fjórðu umferð deildarinnar í Kórnum í Kópavogi í gær. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 205 orð | 1 mynd

Sigvaldi Björn markahæstur

Íslendingar voru fyrirferðarmiklir í Meistaradeildinni í handknattleik í gær en þá voru fjögur Íslendingalið á ferðinni. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 9 mörk og var markahæstur hjá Kielce sem vann Porto 39:33 í B-riðli. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 813 orð | 2 myndir

Stekkur beint út í djúpu laugina í Þýskalandi

Þýskaland Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir þetta tækifæri og þetta er draumur að verða að veruleika ef svo má segja,“ sagði handknattleiksmaðurinn Teitur Örn Einarsson, leikmaður Flensburg í Þýskalandi, í samtali við Morgunblaðið. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 80 orð | 1 mynd

Stjarnan lagði Selfoss að velli

Starri Friðriksson skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuna þegar liðið vann fimm marka sigur gegn Selfossi í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í Set-höllinni á Selfossi í gær. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 107 orð | 1 mynd

Subway-deild kvenna Njarðvík – Valur 60:63 Skallagrímur &ndash...

Subway-deild kvenna Njarðvík – Valur 60:63 Skallagrímur – Breiðablik 49:79 Keflavík – Grindavík (62:57) *Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti. Staðan fyrir leik Keflav. og Grindav. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 82 orð | 1 mynd

Teitur Örn Einarsson er genginn til liðs við stórlið Flensburg í Þýskalandi

Teitur Örn Einarsson gekk til liðs við þýska stórveldið Flensburg í vikunni en félagið hafnaði í öðru sæti þýsku 1. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 81 orð | 1 mynd

Tryggvi varði fimm skot

Lið Elvars Más Friðrikssonar og Tryggva Snæs Hlinasonar unnu bæði leiki sína í Evrópubikar FIBA í körfuknattleik í gær. Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 146 orð | 1 mynd

Vonast til að halda stöðunni

„Við erum nokkrar að berjast um þessa stöðu en af því að ég er hugsuð sem hægri bakvörður vil ég klárlega gera mitt besta til að halda stöðunni,“ sagði Guðný Árnadóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, á fjarfundi með... Meira
21. október 2021 | Íþróttir | 247 orð | 1 mynd

Yfirtaka sádiarabísks fjárfestahóps á Newcastle United hefur vísast ekki...

Yfirtaka sádiarabísks fjárfestahóps á Newcastle United hefur vísast ekki farið fram hjá nokkrum manni. Í gær tók Steve Bruce pokann sinn eftir rúm tvö ár sem knattspyrnustjóri. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.