Greinar laugardaginn 28. maí 2022

Fréttir

28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 132 orð | 1 mynd

Arnarlax kaupir seiðaeldisstöðina Ísþór að fullu

Samkomulag hefur náðst um að Arnarlax kaupi stærstu seiðaeldisstöð landsins, Ísþór í Þorlákshöfn, að fullu. Stöðin var áður í helmingseigu Arnarlax á móti jafnstórum hlut Fiskeldis Austfjarða, nú Ice Fish Farm. Ísþór verður nú dótturfélag Arnarlax. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 719 orð | 2 myndir

Borgarlína horfir til Álaborgar og Stafangurs

Baksvið Kristján Jónsson kris@mbl.is Við höfum helst litið til Evrópu og þá sérstaklega til Norðurlandanna. Hraðvagnakerfi opnar í Álaborg í Danmörku á næsta ári og kerfið er einnig í undirbúningi í Stafangri í Noregi. Þessar borgir eru svipaðar að stærð og höfuðborgarsvæðið á Íslandi. Okkur finnst við vera svo fámenn en ef maður tekur höfuðborgarsvæðið í heild sinni þá er það eins og meðalstór norræn borg,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, spurður til hvaða borga skipuleggjendur borgarlínu horfi. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 168 orð | 1 mynd

Byrjað að bora við Sæbrautina

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borverktaki hóf nýlega að gera jarðgrunnsrannsóknir meðfram Sæbraut, vegna fyrirhugaðra framkvæmda við steyptan vegstokk á Reykjanesbraut/Sæbraut. Borverktakinn var ráðinn til verksins af Vegagerðinni. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 171 orð | 2 myndir

Davíð biðst afsökunar á ummælum

Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við mbl.is í fyrrakvöld. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 152 orð | 1 mynd

Demanturinn siglir við Íslandsstrendur

Farþegaskip sem margir þekkja kom til Reykjavíkur í vikunni og lagðist að Miðbakka í gömlu höfninni. Þetta er Ocean Diamond sem mörg undanfarin sumur hefur siglt hringinn í kringum Ísland með erlenda ferðamenn. Meira
28. maí 2022 | Erlendar fréttir | 470 orð | 1 mynd

Dragi sig mögulega til baka

Aðskilnaðarsinnar í Lúhansk- og Donetsk-héruðunum sögðu í gær að Rússar hefðu náð á sitt vald bænum Líman, sem er um miðja vegu á milli Severodonetsk og Slóvíansk. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 295 orð | 2 myndir

Ferðamenn eru sagðir forvitnir um styttuna

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur verður í dag sett á ný á stall á fæðingarstað hennar, Laugarbrekku á Snæfellsnesi. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 169 orð | 1 mynd

Framkvæmdir á áætlun

Framkvæmdir við skrifstofuhús Alþingis í Tjarnargötu 9 ganga vel miðað við aðstæður, segir Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis. Húsið setur nú þegar mikinn svip á Tjarnargötu og Vonarstræti. Meira
28. maí 2022 | Erlendar fréttir | 81 orð

Framleiðsla á jarðgasi að hefjast

Framleiðsla á fljótandi jarðgasi er í burðarliðnum í Norður-Noregi í bænum Hammerfest, en eftir bruna í Equinox verksmiðjunni í Hammerfest árið 2020 hefur framleiðslan legið niðri. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 267 orð | 1 mynd

Greiðfærar leiðir eru fjölfarnari nú

„Mín tilfinning síðastliðið sumar var sú að fáfarnir og erfiðir slóðar á fjöllum væru minna eknir en áður en greiðfærar leiðir þar virðast fjölfarnari,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður og rithöfundur. Út er komin hjá Forlaginu 4. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 508 orð | 1 mynd

Grunur um veirusýkingu í Berufirði

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Grunur er um að ISA-veiran sem getur valdið blóðþorra í laxi kunni að vera komin upp í kvíabóli í Berufirði. Grunurinn vaknaði við skoðun á einu sýni af mörgum og er verið að senda það til raðgreiningar erlendis. Dýralæknir fisksjúkdóma hjá MAST segir ekki hægt að fullyrða neitt um málið fyrr en niðurstöður raðgreiningar berast. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 187 orð

Grunur um veiru víðar

Grunur er um að ISA-veiran sem getur valdið blóðþorra í laxi kunni að vera komin upp í kvíabóli í Berufirði. Grunurinn vaknaði við skoðun á einu sýni af mörgum og er verið að senda það til raðgreiningar erlendis. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 15 orð | 1 mynd

Hákon Pálsson

Brosa! Hallgrímskirkja er vinsæll áningarstaður innlendra sem erlendra ferðamanna og myndataka nauðsynleg við það... Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 49 orð | 1 mynd

Hraustir menn léku sér í strandblaki í Nauthólsvík

Ungir kappar léku sér í strandblaki í blíðviðrinu í Nauthólsvík. Er þeir urðu ljósmyndara varir kölluðu þeir á eftir honum og báðu um að fram kæmi með myndinni að þarna væru á ferð nokkrir kynþokkafullir menn að njóta lífsins og hafa gaman. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 438 orð | 3 myndir

Hummer í rétta litnum er eitt helsta táknið

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hummer-bifreið í Liverpool-litum er ein helsta táknmynd enska fótboltaliðsins hjá aðdáendum þess í Reykjanesbæ. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 845 orð | 3 myndir

Hungur og harðindi í móðu mikils öskugoss

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikil harðindi á Íslandi – svo lá við hungursneyð meðal landsmanna – kunna að hafa verið ein helsta ástæða þess að Íslendingar gengu Hákoni Hákonarsyni Noregskonungi á hönd með gerð Gamla sáttmála árið 1262. Þetta segir Skafti Ingimarsson, doktor í sagnfræði við Háskóla Íslands, en hann setti þessa tilgátu fram á Söguþingi 2022, sem haldið var á dögunum. Þar stóð hann ásamt fleiri fræðimönnum fyrir málstofu með yfirskriftinni Frá goðaveldi til konungsvalds: Afstaða Íslendinga til Noregskonungs og stjórnmálabarátta Sturlungaaldar. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 325 orð | 2 myndir

Innblástur sóttur í úkraínska þjóðbúninginn

Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Leiðtogar þjóðarinnar, Guðni Th. Jóhannesson forseti, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 411 orð | 2 myndir

Ísland með rúma löggjöf

Á þessu stigi málsins verða engar fjölskyldur sendar til Grikklands, að sögn Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Þá bætir hann við að slíkt hafi aldrei staðið til. Ísland er að hans sögn með sérstaklega rúma löggjöf í tilviki fjölskyldufólks á flótta. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 255 orð | 1 mynd

Kröftug uppsveifla rjúpna

Eindregin uppsveifla í stofnstærð rjúpna greindist í öllum landshlutum nema á austanverðu landinu í rjúpnatalningu sem fram fór í vor á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ). Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 316 orð | 1 mynd

Kærum fækkaði milli ára

Kærur, sem bárust úrskurðarnefnd um upplýsingamál, voru nokkru færri á síðasta ári en á árinu á undan eða 213 í fyrra samanborið við 228 á árinu 2020. Kærur til úrskurðarnefndarinnar á árinu 2021 voru þó mun fleiri en á næstu árum þar á undan. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 692 orð | 5 myndir

Maður með margar myndavélar

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Myndavélin hefur jafnan verið gluggi minn á tilveruna,“ segir Guðjón Guðmundsson, vélvirki á Akranesi. „Nærsýni hefur alltaf fylgt mér og gleraugu hafa ekki bætt mér þá fötlun að öllu leyti. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 207 orð | 1 mynd

Mikilvægt að börn fái sín mál á dagskrá

Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Mannréttindi, skólamál og umhverfismál eru þeir þrír málaflokkar sem börnin á barnaþingi lögðu áherslu á, að sögn Salvarar Nordal, umboðsmanns barna. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 161 orð | 1 mynd

Minjastofnun kynnir sér málefni gömlu húsanna

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sviðsstjóri frá Minjastofnun fer til Húsavíkur í næstu viku vegna áframhaldandi viðgerða á Húsavíkurkirkju og fyrirhugaðra viðgerða á safnaðarheimilinu í Bjarnahúsi. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 113 orð

Mörg fyrirtæki horfa til Hólmsheiðar

Fulltrúar gagnavera hafa sýnt lóðum á Hólmsheiðinni áhuga, sem vegna nálægðar við spennistöðina á Geithálsi skapar mikið orkuöryggi. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 244 orð | 1 mynd

Nýjar götur verða kenndar við Eystrasaltslöndin þrjú

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt tillögu þess efnis að þrjár götur í 2. og 3. áfanga Ártúnshöfða fái heitin Eistlandsbryggja, Lettlandsbryggja og Litháensbryggja. Meira
28. maí 2022 | Erlendar fréttir | 82 orð | 1 mynd

Óhressir með yfirlýsingar Blinken

Talsmenn kínverska utanríkisráðuneytisins ásökuðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Antony Blinken, um að ata landið auri í gær. Meira
28. maí 2022 | Erlendar fréttir | 80 orð | 1 mynd

Rannsókn á kynferðisbrotum kirkjunnar

Kaþólska kirkjan á Ítalíu tilkynnti í gær að rannsókn væri hafin á 20 ára gögnum um kynferðisbrot gegn börnum innan kirkjunnar í samstarfi við óháðar stofnanir. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 401 orð | 1 mynd

Segja leigjendur bera stærstan hluta skaðans

Ekki eru allir á þeirri skoðun að hækkun húsnæðisbóta til leigjenda í nýsamþykktum lögum um mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu gangi nægilega langt eða bæti stöðu leigjenda að einhverju ráði. Meira
28. maí 2022 | Erlendar fréttir | 155 orð | 1 mynd

Skotárásir helsta dánarorsök barna í Bandaríkjunum

Núna er líklegra að ungmenni í Bandaríkjunum deyi af völdum skotvopna en að þau deyi af völdum bílslysa, en nýlegar opinberar rannsóknir sýna mikla aukningu á dauðsföllum þar sem skotvopn koma við sögu. Frá árinu 2020 hafa 4. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 431 orð | 2 myndir

Stemning hjá öllum fyrir þríhliða samkomulagi

Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Kröfugerð VR, stærsta stéttarfélags landsins, fyrir komandi kjaraviðræður er tilbúin að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns félagsins. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 52 orð | 1 mynd

Stjarnan í flota Norðursiglingar

Skonnortan Ópal er án efa stjarnan í flota hvalaskoðunarfyrirtækisins Norðursiglingar, sem gerir út frá Húsavík við Skjálfanda. Þegar nægur vindur blæs ekki í segl skonnortunnar gengur hún fyrir rafmagni. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 206 orð | 1 mynd

Sævar áfram bæjarstjóri á Akranesi

Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar næstu fjögur árin. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 113 orð | 1 mynd

Úrslit Meistaradeildarinnar ráðast í kvöld

„Leikurinn kostar 2.690 fyrir þá sem eru ekki með áskrift. Meira
28. maí 2022 | Innlendar fréttir | 57 orð | 1 mynd

Veðurblíðunni fagnað á Austurvelli í góðra vina hópi

Veðurblíðan í gær hefur varla farið fram hjá neinum íbúa höfuðborgarsvæðisins, enda náði hitinn allt að 13,6 gráðum í Reykjavík þegar best lét. Fjölmenni var á Austurvelli og gátu menn glaðst yfir góða veðrinu í góðra vina hópi. Meira
28. maí 2022 | Erlendar fréttir | 104 orð | 1 mynd

Örlögin nú í höndum kviðdómsins

Síðasti dagur málsóknar Hollywoodleikarans Johnnys Depps gegn fyrrverandi eiginkonu sinni, leikonunni Amber Heard, var í gær. Nú eru örlög þeirra beggja í höndum kviðdómsins eftir að lokaræður lögfræðinga aðila beggja voru fluttar í réttarsalnum í gær. Meira

Ritstjórnargreinar

28. maí 2022 | Staksteinar | 197 orð | 1 mynd

Á jafnræðisregla bara stundum við?

Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, gerði skattlagningu séreignarsparnaðar að umræðuefni í grein í Morgunblaðinu á miðvikudag. Benti hann á að tugþúsundir Íslendinga hefðu efnt til séreignarsparnaðar á forsendu skattafsláttar. Ýmis dæmi væru um slíka afslætti, en þessi afsláttur væri frábrugðinn að því leyti að hann væri stofn sérstakrar skattkröfu síðar. Meira
28. maí 2022 | Leiðarar | 312 orð

Bölbænir úr stólnum

Misskilningur hjá biskupi að um sé að ræða innanhússmál kirkjunnar Meira
28. maí 2022 | Reykjavíkurbréf | 2240 orð | 1 mynd

Pendúllinn er ekki stöðugur í rásinni

Bréfritari sá það í fréttum í gær að þá voru 40 ár frá því hann tók við embætti borgarstjóra í Reykjavík. Sá er heilmikið fyrir afmæli, en einhvern veginn hafði þetta farið fram hjá honum, þótt býsna stór bautasteinn sé í starfslegri í tilveru hans, sem hefur komið víða við. Meira
28. maí 2022 | Leiðarar | 414 orð

Stríð og friður

Auðmýkjandi ósigur og efnahagshrun virðist blasa við Rússum Meira

Menning

28. maí 2022 | Menningarlíf | 1021 orð | 4 myndir

Allt það besta úr listaheiminum

Viðtal Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl. Meira
28. maí 2022 | Myndlist | 913 orð | 1 mynd

„Náum aldrei algjörri yfirsýn“

Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er innbyggt í okkur að vilja setja hluti í kerfi til að skoða þá, greina og stjórna. Meira
28. maí 2022 | Myndlist | 864 orð | 1 mynd

„Verk mín fjalla um lífið“

Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Verk mín fjalla um lífið, allt frá hinu smæsta til hins stærsta,“ segir Margrét H. Blöndal sem opnar sýninguna Liðamót / Ode to Join í Listasafni Íslands í dag kl. 15. Meira
28. maí 2022 | Leiklist | 94 orð | 1 mynd

Einn virtasti leikhópur Evrópu

Simon McBurney, einn virtasti leikstjóri heims, er þessa dagana að vinna í Þjóðleikhúsinu að þróun sýningar sinnar sem frumsýnd verður í London á næsta ári og er byggð á skáldsögu nóbelsverðlaunahafans Olgu Tokarczuk, Drag plóg þinn yfir bein hinna... Meira
28. maí 2022 | Bókmenntir | 131 orð | 1 mynd

Fagna nafnbót og nýrri ljóðabók

Tíminn á leiðinni nefnist ellefta ljóðabók Steinunnar Sigurðardóttur sem nú er komin út. Steinunn var 23. maí sl. Meira
28. maí 2022 | Fólk í fréttum | 135 orð | 1 mynd

Fletcher látinn, sextugur að aldri

Andrew Fletcher, hljómborðsleikari og einn stofnenda ensku poppsveitarinnar Depeche Mode, er látinn, sextugur að aldri. Í tilkynningu frá sveitinni segir að liðsmenn hennar séu í áfalli og harmi slegnir yfir fráfalli vinar síns. Meira
28. maí 2022 | Myndlist | 275 orð | 1 mynd

Furðufyrirbærið litabók

Myndlistarmennirnir Gabríela Kristín Friðriksdóttir og Björn Roth opna sýninguna Sporbaugur/Ellipse í Listasafni Reykjanesbæjar í dag, laugardag, kl. 14. Eru bæði þekkt fyrir ævintýralegan myndheim en þó með ólíkum hætti, eins og bent er á í... Meira
28. maí 2022 | Myndlist | 87 orð | 1 mynd

Ímynduð myndform náttúru

Elli Egilsson opnar einkasýninguna NEVADA í galleríinu Þulu í dag, laugardag, kl. 14 en Þula er við Hjartatorgið í miðborg Reykjavíkur. Meira
28. maí 2022 | Menningarlíf | 130 orð | 1 mynd

Justin Timberlake selur lagasafn sitt

Tónlistarmaðurinn Justin Timberlake hefur selt safn laga sinna fyrir hátt í þrettán milljarða íslenskra króna eða rúmar 100 milljónir bandaríkjadala. Meira
28. maí 2022 | Tónlist | 103 orð | 1 mynd

Kordo á Sígildum sunnudegi

Kordo-kvartettinn efnir til óvenjulegra tónleika í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar í Hörpu á morgun, 29. maí, en þá verður áheyrendum boðið í ferðalag í gegnum sögu strengjakvartettsins allt frá Bach til Barbers, eins og því er lýst í tilkynningu. Meira
28. maí 2022 | Fólk í fréttum | 130 orð | 1 mynd

Liotta látinn, 67 ára að aldri

Bandaríski leikarinn Ray Liotta er látinn, 67 ára að aldri. Meira
28. maí 2022 | Tónlist | 537 orð | 2 myndir

Málmsendiherrar Íslands

Þungarokkssveitin Múr sigraði í Íslandsriðli keppninnar Wacken Metal Battle sem fram fór um síðastliðna helgi á Húrra. Ljóst er að gróska mikil einkennir íslenskt öfgarokk. Meira
28. maí 2022 | Tónlist | 77 orð | 1 mynd

Norski kórinn Scala Brio syngur í messu í Skálholtskirkju á morgun

Norski kórinn Scala Brio syngur í messu í Skálholtskirkju á morgun, sunnudag, kl. 11. Scala Brio er blandaður kór, stofnaður árið 1987, og í honum eru 55 söngvarar frá Sula og Álasundi í Noregi. Meira
28. maí 2022 | Myndlist | 121 orð | 1 mynd

Sýning og plata hjá prinsi

Hvernig ertu? nefnist einkasýning Prins Póló, tónlistar- og myndlistarmanns, sem opnuð verður í Borgarbókasafninu í Gerðubergi í dag, laugardag, kl. 14. Meira
28. maí 2022 | Fjölmiðlar | 209 orð | 1 mynd

Takk fyrir ákafann og skemmtunina

Það er mikill sjónarsviptir að Ray Liotta, sem er fallinn frá, 67 ára að aldri, enda einstakur leikari. Liotta var af þeim skóla leikara sem gaf ávallt allt sitt í hverja einustu frammistöðu. Meira
28. maí 2022 | Menningarlíf | 186 orð | 1 mynd

Tomb of Sand, þýðing úr hindí, hlaut alþjóðlegu Booker-verðlaunin

Indverski rithöfundurinn Geetanjali Shree og þýðandinn Daisy Rockwell hlutu alþjóðlegu Booker-verðlaunin fyrir skáldsöguna Tomb of Sand . Verðlaunin eru veitt fyrir alþjóðleg verk sem þýdd hafa verið á enska tungu. Meira
28. maí 2022 | Kvikmyndir | 96 orð | 1 mynd

Volaða land heillar gagnrýnendur

Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Volaða land , hefur fengið afar góðar viðtökur á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hún var frumsýnd fyrir fáeinum dögum. Meira
28. maí 2022 | Myndlist | 161 orð | 1 mynd

Þræðir veruleika og ímyndunar

Brák Jónsdóttir sýnir verkið „Sé (að Nýp)“ í dag kl. 16 að Nýp á Skarðsströnd. Með verkinu vefur hún saman þræði veruleika og ímyndunar við rannsókn á umhverfi sínu, eins og því er lýst í tilkynningu. Meira

Umræðan

28. maí 2022 | Aðsent efni | 556 orð | 1 mynd

Aukið álag á fagstétt uppgjörsaðila

Eftir Þórunni Elsu Bjarnadóttur, Ingu Jónu Óskarsdóttur, Styrmi Ólafsson, Jóhönnu Maríu Einarsdóttur og Guðnýju Hrund Karlsdóttur: "Peningaþvætti viðskiptavina hefur ekki verið vandamálið hjá bókhaldsstofum." Meira
28. maí 2022 | Pistlar | 269 orð

Fimmtíu ára stúdentar

Við héldum upp á það á dögunum að vera orðin fimmtíu ára stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík, fyrst árgangurinn 1972 á sérstakri samkomu, síðan nokkrir afmælisárgangar ásamt nýstúdentum. Meira
28. maí 2022 | Aðsent efni | 685 orð | 2 myndir

Helgarsteikin í uppnámi

Eftir Herdísi Mögnu Gunnarsdóttur: "Ef innlend framleiðsla leggst af, fækkar einfaldlega valkostum neytenda þegar kemur að nautakjöti." Meira
28. maí 2022 | Pistlar | 465 orð | 1 mynd

Helvítisvist

Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem velur að vera hlutlaust á tímum siðferðislegra átaka. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki öðrum konum. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem misnotar börn. Meira
28. maí 2022 | Pistlar | 793 orð | 1 mynd

Löggjafar ekki álitsgjafar

Engu er líkara en þingmenn hafi gleymt því að þeir eru löggjafar en ekki álitsgjafar. Hlutverk þeirra er að vinna að lagasetningu og gerð formlegra ályktana. Meira
28. maí 2022 | Aðsent efni | 397 orð | 1 mynd

Stjórnvöld gæta ekki mataröryggis þjóðarinnar

Eftir Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún: "Fram undan virðist nú holskefla verðhækkana á ýmsum innfluttum vörum og hugsanlega alger skortur á öðrum." Meira
28. maí 2022 | Aðsent efni | 263 orð | 1 mynd

Tvískinnungur

Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson: "Dómsmálaráðherra hefur ekki vald til að taka yfir ákvarðanir um mál þessa fólks, nema breytt lög komi til." Meira
28. maí 2022 | Pistlar | 472 orð | 2 myndir

Vinir Grettis í raun

Það vantaði ástina í líf Grettis sterka. Meira

Minningargreinar

28. maí 2022 | Minningargreinar | 673 orð | 1 mynd

Ágúst Sæbjörnsson

Ágúst Sæbjörnsson, smiður, fæddist á Búðareyri í Reyðarfirði þann 5. apríl 1928. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð þann 5. maí 2022. Foreldrar hans voru Sæbjörn Vigfússon, f. 17. nóv. 1896 á Stefánsstöðum, Vallanessókn, S-Múl, d. 9. feb. Meira  Kaupa minningabók
28. maí 2022 | Minningargreinar | 380 orð | 1 mynd

Kristjana Kristjónsdóttir

Kristjana Kristjónsdóttir fæddist 26. desember 1934 á Ytri Bug í Fróðárhreppi. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 23. maí 2022. Foreldrar hennar voru Jóhanna Oktavía Kristjánsdóttir og Kristjón Jónsson. Systkini hennar voru: 1) Sigurður, f. 5. Meira  Kaupa minningabók
28. maí 2022 | Minningargreinar | 282 orð | 1 mynd

Sigurdór Sigurdórsson og Sigrún Gissurardóttir

Sigurdór Sigurdórsson fæddist 24. nóvember 1938. Hann lést 26. desember 2021. Sigrún Gissurardóttir fæddist 18. október 1942. Hún lést 13. febrúar 2022. Útfarir Sigurdórs og Sigrúnar fóru fram í kyrrþey og verða duftker þeirra sett niður á morgun, 29. maí 2022. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

28. maí 2022 | Viðskiptafréttir | 176 orð | 1 mynd

Eyjólfur Árni endurkjörinn formaður SA

Eyjólfur Árni Rafnsson var í vikunni endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins (SA). Hann hefur setið í stjórn SA frá 2014 og verið formaður frá 2017. Meira
28. maí 2022 | Viðskiptafréttir | 546 orð | 3 myndir

Fulltrúar gagnavera sýna lóðum á Hólmsheiði áhuga

Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fulltrúar gagnavera hafa spurst fyrir um lóðir á fyrirhugðu athafnasvæði á Hólmsheiði í Reykjavík. Fyrsti áfanginn í uppbyggingu svæðisins verður 50 hektarar og þar gætu byggst upp tæplega 200. Meira
28. maí 2022 | Viðskiptafréttir | 492 orð | 3 myndir

Rolex uppseld nánast alls staðar

Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Mikill skortur er nú um allan heim á Rolex og fleiri lúxusúrategundum. Meira

Daglegt líf

28. maí 2022 | Daglegt líf | 226 orð | 1 mynd

Glóandi sindur Dómkórsins ómar loks í sumrinu

Dómkórinn í Reykjavík er heldur betur kátur þessa dagana, að geta loksins, eftir þriggja vora þögn, fagnað nýju sumri með tónleikum. Tónleikarnir fara fram nk. miðvikudag, 1. júní, í Hallgrímskirkju og hefjast kl. 20.30. Meira
28. maí 2022 | Daglegt líf | 883 orð | 1 mynd

Streita og kulnun í starfi er heilsuvá

„Aðstæður á vinnumarkaði eru þannig að fólk verður veikt,“ segir Sveindís Anna Jóhannsdóttir. „Handleiðsla er góð forvörn fyrir alla sem sinna krefjandi störfum, þá er fólk betur undirbúið ef eitthvað kemur upp á.“ Meira

Fastir þættir

28. maí 2022 | Fastir þættir | 153 orð | 1 mynd

1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 c5 5. cxd5 exd5 6. Bg5 Be6 7. e3 Rc6...

1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 c5 5. cxd5 exd5 6. Bg5 Be6 7. e3 Rc6 8. Bb5 a6 9. Bxc6+ bxc6 10. 0-0 h6 11. Bxf6 Dxf6 12. Da4 Bd7 13. Re5 De6 14. Hfe1 Bd6 15. Rxd7 Dxd7 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem fram fór sumarið 2016 í Kaupmannahöfn. Meira
28. maí 2022 | Árnað heilla | 80 orð | 1 mynd

Einar Ármann Valgarðsson

30 ára Einar er Reykvíkingur, ólst upp í Vesturbænum en býr í Laugardalnum. Hann er bifvélavirki hjá Suzuki-umboðinu. Áhugamál Einars eru bílar og bjór. „Ég brugga mikið sjálfur og er mest fyrir IPA og bragðsterka bjóra. Meira
28. maí 2022 | Í dag | 285 orð

Hríðarél um hauður fer

Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Hríðarél um hauður fer. Hlaupaleikur þetta er. Deila milli manna hörð. Mikill eldur svíður jörð. Guðrún B. á þessa lausn: Bálviðri? Meira
28. maí 2022 | Fastir þættir | 535 orð | 4 myndir

Indverjar urðu við ósk Rússa um flutning Ólympíumótsins

Stuttu eftir innrás að innrás Rússa í Úkraínu hófst var gert heyrinkunnugt að hið margfrestaða ólympíuskákmót mundi ekki fara fram í Moskvu eins og til stóð heldur í Chennai á Indlandi. Meira
28. maí 2022 | Í dag | 62 orð

Málið

Geymir er ílát. Með smá-sveigjanleika má segja að heimur sé það líka. Ekki er gott að vita hvort það villir um fyrir þeim sem tala um (alla) heima og „geyma“. En geima á það að vera. Meira
28. maí 2022 | Í dag | 868 orð

Messur á morgun

ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Hrafnkels Karlssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. ÁSKIRKJA | Messa kl. 13. Sr. Meira
28. maí 2022 | Í dag | 95 orð | 1 mynd

Myndi ekki óska óvini sínum að ganga í gegnum þetta

Karl Þór Þorvaldsson tónlistarmaður, fyrrverandi hljómborðsleikari og slagverksleikari í Skítamóral og þriggja barna faðir, sendi frá sér nýtt og afar persónulegt lag á dögunum, lagið „I'll be there“, en það er samið til sonar hans. Meira
28. maí 2022 | Árnað heilla | 34 orð | 1 mynd

Reykjavík Fenrir Hrafn Hlíðdal Einarsson fæddist 23. ágúst 2021 kl. 9.47...

Reykjavík Fenrir Hrafn Hlíðdal Einarsson fæddist 23. ágúst 2021 kl. 9.47 í Reykjavík. Hann vó 2.974 g og var 49 cm langur. Foreldrar hans eru Einar Ármann Valgarðsson og Inga Dóra Hlíðdal Magnúsdóttir... Meira
28. maí 2022 | Árnað heilla | 141 orð | 1 mynd

Stefán Guðmundsson

Stefán Guðmundsson fæddist 24. maí 1932 á Sauðárkróki og ólst þar upp. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Sveinsson, f.1893, d. 1967, og Dýrleif Árnadóttir, f. 1899, d. 1993. Meira
28. maí 2022 | Í dag | 55 orð | 1 mynd

Stöð 2 kl. 21.15 Four good days

Átakanleg og hjartnæm mynd, byggð á sönnum atburðum. Hin rúmlega þrítuga Molly grátbiður móður sína, Deb, um hjálp við að losna undan fjötrum heróínfíknar. Meira
28. maí 2022 | Fastir þættir | 172 orð

Trompkúpp Kalla. S-AV Norður &spade;K5 &heart;ÁD75 ⋄ÁK986...

Trompkúpp Kalla. S-AV Norður &spade;K5 &heart;ÁD75 ⋄ÁK986 &klubs;102 Vestur Austur &spade;G3 &spade;10872 &heart;G9864 &heart;102 ⋄D102 ⋄G753 &klubs;D75 &klubs;K86 Suður &spade;ÁD964 &heart;K3 ⋄4 &klubs;ÁG943 Suður spilar 6&spade;. Meira
28. maí 2022 | Árnað heilla | 1197 orð | 3 myndir

Þá ertu hamingjusamur

Jón Grétar Hálfdanarson fæddist 29. maí 1947 á Þórsgötu 17 í Reykjavík. Hann á því 75 ára afmæli á morgun. Hann gekk í Miðbæjarskólann, Landsprófið í Vonarstræti og tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1967. Meira

Íþróttir

28. maí 2022 | Íþróttir | 860 orð | 3 myndir

„Líður eins og heima hjá mér“

Best í maí Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl. Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 410 orð | 2 myndir

„Vona að vallarmetið fjúki“

Frjálsar Guðmundur Karl sport@mbl.is „Fyrir mig er þetta mjög stórt. Ég er auðvitað Selfyssingur og heima er alltaf hér. Það er bara beint frá hjartanu. Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 252 orð | 1 mynd

Fjögur mörk og Selfyssingar á toppinn

Selfoss er komið upp í toppsæti Lengjudeildar karla í fótbolta, 1. deild, eftir 4:0-stórsigur á nýliðum Þróttar frá Vogum á heimavelli í gærkvöldi. Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 218 orð | 1 mynd

HANDKNATTLEIKUR Fjórði úrslitaleikur karla: Eyjar: ÍBV – Valur...

HANDKNATTLEIKUR Fjórði úrslitaleikur karla: Eyjar: ÍBV – Valur (1:2) L16 *Valur er Íslandsmeistari með sigri, annars verður oddaleikur á Hlíðarenda á mánudagskvöld. Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 47 orð | 1 mynd

Ítalía Undanúrslit, fyrsti leikur: Virtus Bologna – Dethrona...

Ítalía Undanúrslit, fyrsti leikur: Virtus Bologna – Dethrona Tortona 77:73 • Elvar Már Friðriksson var ekki í leikmannahópi Dethrona Tortona að þessu sinni. Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 710 orð | 5 myndir

* Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool gerir sér góðar vonir um að...

* Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool gerir sér góðar vonir um að miðjumennirnir öflugu Thiago og Fabinho geti tekið þátt í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Real Madrid á Stade de France í París í kvöld. Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 155 orð | 1 mynd

Lengjudeild karla Fjölnir – Kórdrengir 1:1 HK – Afturelding...

Lengjudeild karla Fjölnir – Kórdrengir 1:1 HK – Afturelding 2:0 Selfoss – Þróttur V 4:0 Staðan: Selfoss 431010:410 Fylkir 32109:47 Fjölnir 421110:77 Grótta 32018:26 HK 42027:66 Grindavík 31205:25 Kórdrengir 41214:35 Þór 31113:54 Vestri... Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 243 orð | 1 mynd

Valur og ÍBV mætast í fjórða leik úrslitanna á Íslandsmóti karla í...

Valur og ÍBV mætast í fjórða leik úrslitanna á Íslandsmóti karla í handbolta í Vestmannaeyjum klukkan 16 í dag. Einvígið til þessa hefur verið ótrúleg skemmtun og vonandi fáum við meira af því sama. Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 154 orð | 1 mynd

Þróttarar fyrstir áfram

Þróttur úr Reykjavík varð í gærkvöldi fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta með 2:1-heimasigri á Víkingi. Þróttur er í öðru sæti í Bestu deildinni og Víkingur í þriðja sæti í Lengjudeildinni, 1. deild. Meira
28. maí 2022 | Íþróttir | 181 orð | 1 mynd

Þýskaland B-deild: Gummersbach – Rimpar 29:23 • Elliði Snær...

Þýskaland B-deild: Gummersbach – Rimpar 29:23 • Elliði Snær Viðarsson skoraði 4 mörk fyrir Gummersbach en Hákon Daði Styrmisson er frá vegna meiðsla. Meira

Sunnudagsblað

28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 3457 orð | 7 myndir

„Ég er frekar feimin“

Ragnheiður Steindórsdóttir steig fyrst á svið sjö ára gömul og fljótt var ljóst hvert hugur hennar stefndi. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 86 orð | 1 mynd

„Fulli Sumarliði“ hreinlátasti maður sem Bjartmar hefur séð

„Sum lög koma bara eins og hraðfæðing eða eitthvað,“ segir Bjartmar Guðlaugsson, einn af frjóustu laga- og textahöfundum landsins, í heimsókn sinni í Ísland vaknar á dögunum. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 5 orð | 1 mynd

Berta Eyfjörð Til níu kannski...

Berta Eyfjörð Til níu... Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 427 orð | 1 mynd

Er hver?

Hugmyndir Ögmundar kallast líka á við kenningar póstmódernista um að höfundurinn sem fyrirbrigði sé löngu steindauður. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 118 orð | 1 mynd

Fagna fertugsafmæli plötunnar Rio

Afmæli Duran Duran fagna því um þessar mundir að 40 ár eru liðin frá útgáfu breiðskífunnar Rio sem skaut þeim á sporbaug um jörðu. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 74 orð | 1 mynd

Fengu óvæntan gest á tónleika

Endurfundir Óvæntur gestur skaut upp kollinum á tónleikum Iron Maiden í Zagreb í Króatíu á dögunum, Paul Di'Anno, fyrsti söngvari breska bárujárnsbandsins, en hann hvarf frá borði árið 1982 og Bruce Dickinson tók við. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 770 orð | 2 myndir

Frömdu meiðingar á bóndabæ

Hópur manna ruddist með ofbeldi inn á bæinn Skáldsstaði í Saurbæjarhreppi og framdi meiðingar á fólki vorið 1952. Þeir vildu ná tali af stúlku sem þar var til húsa. Um sama leyti var aftakaveður víða nyrðra og blása þurfti lífi í blessuð lömbin í eldhúsum í Vatnsdal. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 230 orð | 1 mynd

Fyrir Ljónshjartabörn

Ertu tónlistarmaður? Já, ég hef gert tónlist síðan í menntaskóla. Nú er ég við nám í tónlist við háskóla í Berlín sem heitir Catalyst en verð fyrir norðan að vinna í sumar sem baðvörður í sundlauginni. Er ekki gaman í Berlín? Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 1092 orð | 2 myndir

Gamlir meirihlutar & nýir belgir

Vikan hófst líkt og sú næsta á undan í algerri óvissu um stjórn borgarinnar eftir óreiðukennd úrslit borgarstjórnarkosninga um fyrri helgi. Bærinn iðaði í sögusögnum að símtölum og þreifingum þvers og kruss, en það þótti til marks um eitthvað að Dagur... Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 150 orð | 1 mynd

Hneigðist ung að málmi

Söngkonan Tatiana Shmailyuk, eða Tati, eins og vinir hennar kalla hana, er aðsópsmikill frontmaður og öllum sem til þekkja ber saman um að hún eigi stóran þátt í velgengni Jinjer á umliðnum árum og misserum. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 59 orð | 1 mynd

Hvert er byggðarlagið?

Húsin eru örfá og íbúarnir ekki margir. Byggð þessi er við Eyjafjörð og átti sinn blómatíma á fyrri hluta 20. aldar, en þá var þarna starfrækt síldarverksmiðja í stórbyggingu sem enn stendur. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 1012 orð | 2 myndir

Hver vill ekki vera Kennedy?

Risarnir Liverpool og Real Madrid berjast um sigurlaunin í Meistaradeild Evrópu á Fransvangi í París í dag, laugardag. Hvorugt lið er þar á framandi slóðum og þekki maður þau rétt þá mun lítið skilja á milli. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 833 orð | 2 myndir

Í pásu út af stríðinu

Loksins þegar málmkjarnabandið Jinjer var búið að finna taktinn og komið á siglingu varð það að rifa seglin, fyrst út af heimsfaraldrinum og síðan vegna stríðsins í heimalandinu, Úkraínu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 483 orð | 2 myndir

Konungur óhugnaðarins

Cannes. AFP. | Nýjasta mynd hrollvekju- og vísindatryllameistarans Davids Cronenbergs, Glæpir framtíðarinnar (Crimes of the Future) hefur vakið mikla umræðu á kvikmyndahátíðinni í Cannes og þykir líkleg til stórræða um helgina. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 9 orð | 1 mynd

Kristoffer Brange Nei, alls ekki. Ég vakna klukkan átta...

Kristoffer Brange Nei, alls ekki. Ég vakna klukkan... Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 63 orð | 1 mynd

Krossgátuverðlaun

Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátunni 29. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 438 orð | 4 myndir

Láta mig hlæja og gráta

Bækur láta mig hlæja og gráta. Það eru töfrar í fallegum setningum, titlum og sögum. Ég hef alltaf lesið mikið eftir konur og les mikið á ensku. Bel Canto , eftir Ann Patchett, er dæmi um uppáhaldsbók. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 113 orð | 1 mynd

Pabbi eins og grár köttur

Föðurást Faðir bandarísku leikkonunnar Kaley Cuoco var viðstaddur upptökur á hverjum einasta þætti í gamanflokknum The Big Bang Theory en þeir voru 279 talsins og gerðir á árunum 2007 til 2019. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 13 orð | 1 mynd

Ragnheiður Milla Bergsveinsdóttir Ekki alltaf, ekki þegar ég mæti á...

Ragnheiður Milla Bergsveinsdóttir Ekki alltaf, ekki þegar ég mæti á morgunæfingar í... Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 15 orð | 1 mynd

Rúrik Einar Guðnason Já, ég vakna níu um helgar en klukkan átta á virkum...

Rúrik Einar Guðnason Já, ég vakna níu um helgar en klukkan átta á virkum... Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 3860 orð | 6 myndir

Ræstar út rafrennireiðar

Á undanförnum misserum hefur hljóðlát breyting orðið á bílaflota landsmanna — hljóðlát að því leyti að háværir (og mengandi) bílar sem knúnir eru sprengihreyfli eru að víkja fyrir lágværum bílum sem knúnir eru rafmagni. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 702 orð | 1 mynd

Siðuð umræða er grundvöllur lýðræðis

Ég tel að það sé mikilvægt verkefni allra okkar sem förum með ábyrgð í samfélaginu að gæta að því að íslensk stjórnmál dragist ekki niður á svipaðar slóðir þar sem skautun og skrímslavæðing er orðin nánast regla í stjórnmálum. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 222 orð | 1 mynd

Spilað á morstæki

Í Hofi á Akureyri verður í dag frumflutt ný sinfónía þar sem morstæki kemur við sögu. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 1665 orð | 3 myndir

Stúdent 65 árum á eftir afa

Tryggvi Ásmundsson læknir og Tryggvi Ásmundur Briem eru báðir stúdentar frá MR þó 65 ár séu á milli útskrifta. Tryggvi eldri hefur aðstoðað nýstúdentinn í námi og gefið honum mörg heillaráð. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 164 orð | 1 mynd

Tal-, hljóm- og söngvaskopmynd

Það var líf og fjör í kvikmyndahúsum Reykjavíkur um þetta leyti fyrir níutíu árum, sumsé 1932. Á þeim árum var forsíða Morgunblaðsins helguð auglýsingum og bíóin voru þar í öndvegi, efst á síðunni. Meira
28. maí 2022 | Sunnudagsblað | 128 orð | 1 mynd

Yngri en börnin hennar

Verðleikar Allar líkur eru á því að sjávarborð jarðar lækki nú verulega, alltént hér á vesturhveli jarðar, en bandaríska fjölskyldudramað This Is Us rann sitt skeið á enda í vikunni. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.