Greinar fimmtudaginn 29. september 2022

Fréttir

29. september 2022 | Innlendar fréttir | 881 orð | 4 myndir

Akureyri tengist fleiri virkjunum

Viðtal Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ný háspennulína frá Kröflu til Akureyrar eykur aðgang Akureyrar að raforku frá virkjunum á Norðausturlandi. Getur það stuðlað að atvinnuþróun, eftir því sem rafmagn er til reiðu á svæðinu. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 116 orð | 1 mynd

Ársfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag

Ársfundur atvinnulífsins, sem haldinn er á vegum Samtaka atvinnulífsins (SA), fer fram í Borgarleikhúsinu í dag kl. 15:00. Fundurinn í ár ber yfirskriftina Fyrirtækin okkar í aðdraganda kjaraviðræðna . Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 199 orð | 3 myndir

Benedikt fundar með Foster

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það hefur ekkert gerst,“ segir Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri, þegar hann er inntur eftir stöðu mála varðandi endurgerð kvikmyndar hans, Kona fer í stríð , í Hollywood. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 730 orð | 3 myndir

Bílatorgið Hlemmur nú bíllaust

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir eru hafnar við að umbreyta nágrenni Hlemmtorgs. Laugavegi hefur verið lokað fyrir bílaumferð á kaflanum frá Hlemmi að Snorrabraut og verður sú lokun til frambúðar. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 145 orð | 1 mynd

Bréf í fiskeldisfyrirtækjum hrundu

Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Norska ríkisstjórnin tilkynnti í gærmorgun áform sín um að leggja 40% auðlindaskatt á sjókvíaeldi í Noregi. Í kjölfarið hrundi sjávarfangsvísitala kauphallarinnar í Osló um 21,27%. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 132 orð | 1 mynd

Byggja meira og brjóta lönd

„Byggjum fleiri íbúðir. Í mínum huga eru þetta lykilorð og stóra verkefnið sem stjórnmálamenn verða að leysa,“ segir Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali hjá Trausta. „Brjóta þarf lönd undir ný hverfi með sterkum innviðum. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 275 orð | 1 mynd

Dísa er seld til Serbíu

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Björgun hefur selt dýpkunarskipið Dísu úr landi. Skipið hefur þjónað hér á landi í rúman áratug, ekki síst Landeyjahöfn, fyrst undir heitinu Skandia en lengst af undir Dísu-nafninu. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 325 orð | 1 mynd

Ein allra besta marengsterta sem bökuð hefur verið

Við erum alltaf að leita að nýjum og spennandi kökuuppskriftum og þreytumst ekki á að prófa eitthvað nýtt. Hér erum við með uppskrift úr smiðju matarbloggarans Berglindar Hreiðars á Gotteri.is sem hún segir að sé klárlega með bestu marengstertum allra tíma. Meira
29. september 2022 | Erlendar fréttir | 352 orð | 1 mynd

Ekki öll kurl komin til grafar

Nú hafa 200 þúsund Rússar flúið heimalandið eftir herkvaðningu Pútíns. Stjórnvöld á Vesturlöndum hafa lýst því yfir að málamyndakosningar á hernumdum svæðum Úkraínu verði ekki viðurkenndar af alþjóðasamfélaginu. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 296 orð | 1 mynd

Eldur logaði á Egilsstöðum

Veronika Steinunn Magnúsdóttir Hólmfríður María Ragnhildardóttir Karítas Ríkharðsdóttir Stórbruni varð á Egilsstöðum í gær eftir að eldur kviknaði í verslunar- og þvottahúsnæði Vasks að Fagradalsbraut. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 86 orð | 1 mynd

Espresso martini með súkkulaðikeim

„Það er gaman að leika sér með mismunandi líkjöra fyrir Espresso Martini-drykk. Hér er ég búin að blanda súkkulaðilíkjör og smá sírópi saman við kaffi og vodka og útkoman er æðisleg! Meira
29. september 2022 | Innlent - greinar | 641 orð | 4 myndir

Fann að það væri eitthvað grimmt á leiðinni

Það er nóg á prjónum stórsveitarinnar Vakar sem gaf út breiðskífuna Vök á dögunum. Sveitin vonast til að geta þreifað fyrir sér á bandarískum markaði á næstunni, en Vök fagnar tíu ára afmæli á næsta ári. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 468 orð | 1 mynd

Fara þangað sem þeir eru velkomnir

Gisli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Það heyrir til undantekninga að lítil og meðalstór fyrirtæki hafi yfir að ráða sérstakri markaðsdeild eða svigrúmi til að verja miklum tíma í markaðsmál. Því þurfa þau oft á utanaðkomandi ráðgjöf að halda, enda er markaðssetning einn mikilvægasti þáttur í rekstri fyrirtækja. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 361 orð | 1 mynd

Farsældarstarfið þarf fé

„Farsældarlögin, sem lúta að velferð barna, unglinga og fjölskyldna, sem sett voru fyrir nokkrum misserum, eru kærkomin. Því miður hafa þó nægir fjármunir ekki fylgt þeim svo öll markmiðin náist í gegn. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 360 orð | 1 mynd

Fuglaflensan drepur skúmana

Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Skúmastofninn hefur orðið fyrir miklu höggi,“ segir dr. Lilja Jóhannesdóttir, vistfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands. „Ég fann fjörutíu dauða skúma á mínum ferðum í sumar allt fram undir lok ágúst, mestmegnis á Breiðamerkursandi og aðeins í Ingólfshöfða. Eins heyrði ég að það hefðu fundist að minnsta kosti þrjátíu dauðir skúmar á Úthéraði.“ Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 864 orð | 2 myndir

Fullt starf ekki endilega svarið

Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Miklar breytingar hafa orðið á verkefnum sveitarfélaga og kröfum sem gerðar eru til kjörinna fulltrúa og starfsmanna á síðustu árum og áratugum. Halldór Halldórsson, fyrrverandi formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að enginn geti sagt annað en að þessu hafi fylgt aukið álag á kjörna fulltrúa. Hann telur að það eigi ekki að leiða sjálfkrafa til fjölgunar fulltrúa. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 376 orð | 1 mynd

Íslenskir ullarsokkar hlýja hermönnum

Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Síðdegis í gær tók forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hús á rúmlega þrjátíu prjónakonum sem hafa undanfarið setið við og prjónað ullarsokka sem sendir verða á vígstöðvar í Úkraínu í lok október. Prjónakonurnar komu saman í félagsmiðstöð eldri borgara í Gjábakka í Kópavogi. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 84 orð | 1 mynd

Jara og Erna Vala koma fram á hádegistónleikum í Fríkirkjunni

Jara Hilmarsdóttir messósópran og Erna Vala Arnardóttir píanóleikari koma fram á hádegistónleikum undir hatti „Á ljúfum nótum“ í Fríkirkjunni við Tjörnina kl. 12. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 126 orð | 1 mynd

Koma þarf böndum á verðbólgudrauginn, auka framboð á íbúðarhúsnæði...

Koma þarf böndum á verðbólgudrauginn, auka framboð á íbúðarhúsnæði, koma með raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum og breyta áherslum í skólastarfi þannig að börnum líði sem best og skólarnir séu góður vinnustaður allra. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 28 orð | 1 mynd

Kristinn Magnússon

Fuglar Fjórir sendlingar þenja vængina er þeir fljúga meðfram ströndinni. Logn var úti, sjórinn stilltur og veðrið því afar hagstætt fyrir fuglana sem þekkjast á sínu kubbslega... Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 474 orð | 2 myndir

Kynferðisbrotamál liggja lengi óhreyfð

Baksvið Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Undanfarin ár og misseri hefur málsmeðferðartími kynferðisbrotamála almennt lengst. Sem dæmi voru nauðgunarmál, sem lauk árið 2021, að jafnaði 180 dögum lengur til meðferðar hjá lögreglu en mál sem lauk árið 2016. Er þar helst um að kenna mikilli manneklu. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 113 orð | 1 mynd

Landbúnaður og fæðuöryggi

„Efnahagsmálin snerta okkur öll og ástandið undanfarin misseri hefur bitið verulega. Há verðbólga til langs tíma er grafalvarleg,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 227 orð | 1 mynd

Liggja jafnvel óhreyfð í ár

Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Mál er varða nauðganir og önnur kynferðisbrot liggja mörg hver lengi óhreyfð, bæði hjá rannsakendum og ákærendum, meðan á málsmeðferð stendur. Ástæðan er helst sögð vera mikil mannekla hjá embættunum. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 67 orð | 1 mynd

Litadýrð strætó og haustsins prýðir höfuðborgina

Í dag er síðasti dagurinn til að berja augum yfirlitssýningu á verkum Guðmundar Guðmundssonar, sem betur er þekktur sem Erró, í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin, sem er undir yfirskriftinni Sprengikraftur mynda , v ar opnuð 9. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 82 orð

Margrét Kristín kosin nýr formaður KÍS

Margrét Kristín Pétursdóttir, forstöðumaður gæðamála hjá Vísi í Grindavík, var kjörin nýr formaður Félags kvenna í sjávarútvegi, KÍS, á aðalfundi félagsins sem fram fór í húsakynnum Háskólans á Akureyri á mánudag. Meira
29. september 2022 | Erlendar fréttir | 89 orð | 1 mynd

Náði landi við Cayo Costa í Flórída í gær

Í gær kl. 15:05 að staðartíma náði fellibylurinn Ian landi nálægt Fort Myers á vesturströnd Flórída, og er það nokkuð sunnar en gert hafði verið ráð fyrir í spám. Fellibylurinn hefur náð fjórða stigs styrkleika. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 160 orð | 1 mynd

Námsstyrkir bjóðist ungu fólki

„Jöfn tækifæri til náms eru afar mikilvæg og þau verða stjórnmálamenn að tryggja,“ segir Andrea Edda Guðlaugsdóttir, formaður nemendafélagsins, Inspector Scholae, við Menntaskólann í Reykjavík. „Námslán geta verið nauðsynleg. Meira
29. september 2022 | Erlendar fréttir | 108 orð | 1 mynd

Níu látnir og 32 særðir í loftárásum

Írönsk yfirvöld voru sökuð um að myrða níu manns og slasa 32 í loftárásum á svæðum Kúrda í Írak í gær. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 288 orð | 1 mynd

Of seint gripið til lokunar vegarins á Fjöllum

„Við hefðum mátt loka leiðinni fyrr,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Meira
29. september 2022 | Erlendar fréttir | 79 orð

Pundið styrktist gegn bandaríkjadal í gær

Breska pundið hækkaði um rúmt 1,05 prósent og stóð gengið í 1,0846 gagnvart bandaríkjadollar eftir að Englandsbanki keypti mikið magn ríkisskuldabréfa til að reyna að koma ró á peningamarkaði. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 417 orð | 1 mynd

Raflínur geta minnkað lífslíkur ýsuseiða

Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Segulsvið raflína í sjó hefur áhrif á áttaskyn ýsuseiða og dregur úr hreyfingu þeirra. Þetta getur um sinn haft áhrif á lífslíkur þeirra. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 59 orð | 1 mynd

Skúmastofninn varð fyrir þungu höggi

„Skúmastofninn hefur orðið fyrir miklu höggi,“ segir dr. Lilja Jóhannesdóttir, vistfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 439 orð | 3 myndir

Snjóblinda og Mýrin tilnefndar

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Íslensku glæpasagnahöfundarnir Arnaldur Indriðason og Ragnar Jónasson eiga tvær af bestu bókum síðustu 50 ára í Frakklandi ef marka má könnun sem hleypt verður af stokkunum þar í landi í dag. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 88 orð | 1 mynd

Sprengingar heyrðust þegar húsið logaði stafna á milli

Altjón varð þegar mikill eldur kom upp í gær í húsnæði Vasks á Egilsstöðum sem hýsir bæði verslun og efnalaug. Mikill eldsmatur var þar inni og lagði svartan reykjarmökk yfir bæinn. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 144 orð | 1 mynd

Styðja vel við skólastarfið

„Mikilvægt er að þau sem völdin hafa vinni að uppbyggingu húsnæðis með það að leiðarljósi að ungt fólk geti eignast þak yfir höfuðið. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 138 orð | 1 mynd

Tíu þingmenn farnir í kynnisför

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, alls 10 þingmenn, heimsækir Ósló og Kaupmannahöfn dagana 27.-30. september til að kynna sér málefni útlendinga og fjölmiðla í Noregi og Danmörku. Að auki eru tveir starfsmenn Alþingis með í för. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 290 orð | 1 mynd

Uppbygging Loos kærð enn á ný

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Uppbygging malasíska athafnamannsins Loos Eng Wah á ferðaþjónustu á Leyni 2 og 3 í Landsveit er enn á ný komin á ís. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 113 orð

Úthluta 650 milljónum til hjúkrunarheimila

Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 650 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 93 orð | 1 mynd

Valhöll alveg „á bjargbrúninni“

Undanfarið hefur verið unnið að því að grafa fyrir grunni fjölbýlishúss á lóð Valhallar við Háaleitisbraut. Úr fjarlægð séð er eins og þetta svipfagra hús, Valhöll, standi á bjargbrún. Hið nýja hús á lóðinni verður um 5. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 139 orð | 1 mynd

Verðbólga og völundarhús

„Verðbólgan æðir áfram og ég borga 100 þúsund krónur af íbúðaláni. Upphæðin hefur hækkað um helming á fáum mánuðum,“ segir Eiður Smári Björnsson sem rekur fyrirtækið EB-flutninga. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 113 orð

Vilja bætta verkferla

Að mati starfshóps ríkissaksóknara um málsmeðferðartíma kynferðisafbrotamála er ýmislegt sem má betur fara í afgreiðslu málanna. Þótt mannekla sé helsta skýringin á því að mál liggi óhreyfð megi einnig bæta verkferla. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 591 orð | 1 mynd

Þörf á nýju átaki um neyðarbirgðir

Starfshópur um neyðarbirgðir birti nýja skýrslu í gær. Þar segir að full þörf sé á að ráðast í nýtt átak til að hvetja Íslendinga til að koma sér upp nokkurra daga birgðum af nauðsynjavörum. Meira
29. september 2022 | Innlendar fréttir | 188 orð | 1 mynd

Ævintýraborg risin á Fleyvangi í Vogabyggð

Unnið hefur verið að því að undanförnu að koma fyrir færanlegum húsum, svokallaðri Ævintýraborg, fyrir leikskóla Vogabyggðar við Naustavog. Hverfið hefur byggst hratt upp síðustu misseri. Þegar það verður fullbyggt verða þar allt að 1.900 íbúðir. Meira

Ritstjórnargreinar

29. september 2022 | Staksteinar | 214 orð | 1 mynd

Hleranir hér og þar

Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður rifjar upp að upp hafi komist um „símhleranamál í Bretlandi 2005-2007. Blaða- og fréttamenn ákveðinna miðla stunduðu símhleranir og ólöglegt niðurhal og birtu af því fréttir einkum í News of the World. Blaðamennirnir sem og forstjóri, ritstjórar o.fl. voru látnir hætta strax og rannsóknin fór af stað. Breskir fjölmiðlar fordæmdu þessa ólöglegu framgöngu kollega sinna innan Murdoch-fjölmiðlasamsteypunnar. Meira
29. september 2022 | Leiðarar | 637 orð

Varasöm þróun launa og gjalda

Laun eru hvergi hærri en hér á sama tíma og gjöld á laun eru orðin sligandi Meira

Menning

29. september 2022 | Myndlist | 149 orð | 1 mynd

Andartak Þóru Bjarkar í Gallerí Göngum

Þóra Björk Schram opnar sýningu á myndverkum sínum í Gallerí Göngum við Háteigskirkju í dag, fimmtudag, kl. 19. Sýninguna kallar hún Andartak . Meira
29. september 2022 | Leiklist | 1556 orð | 4 myndir

„Stórviðburður í íslenskri sviðslistasögu“

Viðtal Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta er stórviðburður í íslenskri sviðslistasögu. Meira
29. september 2022 | Bókmenntir | 88 orð | 1 mynd

Fimm ný Pastel-rit kynnt í Mengi í dag

Útgáfu fimm nýrra verka í Pastel-ritröðinni sem Flóra á Akureyri gefur út verður fagnað í menningarhúsinu Mengi í dag, fimmtudag, kl. 17. Meira
29. september 2022 | Kvikmyndir | 1200 orð | 2 myndir

Hefur þróast í takt við tíðarandann

VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, verður sett í dag í Háskólabíói með sýningu opnunarmyndar og dagskráin vegleg að vanda. Meira
29. september 2022 | Fjölmiðlar | 213 orð | 1 mynd

Hungraður í háttinn eftir pítsugláp

Matreiðsluþættir eru dálítið skrítin hugmynd. Matargerð getur auðvitað verið mikil list og bestu kokkar heims skapandi listamenn. Meira
29. september 2022 | Bókmenntir | 70 orð | 1 mynd

Rætt við Kim Thúy

Kim Thúy, kanadískur rithöfundur af víetnömskum uppruna, kemur fram á höfundarkvöldi Alliance Française í Tryggvagötu 8 klukkan 20.30 í kvöld, fimmtudagskvöld. Meira
29. september 2022 | Bókmenntir | 651 orð | 3 myndir

Spenntir fyrir breytingunni

Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég er mjög spenntur fyrir þessari breytingu og finnst hún afar áhugaverð. Meira
29. september 2022 | Myndlist | 375 orð | 1 mynd

Sýning í Héðni í einn dag

Listin í smiðju Héðins er heiti sýningar sem verður opnuð í Vélsmiðjunni Héðni á Gjáhellu 4 í Hafnarfirði kl. 13 á laugardag. Verður sýningin einungis opin þann eina dag, til kl. 17. Meira
29. september 2022 | Kvikmyndir | 896 orð | 2 myndir

Vera eða ekki Vera

Leikstjórn: Tizza Covi og Rainer Frimmel. Handrit: Tizz Covi. Aðalhlutverk: Vera Gemma, Daniel De Palma, Sebastian Dascalu, Annamaria Ciancamerla og Walter Saabel. Austurríki, 2022. 115 mín. Sýnd á RIFF. Meira
29. september 2022 | Tónlist | 97 orð | 1 mynd

Vorblót og íslensk verk flutt í kvöld

Vorblótið sívinsæla eftir Stravinskíj mun hljóma á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í kvöld. Það verður kraftmikil lokahnykkur á dagskrá tónleikanna en fyrst hljóma verk þriggja íslenskra tónskálda. Meira

Umræðan

29. september 2022 | Pistlar | 420 orð | 1 mynd

Matvælasjóður eykur virði og dýraheilbrigði

Fyrir nokkru síðan staðfesti ég þriðju úthlutun úr Matvælasjóði, að þessu sinni hátt í sjötta hundrað milljónir til hinna ýmsu verkefna. Samtals hafa verið veittir úr sjóðnum 1,6 milljarðar síðan honum var komið á. Meira
29. september 2022 | Aðsent efni | 526 orð | 1 mynd

Mikilvægur málaflokkur

Kristinn Valdimarsson: "Vegna þess að öryggisumhverfi Evrópu er gjörbreytt er eðlilegt að stjórnvöld eyði meiru í málaflokkinn. Landsmenn þurfa að hugsa meira um þessi mál." Meira
29. september 2022 | Velvakandi | 159 orð | 1 mynd

Næturgreiðinn

Við trúum því að hér séu lífskjör jafnari en víðast annars staðar og að við lifum í þjóðfélagi án mikillar stéttaskiptingar. Einhverjir eru þó jafnari en aðrir og fá oft að heyra það óþvegið, sérstaklega á samfélagsmiðlum. Meira
29. september 2022 | Aðsent efni | 532 orð | 1 mynd

Rússar og rauð málning

Jónas Haraldsson: "Ástæða þess að ég greip til þessara róttæku aðgerða var sú ákvörðun stríðsglæpamannsins Pútíns forseta Rússlands að ráðast inn í nágrannaland sitt Úkraínu." Meira
29. september 2022 | Aðsent efni | 461 orð | 1 mynd

Stöðvum háskaakstur á göngu- og hjólastígum

Kjartan Magnússon: "17% þeirra sem slösuðust alvarlega í umferðinni í fyrra voru á rafhlaupahjólum, þótt umferð þeirra væri innan við 1% af allri umferð." Meira

Minningargreinar

29. september 2022 | Minningargreinar | 877 orð | 1 mynd

Guðný Svava Guðjónsdóttir

Guðný Svava Guðjónsdóttir fæddist 1. ágúst 1945 á Strandbergi í Vestmannaeyjum. Hún lést á Vífilsstöðum 19. september 2022. Foreldrar hennar voru Sigurrós Sigurðardóttir, f. 9. nóvember 1913, d. 3. september 2001, og Guðjón Vigfússon, f. 15. Meira  Kaupa minningabók
29. september 2022 | Minningargreinar | 1297 orð | 1 mynd

Hallbera Sigríður Ísleifsdóttir

Hallbera Sigríður Ísleifsdóttir fæddist 13. maí 1934 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, Vestur-Skaftafellssýslu. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ 13. september 2022. Foreldrar hennar voru Ísleifur Erlingsson, f. 6. ágúst 1893, d. 19. Meira  Kaupa minningabók
29. september 2022 | Minningargreinar | 2017 orð | 1 mynd

Hulda Marinósdóttir

Hulda Marinósdóttir fæddist á Steðja, Þelamörk, 19. desember 1924. Hún lést 14. september á endurhæfingardeild Eirar. Foreldrar Huldu voru Jón Marinó Sigtryggsson, trésmiður á Steðja og síðar á Akureyri, f. 13. júní 1896, d. 23. Meira  Kaupa minningabók
29. september 2022 | Minningargreinar | 1732 orð | 1 mynd

Jón Ágúst Ólafsson

Jón Ágúst Ólafsson fæddist á Þórkötlustöðum, austurbæ í Grindavík, 10. ágúst 1925. Hann lést á Landspítalanum 20. september 2022. Foreldrar hans voru Ragnheiður Helga Jónsdóttir frá Ísafirði, f. 22.9. 1884, d. 18.1. Meira  Kaupa minningabók
29. september 2022 | Minningargreinar | 1191 orð | 1 mynd

Ólafur Jón Ólafsson

Ólafur Jón Ólafsson fæddist 31. mars 1981 á Akranesi. Hann lést 15. september 2022. Foreldrar Óla Jóns, eins og hann var ætíð kallaður, eru Ólína Sigþóra Björnsdóttir, f. 19.11. 1959, og Ólafur Ingimar Jónsson, f. 9.8. 1957, d. 3.5. 2021. Meira  Kaupa minningabók
29. september 2022 | Minningargreinar | 7908 orð | 1 mynd

Sigríður Th. Erlendsdóttir

Sigríður Th. Erlendsdóttir fæddist í Reykjavík 16. mars 1930. Hún lést 17. september 2022 á heimili sínu Bergstaðastræti 70. Foreldrar hennar voru Jóhanna Vigdís Sæmundsdóttir, f. 30. nóvember 1899, d. 19. nóvember 1981, og Erlendur Ólafsson, f. 9. Meira  Kaupa minningabók
29. september 2022 | Minningargreinar | 1462 orð | 1 mynd

Sigurlaug Helgadóttir

Sigurlaug Helgadóttir fæddist á Akureyri 3. apríl 1934. Hún andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 23. september 2022. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Pétursdóttir, f. 8. 1. 1900 að Tjörn á Skaga í A-Húnavatnssýslu, d. 5.12. 1989, og Helgi Pálsson, f. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

29. september 2022 | Viðskiptafréttir | 494 orð | 2 myndir

Horfur á minni verðbólgu í lok árs

Dagmál Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Húsnæðismarkaðurinn hér á landi hefur snöggkólnað á síðustu vikum. Þetta staðfestir nýjasta verðbólgumæling Hagstofunnar. Meira
29. september 2022 | Viðskiptafréttir | 105 orð

Minna tap hjá Köru

Tekjur Köru Connect námu í fyrra 107 milljónum króna og jukust um tæpar 36 milljónir króna á milli ára. Rekstrargjöld félagsins námu þó rúmum 125 milljónum króna og jukust um tæpar 48 milljónir króna á milli ára. Meira
29. september 2022 | Viðskiptafréttir | 177 orð | 1 mynd

Sat í stjórn en kom ekki að sinni eigin ráðningu

Alls sóttu 50 manns um starf framkvæmdastjóra nýs dótturfélags Landsnets, sem hefur ekki fengið endanlegt nafn, en félagið hefur það hlutverk að setja á fót og reka heildsölumarkað raforku hér á landi. Meira

Daglegt líf

29. september 2022 | Daglegt líf | 865 orð | 4 myndir

Hrynjandi bæði í ljóði og prjóni

„Nú legg ég á og mæli svo um að bókin nái til allra sem unna goðmagni náttúrunnar, til þeirra sem skynja litatóna lífsins og til þeirra sem þrá að skapa og vilja prjóna sig áfram í lífinu,“ segir Bergrós Kjartansdóttir höfundur Sjalaseiðs. Meira

Fastir þættir

29. september 2022 | Fastir þættir | 170 orð | 1 mynd

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3 Bc5 5. c3 d6 6. 0-0 0-0 7. Rbd2 a6...

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3 Bc5 5. c3 d6 6. 0-0 0-0 7. Rbd2 a6 8. Ba4 Ba7 9. h3 Rh5 10. Rh2 Rg3 11. He1 Dh4 12. d4 Rxd4 13. cxd4 Bxd4 14. Rhf3 Bxf2+ 15. Kxf2 Rxe4+ 16. Kg1 Df2+ 17. Kh1 Bxh3 18. Hg1 Rg3+ 19. Kh2 Be6 20. De1 Dxe1 21. Hxe1 Rf5 22. Meira
29. september 2022 | Árnað heilla | 105 orð | 1 mynd

70 ára

Árni Bjarnason , formaður Félags skipstjórnarmanna, er sjötugur í dag. Árni stundaði sjóinn í 33 ár sem háseti, stýrimaður og skipstjóri. Hann hóf ungur afskipti af kjaramálum skipstjórnarmanna samfara skipstjórnarstörfum. Meira
29. september 2022 | Í dag | 90 orð | 1 mynd

Bandaríkjaforseti grætti Elton John við Hvíta húsið

Joe Biden Bandaríkjaforseti heiðraði breska stórsöngvarann Elton John með hinni virtu Mannúðarorðu (National Humanities Medal) eftir tónleika hans við Hvíta húsið á föstudag. Meira
29. september 2022 | Fastir þættir | 176 orð

Blekkingaleikur. S-Allir Norður &spade;ÁK10 &heart;ÁKD8 ⋄1065...

Blekkingaleikur. S-Allir Norður &spade;ÁK10 &heart;ÁKD8 ⋄1065 &klubs;1092 Vestur Austur &spade;54 &spade;32 &heart;G43 &heart;107652 ⋄K972 ⋄ÁG83 &klubs;KG64 &klubs;87 Suður &spade;DG9876 &heart;9 ⋄D4 &klubs;ÁD53 Suður spilar... Meira
29. september 2022 | Í dag | 42 orð | 3 myndir

Horfurnar betri hér en víðast hvar annars staðar

Íslandsbanki spáir ríflega 7% hagvexti á Íslandi í ár. Verðbólga virðist ætla að hjaðna hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir og bankakerfið er vel undir það búið að takast á við herping í hagkerfinu. Víða í nágrannaríkjunum er staðan ekki eins... Meira
29. september 2022 | Í dag | 60 orð

Málið

Hænsn lítur skemmtilega út en þetta - nsn er ekki sérlega þjált í munni. Það er eins og það liðkist aðeins ef i-i er bætt við: hænsni . Meira
29. september 2022 | Árnað heilla | 969 orð | 4 myndir

Náttúra Íslands er leiðarstefið

Ólafur Örn Haraldsson fæddist 29. september 1947 í Reykjavík. „Þegar ég var þriggja ára fluttu foreldrar mínir að Laugarvatni með okkur fjögur systkinin sem fædd vorum á fjórum árum. Meira
29. september 2022 | Árnað heilla | 109 orð | 1 mynd

Snæbjörn Valur Ólafsson

30 ára Snæbjörn ólst upp í Laugardalnum og býr í London. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði (LL.M) við Duke-háskóla í Bandaríkjunum þar sem hann stundaði nám á skólastyrk. Áður útskrifaðist hann með BA- og mag.jur.-gráður frá lagadeild HÍ. Meira
29. september 2022 | Í dag | 277 orð

Um blóðtappa og gullna hliðið

Árni Sigurðsson skrifar á Boðnarmjöð: „Afar góð vinátta var með þeim Jóni Ingvari og sr. Hjálmari Jónssyni, fyrrv. dómkirkjupresti, og ortu þeir mikið hvor til annars. Líkt og margir muna þá fékk Hjálmar hastarlega fyrir hjartað fyrir nokkrum... Meira

Íþróttir

29. september 2022 | Íþróttir | 257 orð | 1 mynd

6. september árið 2013 varð ákveðinn viðsnúningur hjá íslenska...

6. september árið 2013 varð ákveðinn viðsnúningur hjá íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu í Bern í Sviss. Ég man ágætlega eftir þessum degi, eða meira leiknum sem fór fram það kvöld. Sviss og Ísland áttust við í undankeppni HM 2014. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 1148 orð | 2 myndir

Allir ánægðir með að spila svona marga leiki

Fótboltinn Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Yfirstandandi tímabil hjá karlaliði Víkings úr Reykjavík í knattspyrnu hefur verið einstakt hvað leikjafjölda á einu tímabili varðar. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 157 orð | 1 mynd

Bjarki Már og félagar með fullt hús stiga í Meistaradeildinni

Bjarki Már Elísson átti góðan leik fyrir Veszprém þegar liðið vann þriggja marka sigur gegn Dinamo Búkarest í A-riðli Meistaradeildar karla í handknattleik í Ungverjalandi í gær. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 400 orð | 1 mynd

Eitt mark skildi liðin að

Meistaradeild Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Valur er úr leik í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu kvenna eftir að hafa gert markalaust jafntefli við Slavia Prag í síðari leik liðanna í 2. umferð undankeppninnar í Tékklandi í gær. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 29 orð | 1 mynd

HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Hlíðarendi: Valur...

HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Hlíðarendi: Valur – KA 18 Selfoss: Selfoss – ÍBV 18.45 Kaplakriki: FH – Fram 19.30 Varmá: Afturelding – Grótta 19.30 Skógarsel: ÍR – Hörður 19. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 297 orð | 1 mynd

Keflavík með fullt hús stiga

Keflavík er með fullt hús stiga í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Subway-deildinni, eftir stórsigur gegn Breiðabliki í Smáranum í Kópavogi í 2. umferð deildarinnar í gær. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 144 orð

Meiri liðsauki á Ísafjörð

Harðarmenn frá Ísafirði, sem leika í fyrsta sinn í úrvalsdeild karla í handknattleik í vetur, hafa fengið til liðs við sig tvo brasilíska leikmenn til viðbótar. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 151 orð | 1 mynd

Meistaradeild karla A-RIÐILL: Magdeburg – París SG 22:29 &bull...

Meistaradeild karla A-RIÐILL: Magdeburg – París SG 22:29 • Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 216 orð | 1 mynd

Meistaradeild kvenna 2. umferð, seinni leikir: Slavia Prag – Valur...

Meistaradeild kvenna 2. umferð, seinni leikir: Slavia Prag – Valur 0:0 *Slavia áfram, 1:0 samanlagt. Rosengård – Brann 3:1 • Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård. • Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn með... Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 77 orð | 1 mynd

Subway-deild kvenna Njarðvík – Grindavík 77:61 Breiðablik &ndash...

Subway-deild kvenna Njarðvík – Grindavík 77:61 Breiðablik – Keflavík 58:88 ÍR – Fjölnir 50:58 Haukar – Valur (43:27) *Ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Meira
29. september 2022 | Íþróttir | 163 orð | 1 mynd

Þrjú Íslendingalið tryggðu sér sæti í riðlakeppninni

Þrjú Íslendingalið tryggðu sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu í gær. Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fyrsta mark Juventus strax á 11. mínútu þegar liðið vann 2:0-sigur gegn Köge á Ítalíu í síðari leik liðanna í 2. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.