Tveir heimar Japsy er heilluð af fjöllunum og snjónum á Íslandi þó hún sakni sólarinnar heima í Kerala.
Tveir heimar Japsy er heilluð af fjöllunum og snjónum á Íslandi þó hún sakni sólarinnar heima í Kerala. — Morgunblaðið/Kristinn
Kerala á Indlandi og Seyðisfjörður á Íslandi eru afskaplega ólíkir staðir en Japsy Jacob á heimili á þeim báðum. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti þessa harðákveðnu ungu konu sem syndir óhrædd gegn karlahefðinni í sínu fagi, hinum eldfornu Ayurveda fræðum.

Ég átti mér draum alveg frá því ég var lítil stúlka um að koma til Íslands og ég held að mér hafi verið ætlað að koma hingað,“ segir Japsy K. Jacob en ólíkt því sem hún hefði nokkurn tímann trúað þá leiddu örlögin hana alla leið frá Indlandi til Íslands, landsins í norðrinu sem hún hélt að væri ekki raunverulegt land.

„Þegar ég var átta ára að leika mér heima í Delí fann ég dag einn blaðbút úti á götu. Þetta var bútur af landakorti og þarna blasti Ísland við mér. Ég fór heim með þetta bréfsnifsi með skrýtna landinu og sýndi mömmu, en hún sagði mér að henda því og bætti við að það land væri lítið spennandi sem væri þakið ís. Og hún bætti við að slíkt land væri varla raunverulegt. Ég hlýddi mömmu og henti Íslandinu mínu sem ég hafði fundið svona óvænt, en alla tíð síðan hefur mér fundist þetta framandi land hafa sérstaka merkingu fyrir mig. Núna, eftir að ég er komin hingað, held ég að Guð hafi verið að segja mér með fundi þessa litla pappírsblaðs, að þetta væri landið sem ég ætti eftir að fara til seinna á lífsleiðinni.“

Nuddið leiddi hana til Íslands

Þóra Guðmundsdóttir er örlagavaldur í lífi Japsy en hún er konan sem leiddi hana hingað á hjara veraldar. Fundum þeirra bar saman í Kerala á Indlandi fyrir nokkrum árum þar sem Japsy bjó og starfaði á nuddstofu en hún hefur lært Ayurveda-nudd, sem er eldfornt indverskt nudd.

„Ég ætlaði vart að trúa því þegar mér var sagt að kona frá Íslandi væri að koma í nudd til mín. Það fyrsta sem ég spurði hana var hvort það væri virkilega til land sem væri allt hulið ís. Þóra sagði mér allt um Ísland en hún hefur verið mikið á Indlandi og hún er með indverska verslun á Seyðisfirði og rekur líka gistiheimilið Hafölduna. Hún kom reglulega í nudd til mín eftir þennan fyrsta fund okkar og við urðum góðar vinkonur. Dag einn stakk hún upp á því að ég kæmi til Íslands til að bjóða Íslendingum upp á Ayurveda nudd. Það tók langan tíma að fá öll leyfi en loksins í mars á þessu ári kom ég og settist tímabundið að á Seyðisfirði þar sem ég bý heima hjá Þóru. Ég lít á hana og allt hennar fólk sem hina fjölskylduna mína, enda hafa þau tekið mér opnum örmum. Það hefur haft mikil áhrif á líf mitt að eignast þessa nýju og stóru fjölskyldu hér á Íslandi.“

Á Seyðisfirði er Japsy með sína eigin nuddstofu og til hennar koma ekki aðeins Seyðfirðingar, heldur líka fólk frá Egilsstöðum, Neskaupstað og jafnvel frá Akureyri. Í október fluttist Japsy síðan tímabundið til Reykjavíkur þar sem hún býður upp á hið forna indverska nudd í Baðhúsinu. „Hér í Reykjavík er miklu meiri hraði en á Seyðisfirði en það er ágæt tilbreyting, því stundum finnst mér tíminn standa í stað fyrir austan.“

Braust gegn karlahefðinni

Japsy hefur alla tíð haft mikinn áhuga á jurtum og öllum þeim virku efnum sem þar er að finna og nýtast til lækninga. „Ég lærði Ayurveda-fræðin hjá Joy Thatumkal. Þetta eru elstu lífsvísindi veraldar og þau ganga mikið út á fræði um jurtir og jafnvægi hugar, sálar og líkama. Ég fékk mjög litla hvatningu til þessa náms og reyndar drógu flestir úr mér vegna þess að á Indlandi er hefð fyrir því að nánast eingöngu karlmenn læri og stundi þessi fræði og þetta nudd. En ég var ákveðin og lét ekkert stoppa mig í að taka þetta stóra skref gegn viðteknum gildum og það tók mig sjö ár að ljúka þessu námi. Þá fór ég að vinna á stofunni hjá kennaranum mínum þar sem ég var eingöngu látin nudda konur. En hér á landi nudda ég bæði kynin. Ég lærði ekki einungis að búa til olíu úr jurtum til að nudda með, heldur lærði ég líka að gera úr þeim vökva til inntöku og hreinsunar, því heildarmeðferð Ayurveda-fræðanna felur í sér fimm stig en hér á Íslandi býð ég aðeins upp á fyrsta grunnstigið, sem felst í nuddi með ákveðnum strokum með heitum olíum sem ég bý sjálf til,“ segir Japsy sem ætlar að skreppa til Indlands í janúar og gifta sig.

„Ég verð að gifta mig núna því ég er orðin 25 ára og ef ég bíð lengur þá fæ ég ekki nógu góða menn til að velja úr sem eiginmenn,“ segir Japsy og hlær en hún er kaþólskrar trúar og alveg harðákveðin í að eignast aðeins tvö börn. „Helst vil ég aðeins eignast eitt barn, en það er mikill þrýstingur frá fjölskyldum okkar um að við eignumst að lágmarki tvö börn og ég verð að beygja mig undir það.“

Hélt hún myndi deyja úr kulda

Japsy á aðeins einn bróður en foreldrar hennar eru vel menntaðir, móðir hennar er hjúkrunarkona og faðirinn forstjóri. Hún segir að hjá kynslóð foreldra sinna hafi fjölskyldur verið miklu stærri en hjá hennar kynslóð. „Þegar allir ættingjar mínir koma saman þá erum við 95 talsins og þá gengur mikið á og það er einna líkast því að standa á stórri lestarstöð á háannatíma,“ segir Japsy og skellihlær en hún er sérlega glaðsinna þó hún sé föst fyrir.

Japsy ætlar að koma aftur til Seyðisfjarðar í mars á næsta ári og halda áfram að nudda Austfirðinga en henni finnst sólin ekki skína alveg nógu mikið á Seyðisfirði. „Ég er vön mikilli sól og hita á Indlandi og ég skalf fyrst þegar ég kom til Seyðisfjarðar og hélt að ég myndi kannski bara deyja í þessum kulda. Hér þarf ég að þrábiðja Guð um að sýna mér sól. Ég held svei mér þá að sólin sé hrifnari af Indlandi en Íslandi. Fyrir mig var stórkostlegt að koma hingað því hér er allt svo ólíkt því sem ég þekki heima á Indlandi. Hér eru fjöllin ótrúleg og snjó hafði ég aldrei áður séð með eigin augum. Víðáttan er svo mikil og lítið af trjám en heima í Kerala eru alls staðar tré.“

khk@mbl.is