Upplýst Hálf milljón ljósapera skreyta hús sérvitringsins Dominic Luberto við Arborway í Boston á aðventunni.
Upplýst Hálf milljón ljósapera skreyta hús sérvitringsins Dominic Luberto við Arborway í Boston á aðventunni.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þegar sjúk börn í Boston þurfa að leggjast inn á Childrens hospital þar í borg er ekki víst að ferðin verði þeim að öllu leyti erfið, alla vega ekki á aðventunni.

Þegar sjúk börn í Boston þurfa að leggjast inn á Childrens hospital þar í borg er ekki víst að ferðin verði þeim að öllu leyti erfið, alla vega ekki á aðventunni. Á leiðinni þangað, á áberandi stað við Arborway stendur nefnilega hús eitt eða öllu heldur kastali sem svo sannarlega ætti að lýsa upp skammdegið hjá litlu krílunum sem eiga leið fram hjá. Í húsinu býr maður að Dominic Luberto sem hefur gert það að metnaðarmáli sínu að skreyta húsið sitt með ævintýralegum hætti fyrir jólin. Í ár hefur honum tekist að slá nýtt persónulegt met með því að koma fyrir hálfri milljón ljósapera við höllina sína og eru þær helmingi fleiri en í fyrra.

„Þetta er svona skrýtinn náungi, tónlistarprófessor að ég held, og hann er örugglega í fjórar vikur að skreyta húsið fyrir jólin. Svo er hann alltaf að bæta við lýsinguna,“ segir Einar Örn Sigurdórsson sem var á ferð í Boston fyrr í mánuðinum ásamt konu sinni. Jólahúsið fína fór ekki fram hjá þeim enda rétt hjá heimili mágkonu hans þar sem þau bjuggu.

„Húsið sést langar leiðir því það er svo bjart í kringum það,“ heldur Einar áfram. „Það er við hálfgerða umferðaræð svo þarna er mikið umferðaröngþveiti á kvöldin sem veldur mikilli armæðu og pirringi hjá nágrönnunum í kring. Einhverjir þeirra eru búnir að kæra Dominic til skipulagsyfirvalda út af ljósakórónunni á húsinu. Hún var víst kornið sem fyllti mælinn hjá þeim.“

Bók til styrktar spítalanum

Um er að ræða eitt af dýrari hverfum Boston sem Einar segir geta útskýrt hvers vegna ljósadýrðin er svo mikill þyrnir í augum nágranna Lubertos. „Einhvern veginn virðist það skipta ríkt fólk meira máli en aðra hvernig gatan þeirra lítur út,“ segir hann. „Mér finnst þetta hins vegar fallegt og þá fyrst og fremst út af hugsuninni sem er á bak við þetta hjá kallinum. Dominic gerir þetta nefnilega til að gleðja misjafnlega heilbrigð börn sem eru á leiðinni á Childrens Hospital en kastalinn hans stendur á áberandi stað á leiðinni þangað. Hann er líka búinn að gefa út bók um skrýtinn kall sem býr í kastala og skreytir hann alltaf fyrir jólin. Ágóðinn af henni rennur svo til Childrens Hospital.“

Luberto er ekki af baki dottinn því hann stefnir á að bæta um betur fyrir næsta ár. Markmiðið fyrir jólin 2008 er að setja upp eina milljón ljósapera.