Arnþór Jónsson
Arnþór Jónsson
Eftir Arnþór Jónsson: "Ef ekki væri vegna stuðnings almennings þyrfti að draga umtalsvert úr öllu starfi SÁÁ."

Árleg Álfasala SÁÁ hefst í dag og stendur næstu daga. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert en hún fer nú fram í 27. skipti.

Líkt og undanfarin ár er slagorð Álfasölunnar í ár: „Álfurinn fyrir unga fólkið“. Þannig er undirstrikuð áhersla á meðferðarúrræði samtakanna fyrir ungt fólk og einnig fyrir börn og aðra aðstandendur þeirra sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Frá árinu 2000 hefur SÁÁ rekið unglingadeild á sjúkrahúsinu Vogi en frá því að sjúkrahúsið var byggt hafa yfir 8.000 einstaklingar yngri en 25 ára lagst þar inn.

SÁÁ veitir einnig sálfræðiþjónustu fyrir börn alkóhólista. Um 1.100 börn hafa nýtt þá þjónustu sem er kostuð með tekjum af Álfinum og öðrum styrkjum. Tekjur af Álfasölu standa líka undir þjónustu SÁÁ við aðra aðstandendur en allir aðstandendur fólks í áfengis- og vímuefnavanda getur fengið viðtöl, ráðgjöf og setið á fyrirlestrum og fengið námskeið í fjölskyldumeðferð hjá SÁÁ.

Hundruð manna um land allt starfa við Álfasöluna, bæði einstaklingar en einnig fjölmargir hópar sem nýta sölulaun til að kosta starfsemi á vegum íþróttafélaga og ýmissa samtaka, hver í sinni heimabyggð.

Frá 1990 hefur Álfurinn skilað um 600 milljónum króna sem hafa að öllu leyti runnið inn í heilbrigðisþjónustu SÁÁ við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Þótt stjórnvöld hafa stutt vel við starf samtakanna í gegnum árin er það beinn stuðningur almennings sem hefur gert gæfumuninn. Þjóðin hefur stutt við bakið á SÁÁ og tryggt að samtökin geti veiti vímuefna- og áfengissjúklingum og fjölskyldum þeirra eins góða þjónustu og kostur er.

Ef ekki væri vegna stuðnings almennings þyrfti að draga umtalsvert úr öllu starfi SÁÁ. Við sem störfum fyrir SÁÁ erum þakklát og finnum til auðmýktar vegna alls þess velvilja sem SÁÁ hefur notið og biðjum íslensku þjóðina nú um að standa enn sem fyrr þétt við bak samtakanna. Styðjum SÁÁ – Kaupum Álfinn!

Höfundur er formaður SÁÁ.