Saddam
hótar að
hætta
samstarfi
Bagdad. Reuters.
SÍRENUHLJÓÐ rauf kyrrðina í
Bagdad í Írak í gær er þess var minnst að þá voru sjö ár liðin frá upphafi Persaflóastríðsins, sem lyktaði með því að innrásarher Íraka í Kúveit var gjörsigraður á nokkrum vikum.
Saddam Hússein einræðisherra flutti sjónvarpsávarp og hótaði að slíta öllu samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) og stöðva allt vopnaeftirlit af hálfu stofnunarinnar verði viðskiptabanni á Írak ekki aflétt tafarlaust.
Þolinmæði á þrotum
Beindi hann einnig spjótum sínum að Bandaríkjamönnum, en að sögn Williams Cohen, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, er þolinmæði þeirra gagnvart Írökum á þrotum vegna stöðugra ögrana þeirra í garð SÞ og eftirlitssveita stofnunarinnar, sem hafa það verkefni að leita uppi og eyða gjöreyðingarvopnum Íraka.