Árangurinn fram úr björtustu vonum

Svavar Halldórsson flutti tölu.
Svavar Halldórsson flutti tölu. mbl.is/aðsend ljósmynd

Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda veitti á dögunum 21 veitingastað viðurkenninguna „Icelandic Lamb Award of Excellence. Viðurkenningu hlutu veitinga- og gististaðir fyrir framúrskarandi matreiðslu á íslensku lambakjöti og eftirtektarverð störf við kynningu á íslensku lambakjöti til ferðamanna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þetta er í annað sinn sem viðurkenningar eru veittar samstarfaðilum Icelandic Lamb á sviði veitinga- og gististaða.

Dómnefnd, skipuð þeim Sigurbjörgu Jónasdóttur, útvarpskonu hjá RÚV, Dominique Plédel Jónsson hjá SlowFood Reykjavík og Hafliða Halldórssyni, verkefnastjóra hjá Icelandic Lamb, valdi staðina sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni.

Yfir 90 íslenskir veitingastaðir eru samstarfsaðilar sauðfjárbænda í gegnum verkefnið Icelandic Lamb sem ætlað er að undirstrika sérstöðu íslenskra sauðfjárafurða með tilvísun til uppruna, hreinleika og gæða.

Árangurinn hefur farið fram úr björtustu vonum og sala á lambakjöti aukist verulega hjá veitinga- og gististöðum sem taka þátt í verkefninu.

Staðirnir sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni eru:

  • Bjarteyjarsandur Hvalfirði
  • Eldhúsið Restaurant-Gistihúsið Egilsstöðum
  • Fiskfélagið
  • Fiskmarkaðurinn
  • Fosshótel Jökulsárlón Restaurant
  • Grillið- Hótel Sögu
  • Haust Restaurant – Fosshótel Reykjavík
  • Hótel Anna
  • Hótel Smyrlabjörg
  • Íslenski Barinn
  • Kopar
  • Lamb Inn Eyjafjarðarsveit
  • Matarkjallarinn
  • Múlaberg Bistro
  • Narfeyrarstofa
  • Rústík
  • Salka Húsavík
  • Slippurinn Vestmannaeyjum
  • Sushi Social<
  • Von Mathús Hafnarfirði
  • VOX
mbl.is/aðsend ljósmynd
Boðið var upp á girnilegar veitingar.
Boðið var upp á girnilegar veitingar. mbl.is/aðsend ljósmynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka