Stóraukið úrval veitingastaða á Keflavíkurflugvelli

Fimm nýir veitingastaðir bætast við veitingaflóru Keflavíkurflugvallar næsta vor sem …
Fimm nýir veitingastaðir bætast við veitingaflóru Keflavíkurflugvallar næsta vor sem mun á efa gleðja alla matarunnendur. Ljósmynd/Haf Studio fyrir Lagardere Travel Retail

Matarunnendur hafa ástæðu til að gleðjast næsta vor þegar fimm nýir veitingastaðir bætast við veitingaflóru Keflavíkurflugvallar. Bæði þekktir og nýir veitingastaðir opna á tveimur svæðum inni á flugvellinum. Á öllum veitingastöðunum verður mikið lagt upp úr hröðum afgreiðslutíma og verður bæði hægt að borða á stöðunum og taka veitingarnar með í umhverfisvænum umbúðum.

Hönnun svæðisins er unnin af HAF Studio, sem hefur skapað …
Hönnun svæðisins er unnin af HAF Studio, sem hefur skapað heildrænt rými sem minnir á útisvæði og stemmningu eins og hún gerist best í miðborg Reykjavíkur. Ljósmynd/Haf Studio fyrir Lagardere Travel Retail

Hönnunin unnin af HAF Studio

Þrír veitingastaðir munu rísa í aðalbyggingu flugvallarins á nýju veitingasvæði til austurs, þar sem hlýleg, notaleg og afslöppuð upplifun verður í fyrirrúmi. Þetta eru staðirnir Yuzu, La Trattoria og Zócalo.

Hönnun svæðisins er unnin af HAF Studio, sem hefur skapað heildrænt rými sem minnir á útisvæði og stemmningu eins og hún gerist best í miðborg Reykjavíkur. Svæðið mun halda vel utan um gesti veitingastaðanna þriggja og mynda eina heild. Til að gefa rýminu sanna götustemmningu verða  íslenskir listamenn fengnir árlega til að hanna nýja veggjakrots-myndskreytingu (graffiti) á svæðinu. Einnig verður í boði fyrir listræna krakka að teikna eigið listaverk á stafrænan veggjakrotsvegg til að stytta biðina á vellinum.

Hlýleg miðbæjarstemning á flugvellinum

Mikil fjölbreytni verður í mat og drykk og framboðið ólíkt á milli veitingastaðanna þriggja til að koma til móts við þarfir og óskir sem flestra gesta. Hamborgarastaðurinn Yuzu er vel þekktur meðal matgæðinga og hefur staðurinn margoft hlotið verðlaun fyrir hamborgarana sína. Á Yuzu verður boðið upp á vinsælustu réttina af matseðli þeirra, auk morgunverðar sem verður nýjung á seðlinum og sérstaklega þróað fyrir staðinn þeirra á flugvellinum. Framboðið á Yuzu er undir áhrifum af austurlenskri matargerð og þróað af stjörnukokkinum Hauki Má Haukssyni (Haukur chef), sem er jafnframt einn af eigendum staðarins. ti, þar sem áhersla er lögð á hágæða hráefni og einfaldleika. Staðurinn opnaði fyrst í mathöllinni í Hafnartorgi  og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Hrefna Sætran, einn af okkar þekktustu kokkum, og Ágúst Reynisson veitingamaður, eiga heiðurinn að matseðlinum á La Trattoria. Sérstök viðbót á nýja matseðlinum á flugvellinum verða ljúffengar pitsur fyrir gesti.

Zócalo er mexíkósk skyndibitakeðja í eigu Einars Arnar Einarssonar, annars stofnandi Serrano á Íslandi. Fyrsti Zócalo staðurinn var opnaður í Svíþjóð árið 2015, en í dag eru þeir orðnir sextán talsins í þremur löndum. Á Zócalo verður boðið upp á ferskan og hollan mexíkóskan mat sem hentar ólíkum þörfum á öllum tímum dagsins. 

Fleiri staðir í suðurbyggingu

Veitingaframboðið á 1. hæð í suðurbyggingu flugvallarins er sérsniðið að erlendum tengi- og brottfararfarþegum sem eru flestir á leið til Bandaríkjanna eða Bretlands. Úrvalið endurspeglar þarfir þeirra og er áhersla lögð á einfaldan mat sem farþegar þekkja en með íslensku ívafi í hráefni og hönnun.

Þar opnar nýr íslenskur veitingastaður, Keflavík Diner, og veitingastaðurinn Sbarro sem er mörgum góðkunnur. Nýi staðurinn Keflavík Diner sækir innblástur sinn í sögu svæðisins og er með skírskotun til tímans þegar ameríski herinn var í Keflavík á árunum 1951-2006. Í boði verður fjölbreyttur matseðill með áherslu á ameríska matargerð í bland við íslenska rétti. 

Isavia opnaði útboð á þessum tveimur svæðum á vordögum. Tveir aðilar uppfylltu hæfiskröfur útboðsins og skiluðu inn fullgildum tilboðum. Matsferli tilboðanna fól m.a. í sér að meta veitingaframboð, ferskleika veitinga, verðlagningu og þjónustu, auk hönnunar staðanna og sjálfbærni. Lagardere Travel Retail reyndist hlutskarpast í útboðinu en fyrirtækið er þegar í rekstri á Keflavíkurflugvelli.

Zócalo er mexíkósk skyndibitakeðja í eigu Einars Arnar Einarssonar, annars …
Zócalo er mexíkósk skyndibitakeðja í eigu Einars Arnar Einarssonar, annars stofnandi Serrano á Íslandi. Ljósmynd/Haf Studio fyrir Lagardere Travel Retail
Ljósmynd/Haf Studio fyrir Lagardere Travel Retail
Hamborgarastaðurinn Yuzu er vel þekktur meðal matgæðinga og hefur staðurinn …
Hamborgarastaðurinn Yuzu er vel þekktur meðal matgæðinga og hefur staðurinn margoft hlotið verðlaun fyrir hamborgarana sína. Ljósmynd/Haf Studio fyrir Lagardere Travel Retail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert