Mikið um dýrðir á Telebar á lokakvöldi Negroni hátíðarinnar

Þeir Teitur Riddermann, Pétur frá OTO vinningshafi fyrir óáfenga Negroninin …
Þeir Teitur Riddermann, Pétur frá OTO vinningshafi fyrir óáfenga Negroninin , Benjamín Reynir stjórnarmeðlimur Barþjónaklúbssins voru glaðbeittir í fögnuðinum. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir

Lokahátíð Negroni vikunnar, alþjóðlegu góðgerðarvikunnar, var haldin með pomp og prakt á hinum glæsilega Telebar á nýja Iceland Parliament hótelinu við Austurvöll þar sem íslensk nútímalist er í hávegum höfð. Mikið var um dýrðir og rauði liturinn var í forgrunni þar sem Negroni kokteillinn fékk að baða sig í sviðljósinu.

Bestu Negroni kokteilarnir vikunnar kunngerðir

Negroni seðlarnir á þeim veitingastöðum sem tóku þátt í Negroni hátíðinni voru mjög spennandi og voru ótrúlega margar skemmtilegar útfærslur af Negroni kynntar til leiks. Barþjónaklúbburinn gekk á milli bara veitingastaða og valdi besta Negroni kokteilinn, besta ginið til að nota í Negroni og besta óáfenga Negroni kokteilinn. Úrslitin voru kunngjörð á Telebar við mikinn fögnuð viðstaddra en eftirtaldir veitingastaðir/barir urðu hlutskarpastir:

  • Besta gin í Negroni 2023 er Angelica Gin frá 64° Reykjavík Distillery.
  • Besti óáfengi Negroni er á OTO.
  • Besti Negroni 2023 er á Skál.

Ljónshjarta hlaut styrkinn í ár

Að þessu sinni voru það samtökin Ljónshjarta sem hlutu styrki sem safnaðist í góðgerðarvikunni en Ljónshjarta eru samtök til stuðnings yngra fólki sem misst hefur maka og börn þeirra. Það söfnuðust alls 476.036,-  í heildina og rennur öll upphæðin óskert til samtakanna.

Klakavinnslan þakklát öllum samstarfsfólki og velgjörðaraðilum

Klakavinnslan hélt utan um góðgerðarvikuna og forsvarsmaður hennar Fannar Alexander Arason var afar þakklátur með alla þá aðila sem tóku þátt á einn eða annan hátt. „Sérstakar þakkir til Hákons Freys Hovdenak hjá Hovdenak Distillery og Birgis Má Sigurðarsonar hjá Marberg. Fannar Logi Jónsson og Sóley Kristjánsdóttir hjá Ölgerðinni, Valgarður Finnbogason hjá Drykkur, Ivan Svanur Corvasce hjá Spritz og Reykjavík Cocktails sömuleiðis fyrir þeirra framlag. Katrínu Sólveig Sigmarsdóttir hjá Ljónshjartanu fyrir að leyfa okkur að taka þátt í söfnun fyrir samtökin. Ástríði Kristínu Ómarsdóttur á K.E.X Hostel og Sólveigu Jóhönnu Jónsdóttur á Parliment Hotel fyrir gefa okkur tækifæri að halda opnunarkvöldið og lokahátíðina hjá þeim. Teiti Ridderman Schiöth forseta Barþjónaklúbbsins og meðlimum hans fyrir þeirra framlag. Magnúsi Ólafssyni hjá Margt Smátt og öllum hjá Herrafata Verzlun Kormáks og Skjaldar síðast en ekki síst Huld Haraldsdóttir fyrir ómetanlegt stuðning í gegnum allt,“ segir Fannar Alexander Arason.

Nýr bar við Austurvöll

Fyrir áhugasama þá er Telebar nýr bar á besta stað við Austurvöll við hlið veitingastaðarins Hjá Jóni og hefur hlotið verðskuldaða athygli gesta fyrir umgjörð og þjónustulund. Telebar er opinn fyrir gesti og gangandi og við bjóðum upp á fallega, ljúffenga kokteila, úrval vína og barseðil. Barþjónarnir eru með Hamingjustund alla daga og jass á fimmtudögum frá 20.00 til 22.00 ásamt kokteilstund.

Teitur Riddermann, Hrafnkell Ingi frá SKÁL vinninhafi fyrir besta Negroni, …
Teitur Riddermann, Hrafnkell Ingi frá SKÁL vinninhafi fyrir besta Negroni, Benjamín Reynir sælir með niðurstöðuna. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Anastasia frá Ölgerðinni og vinkona hennar nutu veiga kvöldsins.
Anastasia frá Ölgerðinni og vinkona hennar nutu veiga kvöldsins. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Klajdo barþjónn Telebar kann listina vel að blanda að góða …
Klajdo barþjónn Telebar kann listina vel að blanda að góða kokteila. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Wiktor barþjónn Telebar tekur á móti gestum og gangandi.
Wiktor barþjónn Telebar tekur á móti gestum og gangandi. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Teitur Ridderman forseti barþjónaklúbbs íslands og Elna Tómasdóttir stjórnarmeðlimur barþjónaklúbbsins …
Teitur Ridderman forseti barþjónaklúbbs íslands og Elna Tómasdóttir stjórnarmeðlimur barþjónaklúbbsins létt á lund. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir yfirkokkur hjá Berjaya Iceland Hotels og Sólveig …
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir yfirkokkur hjá Berjaya Iceland Hotels og Sólveig Jóhanna Jónsdóttir forstöðumaður hjá Berjaya Iceland Hotels. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Gestir fengu að njóta Negroni í tilefni hátíðarinnar.
Gestir fengu að njóta Negroni í tilefni hátíðarinnar. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Rauði liturinn var allsráðandi á barnum.
Rauði liturinn var allsráðandi á barnum. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Falleg uppstilling á barnum.
Falleg uppstilling á barnum. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Telebar er einstaklega fallega hannaður bar og íslensk nútímalist prýðir …
Telebar er einstaklega fallega hannaður bar og íslensk nútímalist prýðir veggina. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Kokteilarnir skreyttu barborðið.
Kokteilarnir skreyttu barborðið. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
Hvert handbragð skiptir máli.
Hvert handbragð skiptir máli. Ljósmynd/Elva Þrastardóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert