Nýstárleg rúlluterta með fetaosti og hráskinku

Hér er komin ný og spennandi uppskrift að rúllubrauðtertu með …
Hér er komin ný og spennandi uppskrift að rúllubrauðtertu með hráskinku, fetaosti og klettasalati. Ljósmynd/Ingunn Mjöll

Þessa frumlegu og góðu rúllubrauðtertu er Ingunn Mjöll uppskriftahöfundur sem heldur úti uppskriftasíðunni Íslandsmjöll búin að vera með í fórum sínum lengi og gerði loksins eitthvað í því og galdraði fram þessa góðu rúllubrauðtertu. Hún er með fetaosti, hráskinku og klettasalati sem er frábært sambland. Ingunn smakkaði hana fyrst kalda en setti svo hluta af henni inn í ofn daginn eftir og fyrir hennar parta þá kunni hún betur við hana heita. Hver og einn getur valið hvort hann vill gera.

Rúllutertubrauð með hráskinku, fetaosti og klettasalati

  • 200 g mjúkur rjómaostur eða annar rjómaostur eftir smekk
  • 1 dós sýrður rjómi (250 g)
  • ½ - 1 dós/krukka fetaostur
  • Rjómi til að þynna með, eftir smekk
  • 1 pk af klettasalati, grófsaxað
  • 1-2 bréf hráskinka
  • Salt og svartur pipar eftir smekk
  • Paprika til skrauts ef vill

Aðferð:

  1. Blandið rjómaosti, sýrðum rjóma og fetaosti saman og þynnið með rjómanum.
  2. Smakkið til með salti og pipar.
  3. Smyrjið blöndunni á rúllutertubrauðið, en skilið smá eftir til að nota til skreytingar.
  4. Það má alveg vera meira af klettasalatinu en Ingunn notaði það sem hún átti til.
  5. Grófsaxið klettasalatið og dreifið um helminginn af því yfir kremið.
  6. Leggið síðan hráskinkusneiðarnar yfir kremið og rúllið upp.
  7. Skreytið svo með kreminu og klettasalati og smá papriku ef vill.
  8. Berið brauðtertuna fram kalda og njótið eða hitið í stutta stund í ofni og berið fram heita.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert