Fjölmenni í opnunarteiti Loksins og Bakað á Keflavíkurflugvelli

Vel var mætt í opnunarhófið og vel var tekið á …
Vel var mætt í opnunarhófið og vel var tekið á móti gestum með ljúfum tónum og kræsingum. Samsett mynd

Veitingastaðirnir Loksins Café & Bar og Bakað opnuðu nýlega veitingastaði á Keflavíkurflugvelli (KEF). Af því tilefni var öllu tjaldað til og boðið í teiti þar sem léttar veigar voru í boði fyrir góðan hóp gesta. Greinilegt var af andrúmsloftinu að vorið er loksins komið og það var létt yfir gestum, sem skemmtu sér vel og fögnuðu saman nýjungum af ýmsu tagi.

Loksins Café & Bar opnaði nýverið í stærri stað í suðurbyggingu flugvallarins. Til viðbótar við gott úrval drykkja býður Loksins Café & Bar upp á fjölbreyttan matseðil með nýbökuðu handgerðu bakkelsi, morgunverðarskálum, salötum, fersku ciabatta og girnilegum heitum réttum.

Hefur opnað á tveimur stöðum

Bakað handverksbakarí hefur opnað á tveimur stöðum í KEF og þar sér Gústi bakari um vöruúrvalið. Á Bakað er meðal annars boðið upp á samlokur, pizzur, heilsusamlega safa, salöt, gómsætt bakkelsi og rjúkandi heitt gæðakaffi frá Te & kaffi.

„Við erum stöðugt að betrumbæta upplifun gesta flugvallarins, meðal annars með því að bæta við og uppfæra veitingastaði á vellinum. Loksins og Bakað hafa svo sannarlega slegið í gegn meðal gesta og það var ánægjulegt að fá að fagna með þeim. Það er svo margt á dagskrá hjá okkur fyrir næstu mánuði og misseri og við hlökkum til að kynna þær nýjungar fyrir gestum þegar þar að kemur,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga hjá Isavia.

Leggjum áherslu á íslenskt hráefni

„Það er búið að vera mjög gaman að opna aftur Loksins Café & Bar og sjá viðbrögð gesta við nýja matseðlinum. Það er alltaf ákveðin áskorun að hrista upp í einhverju sem fólk hefur þekkt mjög lengi, en nýju réttirnir og úrvalið í mat og drykk eru greinilega að höfða til gesta, eins og við vonuðumst til. Þá tökum við líka eftir því að gestir kunna að meta þá áherslu sem við leggjum á íslenskt hráefni. Síðustu mánuðir hafa verið virkilega skemmtilegir, en núna hefst skemmtunin fyrir alvöru með sumartraffíkinni!“ segir Semjon Karopka, yfirmatreiðslumaður Loksins Café & Bar.

Staðir Loksins og Bakað eru hannaðir af HAF Studio, en könnunarstofan hefur undanfarin ár komið að hönnun fjölmargra veitingastaða og mathalla. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var vel mætt í boðið en DJ Danni Deluxe hélt uppi stemningunni með ljúfum tónum.

Hafsteinn Júlíusson, Karitas Sveinsdóttir, Hafdís Katrín Hlynsdóttir, Markús Stefánsson og …
Hafsteinn Júlíusson, Karitas Sveinsdóttir, Hafdís Katrín Hlynsdóttir, Markús Stefánsson og Bjarki Smárason. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Elsa Heimisdóttir, Sveinn Rafn Eiðsson, Harpa Louise Guðjónsdóttir og Ágúst …
Elsa Heimisdóttir, Sveinn Rafn Eiðsson, Harpa Louise Guðjónsdóttir og Ágúst Guðbjartsson. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Holger Gísli Gíslason og Guðmundur Eggert Stephensen.
Holger Gísli Gíslason og Guðmundur Eggert Stephensen. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Sveinn Rafn Eiðsson.
Sveinn Rafn Eiðsson. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Ari Hermannsson, Kristín Kristinsdótttir, Ágúst Einþórsson, Markús Stefánsson, Hafdís Katrín …
Ari Hermannsson, Kristín Kristinsdótttir, Ágúst Einþórsson, Markús Stefánsson, Hafdís Katrín Hlynsdóttir og Bjarki Smárason. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Hugleikur Dagsson, Svanhvít Leifsdóttir og Rakel Sævarsdóttir.
Hugleikur Dagsson, Svanhvít Leifsdóttir og Rakel Sævarsdóttir. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Sigríður Maggý Árnadóttir og Elsa Heimisdóttir.
Sigríður Maggý Árnadóttir og Elsa Heimisdóttir. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Berglind Snæland, Rósella B. Pétursdóttir, Birta Aradóttir og Geir Ulrich …
Berglind Snæland, Rósella B. Pétursdóttir, Birta Aradóttir og Geir Ulrich Skaftason. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Semjon Karopka og Ágúst Einþórsson.
Semjon Karopka og Ágúst Einþórsson. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Mikið fjölmenni mætti í opnarhófið.
Mikið fjölmenni mætti í opnarhófið. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Bakað og Loksins í KEF.
Bakað og Loksins í KEF. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Hugleikur Dagsson.
Hugleikur Dagsson. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Garðar Svansson, Sveinn Rafn Eiðsson og Hafsteinn Júlíusson.
Garðar Svansson, Sveinn Rafn Eiðsson og Hafsteinn Júlíusson. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Dj Danni Deluxe sá um að halda stemningunnu á lofti.
Dj Danni Deluxe sá um að halda stemningunnu á lofti. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Karitas Sveinsdóttir.
Karitas Sveinsdóttir. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Andri Ómarsson, Geir Ulrich Skaftason, Rósella B. Pétursdóttir og Berglind …
Andri Ómarsson, Geir Ulrich Skaftason, Rósella B. Pétursdóttir og Berglind Snæland. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
Boðið var upp á glæsilegar kræsingar.
Boðið var upp á glæsilegar kræsingar. Ljósmynd/Michal Jan Olsen og Eyþór Jónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert