Friðarhlaup endar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Friðarhlaup endar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSHLUTA Alþjóðlega vináttuhlaupsins lauk í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær. Vináttuhlaupið er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem hófst í Lissabon í Portúgal 2. mars síðastliðinn og er tilgangur þess að efla vináttu og skilning sem og umburðarlyndi. Alls verða hlaupnir 40.000 km í 70 löndum í öllum heimsálfum en búist er við að þátttakendur í ár verði vel á aðra milljón. Hlaupið var með kyndilinn hringinn í kringum landið en synt var með hann yfir Eyjafjörð og Hvalfjörð til að stytta leiðina nokkuð. MYNDATEXTI: Markmið friðarhlaupsins er að efla vináttu, skilning og umburðarlyndi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar