Roger Hodgson

Roger Hodgson

Kaupa Í körfu

Roger Hodgson á Broadway, 11. ágúst. Honum til halds og trausts var saxófónleikarinn Aaron Macdonald. KK opnaði tónleikana. ROGER Hodgson er nafn sem er trauðla á hvers manns vörum en fleiri ættu að kannast við Supertramp, hljómsveitina sem hann leiddi á sínum tíma ásamt félaga sínum Rick Davies. Fólk frá þrítugu og yfir er með lagið "The Logical Song" brennimerkt í heila sinn - hvort sem það gerir sér grein fyrir því eður ei - og fullyrða má að vínyleintök af plötunni Breakfast in America lúri í þúsundatali inni á heimilum landsmanna. MYNDATEXTI: Roger Hodgson, fyrrverandi söngvari hljómsveitarinnar Supertramp.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar