Vigfús Sigurgeirsson - Þjóðminjasafnið

Vigfús Sigurgeirsson - Þjóðminjasafnið

Kaupa Í körfu

Viðamikil sýning á verkum Vigfúsar Sigurgeirssonar, ljósmyndara og kvikmyndagerðarmanns, var opnuð í Þjóðminjasafninu á laugardag. Það var við hæfi að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði sýninguna enda var Vigfús ljósmyndari forsetaembættisins í árdaga þess. Á sýningunni má sjá myndir Vigfúsar frá árunum 1928-1958, meðal annars frá ferðum hans með Sveini Björnssyni og Ásgeiri Ásgeirssyni, landslagsmyndir og myndir sem hann tók fyrir heimssýninguna í New York árið 1939. MYNDATEXTI Í fótspot föðurins Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands ásamt Gunnari Geir og Berthu Vigfúsbörnum. Gunnar Geir hefur fetað í fótspor föður síns og fylgt forsetanum eftir á ferðum hans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar