Náttúruvaktin - Landsvirkjun

Þorkell Þorkelsson

Náttúruvaktin - Landsvirkjun

Kaupa Í körfu

Náttúruvaktin mótmælti virkjanaframkvæmdum NÁTTÚRUVAKTIN, baráttuhópur fyrir náttúruvernd og virkara lýðræði, kom saman fyrir utan stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg í gærdag og dró fjóra fána í hálfa stöng til að mótmæla virkjanaframkvæmdum stjórnvalda og Landsvirkjunar við Kárahnjúka. Þá tilnefndu viðstaddir daginn 19. júlí sérstakan hálendisdag en þann dag fyrir tveimur árum undirrituðu Alcoa og stjórnvöld viljafirlýsingu um byggingu álvers í Reyðarfirði. MYNDATEXTI: Á bilinu 20-30 manns komu saman framan við stjórnstöð Landsvirkjunar til að mótmæla virkjunarframkvæmdum stjórnvalda við Kárahnjúka. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, mætti á staðinn og hlýddi á erindi gesta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar