Haukar - ÍBV 35:25

Sverrir Vilhelmsson

Haukar - ÍBV 35:25

Kaupa Í körfu

TOPPSLAGUR 1. deildar kvenna í handknattleik á milli Hauka og ÍBV, reyndist leikur kattarins að músinni, þar sem Haukar voru í hlutverki kattarins. Haukar hreinlega burstuðu Eyjaliðið í þessum leik með tíu marka mun 35:25 og hafa komið sér þægilega fyrir í toppsæti deildarinnar með fullt hús stiga. Helga Torfadóttir markvörður Hauka fór hamförum í leiknum og varði hvorki meira né minna en 29 skot. MYNDATEXTI: Hanna Guðrún Stefánsdóttir var markahæst í liði Hauka gegn ÍBV í gær, skoraði níu mörk. Hér er eitt þeirra í uppsiglingu án þess að Zsofia Pasztor, leikmaður ÍBV, komi vörnum við.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar