Völu Flosadóttur fagnað á Ólympíuleikum

Finnur Pétursson

Völu Flosadóttur fagnað á Ólympíuleikum

Kaupa Í körfu

Bílddælingar fylgdust spenntir með stangarstökkskeppninni í gærmorgun og samgleðjast Völu "Maður situr með tárin í augunum" Það féllu mörg gleðitárin á Bíldudal, hinni gömlu heimabyggð Völu Flosadóttur, þegar hún steig á verðlaunapallinn á Ólympíuleikunum í Sydney í gær. Margir fylgdust með keppninni í Sjónvarpinu og rifjuðu upp kynni sín af afrekskonunni. Og það var flaggað til heiðurs Völu eins og svo oft áður þegar hún hefur unnið afrek í stangarstökkinu. MYNDATEXTI: Mikil stemmning var á heimili Védísar Thoroddsen og Gunnars Karls Garðarssonar í Lönguhlíð 6 þegar stangarstökkskeppnin stóð yfir og lengi á eftir. Vigdís og Gunnar Karl sitja við sjónvarpið og heldur Gunnar á dóttursyni sínum og nafna, Gunnari Karli Bjarkasyni. Til hægri á myndinni sitja dóttir þeirra, Arna Mjöll Karlsdóttir, og maður hennar, Árni Friðjón Árnason, og heldur Árni Friðjón á dóttur þeirra Örnu Mjallar, Guðrúnu Höllu Friðjónsdóttur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar