Tóbaksvél í 10-11 á Engihjalla

Heiðar Kristjánsson

Tóbaksvél í 10-11 á Engihjalla

Kaupa Í körfu

ÞEIR sem keypt hafa tóbak í verslun 10-11 í Engihjalla í Kópavogi undanfarna mánuði hafa sótt tóbakið í sérstaka tóbaksvél (vensafe) við hliðina á afgreiðsluborði verslunarinnar. Byrjað er á því að kaupa strimil hjá afgreiðslufólki og er strimlinum síðan rennt í gegnum vélina sem afgreiðir tóbakið. Að sögn Sigurðar Karlssonar, rekstrarstjóra hjá 10-11, er um tilraun að ræða í samvinnu við EJS. Hann segir að þetta fyrirkomulag sé algengt á Norðurlöndum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar