Byggt í Fosslandi á Selfossi

Byggt í Fosslandi á Selfossi

Kaupa Í körfu

Uppbygging í Fosslandi á Selfossi Gera má ráð fyrir að hörðustu húsbyggjendurnir í Fosslandi flytji inn í hús sín fyrir jól.......... Miklar framkvæmdir standa yfir í svonefndu Fosslandi norðan Eyravegar á Selfossi. Þar er í uppbyggingu fyrsti áfangi íbúðabyggðar þar sem búið er að taka grunn að 19 íbúðarhúsum og raðhúsum. Þá er þar unnið að gatnagerð og lagningu holræsa. Íbúðabyggðin er skammt frá Eyraveginum en með honum er gert ráð fyrir 11 fyrirtækjalóðum og eru þær allar seldar nema þrjár. Ein þeirra er lóð Húsasmiðjunnar sem hyggst reisa fyrir vorið 2001 rúmlega 4000 fermetra hús yfir starfsemi sína á um 15000 fermetrum. MYNDATEXTI: Frá byggingaframkvæmdum í hinu nýja Fosshverfi á Selfossi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar