Holt

Holt

Kaupa Í körfu

Nýverið opnaði Fasteignasalan Holt í húsnæði að Hlíðasmára 17 í Kópavogi, gegnt Sparisjóði Kópavogs. Húsnæðið er hannað með fasteignaviðskipti í huga, þar sem meðal annars má finna barnaherbergi með bókum, leikföngum og sjónvarpi. Á Holti er boðið upp á alla almenna þjónustu og ráðgjöf sem tengist fasteignakaupum eða sölu, og er fasteignasalan opin daglega frá kl. 9-18 og á laugardögum frá 11-14. Eigendur Holts eru Finnbogi Hilmarsson og Bjarni Sigurðsson. Finnbogi var áður sölustjóri hjá fasteignasölunni Fold. Bjarni, sem er lögfræðingur að mennt, starfaði áður hjá Eignasölunni og á Fold en hefur hin síðustu ár starfað hjá Samvinnusjóði Íslands við eignaumsýslu og fasteignaútlán. Á Holti starfa auk eigendanna tveir sölumenn og ritari.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar