Náttúruverndarþing

Þorkell Þorkelsson

Náttúruverndarþing

Kaupa Í körfu

Fjölmennt við upphaf tveggja daga Náttúruverndarþings í gær Hugmyndir um breytt hlutverk og skipan Náttúruverndarráðs Samskipti stjórnvalda og Náttúruverndarráðs voru meðal þess sem rætt var við upphaf Náttúruverndarþings í gær. Fjögur meginefni eru til umfjöllunar á þinginu; vistkerfi og gróðurvinjar á hálendinu, verð- og verndargildi náttúrunnar, hvað felst í mati á umhverfisáhrifum og hlutverk náttúruverndarráðs og frjálsra félagasamtaka. SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, fráfarandi formaður Náttúruverndarráðs, gerðu stöðu Náttúruverndarráðs að umfjöllunarefni í ávörpum sínum við upphaf Náttúruverndarþings. Hlutverki Náttúruverndarráðs var breytt með lögum um náttúruvernd sem gildi tóku 1. janúar árið 1997. MYNDATEXTI:Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, fráfarandi formaður Náttúruverndarráðs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar