Draumurinn

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Draumurinn

Kaupa Í körfu

Myndafrásögn þar sem ljósmyndarar Morgunblaðsins segja sögur af Íslendingum. Samtímis birtast hliðstæðar sögur í átta af helstu dagblöðum Norðurlanda. Bernskustöðvar eru ævilöng heimkynni manna, óafmáanleg úr huga þeirra. Hugtakið "heima" merkir meðal annars að vera í essinu sínu. "Halur er heima hver," segir í Hávamálum og að bú sé betra þótt lítið sé. Draumurinn er að vera heima hjá sér, því þar er betra að stjórna lífi sínu, betra að leggja rækt við það sem einstaklingurinn vill vera: Frjáls til að nýta og/eða njóta náttúrunnar. Á hinn bóginn getur það kostað baráttu. Myndatexti: Landið - Á snyrtilínunni í frystihúsinu á Flateyri vinna tvær íslenskar konur, önnur heitir Ágústa Guðmundsdóttir og er auk þess formaður verkalýðsfélagsins á staðnum. Hún er fædd og uppalin á Flateyri og þekkir tímana tvenna. Atvinnuástandið í bænum er gott núna, segir hún, en framtíðin er samt óviss. Mjög mikið er um útlendinga í fiskvinnslunni, það mikið að á síðasta ári lét verkalýðsfélagið þýða samningana sína á pólsku. Mesta áhyggjuefnið er að nú stendur til að flytja 9. og 10. bekk yfir til Ísafjarðar og það leggst illa í hana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar