Gosi - Krákan - Refurinn

Kristján Kristjánsson

Gosi - Krákan - Refurinn

Kaupa Í körfu

LEIKLIST - Tíu fingur og Leikfélag Akureyrar Brúðulist GOSI Leikbrúðusýning eftir Helgu Arnalds byggð á sögu C. Collody. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Brúðugerð: Helga Arnalds, Tómas Ponzí, Þórarinn Blöndal og Hallmundur Kristinsson. Leikbrúðustjórnendur: Helga Arnalds, Herdís Jónsdóttir og Þórarinn Blöndal. Lýsing: Ingvar Björnsson. Hljóðmynd og tónlistarstjórn: Kristján Edelstein. Samkomuhúsið á Akureyri 4. mars SÖGUNA af spýtustráknum Gosa þekkja vafalaust mörg íslensk börn í einhverju formi; ef ekki af bók þá kannski sem teiknimynd - en þær hafa nokkrar verið gerðar í gegnum tíðina. Helga Arnalds byggir sýningu sína á sögunni af Gosa, fremur lauslega þó því þótt hún noti hluta af söguþræði þessarar vinsælu barnasögu er það fremur brúðuleikhúsið sjálft, list þess og möguleikar sem þessi sýning snýst um. MYNDATEXTI: Krákan, refurinn og hænan þjarma að Gosa. (Myndvinnsla akureyri. mynd fyrir Hávar Sigurjónsson úr verkinu um Gosa. Krákur, refurinn og hænan þjarma að Gosa.litur. mbl. kristjan.)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar