Gaskútar

Sverrir Vilhelmsson

Gaskútar

Kaupa Í körfu

10,6% hækkun á Propan-gasi Gasfélagið ehf. í Straumsvík hefur hækkað verð á gasi um 10,6% sem meðal annars má rekja til verðhækkunar erlendis. Gasfélagið ehf. er eina fyrirtækið hérlendis sem flytur inn propan-gas. Þá er fyrirtækið að taka í notkun nýja gaskúta sem uppfylla Evrópustaðla. "Hækkunin á propangasi nemur 10,6% hjá Gasfélaginu en síðan verð ég að vísa á smásöluaðila á gasi varðandi hækkunina alla leið til viðskiptavina sem er e.t.v. misjöfn," segir Örn Arnarson, forstöðumaður Gasfélagsins ehf. í Straumsvík þegar hann er inntur eftir verðhækkun á gasi sem m.a. er notað við eldun á gaseldavélum og gasgrillum. MYNDATEXTI: Allra best er að geyma gaskútana við hliðina á grillinu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar