Albright á Þingvöllum

Albright á Þingvöllum

Kaupa Í körfu

Opinberri heimsókn Albright lauk á Þingvöllum. Madeleine K. Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt af landi brott snemma á sunnudagsmorgun en opinberri heimsókn hennar hingað til lands lauk formlega á Þingvöllum á laugardag. Þaðan flaug hún með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Keflavíkur þar sem hún sótti heim bandaríska varnarliðið en að því loknu fundaði hún með íslenskum konum á Hótel Sögu. Á laugardagskvöldið snæddi hún á veitingastaðnum Við Tjörnina en á sunnudagsmorgun hélt hún af landi brott áleiðis til Frakklands.Myndatexti: Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Madeleine K. Albright utanríkisráðherra Bandaríkjanna ganga niður Almannagjá.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar