Geir H. Haarde

Þorkell Þorkelsson

Geir H. Haarde

Kaupa Í körfu

fjármálaráðherra 50 ára. Geir H. Haarde fjármálaráðherra er fimmtugur í dag, 8. apríl, en í gær tóku hann og Inga Jóna Þórðardóttir, kona hans, á móti gestum í tilefni afmælisins. Hópur sjálfstæðismanna úr stjórn hverfafélags flokksins í Nes- og Melahverfi tók daginn snemma í gær og bankaði uppá hjá afmælisbarninu á heimili hans í vesturbænum í Reykjavík til að syngja fyrir hann og færa þeim hjónum konfekt. Var einnig skálað í freyðivíni og blys tendrað. Ekki hafði heimsóknin verið tilkynnt þeim hjónum fyrirfram en ráðherrann hafði á orði að hann hefði verið kominn á fætur og hugað að sundferð þegar félaga hans bar að garði í morgunsárið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar