Öðlingar

Öðlingar

Kaupa Í körfu

Félagar í Öðlingaklúbbnum komu galvaskir saman á laugardaginn á Kringlukránni, rifjuðu upp liðnar stundir og slógu á létta strengi. Margt bar á góma. Pétur Pétursson, fyrrverandi þulur, var sem oft áður hrókur alls fagnaðar og veitti örugga leiðsögn um slóðir minninganna og tónelskir félagar tóku lagið við góðar undirtektir. Dixielandhljómsveit Árna Ísleifssonar steig þá á svið og sýndi að þar á bæ hafa menn engu gleymt er rennt var áreynslulítið í nokkrar af ógleymanlegum perlum djassins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar