Ísland - Ungverjaland 0:2

Ísland - Ungverjaland 0:2

Kaupa Í körfu

Íslenska landsliðið í knattspyrnu féll á lokaprófinu sem það þreytti fyrir átökin í undankeppni Evrópumótsins í næsta mánuði þegar það mætti Ungverjum á Laugardalsvelli á laugardaginn. Myndatexti: Það hitnaði heldur betur í kolunum undir lok leiksins þegar íslenska liðið bjó sig undir að taka hornspyrnu. Gábor Király, markvörður Ungverja, féll skyndilega við og hélt því fram að Lárus Orri Sigurðsson hefði stigið harkalega ofan á fót sinn. Í framhaldinu hljóp mönnum kapp í kinn en finnska dómaranum Jari Maisonlahti tókst af röggsemi að róa leikmenn niður áður en allt fór úr böndunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar