c

Pistlar:

12. nóvember 2011 kl. 23:45

Ágústa Johnson (ajoh.blog.is)

5 skotheld ráð til að forðast jólakílóin

fit.jpgFréttum rignir yfir okkur íslendinga að við fitnum stöðugt og erum nú næst feitasta þjóðin á eftir bandaríkjamönnum.  Algengt er að fólk bæti á sig allt að þrem aukakílóum á ári og má í mörgum tilfellum rekja 50-60% þeirra til óhóflegrar neyslu í desember.  Á 5 ára tímabili geta aukakílóin orðið 10-15 og þá orðin stærri vandi með auknum líkum á ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum.

Jólin koma ár hvert með tilheyrandi veisluhöldum og skal engan undra þótt við bætum á okkur kílóum yfir hátíðarnar.  Jólahlaðborð, smákökubakstur, konfektgerð, laufabrauð og svo auðvitað sjálf jólasteikin, jólaboðin, heimalagaði rjómaísinn, áramótin og allt sem hátíðinni tilheyrir. Jólin hafa þróast í það að verða ein allsherjar neysluveisla.  En lítum á björtu hliðarnar, jólin eru ekki komin og það er enn tími til að fyrirbyggja gremjuleg „jólakíló". 
Hér eru 5 góð ráð til að halda sér í fínu formi í desember.

1. Gættu hófs. 
Skammtastærðirnar skipta mestu máli þegar kemur að þyngdarstjórnun.  Fylgstu með magninu sem fer inn fyrir þínar varir. 
Það er sjálfsagt að smakka  á spennandi kræsingum en mundu eftir þrjá konfekt mola að þeir smakkast allir líkt.  Svo fáðu þér einn mola og njóttu bragðsins og félagsskaparins. 

2. Gefðu þér tíma til að stunda þjálfun í desember. 
Það er alltaf tími fyrir líkamsrækt ef áhuginn er fyrir hendi.  Þó að nóg sé að gera í jólaundirbúningi getum við skipulagt tíma okkar þannig að líka er rúm fyrir þjálfun.  Hluta af hinni dæmigerðu jólaþyngdaraukningu má rekja til of lítillar hreyfingar í desember.   Taktu t.d. styttri æfingar með mun meiri ákefð, þannig eru líkur á að þú fáir jafn mikið út úr 30 mín. æfingu og þinni venjulegu 60 mín æfingu.

3. Borðaðu reglulega
Fyrir jólin eru flestir á þönum meira en venjulega.  Það getur haft afar neikvæð áhrif á neyslumynstur fólks.  Það geta liðið margar klukkustundir á milli máltíða sem oftar en ekki veldur því að borðað er óhóflega síðari hluta dags og fram eftir kvöldi. Sumir sleppa máltíð af ásettu ráði til að „spara sig" áður en þeir fara í jólahlaðborð. Vandinn við það  er að við slíkar aðstæður verður fólk yfirmáta hungrað og þegar það loks kemst að hlaðborðinu halda þeim engin bönd og þeir borða allt of mikið. Betra er að hafa til taks hollt nasl eins og næringarstöng, hnetur, ávexti eða þ.h. til að grípa í þegar annríkið er mikið.

4. Hugsaðu fram á við.
Hvernig var það í fyrra?  Gastu varla rennt upp buxnaklaufinni eftir jólin? Hugsum fram á við, komum í veg fyrir að við vöknum upp við "vondan draum" í janúar þegar við komumst að því að buxnastrengurinn er orðinn óþægilega þröngur.  Þjálfun í 30 mínútur á dag og „allt er best í hófi" eru góðar lífsreglur yfir hátíðarnar og vittu til ef þú nýtur ekki ávinnings þeirra strax í desember þá er öruggt að þú nýtur þeirra í janúar.

christmas_kids225.jpg5. Breyttu áherslum
Spáðu í það hvort þú getir ekki notið hátíðarinnar jafn vel og áður þó að þú bakir færri smákökusortir, setjir minna á diskinn þinn, borðir lítið af gotteríi og eftirréttum og leggir meiri áherslu á að njóta samverunnar við fjölskyldu og vini og finna hátíðleikann í gegnum aðra hluti en veislumat og kræsingar.   Hátíðlegir jólaviðburðir án matar s.s. jólatónleikar, jólaföndur o.fl. geta komið í staðinn fyrir konfektgerð og kökubakstur.   Hafðu jólin þín í ár að hátíð ljóss og friðar en ekki neysluhátíð  fyrir allan peninginn.   Þú velur og þú uppskerð samkvæmt því.

Ef þú ert staðráðin í því að sitja ekki uppi með óvelkomin „jólakíló" í ár hvet ég þig til að kynna þér  „Jólakíló" nei takk