Arsenal nálgast Evrópusæti

Alexandre Lacazette fagnar marki sínu gegn Southampton.
Alexandre Lacazette fagnar marki sínu gegn Southampton. AFP

Arsenal kom til baka eftir að hafa lent undir þegar liðið heimsótti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á St. Mary's-völlinn í Southampton í kvöld.

Stuart Armstrong kom Southampton yfir strax á 3. mínútu en Nicolas Pépé jafnaði metin fyrir Arsenal fimm mínútum síðar. 

Bukayo Saka bætti við öðru marki Arsenal á 39. mínútu áður en Alexandre Lacazette innsiglaði sigur Lundúnaliðsins með marki á 72. mínútu.

Þetta var fjórði sigurleikur Arsenal í síðustu fimm deildarleikjum sínum en liðið er með 30 stig í áttunda sæti deildarinnar, 4 stigum frá Evrópudeildarsæti.

Southampton hefur fatast flugið í undanförnum leikjum en liðið er með 29 stig í ellefta sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert