Rafíþróttasamtök Íslands, einnig þekkt sem RÍSÍ, hafa bætt við sig fræðsluefni fyrir foreldra á vefsíðu sinni með nýrri grein sem ber heitið Nálgun foreldra við rafíþróttir.
Í greininni er farið yfir hvað felst í rafíþróttum fyrir þá foreldra sem velta hugtakinu fyrir sér ásamt því að fjallað er um hvað foreldrar geta gert til að taka þátt í þessu áhugamáli með börnum sínum og styðja þau.
Greinin gæti þótt gott lesefni fyrir alla foreldra sem eiga börn sem spila tölvuleiki. Hægt er að nálgast greinina á vefsíðu RÍSÍ: