Arcane fær góða dóma

Skjáskot úr stiklu úr þáttaröðinni Arcane.
Skjáskot úr stiklu úr þáttaröðinni Arcane. Skjáskot/IMDB/Arcane

Teiknimyndaþáttaröðin Arcane fór í loftið síðastliðinn laugardag á Netflix en hún markar upphaf tölvuleiksins League of Legends á hvíta tjaldinu.

Hafa aðdáendur og leikmenn League of Legends beðið lengi eftir þáttaröðinni en hana átti fyrst að sýna árið 2020.

Systur á kreik

Arcane fer fram í tveimur mikilvægustu borgum tölvuleiksins, Piltover og Zaun en það eru einskonar systurborgir þar sem hin þróaða borg Piltover liggur ofan á neðanjarðar borginni Zaun.

Hetjurnar úr League of Legends, Jinx og Vi, sem eru jafnframt systur fara með aðalhlutverkin en eins munu fleiri hetjur njóta sviðsljóssins þegar líður á þáttaröðina.

Persónulegri upplifun á tölvuleiknum

Þáttaröðin mun sýna áhorfendum uppruna nokkurra vinsælustu hetja tölvuleiksins og færa þeim persónulegri innsýn inn í hinn ævintýralega heim League of Legends.

Í fyrstu seríunni verða níu þættir og munu þeir birtast vikulega á Netflix. Nú þegar hefur fyrsti þátturinn fengið góða dóma á imdb en þáttaröðin situr með einkunnina 9,4 af 10.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert