Fyrsti sigurinn í höfn

Sigurvegarar Stórmeistarmótsins.
Sigurvegarar Stórmeistarmótsins. Ljósmynd/aðsend

Rafíþróttaliðið Atlantic vann sinn fyrsta sigur í íslensku úrvalsdeildinni í Counter-Strike þegar liðið bar sigur úr býtum gegn Breiðablik í fjórðu umferð deildarinnar.

Leikið var í nýjum leik, Counter-Strike 2 þar sem Breiðablik hóf viðureignina betur en Atlantic-menn komust aftur inn í leikinn og fóru í hálfleikshlé með þriggja lotu forskot, 9:6.

Í seinni hálfleiknum byrjuðu Blikar betur og náðu að jafna leikinn 9:9. Aftur var svo jafnt í stöðunni 11:11 þegar Atlantic-menn settu í fluggírinn og unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu 16:11.

Með sigrinum lyfti Atlantic sér upp úr neðstu sætunum og upp í það áttunda, einu sæti fyrir ofan Breiðablik en liðin eru bæði með einn sigur á tímabilinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert