Brynjar og lærisveinar hans héldu sæti sínu

Brynjar Björn Gunnarsson er þjálfari Örgryte.
Brynjar Björn Gunnarsson er þjálfari Örgryte. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Brynjar Björn Gunnarsson og lærisveinar hans í Örgryte leika í sænsku B-deildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð þrátt fyrir tap gegn Sandviken á heimavelli í síðari leik liðanna í umspili um sæti í deildinni í dag.

Leiknum í dag lauk með 3:2-sigri Sandviken en Örgryte vann fyrri leik liðanna 2:0 og einvígið því samanlagt 4:3.

Örgryte hafnaði í 13. og fjórða neðsta sæti sænsku B-deildarinnar á tímabilinu á meðan Sandviken hafnaði í öðru sæti norðurriðils C-deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert