Lionel Messi skoraði tvö og lagði upp þriðja mark Inter Miami í sigri á Nashville í bandarísku MLS deildinni í Miami í nótt. Miami er í efsta sæti austurhluta deildarinnar eftir leiki næturinnar.
Gestirnir frá Nashville komust yfir 0:1 strax á annari mínútu en Messi jafnaði metin í 1:1 eftir sendingu Luis Suarez tíu mínútum síðar. Sergio Busquets kom Miami yfir skömmu fyrir hálfleik eftir undirbúning Messi og Argentínumaðurinn innsiglaði 3:1 sigur heimamanna með vítaspyrnu tíu mínútum fyrir leikslok.
Dagur Dan Þórhallsson spilaði allan leikinn fyrir Orlando City í 2:2 jafntefli gegn Montreal sem fram fór í Kanada og Nökkvi Þeyr Þórisson kom inn á hjá Saint Louis City eftir 73 mínútur í 3:3 jafntefli á útivelli gegn Sporting Kansas City.
Saint Louis er í 8. sæti Vesturdeildar en Orlando í 12. sæti austan megin.