Þórey Edda ráðin verkefnastjóri hjá FRÍ

Þórey Edda Elísdóttir.
Þórey Edda Elísdóttir. Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Þórey Edda Elísdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ). Hún mun einkum  fást við verkefni sem miða að því að efla útbreiðslu frjálsra íþrótta, s.s. skólaþríþraut, mótaraðir, almenningshlaup o.fl. Hún mun einnig koma að undirbúningi Ólympíuhóps FRÍ fyrir leikana í London á næsta ári.

Þórey Edda er landsmönnum vel kunn fyrir afrek sín í frjálsíþróttum. Hún á Norðurlandametið í stangarstökki. Hún hefur keppt á fimm heimsmeistaramótum og náði 6. sæti á mótinu í Edmonton 2001. Hún hefur einnig keppt á þrennum Ólympíuleikum og varð í 5. sæti á leikunum í Aþenu árið 2004.

Þórey Edda er með B.Sc. gráðu í byggingarverkfræði frá HÍ og er að ljúka mastersgráðu í umhverfisfræðum við HÍ. Þá hefur hún sinnt stangarstökksþjálfun frá 2008. Þórey Edda hefur átt sæti í Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ frá 2010 og ennfremur á hún sæti í stjórn íslenskra Ólympíufara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert