Grét á vellinum (myndband)

Paula Badosa
Paula Badosa ELSA

Spænski tennisleikarinn Paula Badosa gat ekki leynt vonbrigðum sínum þegar hún dró sig úr leik vegna meiðsla gegn Aryna Sabalenka á WTA mótaröðinni í Stuttgart. Badosa náði hæst í 2. sæti heimslistans fyrir tveimur árum síðan en síðan hefur hún glímt við fjöldan allan af meiðslum og situr nú í 93. sæti heimslistans. 

Hin hvítrússneska Sabalenka fann mikið til með Badosa en þær eru góðar vinkonur utan vallar. Þegar þær féllust í faðma við netið í kjölfar þess að leikurinn var stöðvaður brotnaði Badosa niður og hágrét í faðmi mótherja síns.

Sabalenka, sem situr í 2. sæti heimslistans, átti erfitt með að halda aftur tárunum í viðtali í leikslok.

„Ég er gráti næst, ég finn mikið til með henni og mér þykir vænt um hana“ Sagði Sabalenka áður en hún þakkaði áhorfendum fyrir að klára leikinn en honum lauk ekki fyrr en eftir miðnætti í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert