Úrslitaleikir í Tennishöllinni í dag

Rafn Kumar Bonifacius og Anna Soffía Grönholm leika til úrslita
Rafn Kumar Bonifacius og Anna Soffía Grönholm leika til úrslita Ljósmynd/TSÍ

Úrslitaleikir Íslandsmótsins í tennis hefjast klukkan 14:30 í Tennishöllinni í Kópavogi í dag. Egill Sigurðsson úr Víking og Rafn Kumar Bonifacius (HMR) mætast í karlaflokki.

Garima Kalugade (Víking) og Anna Soffía Grönholm úr TFK mætast kvennamegin en þær stöllur sigruðu í tvíliðaleik í gær á gegn Fjölniskonunum Bryndísi Rósu Armesti Nuevo og Eygló Dís Ármannsdóttur.

Anna Soffía á möguleika á þriðja titil sínum í dag en hún vann einnig í tvenndarleik ásamt Davíð Elí Halldórssyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert