Landsliðsmaður til Ísafjarðar

Harðarmenn hafa fengið liðstyrk.
Harðarmenn hafa fengið liðstyrk. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Handknattleiksdeild Harðar hefur gengið frá samningi við tyrkneska leikmanninn Tugberk Catkin. Hann kemur til Harðar frá Sport Toto í heimalandinu.

Catkin er 32 ára gömul vinstri skytta. Hann hefur leikið með tyrkneska landsliðinu og ætti að styrkja lið Harðar.

Hörður féll úr efstu deild á síðustu leiktíð, en Ísafjarðarliðið lék í deild þeirra bestu í fyrsta skipti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert